Alþýðublaðið - 11.03.1942, Síða 3
ll. mara 1942. ALÞVÐUBLAÐID
Arizona sekkur.
Þegar Japanir gerðu árásina á Pearl Harbor, sökktu þeir orustuskipinu Arizona. Hér sést
það sökkva logandi.
Brezkir hermenn bundnir og sið
an drepnir með hyssustingjum.
neðri deild brezka|»ingsins
A NTHONY EDEN, utanríkismálaráðherra Bretlands,
gaf í gær í brezka þinginu skýrslu, sem valdið hef-
ir athygli og skelfingu um héim allan.
Skýrði hann frá því, að Stríðsfangar og borgarar í Hong-
kong hefðu sætt svívirðilegri meðferð af hendi Japana.
Hefðu þeir jafnvel verið pindir til dauða.
Eden sagði, að brezka stjómin hefði í lengstu lög hlíft
sér við að skýra frá þessu, meðfram vegna aðstandenda
þeirra manna, sem í borginni eru. En nú hefði henni bor-
izt svo ótvíræðar og sannar frásagnir manna, sem vora í
Hongkong og sáu sum af illræðisverkum Japana, en hefir
síðar tekizt að strjúka frá borginni.
Eden sagði ennfremur, að þessar svívirðilegu aðfarir
minntu á atbxirðina í Nanking og sýndu hvort tveggja, hví-
líka óvini Bandamenn ættu við að etja og væri því aðeins
eitt takmark, sem keppa bæri að, en það væri að gersigra
þá. Hér fara á eftir nokkur helztu atvikin, sem Eden gat
ujn, að átt hefðu sér stað í Hongkohg.
Boosevelt ð ráð-
síefoo með flotafor-
ingjoi.
ROOSEVELT hélt í gær
ráðstefnu með helztu
.flotaforingjum Bandaríkjanna,
þar á meðal King og Hart, en
sá stðarnefndi hafði áður ræit
mð Knox, flotamálaráðherra.
Ekki er vitað um hvað ráð-
stefnan fjallar.
Hart var eins og kunnugt er,
flotaforingi Bandamanna á
Suðvestur-Kyrrahafi, en sagði
því starfi af sér.
Mikil lof tárðs á Essen
BREZKAR sprengjuflugvél-
ar hafa gert aðra stórá-
rás á iðnaðarborgina Essen í
Ruhrhéraðinu. Miklir éldar
gvsu upp um alla borgina og
stóðu hinir háu reykháfar upp
ÚT eldhafinu. Þegar mennirnir
sem árásina og spjöllin gerðu,
yfirgáfu staðinn, voru eldarnir
svo miklir, að þeir flugmenn,
sem síðar homu, fundu borg-
ina á augábragði.
Árásunum á flugvelli Þjóð-
verja í HoUandi og Belgíu og
iðnaðarver í Norður-Frakk-
landi heldur áfram.
Það er talið víst, að þýzki
iðnaðurinn eigi erfiða tíma í
vændum, þar eð vorsókn Breta
í lofti virðist vera hafin.
. Eins og menn vita, gaf Gör-
ing skipun um að ■ flytj a . f j ölda
; margar verksmiðjur frá Þýzka-
landi austur í þau héruð, sem
brezku. sprengjugflugvélarnar
ekki ná til.
Nú hefir nýtt vandamál kom-
ið í Ijós við þetta:
Það hefir reynzt járnbraut-
arkerfinu ofviða byrði að
flytja hráefni austur þangað.
Hefir því orðið að endur-
bæta járnbrautakerfið og
skurðakerfið, en hvorttveggja
<er miklum erfiðleikum háð.
Bretar og Kínverjar
berjast við Japani
i Mið Bnrnia.
BARDÖGUM heldur á-
fram í Mið-Burma, þótt
höfuðborgin, Rangoon, sé fall-
in í hendur Japönum. Taka
brezkar, indverskar og kín-
vérskar hersveitir þátt í bar-
dögunum, svo og ameríkskir
orustuflugmenn.
Náhari fregnir hafa nú bor-
izt af bardögunum um Rang-
bon. Japönskum hersveitum
hafði tekizt að umkringja borg
ina, bæði með sókn á landi og
með því að setja lið á land
sunnan við borgina. Gerðu
Bretar þegar áhlaup til að
brjótast í gegn, en það tókst
ekki. Var þá gert annað áhlaup
með skriðdrekum og fótgöngu-
liði og tókst hersveitunum að
brjótast í gegnum línur Japana
og sameinast hersveitunum í
miðju landinu. Brezkar flug-
véiar hafa gert árás á Mur-
main, sem er 6 valdi Japana.
* 50 brezkir fangar hafa verið
bundnir á höndum og fótum
og stungnir ,til bana með
byssustingjum.
'\
Allmörgum Kínverjum, lnd-
verjum og Portúgalsmönn-
um hefir verið hrúgað
saman í fangabúðir. Þar
lifa þeir í steinkofum, sem
hvorki eru á gluggar né loft
ræsting.
* Ýmsir sjúkdómar hafa
þjáð fangana, en engin
læknishjálp hefir verið veitt.
Það er ekfci einu sinni leyft
að flytja lík þeirra, sem lát-
ízt hafa, út fyrir fangabúð-
imar. Það verður að grafa
þá í einu horni þeirra.
* Konur hafa verið svívirtar
og drepnar, sama hvaða kyn-
flokki þær tilheyra,
* Heilt kínverskt hverfi í
Hongkong hafa Japanir
gert að vændiskvenna-
hverfi.
* Yfirforingi brezka setuliðs-
ins, sem gafst upp fyrir Jap-
önum í Hongokng, hefir oft
beðið um að fá að tala við
yfirforingja Jaþana um
þessi efni. En hann hefir
stöðugt fengið neitun.
Fæði fanganna er mjög lé-
Vegt: dálítið af hrísgrjónum
og vatni á dag, og einstöku
sinnum ánnað ' til tilbreyt-
ingar.
* Lengi eftir uppgjöf Hong-
kong voru særðir menn og
fállnir fluttir úr hæðunum
utan við. borgina. Japanir
neitúðu að grafa líkin.
* Japanir hefðu ekki viljað
leyfa nefnd frá Alþjóða
Raúða Krossinum að koma
til borgarinnar og skoða á-
standið þar.
* Japanir hefðu óskað þess, að
allir erlendir ræðismenn
kæmú sér í brott úr þeim
löndum, sem þeir hefðu á
valdi sínu.
Eden sagði ennfremur, að
Japanir hefðu tekið 10 946
fanga í Hongkong. Hefðu þar
verið um 5000 Bretar, 2000
Kanadamenn og 3000 Indverj-
ar.
Um líðan fanga á MalakkaJ-
skaga kvaðst hann engar
fréttir hafa haft. En Japanir
héfðu tilkynnt, að þeir hefðu
tekið fasta 77 000 Kínverja „til
alvarlegrar rannsóknar."
n Allir vita, hvað það þýðir
hjá Japöniim, sagði Eden að
lokum.
Hollendiogar verjast
eon ð Java og
Somatra.
AÐ er talið víst, að hol-
lenskar hersveitir verjist
enn í höfuðborg Sumatra,
Medam, sem er norðalega á ey-
unni.
Þá ér talið í London, að á
Java sé enn barizt um miðbik
eyjarinnar. Ekkert samband
hefir verið við eyna, svo að
' (Frh. á 7. síðu.)
Hriðja iandsetning
JapanaáNýju Gumea
JAPANIR hafa sett lið á
land á þriðja stáðnum á
Nýju Guineu. Er það borgin
Prinshaven, en þar er lítill
fltigvöllur, sem getur orðið
Japönum til mikils gagns. —
Prinshaven er á norðaustur-
ströndinni gegnt eyjunni Nýja
Bretlandi.
Er japðnsk innrðs
mögulegj Afriku?
DLAÐAMAÐUR einn frá
Suður-Afríku ræddi í
gærkvöldi um það í brezka út-
varpinu, hvort mögulegt væri,
að Japanir gerðu innrás í Af-
ríku. Benti hann á, að við öllu
mætti búast, þvt að Japanir
hefðu hingað til komið heimin-
um á óvart og myndu eins geta
gert það í framtíðinni.
Aðeins Indlandshafið, sagði
blaðamaðurinn, skilur nú að
Afríku og stöðvar Japana á
Malakkaskaga.
Það eru því alveg eins mögu
leikar á því, að gerð verði árás
eða jafnvel innrás á Afríku, —
eins og hægt var að gera árás-
ina á Pearl Harbor.
í þessu tilliti hefir eyjan
Madagaskar geysimikla þýð-
ingu. Ef Japanir fengju hana
frá Frökkum, sem eiga hana,
hefðu þeir sömu aðstöðu til
innrásar í Suður-Afríku og
þeir hafa nú á Indlandseyjum
til innrásar í Ástralíu.
Miklu líklegra er þó, að Jap
anir sendi stærstu kafbáta sína
upp að austurströndum Afríku
— en meðfram þeir liggur ein
aðalsiglingaleið Bandamanna,
frá Englandi og Ameríku til
Egyptalands, Iran og Indlands.
Má því búast við svipuðum
atvikum undan Afríkuströnd-
um og átt hafa sér stað við
Ameríkustrendur undanfarið.
Wallace Beery
Þið haldið líklega að þessi
mynd sé úr kvikmyndinni
„Baráttan gegn kafbátim-
um,“ sem sýnd var hér
nýlega. En svo er ekki. —
Wallace Beery er nú liðs-
foringi í ameríkska sjó-
Uðinu og virðist una sér
vel í einkennisbúningn-
um, ef dæma má eftir
brosinu á honum.