Alþýðublaðið - 28.07.1942, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 28.07.1942, Blaðsíða 3
S»riðjudagur 28. júlí 1942. ALÞYÐUBLAÐIÐ Rússar viðurkenna fall Rostov og Novocherkassk. Halifax Þjóðvorjar segjast hafa tekið Batiask, sunnan við Donfljót. Skriðdrekaerrnstur háðar vtð RÚSSAR HAFA yfirgefið Rostov og Novocherkassk. Þetta var viðurkennt í tilkynningu þeirra á miðnætti og þess jafnframt getið, að miklum bardögum sé haldið áfram. Þjóðverjar sögðu frá því í gær , að þeir hefðu brotizt yfir Don við ósána og tekið bæinn Bataisk, sem er við Kaukasusjárnbrautina, 15 km. sunnan við fijótið. Þetta hefir þó ekki verið viðurkennt í rússneskum fréttum. Segj- ast Þjóðverjar nú hafa á sínu valdi alla ósa fljótsins Don. Bardagar standa meðfram öllu fljótinu frá Rostov aust- iur að „hnésbótinni“. Við Zymljanskaya eru háðar geysiharð ar skriðdrekaorrustur, og reyna Þjóðverjar þar stöðugt að komist yfir fljóti, en þeir virðist enn ekki hafa tekizt að koma miklu liði yfir á neinum stað. Hins vegar hafa smá- flokkar víða náð fótfestu á syðri bökkum fljótsins og bíða þeir eftir að nýjar hersveitir komi yfir eða séu fluttar til þeirra, með flugvélum. Sumum þessara flokka hefir verið gereytt eða þeim hrundið út í fljótið. Tæpum 100 km. austan við Zymljanskya er borgin Tschiraskja og hafa miklar orrustur verið háðar í nágrenni við hana. í hnésbótinni‘ á Don sækja Þjóðv. stöðugt á og nálgast nú borgina Kalatch, sem er við Don, gegnt Stalin- grad og eru þar aðeins 75 km. milli borganna. Á því svæði <er að vísu fljótið Don og má búast við miklum orrustum við það, því að Rússar munu leggja hina mestu álierslu að að verja Stalingrad. Orrusturnar, sem geisa við Don hafa frekar vaxið í ákafa yfir helgina. Er öllum Ijós hin mikla hætta, sem Rússar eru í og sagði einn fréttaritari Breta í Moskva, að ástandið væri eins slæmt og það getur verið. Þjóð verjar auka stöðugt her sinn á vígstöðvunum og senda sveit eftir sveit af nýliðum í bardag- ana. Þýzki herinn er bersýni- lega alls staðar öflugri og ræður að því er virðist lögum og lofum í loftinu. Bardagarnir um Rostov og í borginni sjálfri stóðu í fjóra daga og höfðu Þjóðverjar þeg- ar þeir hófust gert miklar or- ustur úr lofti á hana. Rússar vörðu hverja götu og hvert hús — eins og þeirra er vani, og án efa hafa þeir eyðilagt flest það, sem kann að verða Þjóðverj- um að gagni. Hins vegar dugði hetjuleg vörn ekki gegn ofur- mætti þýzku sóknarinnar. Þetta er í annað sinn í stríð- Inu, sem Þjóðverjar taka Ro- stov. Þeir náðu borginni á sitt vald í haust, en Rússum tókst innan skamms tíma að ná henni aftur úr höndum þeirra. Borgin er mjög mikilvæg, þar eð hún er svo að segja við hlið Kaukasus. Eru hin auðugu olíu- lönd í hinni mestu hættu, þegar svo er komið, að ein bezta varn árlina þeirra, Donfljót, virðist vera að baki Þjóðverjum. VORONEZH Frá Voronezh eru enn sömu fréttir: Rússár hrekja þýzkar hersveitir vestur á bóginn, en Þjóðverjar hafa gert gagná- hlaup á ýmsum stöðum. Rúss- ar hafa á einum stað sunnan við borgina reynt að brjótast vestur yfir fljótið. Af öðrum hlutum Rússlands vígstöðvanna er nær ekkert að frétta. Einn af herfræðingum brezka útvarpsins varaði í gær við því, að Þjóðverjar kynnu að gera mikla atlögu að höfuð- borginni, meðan Rússum geng- ur svo illa á sunnanverðum vígstöðvunum. FLÓTTAMENN Ein af hörmungum styrjalda 20. aldarinnar hefir nú lagzt þungt á Rússa. Það er flótta- mannastraumurinn. Milli 10 og 20 milljónir manna hafa flúið úr löndum þeim, sem Þjóðverj ar hafa náð á sitt vald undan- íarnar vikur og er hið mesta vandamál, hvernig fara á að því að fæða þá og klæða. Ánnað vandamál steðjar að Rússum. Þeir hafa misst beztu matvælahéruð sín, en eiga að mestu íeyti iðnhéruð eftir. Nú verður það hið erfiðasta verk fyrir þá, að reynast sjálfum sér nógir eins og þeir hafa verið, sérstaklega, þegar á veturinn líður. Fljúgandi virki eru stórar flugvélar, en hinar nýjli sprengjuflugvélar Breta eru um það bil helmingi stærri. Hér birtist mynd af Halifax og má fá nokkra hugmynd um stærð flugvélarinnar með því að bera saman við mennina, sem eru að gera" við hana, Vængja- hafið er 30 m. og lengd 21 m. ftárás á Hamborg. LONDON: —r Öxulríkin halda stöðugt uppi árásum á Malta en orustuflugvélamar, sem eru til varnar, skjóta stöð- ugt fleiri niður. Loftvarna- byssur hafa nýlega skotið niður 12 flugvélar. indstaða Fra&ka vex brððam skrefnn. Frægar JafHasiBar*' maðisr flýr frá Liosa tll EnglaMds. RÆGUR FRANSKUR •*- jafnaðarmaður, André Philip, hefir fiúið frá Lion í Frakklandi til Englands. Hann hefir nú sagt í London, að það sé takmark hinna stríðandi Frakka að hefja að nýju þátt- töku Frakklands í baráttunni fyrir frelsi landsins og annarra lýðraeðislanda. Hann sagði, áð það væru ekki aðeins stríðandi Frakkar í her Auckinltjchs í Egiptalandi, heldur einnig í Frakklandi sjálfu. Philip sagði, að andstaða Frakka væri að aukast til muna, jafnframt því sem þjóðin jafn- aði sig eftir ósigur; sem svik- arar áttu sök á. Hann sagði, að þessir svikarar hefðu að mestu leyti verið stóriðjuhöldar og auðmenn. Mótstaða Frakka, sem brezka útvarpið á frönsku hefir mikil áhrif á, er aðallega í héruðun- um umhverfis Lion, Marseilles, í Bretagne og NorSur-Frakk- landi. Ennfremur eru miklar hreyfingar í París. í hinum hernumda hluta Frakklands eru Þjóðverjar hinn hataði óvinur, en í hinum óhemumda hluta landsins er Vichystjórn- in þkð. Þar hafa menn mist allt traust á Pétain marskálki. Philip sagði frá því, að ástand ið væri mjög lélegt á mörgum stöðum í Frakklandi og matar- skortur allmikill. Mestallar mat vöru(r Frakka eru fluttar til Þýzkalands. Hann sagði sögu fá Lion, sem dæmi um andstöðu Frakka. Dag einn kom til Berlínar sym- fóníuhljómsveitin skyndilega til borgarinnar til þess að halda þar hljómleika. Frakkar höfðu með sér samtök um að sækja ekki hljómleikana. Kom því að- eíns hópiý nazista og fylgi- ^ 175000 eldspre;;gj- iii bastað á borg- ma. Ameríkskar orrnstu« flugvélar í árásum á Frakkland. Aircobra; hin fræga orrustu- flugvél Ameríkumanna, sem þeir án efa nota í Englandi. Brezk áhlaup i í gyptaiandi. Miklar ioftárásir á Tobrnk. HÍRSVErriR AUCKIN- LECHS rufu aftur kyrrð- ina í Egyptalandi í gær. Hófu þær áhlaup á norðurhluta víg- stöðvanna og tókst eftir nokkr- ar orrustur að hrekja hersveit-. ir Öxulríkjanna til baka og ná nokkru landssvæði á sitt vald. Áhlaup þetta var þó bersýni- lega staðbundið og munu orr- ustur ekki hafa brotizt út á öðrum hlutum vígstöðvanna. Áhlaupið hófst um kl. 3 í íyrrinótt og stóðu all harðar or ustur yfir í allan dag og í gær. Brezki flugherinn og amer- ^ksku hersveitirnar, sem eru með honum í Egyptalandi hafa gert miklar og margar árásir á borgir og herstöðvar Þjóð- verja. Tobruk er heimsótt á hverri nóttu og er svo að segja daglega sökkt skipum þar í höfn inni. fiska Lavals til að hlusta á hljómsveitina. Mannfjöldi safn- aðist fyrir utan og söng þjóð- sönginn. Nokkru síðar hélt frönsk hljómsv. hljómleika og var aðeins frönsk hljómlist á söngskránni. 5000 Frakkar hlustuðu á af mikilli hrifningu og ætlaði fagnaðarlátum aldrei að linna. Loks ætlaði þakið að rifna af húsinu, þegar hljóm- sveitin lék þjóðsönginn og hlj ómsveitarstjórinn stjórnaði með litlum frönskum fána. U’ LONDON í gærkveldi. VI ÞAÐ BIL 600 brezkar sprengjUflugvélar gcrðu ♦í fyrrinótt stórkostlega loftárás á Hamborg og var auk mikils fjölda tundursprengja kastað 175 000 eldsprengjum á borg- ina. Harris, foringi sprengju- flugvéladeildar brezka flug- hersins, sagði í boðskap til flug- manna, að árásin hafði verið bezt hepnaða árás stríðsins á Hamborg og hafa þó verið gerð- ar margar og miklar árásir á borgina. í árás þessari var kastað fleiri og stærri sprengjum á borgina en nokkru sinni var kastað á nokkra borg í nokkurri árás á Bretland, meðan orrust- an um Bretland stóð yfir. Skömmu eftir miðnætti kom fyrsta bylgjan af flugvélum yf- ir þessa stærstu hafnarborg Þýzkalands. Eldsprengjum var kastað þúsundum saman og miklir eldar komu upp víða í borginni, en þó aðallega í hafn- arhverfunum og hinum eldri verzlunarhverfum. Áður en hálf stund var liðin var fyrsta bylgjan farin heim á leið og sú önnur komin, enn með þúsundir eldsprengja. Júkust eldarnir þá mjög. Síðar um nóttina komu éim margar bylgjur af stærstu sprengjuflugvélum og köstuðu hú aðallega tundursprengjum, sém gerðu gífurlegan óskunda við höfnina. Þegar síðustu flug vélarnar héldu heim á leið undir dögun, sáu flugmennirnir éld- aná, sem geysuðu í borginni langa leið að. Hambbrg er ein mikilvæg- asta börg Þjóðverja, meðal annars vegna kafbátasmiðastöðv anna, sem þar eru. Munu þær (Frh. á 7. afðo.)

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.