Alþýðublaðið - 22.09.1942, Síða 7
Þriöjudagur 22. september 1942
ALJÞYÐUBLAÐIÐ
7
\ Bærinn í dag. \
Næturlæknir er Kjartan Ólafs-
son, Lækjargötu 6B, sími 2614.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
apóteki.
56 ára
er í dag Sigurður Guðmundsson,
kaupmaður, Hverfisgötu 34, Hafn-
arfirði.
Kirkjuritiff.
6.—7. hefti er nýkoniið út. Efni
ritsins er: Sálmur eftir Valdimar
V. Snævarr skólastjóra. Kvöldsálm
ur bama eftir Einar M. Jónsson.
Striðskirkja Noregs eftir Ásmund
Guðmundsson prófessor. Séra Páll
Hjaltalín Jónsson prófastur efti.r
aéra Svein Víking. Lítil athuga-
semd eftir séra Guðmund Einars-
son. Sálmur eftir Hugrúnu. Játn-
ing mín eftir séra Valgeir Helga-
son. Prestastefnan 1942 eftir séra
Svein Víking. Ávarp og yfirlits-
skýrsla eftir Sigurgeir Sigurðsson
biskup. — Skálholtskirkja eftir
Einar Sigurfinnsson bónda. Á
kristniboðsakrinum eftir séra Jó-
hann Hannesson. Séra Þorstei’.ui
Ástráðsson eftir síra Sigurð Lárus-
son. Faðirinn stendur við stýrið
eftir Snorra Sigfússon skólástjóra.
Guðsþjónustusöngur eftir séra'Sig-
trygg Guðlaugsson. Dr. Kristian
Schilderup eftir síra Sigurbjöm
Á. Gíslason.
Mikil loftárás
á Munchen.
I
London, í gærkvöldi.
ALLMARGAR af 4-hreyfla
flugvélum Breta gerðu að
faranótt suimudags mikla árás
á Mímhen í Bæheimi. Er þetta
iengsta árás, sem gérð hefir ver
íð í þessum mánuði, en alls hafa
verið gerðar árásir á níu borgir
Þýzkalands og yfir 5000 smá-
lestrnn kastað á þær.
í árás þessari og annarri,
sem gerð var á Saar, misstu
Bretar 10 flugvélar. Hafa þeir
alls misst 80 flugvélar í síðustu
viku, en gert margar geysiharð
ar sprengjuárásir á þýzkar iðn-
borgir.
STokbar verkalýðsfélðg
ræða dýrtiðarmálin.
AMIÐVIKUDAGINN var
að tilhlutun Verkamanna
félagsins Dagsbrún haldin ráð-
stefna til þess að ræða, hvern-
ig samtök launþega gætu snú-
izt við hinni auknu dýrtíð.
Ráðstefnuna sátu fulltrúar
eftirtaldra félaga: Verkamanna
félagið Dagsbrún, Iðja, félag
vérksmiðjufólks, Félag bifvéla-
virkja, Rafvirkjafélag Reykja-
víkur, Málarasveinafélag
Reykjavíkur, Múrarafélag
Reykjavíkur, Félag blikksmiða,
Sveinafélag ihúsgagnasmiða, Fé
lag járniðnaðarmanna, Bakara-
sveinafélag íslands, Klæðskera-
félagið „Skjaldborg11, Sveinafé-
lag veggfóðrara, Rakarasveina-
félag Reykjavíkur, Starfs-
stúlknafélagið ,,Sókn“, Þvotta-
kvennafélagið ,,Freyja“, Stétt-
arfélag barnakennara í Reykja-
vík, Samband íslenzkra barna-
kennara, Verkamannafélagið
Hlíf í Hafnarfirði.
Eftirfarandi ályktun var sam
þykkt /af ráðstefnunni:
„Undanfarið hefir verð á
nauðsynjavörum almennings
hækkað svo mjög, að til vand-
ræða horfir fyrir alla launþega.
Mjólkurlítrinn kostar nú kr.
1,50, kindakjöt kr. 7,30—8,80
kílógrammið og búast má við
enn meiri hækkun landbúnað-
arafurða. Allar aðrar nauð-
synjavörur ^hafa stigið stórlega
í verði og braskið með hús og
húsaleigu er komið út fyrir ölþ
skynsamleg takmörk.
Undanfarin ár hafa launþeg-
arnir orðið að þola gengisskerð-
ingu, hækkaða tolla á nauð-
synjavörum, lögbundið kaup-
gjald og vísitölu, sem af öllum
almenningi er álitin allt of lág.
Enda þótt launþegarnir hafi
á þessu ári fengið verulegar
grunnkaupshækkanir og vinna
hafi verið mikil, er nú sVo
komið, að tekjur þeirra
hrökkva varla til brýnustu út-
gjalda heimilanna.
Engu að síður er það ómót-
FUNDUR
Starfsstúlknaféíagið Sókn heldur fund n. k. mið-
vikudag, 23. þ. m., kl. 9 síðdegis að Amtmannsstíg 4.
Til umræðu:
1. Kaupgjaldsmál.
2. Kosning fulltrúa á Alþýðusambandsþing.
Áríðandi að fjölmenna.
STJÓRNIN
SIGLINGAR
milli Bretlands og íslands halda áfram,
eins og að undanförmi. Höfum 3—4
skip í fönim. Tiíkynningar um vðru-
sendingar sendist
Golliford’s Assoeísted Lines, Ltd.
26 LONDON STFtEET,
KLKKtX1 VT OOS
mælanleg staðreynd, að á síð-
ustu árum hafa tiltölulega fáir
menn í landinu auðgazt gífur-
lega og óhóflegur hluti þjóðar-
teknanna lent í þeirra höndum.
Þess vegna hafa þeir getað
keypt upp lönd og lóðir, hús og
aðrar fasteignir. Þannig hefir
kjörorð valdhafanna í stríðs-
byrjun um, að „eitt slcyldi yfir
alla ganga“ í reyndinni orðið að
hreinasta öfugmæli.
Sú hætta vofir nú yfir, að
aukning dýrtíðarinnar verði svo
skefjalaus, að kauphækkanir
launþeganna verði að engu
gerðar og að í landinu skapist
óviðráðanlegt öngþveiti.
Þess vegna álítur ráðstefnan,
að samtök launþeganna í
Reykjavík og um land allt
verði að hefja öflugt samstarf
• til þess að stemma stigu fyrir
þessari hættu.
Ráðstefnan vill því hvetja
stjórnir þeirra launþegasam-
taka, er sótt hafa ráðstefnuna,
til að leggja störf og samþykkt-
ir hennar fyrir félög sín og fá
þau til þess að beita sér fyrir
eftirtöldum ráðstöfunum, er
lagðar verði fyrir næsta al-
þingi:
Stríðsgróðinn verði tekinn í
vörzlur ríkisins og notaður til
eflingar nauðsynlegustu at-
vinnuvegum landsins.
Fast grunnverð landbúnaðar-
afurða verði ákveðið með sam-
komulagi við bændur og hækki
það samkvæmt vísitölu.
Tollar á nauðsynjavörum
verði afnumdir meðan stríðið
varir.
, Kaupgjald launþega verði
samræmt um land allt með
frjálsum samningum við laun-
þegasamtökin og dýrtíðarvísi-
talan endurskoðuð og leiðrétt.
Róttækar ráðstafanir verði
gerðar til þess að taka fyrir
hvers konar brask á eignum
landsmanna.
Ríkið taki í sínar hendur alla
utanríkisverzlun meðan stríðið
stendur yfir og hafi strangt eft-
irlit með vöruverði.
Hafið verði samstarf ríkis-
valdsins og launþegasamtak-
anna um hagnýtingu vinnuafls
þjóðarinnar.
Ráðstefnan ályktar að kjósa
níu manna nefnd, er komi sam-
þykktum ráðstefnunnar áleiðis
til samtaka launþeganna í
Reykjavík og Hafnarfirði og til
Alþýðusambands íslands og
kalli saman aðra ráðstefnu áð-
ur en næsta alþing kemur sam-
an.“
„Sameiginleg ráðstefna stétt-
arfélaga launþega í Reykjavík
og Hafnarfirði álítur það óhjá-
kvæmilega nauðsyn, að grund-
völlur og framkvæmd dýrtíðar-
vísitölunnar verði endurskoðuð
án tafar.
Ráðstefnan skorar á ríkis-
stjórnina að taka nú þegar tvo
fulltrúa launþegasamtakanna
til þátttöku í útreikningi vísi-
tölunnar.
Felur ráðstefnan nefnd
þeirri, er kosin hefir verið, að
tilnefna þessa menn og bera á-
skorunina fram við ríkisstjóm-
ina.M
mm
Jarðarför
PÁLS JÓNSSONAR
/ \
fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudagimi 23. þ. m. og hefst með
húskveðju á heimili hans Karlagötu 5 kl. 1% e. h.
Jarðað verður í gamla kirkjugarðinum.
Aðstandendur.
Innilegt þakklæti færinn við öllum þeim, er sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og jarðarför
SIGURÐAR ÁRNASONAR, kaupmanns,
Hafnarfirði.
Gíslína Gísladóttir og börn.
Gapfræðaskóli Reykjvíkiiiga
verður settur miðvikudaginn 23. þ. m. í Baðstofu Iðn-
aðarmanná, kl. 2 e. h.
Kennarafundur að aflokinni skólasetningu.
Nokkrar stúlkur
vantar okkur nú þegar og 1. október
Kexverksmiðjan ESJA h.f.
Símar 3600 og 5600
Vaatar hó pepr stðlku
á kaffistofn.
#
Afgreiðsla Alfiýðnblaðsins vlsar á.
Stúlku
s
vantar að Hótel Borg. Herbergi getur komið til greina. s
Upplýsingar í skrifstofnnm. V
S
s
s
s
s
s
Atkvæðagreiðsla
um heimild til vinnustöðvunar meðal togarasjómanna ^
innan Sjómannafelags Hafnarf jarðar hefst í dag kl. 10 ^
á skrifstofu félagsins og stendur til kl. 22 og miðviku- ?
^ dag 23. sept. á sama tíma. t
Hafnarfirði 22. sept. 1942.
Stjórn Sjómannafélags Hafnarfjarðar.
Atkvæðagreiðsla j
um heimild til vinnustöðvunar meðal togarasjómanna ^
innan Sjómannafélags Reykjavíkur hefst í dag kl. 10 S
á skrifstofu félagsins og stendur til kl. 22 og miðviku- ‘
dag 23. sept. á sama tíma.
Reykjavík 22. sept. 1942.
Stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur.