Tíminn - 02.10.1963, Blaðsíða 3
LÍKURNAR FYRIR ÞVÍ, AÐ MÚLLER HAFI KOMIZT UNDAN AUKAST ENN
Beinaleifar þriggja manna fínnas 't i f gröfínni
NTB-Berlín, 1. október.
Grunurinn um, að hinn al-
ræmdi nazíistaforingi, Heinrich
Miiller, hvíli ekki í gröf þeirri,
sem ber hans yfirskrift, nálg-
ast nú fullvissu, eftir að sér-
fræðingar hafa fundig bein úr
a.m.k. þrem persónum í gröf-
inöi, sem opnuð viar fyrir helg-
ina að kröfu vestur-þýzka dóms-
málaráð'uneytásins.
Skipun um að opna gröf
þessa, sem talið var að Miiller
hefði verig jarðsettur í eftir
bardagana um Berlín árið 1945,
var gefin, eftir að ákæruvald-
inu í V-Þýzkalandi hafði borizt
margar kærur vegna stríðs-
glæpa Miillers, en talið er, að
hann hafi m. a. tekið virkan
þá.tt í Gyðingaútrýmingunum.
Upp á síðkastið hafa verið
sérstaklega háværar raddir
uppi um, að Miiller sé alls ekki
látinn, heldur hafi hann kom-
izt undan í stríðslok og látið
grafa lík annars eða annarra
manna í sinn stag til þess að
leyna flótta sínum. Er sagt, að
hann fari nú huldu höfði.
Á legst'eininum á gröfinni ‘
stendur, að þar hvíli Heinrich
MUlIer, sem fallið hafi í bar-
dögum í maí árið 1945.
Meðal greinilegra beina-
leifa, sem fundizt hafa í gröf-
inni, er hauskúpa, sem sér-
fræðingar segja að sé af mun
yngri manni en Miiller.
Vestur-Þýzk blöð hafa látið í
það skína, að hugazt gæti, að
Miiller væri í Sovétríkjunum,
þar sem hann þegar fyrir
styrjaldarlok hafi haft náið
samband við þau.
STUTTAR
FRÉTTIR
NTB—Washington, 1. okt. —
Meira en 650 blökkumenn voru
handteknir í Suðurríkjum Banda
ríkjanna, eftir að lögreglan hafði
látið til skarar skríða gegn stór-
um hópi blökkumanna, sem fóru í
kröfugöngur til að fylgja eftir
jafnréttiskröfum sínum. — Einn
foringi blökkumannanna, séra
Newman hefur kært lögregluna
fyrir hrottaskap gegn fólkinu, en
lögreglan hefur vísað kærunni á
bug. í bænum Selma í Alabama
voru 300 blökkumenn handteknir
fyrir framangrelndar sakir.
í New Orleans fóru 10,000
blökkumenn og um 50 hvítir
menn í mótmælagöngu, en ekki
kom til neinna óeirða.
NTB—Stokkhólmi, 1. okt. — Enn
ein Lansen-herþota hefur farlzt,
að því er talið er, og er hún sú
fjórða, sem ferst í Svíþjóð á
nökkrum dögum. Tveir flugmenn
sem með vélinni voru, fórust. —
Ekki er vitað um orsakir slyssins,
en veðurskilyrði voru góð á
Eystrasalti, er flugvélin týndis*.
en hún var þar á æfingaflugi.
Allar jarðeignir franskra
manna í Alsír þjóðnýttar!
NTB-Algeirsborg, 1. október.
• Benn Bella, forseti Alsír, lýsti því yfir í Algeirsborg í
kvöld, aS allar jarðeignir franskra borgara í Alsír væru
þjóSnýttar frá og meS deginum í dag og hér eftir yrSu
ekki einn einasti hektari lands undir eignarrétt erlendra
nýlendusinna seldar.
• ÞjóSnýting þessi nær til um einnar milljónar hektara lands
og hefur frönsku stjórninni veriS tilkynnt um þessa ráS-
stöfun, aS því er Ben Bella sagSi á útifundi í Algeirsborg
í dag, þar sem um 100.000 manns hlýddu á mál hans, en
auk bess var ræSunni útvarpaS lim gjÖrvallt landiS.
Sagði Ben Bella, að nýlendusinn-
arnir þyrftu nú ekki að hafa á-
hyggjur af uppskerunni í haust,
þar sem allt landsvæði tilheyrði nú
þjóð sinni, en hins vegar yrði
frönskum jarðeigendum bætt að
fullu uppskera þessa árs, og fengju
að hafa á brott með sér allt lausa-
íé, er þeir hyrfu af jörðum sín-
um.
Hersveitir, sem styðja Ben Bella,
forseta Alsír, höfðu í dag náð öll-
um völdum í höfuðborg Kabylia-
héraðsins, Tizi Ousou, en fyrr um
daginn höfðu hersveitirnar fengið
skipun um að umkringja allt hérað
ið, vegna uppreisnartilrauna and-
stæðinga Ben Bella, sem eru marg
ir á þessu svæði.
Abderrazak, höfuðsmaður,
skýrð'i frá því í dag, að ekki hefði
komið til neinna bardaga í Kabyl-
ía (sjöunda hersvæðinu) og allt
væri með kyrrum kjörum í höfuð-
borginni. Ekki verður vart neinna
herflutninga og vegatálmanir, sem
stjórnin lét setja upp í gær hafa
sumar hverjar verið' fjarlægðar.
NTB—Caracas, 1. okt. — 23 meS
limir Kommúnistaf lokksins í Vene
zuela voru handteknir í gær í
sambandi við árás, sem gerS var
á járnbrautarlest, er flutti fólk
á leið í frí. Er talið að samtök
kommúnista hafi staðið á bak við
árásina. — í bardögunum um
lestina voru 6 stjórnarhermenn
felldir.
NTB—Djakarta, 1. okt. — Indó-
nesíska fréttastofan Antara skýr
ir frá þvi í dag, að stjórn indó-
nesíu sé fús til að borga að veru
tegu leyti fyrir tjónið, sem varð
i brezka sendiráðinu í borginni
í óeirðunum, sem þar urðu i sam
bandi við stofnun Malaysíusam-
bandsins.
NTB—Helsingfors, 1. okt. — Ahti
Karjalainen var í dag falið að
gera tilraun til stjórnarmyndun-
ar í Finnlandi. 'Hefur hann þegar
átt viðræður við formenn borg
araflokkanna og vinstri sósíalist
ana, en ekki er enn vitað um
árangur þeirra viðræðna.
NTB—Stokkhólmi, 1. okt. —
Helandermálið var fyrir rétti [
dag og var aðallega fjallað um
ritvélamálið, en ekki kom neitt
nýtt fram. Gerð var grein fyrir
athugunum sérfræðinga, sem virð
ast telja, að ekki sé hægt að
sanna neitt óyggjandi í þessu sam
bandi.
NTB—Prag, 1. okt. — Ludvik
Hujka, sem er tékkneskur að upp
runa, en verið hefur sænskur rík
isborgari um margra ára skeið,
var í dag dæmdur í þriggja ára
fangelsi í bænum Bruno, fyrir
njósnir. Hujka fór í sumar til
æskustöðva sinna, en var þegar
í stað handtekinn og ákærður
fyrir njósnir og samkvæmt frétt
um í dag á hann að hafa játað
ákærunni við yfirheyrslur og
dæmdur samkvæmt því.
NTB—Scarborough, 1. okt. —
Harold Wilson, sem mundl verða
forsætisráðherra í Bretlandi ef
Verkamannaflokkurinn færi með
sigur af hólmi í væntaniegum
þingkosningum, flutti í dag ræðu
á landsfundi flokksins og var
gífuriega fagnað. Köfnuðu oft orð
hans í aðdáunarhrópum áheyr-
enda. í ræðu sinni réðist hann
harkalega á það, sem hann
nefndi: Klúbb gömlu guttanna,
sem hann sagði ætíð treysta á
stuðning annarra, ef í nauðir
ræki. — Sagðl Wilson m.a. að til
þess að Bretar gætu tekið þátt
í tæknibyltingu okkar tíma, yrðu
að bæta mjög aðstöðu tækni
mennlaðra manna.
Mohand Ou Hadj, ofursti. sem
Ben Bella vék í gær úr stöðu yf-
irmanns sjöunda hersvæðisins,
livatti hermenn í Kabylia í dag til
að slást í hóp þeirra sveita, sem
berjast gegn Ben Bella, og fasista-
stjórn hans.
Sagði hann, að markmið upp-
rdsnarmanna væri að' koma upp
iýðræðisríki með fullum borgara-
iegum réttindum íbúa þar með
töldum réttindum til að láta í ljós
pólitískar skoðanir. Síðdegis í dag
skipaði Ben Bella Said Abid, major
yfirmann sjöunda hersvæð'isins og
var hann væntanlegur til Tizi
Ouzou í kvöld.
í ræðu í dag sagði Ben Bella,
að hann hefði fengið skeyti frá
herstöðvum víða í landinu, þar
sem fullum stuð'ningi við stjórn-
ina var heitið.
Georges Gorse, sendiherra
Frakka i Alsír kom til Parísar í
dag og afsannaði þá m. a. fregnir
um, að hætt hefði verið við að
senda franska hermenn heim, eins
og til stóð, vegna ástandsins í
Kabylia. Haft er eftir áreiðanleg-
um heimildum í París í dag, að
tala franskra hermanna í Alsír sé
V.m 80.000, en var 400.000, þegar
Evian-samningurinn var undirrit-
aður í fyrra. í júlí næsta ár er
áætlað, að aðeins 15.000 hermenn
verði orðnir eftir í Alsír.
TH hægri á myndinni sést Bob Hope, hinn frægi leikari og sjónvarps-
stjarna, segja Kennedy, Bandaríkjaforseta, brandara, eftir aS hann hafði
veriS sæmdur heiSursmerk! úr gulli fyrir frábæra kynningarstarfsemi
fyrir þjóS sína. Kennedy afhenti Hope heiSurspeninginn í Hvíta húsinu
hlnn 11. sept. s.l. TaliS er aS Bob Hope hafl ferSast um tvær mllljónir
mílna og komiS fram á sýningum, sem meira en 10 milljónir manna hafa
horft á.
T í M I N N, miSvikudaginn 2. október 1963. —
3