Tíminn - 02.10.1963, Page 14

Tíminn - 02.10.1963, Page 14
ÞRIÐJA RÍKIÐ WILLIAM L. SHIRER tóunum — og því sem var enn verra. Almenningsálitið um allan heim hafði orðig fyrir áfalli, og menn fylltust viðbjóði vegna þessarar villimennsku þjóðar, sem hrósaði' sér af margra alda kristni og menn ingu. Hitler var aftur á móti óður vegna afstöðu heimsins, og full- vissaði sjálfan sig um, að þaff sann að'i einungis veldi og umfang „sam særis Gyðinga um allan heim.“ Nú er auðvelt að sjá, að skelf- ingarnar, sem Gyðingarnir urðu að þola í Þýzkalandi 9. nóvember, og það, sem var gert gegn þeim þegar á eftir, voru fyrirboffar þeirra alvarlegu galla, sem á end- anum átt'u eftir að verða einræðis- herranum, stjórn hans og þjóð til svo mikils tjóns. Við höfum hvað eftir annað séð dæmi um mikil- mennsku Hitlers á þessum sviðum, en fram til þessa hafði honum yfirleitt tekizt að halda henni í skefjum á alvöruaugnablikum hans sjálfs og þjóðar hans. Á slíkum augnablikum hafði hæfileiki hans til þess að vinna ekki aðeins af hugrekki, heldur einnig aðeins eft- ir að hafa vandlega reiknað út af- leiðingarnar, fært honum hvern stórsigurinn á fætur öðrum. En nú var Hitler að missa stjórnina á sjálfum sér, eins og 9. nóvember og eftirleikurinn sýndu hvað bezt. Stórmennskubrjálæðið var að ná yfirhöndinni. Hin hraðritaða skýrsla frá fundi Görings 12. nóv- ember sýnir, að það var Hitler, sem neyddi Göring t'il þess að hefjast handa um útílokun Gyð- inganna frá lífinu í Þýzkalandi. Héðan í frá átti einræðisherra Þriðja ríkisins ekki eftir að sýna mikið af því aðhaldi, sem hafði bjargað honum svo oft áður. Og þrátt fyrir að, að hæfileikar hans og lands hans ættu eftir að færa honum fleiri undraverða sigra, hafði eitruðum fræjum sjálfseyði- leggingar einræðisherrans sjálfs og þjóðar hans nú verið sáð. Sjúkdómur Hitlers var smft- andi. Þjóðin var að fá hann, eins og um veiru hefði verið að ræða. Einstaka Þjóðverjar, um það get- ur höfundurinn sjálfur borið, voru jafn skelfingu lostnir eftir atburð- ina 9. nóvember og menn voru í Bandaríkjunum og Englandi og annars staðar í heiminum. En hvorki leiðtogar hinnar kristnu kirkju, né hershöfðingjarnir, né aðrir fulltrúar hins „góða“ Þýzka- lands, báru nú fram mótmæli opin- berlega. Þeir beygðu sig fyrir því, sem von Fritsch hershöfðingi kall- aði „hið óhjákvæmilega“, eða „ör- lög Þýzkalands". Andrúmsloftið frá Miinchen dreifðist fljótlega út. í Saarbriick en, í Weimar, í Míinchen, flutti Hitler ónotalegar ræður þetta haust og varaði heiminn og sér í lagi Breta við því að skipta sér af öðru en því, sem þeún sjál'fum kæmi við og ráðlagði þeim að hætta að hugsa „um örlög Þjóð- verja innan landamæra B,íkisins“. Örlögin, þrumaði hann, voru ein- ungis mál Þýzkalands. Ekki gat liðið á löngu, þar til Neville Chamberlain myndi vakna og gera sér Ijóst' eðli þýzku stjórnarinnar, sem hann hafði gengið svo langt í að gera til geðs. Smátt og smátt, þegar líða tók á hið viðburðaríka ár 1938 og hið uggvænlega ár 1939 nálgaðist, fékk forsætisráð- herrann fregnir af því, hvað for- inginn, sem hann persónulega hafði gert svo mikið til þess að gera ánægðan í þágu friðarins í Evrópu, var í þann veginn að gera, bak við tjöldin. Ekki löngu eftir Miinchen- fundinn fór Ribbentrop til Rómar. Hann „hugsaði ekki um annað" en styrjöld, skrifaði Ciano í dagbók sína 28. október. —- Foringinn (sagði þýzki utan- ríkisráðherrann við Mussolini og Ciano) er viss um, að við verðum að reikna með að heyja styrjöld við lýðræðisríkin í vestri einhvern tíma á næstu árum, ef til vill inn- en þriggja eða fjögurra ára . . . . Átökin út af Tékkum hafa sýnt styrk okkar! Við höfum það fram yfir þá, að við göngum á undan og ráðum því, hvernig málm ganga. Það er ekki hægt að ráðast á okk- ur. Hernaðarlega séð, er ástandið mjög gott: því í september (1939) gætum við farið út í styrjöld við hin miklu lýðræðisríki. í augum hins unga, ítalska utan- ríkismálaráðherra var Ribbentrop „hégómlegur, yfirborðslegur og málgeflnn“, og eftir að hafa lýst honum þannig í dagbók sinni, bætti hann við: „Mussolini segir, að maður þurfi aðeins að lita á höfuð hans ttt þess að sjá, að hann er með lítinn heila.“ Þýzki utanríkisráðherrann hafði komið til Rómar til þess að fá Mussolini til þess að undirrita samning um hemaðarbandalag milli Þýzka- lands, Japan og Ítalíu, en ítölun- um hafði verið fengið uppkast að þessum samningi í Munchen, en MussoÞni var ekki á því. Hann var enn ekki tilbúinn, skrifaði Ciano, að loka hurðinni á nefið á Bretlandi og Frakklandi. Hitler lék sér að þeirri hug- mynd þetta haust, hvort e.kki væri hægt að tæla Frakkland á burtu frá bandamanni þess handan Erm- arsundsins. Þegar hann t'ók á móti franska sendiherranum Fran cois-Poncef, 18. október, til þess að kveðja hann í hinu dularfulla virkisandrúmslofti Arnarhreiðurs- ins, hátt yfir Berchtesgaden efst á fjallstindinum, réðst hann með miklu offorsi á Stóra-Bretland. Sendiherrann hit'ti foringjann föl- an, tekinn í andliti af þreytu, en ekki of þreyttan til þess að ráðast á Breta með skömmum. Bretland endurómaði „af hótunum og vopna kalli.“ Það var eigingjarnt og setti upp „yfirlæt'is“-svip. Það voru Bretar, sem voru að eyðileggja andann frá Miinchen. Og svona hélt hann áfram: Frakkland var allt öðru vísi. Hitler sagffist vilja vinsamlegra og nánara samband við Frakkland. Til þess að sanna þetta var hann fús að undirrita 194 þegar í stað vináttusáttmála, þar sem hann tryggði núverandi landa mæri (og þannig um leið falla frá öllum kröfum Þjóðverja til Elsass og Lothringen) og stakk upp á, að öll önnur ágreiningsatriði yrðu rædd og lausn fundin á þeim. Sáttmálinn var undirritaður með skilum í París 6. desember 1938, af utanríkisráðherrum Þjóð- verja og Frakka. Frakkland hafði þá aff mestu náð sér eftir upp- gjafaræðið, sem gripið hafði þar um sig eftir Miinchenfundinn. Það vildi svo til, að höfundurinn var í París daginn, sem skjalið var und- irritað, og tók þá vel eftir því, hversu köldu andaði þar. Þegar Ribbentrop ók eftir götunum var ekki hræðu að sjá, og nokkrir ráð- herrar og aðrir leiðtogar franskra stjórnmála og í bókmenntaheim- inum, þar á meðal hinir virtu for- setar beggja deilda þingsins Jean- neney og Herriot neituðu að vera viðstaddir hátíðahöld vegna komu nazistans. Nokkur misskilningur reis upp í sambandi við þennan fund þeirra Bonnet og Ribbentrops, og átti hann eftir að hafa þó nokkur á- hrif á gang málanna í framtíðinni. Þýzki utanríkismálaráðherrnn hélt því fram, að Bonnet hefði fullviss- að sig um það eftir Múnchenfund- inn, að Frakkar hefðu ekki lengur áhuga á Austur-Evrópu og þar af leiðandi túlkaði hann þett'a á þann veg, að Frakkar mundu gefa Þýzka landi lausan tauminn á þeim slóð- um, sérstaklega til þess að fara nánshendi um Tékkóslóvakíu og Pólland. Bonnet neitaði þessu. Samkvæmt því, sem Schmidt hafði skrifað niður á fundinum, lýsti Bonnet því yfir, sem svari við kröfum Ribbentrops um að viður- kennt' yrði áhrifasvæði Þjóðverja 35 Þegar hún gekk út úr húsinu um kvöldið, gekk Brett fram úr skugg anum. Hann sagði hljóðlega og al- vörugefinn: — Eg hef verið að, bíða eftir þér, Gaú. Viltu borða kvöldverð með mér? Eg verð að tala við þig. Hún stamaði. — Eg veit ekki, Brett'. Eg þarf að fara heim á gestaheimilið og í rúmið. Eg er mjög þreytt eftir daginn. — Gerðu það fyrir mig, sagði hann ákafur. — Þetta er mjög á- ríðandi. Eg lofa.'að ég skal ekki tefja þig lengi. Við skulum aka út með flóanum og borða. Svo heiti ég því aff aka þér beint til gest'aheimilisins.. Hún hikaði. Hún var mjög þreytt, en alvaran í fasi hans hafði undarlega áhrif á hana. Hann virt- ist hafa breytzt. Og hví skyldi hún hika? Grant gat ekki hugsað verra um hana en hann gerði, og hví skyldi hún ekki fara eins oft út með Brett og hana lyst'i? Þau snæddu úti undir beru lofti. Kvöldið, var milt, en til vonar og vara hafði hún klætt sig í hlýja baðmullarpeysu. Þau borðuðu krækÞnga i rauðri sósu, með rauðum pipar. Síðan fengu þau glóðuð hrísgrjón og drukku gult borðvin. Smám saman dvínaði sársaukinn vegna orða Grants um daginn. Kannski myndi Grant taka hana í sátt? Fyrst þau áttu að vinna saman áfram, hlaut þetta að lagast. Það var ómögulegt að þau gætu starfað saman, ef fjandskapur ríkti með þeim. Hann myndi vera göfugur og fyrirgefa, og þá ætlaði hún að segja honum allt af létta. Vínið vaggaði henni inn í falska hamingju og öryggi. En henni brá, þegar Brett hallaði sér fram og sagði ákveðnum rómi: — Eg bað þið að giftast mér um daginn, Gail. Þú neitaðir, og þó veit ég, að þú elskar mig, og þá fauk í mig. Eg hélt að þú værir þvermóðskufull og hehnsk. Eg ætlaði að sýna þér í tvo heimana eins og ég skýrði fyrir þér og þú veizt, hvað gerðist. Hún hrópaði upp yfir sig. — En Brett, þú lofaðir að reka ekki á eftir mér með giftingu, ef I ég fyrirgæfi þér. Þú veizt, aff ég ! er bundin af loforði mínu við dr. iRaeburn, — að ég get ekki gifzt | næstu tvö árin. j Hann lét orð hennar sem vind j um eyru þjóta. . — Eg veit, að ég lofaði því. Eg var þá mjög niðurdreginn og auð- mjúkur, og ég ætlaði líka að standa við það. En ýmsir atburð- ir, sem ég get ekki útskýrt nánar, ! hafa gerzt, Gail. Þú verður að gift ast' mér, ástin mín, og ekki aðeins vegna þess að ég óttast um öryggi | heitt og vil giftast þér, heldur — og rödd hans. varð hörkulegri — vegna þess, að ég óttast um öryggi j þitt. Eg álit, að þú sért í mikilli ; hætt'u. Gail fannst sem hún kólnaði upp. Hún hafði verið hrædd síðan hún i hafði dvalið í húsi frænda hans, j þótt hún hefði ekki vitað, hvað hún óttaðist og reynt aff rýma ótt- ■ anum brott úr huga sér. — En hvers vegna heldurðu, að ég sé í hættu stödd? tókst henni að lokum að stynja upp. — Eg get ekki sagt þér það, en ég i hef heyrt nóg til þess, aff ég veit, að þú ert í hættu. En ef þú giftist mér, get ég ábyrgzt öryggi þitt. Frændi segist ábyrgjast það. — E'.i hvernig getur frændi þinn ábyrgzt öryggi mitt? Telur hann sjálfan sig guð almáttugan, eða hvað? sagði hún snúðugt. — Hann er mjög mikils metinn kaupsýslumaður — og einn helzti stórlax hérna. Fólk veigrar sér við aff gera honum á móti skapi. Eg HJÖKRUNARKONA í VANDA hef fylgzt með því og ýmsu fleira, síðan ég kom hingað. Frændi hef- ur l'ofað þér vernd sinni, en ekki fyrr en þú ert orðin eiginkona mín. En hún var reglulega gröm. Hún kærði sig ekki um slíka stjórn- semi. — Hví skyldi ég vera í hættu? Hvað hef ég gert af mér? Hann hikaði. — Þú hefur spurt undarlegra spurninga. Þú vilt komast aff því, hver sveik föður þinn. Ef sá hinn sami er á lífi hér enn, gæti hann velgt þér heldur óþægilega. — En hvernig gæti frændi þinn verndað mig fyrir þeim manni, hver sem hann er? — Eg hef sagt þér, að hann er nægilega valdamikill til að geta verndað þig. Hann getur bjargað þér úr þessum vanda. En þú verð- ur að giftast mér fyrst, Gail. Hann setur það skilyrði. Hún þagði nokkra stund. Þetta var vissulega mjög furðulegt. Hver hafði vitað, að hún spurðist fyrir meðal manna um svikarann? Hr. Wong vissi það, en enginn annar fyrir utan Brett og frænda hans, og Grant og Bobby við Stofn unina. En þessir menn myndu varla gera henni mein. Það var líka einkennilegt, að frændi hans skyldi vera svo á- fjáður, að þau giftust sem allra fyrst. Hún minntist dagsins, er hún kom fyrst í húsið við Djúpa- flóa og Manning haíói sýnt henni húsið. Eftir orðum hans að dæma Maysie Greig þá hafði hann verið ákafur að koma þeim í eina sæng. Hann hafði sagt, að hann ætlaði að gefa Brett húsið í brúðargjöf. Hún hafði verið hrifin af þeirri rausn, en hvers vegna þennan undarlega flýti? Skyndilega minntist hún vega- bréfanna, sem hún hafði rekizt á í vinnuherbergi hans. Voru það fölsuð vegabréf? Hún hafði heyrt', að mikið væri um vegabréfafölsun í Hong Kong. Var hr. Manning ef til vill viðriðinn slíkt? Vildi hann, að hún giftist frænda hans, til þess að hún þegði yfir því? Var allt þetta hjal um yfirvofandi hættu bara túl að leyna því, sem honum var efst í huga? En hún var enn reið; reiði henn- ar varff óttanum yfirsterkari. — Eg ætla ekki að svíkja það loforð, sem ég gaf dr. Raeburn, sagði hún. — Hann yrði að leyfa mér að fara af fúsum vilja — en þar sem ég er þýðingarmikill að- stoðarmaður hans við starfig — sem er honum allt — býst ég ekki við, að hann fengist til þess. Hann gafst upp. — Þú ert indæl, sagði hann rámri röddu, — en þú ert fjandi þrjózk. Við skulum fá okkur smá- göngutúr. Hún hikaði. Hana langaði til að tala við hann, en eitthvað hélt aftur af henni. — Komdu nú, sagði hann og tók undir handlegg hennar. — iBara smáspöl, og ég lofa að vera þægur strákur og aka þér síðan beint heim. Hún gafst upp. — Allt í lagi, en bara smáspotta. Þau stönzuðu til að horfa yfir fiskibátaflotann á höfninni. Og áð- ur en hún vissi af, hafði hann þrifið hana í fangið. Hann þrýsti henni að sér og sagði ofsalega: — Þú verður að gift'ast mér strax, elskan mín! Vertu ekki svona einþykk, ástin. Eg get ekki afborið þá tilhugsun, að þú sért í hættu stödd. Eg er hræddur um þig og elska þig svo heitt. — Æ, Brett, eins og mér er inn anbrjósts þessa stundina l'angar mig hvorki ag giftast einum né neinum. Eg trúi ekki, að ég sé í neinni hættu, eins og þú vilt vera láta. Eg held þú sért að reyna að hræða mig til að giftast þér og ég skal segja þér, að það er þýð- ingarlaust. Hann sleppti henni. — Ó, ástin mín, ég vildi óska, að þú fengist til ag trúa mér!, hrópaði hann. — Það er ýmislegt, sem þú skilur ekki. Hér gerast ýmsir hlutir, sem venjulegt fólk getur ekki l’átið sér til hugar koma. Hér er alls konar brasjc og svindl í öllum átt- um, glæpamenn í háum embætt- um — glæpamenn, sem ekki hika við neitt, ekki einu sinni morð til að bjarga sjálfum sér. Frændi seg- ir mér, að þú þarfnist mjög verndar, og hann myndi ekki segja það, ef það væri ekki satt. Hann fylgist með ýmsu og fréttir TÍMINN, miðvikudaginn 2. október 1963. — 14

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.