Tíminn - 10.10.1963, Blaðsíða 8

Tíminn - 10.10.1963, Blaðsíða 8
Útför Ásmundar Jónssonar skálds frá SkúfsstöSum var gerS frá sóknarklrkju feSra hans, 'Hólum I Hjalta- dal, s.l. föstudag, aS vlSstöddu fjölmennl. Prófastur Inn, séra Björn Björnsson, jarSsöng, en kijrkjukór Hóladómkirkju undlr stjórn FrfSbjörns Traustasonar annaSist söng. — Myndlna hér fyrlr ofan tók S. Peder- sen er frændur Ásmundar bera kistuna úr kirkiu I klrkjugarS Hóladómkirkju. NÁMSDVÖL I WÍJfl EB BANDARIKJUM íslenzkir aðilar hafa nú í tvö ár tekið þátt í Cleveland-áætlun- inni fyrir starfsmenn á sviði æsku lýðs- og bamaverndarmála (á ensku The Cleveland International Program for Youth Leaders and Scocial Workers), en þátttakend- um frá ýmsum þjóðum er árlega gefinn kostur á að kynna sér slíka BLINDRA- SKÖLINN FÆR GJÖF Föstudaginn 20. sept. s.l. heim- sóttu þrjár konur úr Rebekkustúk- unni Bergþóru Blindraskólann Bjark argötu 8. Afhentu þær formanni Blindravinaféiags íslands, Þorsteini Bjarnasyni, höfðinglega gjöf til skól ans. Er það stórt hnattlíkan upp- hleypt. Hnötturinn er gerður i Eng- landi og mjög vandaður. Mun hann koma að góðum notum við landa- fræðikennsiu, og áreiðanlega munu margir fleiri en nemendur fara hönd um um hann sér til fróðleiks og skemmtunar. Blindravinafélag íslands þakkar þeim Rebekkusystrum innilega þessa nytsömu og veglegu gjöf. Enn frem- ur þakkar félagið þeim fyrir aðrar gjafir, vináttu og skilning á vanda- málum blinda fóliksins, sem komið hefur fram á margan hátt í 25 ára starfi þeirra að velferðarmálum blindra. AMERIKUBREF Jón Magnússon í Seattle skrifar bréfavini í Reykjavík hinn 1. okt. 1963: „Enn er ég á íslandi — í anda — slíkum áhrifum varð ég fyrlr á ferð minni í sumar um mitt gamla land, að það er stöðugur samanburð- ur hjá mér á því sem áður var, og því sem nú er orðið. Ég skil' það nýja, en get ekki gleymt því gamla! Á aldamótunum var efnt til verð lsunaveitinga fyrir'' ættjarðarkvæði. Þá varð til hið dáða kvæði Hannesar, þar sem meðal annars þessi orð standa: „Sé ég í anda knörr og vagna knúða, krafti, sem vannst úr fossa þinna skrúða, stritandi vélar, starfsmenn glaða og prúða, stjórnfrjálsa þjóð, með verzlun eigin búða“. Og nú hefur þetta allt bókstaflega rætzt. Fjórir ungir menn voru hér á ferð 1 septembermánuði í boði Banda- ríkjastjórnar, þeir heita: Björn Páls son, ljósmyndari frá ísafirði; Sigmar Sævaldsson frá Akureyri, rafvirki; Ásgeir Sigurðsson úr Rangárvalla- sýslu, rafvirki; Þór Withaker úr Reykjavík; Árni Nikulásson rakari er langafi hans. Einnig var í heimboði hér, Jónatan Hallvarðsson frá Skutulsey, hæsta- réttardómari. Enn fremur var á ferðalagi um Vesturheim, í boði Vestur-íslend- inga, slaghörpusnillingurinn Rögn- valdur Sigurjónsson, sem hlaut hér góðar móttökur. Afi hans var Mark ús Bjarnason, sem kenndi íslending rm að sigla og reisti í því skyni siglutré með rám og reiða hjá gamla stýrimannaskólanum. Þar á túninu j liéldu Reykvíkingar sínar þjóðhátíð ir á minni tíð; þar varð Jónatan ! Þorsteinsson fyrsti glímukóngur ís- ! lands. Þá var til einn lítill mótor- j bátur á íslandi, sem Bjarni Þorkels- j son smíðaði. Llka var til einn bif- reiðargarmur, sem menn ýttu á und an sér upp Hverfisgötuna. Það var von að vesalings Vestur íslendingarnir verði stóreygðir þeg- ar þeir koma heim eftir hálfrar ald- ar fjarveru, og sjá ekki urmul eftir af því, sem þeir ólust upp við. — Það eru aðeins fjallatindar sem standa upp úr framförunum! Jón Sigurðsson kenndi mönnum að hugsa og greiða atkvæði um hundrað ára tímabil, og fyrir bragð ið varð íslenzka þjóðin frjáls, þótt rás viðburða hafi einnig ýtt þar undir! Fátt er að frétta frá Seattleborg nema að fólki fjölgar og flestir hafa i sig og á. — Við byrjun þessa skóla árs innrituðust tuttugu og eitt þús- und nemendur hér í háskólann. Þar af eru tveir frá fslandi, heitir annar Gunnar Jónsson fiskifræðidoktor frá Kiel. Hann er nýlega kvæntur og bíður nú brúðar sinnar. Jón Árnason Rangæingur, er faðir hans, nú skuid neimtumaður í Reykjavík. Hinn heitir Vilhjálmur Jónsson frá Reykja vik, en langafi hans var Erlendur Guðmundsson bóndi að Jarðlangs- stöðum í Borgarhreppi. Eftir hon- um man ég vel, og undrar hve kyn sfarfsemi vestan hafs. Var kynn- ingarstarf þetta í upphafi einung is bundið við borgina Cleveland í Ohio, en síðan hafa fleiri stórborg ir gerzt aðilar að þessu merka starfi. Nú er hafinr. undirbúningur að rámsdvöl útlendinga á vegum ClP-áætlunarinnar á næsta ári, og gefst allt að fimm íslendingum kostur á að taka þátt í námskeið- :.nu, sem stendur í rúma fjóra mánuði (hefst 19. apríl og stend- ur til 28. ágúst). Koma þeir einir lil greina, sem eru á aldrinum 21—40 ára en umsækjendur á aldr inum 25—35 ára verða látnir ganga fyrir að óðru jöfnu. Þá er það skilyrði fyrir styrkveitingu, að um sækjendur hafi gott vald á enskri tungu, og einnig verða þeir að hafa starfað að æskulýðsmálum, leið- sögn og leiðbeiningum fyrir ung- linga eða barnaverndarmálum. — Þeir, sem stunda skrifstofustörf í sambandi við þessi mál, koma ekki til greina, heldur aðeins þeir sem eru í beinni snertingu við börn og unglinga í daglegum störf um sínum. Þeir, sem notið hafa sérmenntunar í þessum efnum, verða látnir ganga fyrir um styrk vfitingu. Námskeiðinu verður hagað þann ig, að þátttakendur koma allir saman í New York og verða þar fyrst 3 daga tít að fræðast um einstök atrriði námskr/ðstns og skoða borgina, en síðan verður mönnum skipt rriilli fjögurra borga — Cleveland, Chicago, Minneapol- is—St. Pau) og Philadelphia — þar sem þeir munu sækja tvö há- skólanámskeið, hvort á eftir öðru, sem standa samtals í sjö vikur. Að því búnu mun hver þátttakandi verða um 10 vikna skeið sumar- starfsmaður amerískrar stofnun- ar, sem hefur æskulýðs- eða bama vcrndarstórl á dagskrá sinni, og munu menn þá kynnast öllum hlið um þessara starfa vestan hafs. Um 100 amerískar stofnanir eru aðilar að þessum þætti náms- dvalarinnar Að endingu halda þátttakendur svo til Washington, þar sem þeim gefst kostur á að heimsækja sendi Framhalrt á 13. síðu. Jón Magnússon og Guðrún Jakobsdóttir Lindal hans er í örum vexti. Vilhjálmur hyggst að dveljast í þrjú ár sam- fleytt og læra að gera dósamat úr fiski, sem er mikil fræðigrein. Engar fréttir eru það héðan að hér er blíðviðristíð, en s.l. mánuð var hér einmuna blíða á ströndinni og afar heitt í Suður-Kaliforníu, svo skaði varð á ávöxtauppskeru. Nú á dögum er óvanaieg veðrátta kennd atómsprengingum. Annað er það, að þegar mikill urgur er á milli þjóða, að þá kemur veðráttan og dustar menn til.......! í dag er ég 77 ára, og má sannar lega óska mér til hamingju og vera þakklátur fyrir það sem liðið er. Hér er vísa um systkini Jónasar Jónssonar móðurafa mín.s: Jón, Ingibjörg, Jónas, Böðvar, Gestur, Oddný, Þórný eg sem man, Ingveldur og Jónatan! Oddný var móðir séra Ingvars Nikulássonar á Skeggjastöðum við Bakkafjörð, sonur hans er Helgi læknir á Vífilsstöðum. Mig langaði til að heimsækja karlinn, en gat ekki komið því við. Annars er ég frændmargur á ís- jlandi, þar sem svo má næstum heita, að allir íslendingar séu skyldir". T í M I N N, flmmtudaginn 10. október 1963,

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.