Tíminn - 10.10.1963, Side 16
FARÞEGI, SVO LENGI
SEM EKKERT GERIST
Jacqueline Auriol, dóttír fyrrv. Frakklandsforseta, frægasta fiugkona heims
ESJA OG HEKLA
LOKA 2. FARRÝMI
FB-Reykjavík, 9. okt.
Skipaútgerð ríkisins hefur
ákveðið að loka II. farrými á Esju
og Heklu í strajidferðunum í vet-
ur. I>á hefur einnig verið ákveðið
að hætta að hafa skyldufæði á I.
Kviknaði í
út frá ofni?
GB-Reyk;'avík, 9. okt.
Ekkert hefur enn sannazt um
eidsupptökin í rannsóknastöð as-
falt- og steypustöðvarinnar á Kefla
víkurflugvpllj í fyrradag, en ætlað
ei, að kviknað hafi í skálanum út
frá oíni í skúr, sem var áfastur
skálann og vindur stóð af.
Úrskurður tryggingafélagsins
um tjóníð, sem af brunanum
hlauzt, liggur ekki enn fyrir, því
að matsmaðurinn, sem að rann-
sókn þess vinnur, hefur ekki get-
að matsm.iðurinn, sem að rann-
hanui heifur aflað, vegna anna
við annað verkefni.
Munið skyndi-
happdrættið!
VINNINGAR eru OPEL-Record,
WI'LLYS-jeppl og mótorhjól. — Þó
kostar miðinn aðeins 25 krónur. —
Látið nú ekki happ úr hendl sleppa.
Kaupið miða og eignizt vonina í
glæsilegum bil. — MIÐAR eru af-
grelddir i Tjarnargötu 26. Slmi 15564
Hrlngið og við munum taka frá mlða
meðan enn þá er eitthvað eftir.
farrými, en það hefur alltaf verið.
Guðjón Teitsson forstjóri Ríkis-
skips tjáði blaðinu í dag, að fram
til þessa hefðu alltaf I. og II. far-
rými verið opin allan ársins
hring, og aðsókn hefði verið mjög
mikil að II. farrými, en þar hefði
tvennt komið til, lægra verð og að
menn réðu því sjálfir, hvort þeir
keyptu sér þar mat.
í vor voru fargjöld með strand-
ferðaskipunum hækkuð, og var
það aðallega gert með tilliti til
hringferðafarþeganna, 'sem fara í
skemmtiferðir umhverfis landið.
Hingað til hefur fargjöldum ver-
ið þannig hagað, að þau hafa far
Framhald á 15. síðu.
FB-Reykjavík, 9. okt.
f gærkvöldi kom hingað
frönsk CaraveUa-þota með 19
farþega innanborðs á leið til
Montreal í Kanadia. Meðal far-
þega var hhi fræga franska
flugkona Jacquellne Auriol,
sem síðast í sumar setti hraða-
met í flugi, en hún er reynslu-
flugmaður hjá fransloa ríkinu.
Við hittum frúna úti á Hótel
Sögu og spurðum hana um flug
feril hennar.
— Eg byrjað'i að fljúga fyrir
sextán árum, en það er löng
saga að segja frá því, hvers
vegna það var.
— Hvenær settuð þér síðasta
flugmetið. og hvernig var því
hagað?
— Eg setti metið í júlí í sum
ar. Eg flaug Mirage III. orrustu
flugvél í hring, sem er 100 km.
að ummáli og náðj 2038 km
hraða á klukkustund. Annars
er þetta í fimmta sinn, sem
ég set fiugmet.
— Hvað hafið þér starfað
lengi sem reynsluflugmaður?
— Eg hef verið reynsluflug-
maður hjá franska ríkinu sið-
ustu sjö árin.
— Og nú eruð þér aðeins
með sem farþegi, ekki satt?
— Svo lengi sem ekkert kem
ur fyrir, verð ég aðeins far-
þegi, sagir frúin og brosir.
Frú Auriol, sem er dóttir
Auriol fyrrverandi Frakklands
forseta er nú á leið til Montre-
al, þai sem haldin verður
frönsk sýning, en auk hennar
voru í kvöld á leið þangað þrír
þingmenn, einn öldungadeildar
þingmaður og einn af aðalverk
fræðingum Sud Aviation. sem
framle'ðir Caravelle-þoturnar.
Fréttamaður frá AFP sagði
okkur að lagt hefði verið af
stað frá París í dag, en komið
við í Prestwick á Skotlandi, og
þangað hefði þotan verið 2Vfe
klukkustund á leiðinni til
Keflavíkur. Fólkið mun verða
í 8 daga í Kanada í sambandi
við sýninguna, en ekki hefur
enn þá verið ákveðið hvort
komið verður við hér á heim-
leiðinni, — það fer eftir því,
hvernig veðrið verður, sagði
blaðamaðurinn.
Þetta verður í fyrsta sinn,
sem Caravelle þota kemur til
Kanada, en þar eru þær að-
eins frægar af orðspori, sagði
Frakkinn að lokum.
JACQUELINE AURIOL
Heimavistarskólar fyrir
reykvísk börn og unglinga
KH-Reykjavlk, 9. október.
MIKI© hefur verlð raeft að undan-
förnu um þörf á heimavistarskólum
fyrir reykvisk börn og ungiinga á
fræðsluskyldualdri. — Nú hefur
fræðsluráð sent borgarráði tillögur
um stofnun þriggja slikra skóla i
Reykjavik og elns við Úlfijótsvatn.
Borgarráð hefur ákveðlð að fella
þessar tillögur inn f helldartillögur
um skólabygglngar á komandi árum.
Á fundi fræðsluráðs og skóla-
manna með fréttamönnum í dag
skýrði Jónas B. Jónsson, fræðsl'u-
stjóri, frá þvl, hvað hefði gerzt og
væri að gerast í byggingamálum skól
anna í Reykjavfk. Hann skýrði m.a.
frá því, að fræðsluráð hefði sent
börgarráði tillögur um stofnun
héimavistarskóla fyrir reykvísk börn
og unglinga. Tillögur þessar gera
ráð fyrir fjórum heimavistarskólum,
þremur staðsettum í Reykjavík. —
Einn skuli rúma 20—30 drengi á aldr
inum 7—15 ára, einn verði fyrir
12—13 stúlkur á aldrinum 7—
15 ára og einn fyrir 12—16 drengi,
7—15 ára að aldri. Þá er lagt til,
Ekki fjárdráttur
Skildi
effir í
IGÞ Reykjavík, 9. október.
drenginn
poilinum
LÖGREGLAN lýslr eftlr gráum
Dodge Weapon, sem ók á tólf ára
dreng á hjóli á Suðurlandsbraut i
gær, skammt frá Álfheimum.
Bifreiðin rakst á handlegg drengs
ins og steypti honum af hjólinu í
poll utan malbiksins. Kom bílstjórinn
út og spurði drenginn hvort hann
hefði meitt sig, en hvarf jafnskjótt
burt og skildi drenginn eftir í poll-
ínum. Annar bílstjóri kom þarna
siðar og flutti drenginn á Slysavarð-
stofuna, þar sem meiðsli hans voru
ekki fullkönnuð í gær. Rannsóknar-
lögreglan biður þá um upplýsingar,
sem kynnu að hafa orðið varir við
þennan atburð, og jafnframt óskar
hún eftir að hafa tal af bílstjóran-
um á þessum gráa Dodge Weapon
bíl.
!ega hálfa aðra milljón. Þar af
hafa nú verið gerð skil fyrir tæp-
lega helmir.gi fjárins, en hitt er
F'ramhald á 15. síðu.
að stofnaður verði heimavistarskóli
við Úlfljótsvatn, er rúmi 8(h—100
unglinga í 1. og 2. bekk gágnfræða-
stigsins, og starfi hann hliðstætt hér
aðsskólunum. Tillögurnar frá 1957
um skólabyggingar verða endurskoð
aðar á næstunni, og hefur borgar-
ráð samþykkt að fella tillögur
fræðsluráðs um heimavistarskól'ana
inn í heildartillögur um skólabygg-
ingar á næstu árum.
Fræðslustjóri gat þess, að þrisetn-
ingu væri nú nánast útrýmt í skól-
um, og farið væri að einsetja í mörg
Framh á 15. síðu
1 I ÉIÉI r' 1H 8 SE3B ' ' jff iUIIipi
BÓ-Iieykjavík, 9. okt.
Guttormur Erlendsson, borgar.
endurskoðandl, flutti borgarráði
skýrslu um misferli varðandi út-
borganir og greiðslur af íbúða-
lánum í gær.
Misferlið varðar 136 greiðslur
af íbúðum við Gnoðarvog, Grens-
ásveg og Skálagerði, samtals rúm-
DÝRAFRÆDIDEILD Náttúrugrlpa-
safnsins hefur veitzt auðveldast að
fylgjast með rjúpunni í Hrlsey, þar
voru 53 rjúpnapör í vor. Hriseylng-
ar skjóta aidrei rjúpur, enda eru
þær svo spakar, að þær spranga þar
um hlöð og garða eins og alifuglar.
Hér á myndinnl hafa nokkrar tyllt ^ _ r# .
sér á gamlan bát, sem liggur upp
við eltt ibúðarhúsið á eynnl, og láta '
sér hvergi bregða vlð mannaferðir. gStvil'-"■ - JSjtj’* 'mmrn^u
RjúpnaveiBitími aB hefjast
HAUSTSÍLDVEIÐAR AÐ BYRJA
BÓ-Reykjavík, 9. okt.
Þorsteinn þorskabítur fer út
um næstu helgi að kanna sfld
út af ánæfellsnesi. Jón Einars.
son, skipstjóri, sér um nann-
sóknirnar. en Jakob Jakobs-
son ve> ður ekki í þeirri ferð.
Biaðið átti í dag tal við Jakob
um haustsíldina, en hann
kvaðst gera ráð fyrir, að veið-
arnar rr-undu hefjast fyrr nú
en í fyirahaust. Þá var ekki
byrjað fyrr en um 25. nóv.
Herpinótaveiðarnar að hausti
hafa ekkj verið stundaðar svo
lengi, að unnt sé að fullyrða
hvernig ganga muni, en nánari
vitnesk;a um stærð og magn
ætti að berast fljótlega eftir
að Þorskabitur er kominn út.
Jakob taldi enga ástæðu tfl
svartsýni í þessum efnum.
Aðspurður sagði Jakob, að
síldin mundi vera tfl staðar fyr-
ir Aus*f’örðum fram undir jól,
og væn ekkert því til fyrir-
stöðu að halda þar áfram eftir
að mannskapur hefur fengið
að hvíla sig og nauðsynlegar
lagfærii gar á bátunum hafa
verið gerðar.
IB-Reykjavík, 9. okt.
Rjúpnaveiðitíminn hefst þriðjv
daginn 15. október og stcndur yfir
til 22. desember, og í tilefni þess
hefur Dýrafræðideild Náttúru-
gripasafnslns útbú'ið og sent um
allt Iand eyðublöð handa veiði-
mönnum til að gera skýrslu um
veiðina., »g er þetta 'liður í rann-
sóknum þe’im á rjúpnastofninum,
sem dýrafræðideildin hefur haft
undir höndum síðustu misserin,
að því er dr. Finnur Guðmunds-
son tjáði fréttamönnum í daig.
Kvað hann það mjög þýðingar-
m:kið að fa áreiðanlegar þær heim
ildir, sem slíkar rjúpnaveiðiskýrsl
ur væru, því að síðustu tuttugu
árin eða síðan útflutningur á rjúp
| um lagðisi niður, hefði Náttúru-
gripasafnið mjög ófullkominna
heimilda geta • aflað um
rjúpur á markaði eða rjúpnaveiði
yfirleitt. T'l eru skýrslur um út-
fluttning á rjúpum alveg frá 1860-
1940, og á þessu tímabili voru
rjúpur nærri eingöngu veiddar til
útflutnings. En síðan 1940 hefur
rjúpnaveiðin öll selzt á innan-
landsmarkaði, en ógerningur hef-
ur verið að afla upplýsinga um
heildarmagnið, sem veiðzt hefur.
Nú verður því gerð tilraun til að
fara bónarveginn til veiðimanna
með því að senda áðurnefnd eyðu
blöð út um allt land, til allra
sýslumanna, bæjarfógeta, lögreglu
f’ramhald á 15. síðu.