Tíminn - 26.11.1963, Síða 3

Tíminn - 26.11.1963, Síða 3
ORGARFJ. EYSTRA SA-Borgarfirði eystra, 25, nóv. Fyrir skömmu bar það til tíð- inda, að haförn settist á túnið á Gflsárvöllum hér i sveit, en það mun vera einsdæmi að sjá þann fugi hér um slóðir. Haustslátrun lauk hér um miðj- an október, og var slátrað um 7100 fjár Meðalfallþungi dilka var 13,3 kg. í fyrra var slátrað 7900 fjár, og var meðalfallþungi dilka þá 12,85 kg. Þyngsta dilkinn í haust átti Sveinn Bjarnason i Hvannstóð, 25,6 kg. Nýlega hafa 15 bæir hér í sveit fengið rafmagn frá Rafmagnsveitu ríkisins, sem hefur komið upp dís- ilrafstöð á Bakkaeyri. Fjórir bæix eiga nú eftir að fá rafmagn. Byrj- að var á þessum framkvæmdum haustið 1961. SiÖÐA HORNIÐ á bókageymsluhúsinu f Ðallas, þaöan sem skotið var á Kennedy á föstudaginn. Örin efst á myndinni bendir á rúðuna, sem riffilkúlan braut á leið sinni. Ró í írak NTB-Beirut, 25. nóv. Varnarmálaráðherra írak, Har- dan Takriti hershöfðingi, lýsti yfir því í dag í útvarpinu, að allir her- flokkar í landinu væru nú í her- búðum sínum og ástandið væri eðlilegt um allt land eftir stjórnar- sviptingarnar í fyrri viku. Verðíaun NTB-París, 25. nóv. Rithöfundurinn Roger Vrigny fékk í dag Femina-verðlaunin fyr- ir skáldsögu sína: Nóttin í Mou- gins, en Femina verðlaunin eru ein fjögurra fremstu bókmennta- verðlauna Frakklands. Jafnframt fékk Gerald Jarolot Medici-verð- launin fyrir skáldsöguna: Köttur- inn sem gel'tir. Stórlán NTBParís, 25. nóv. Frakkland mun veita Spáni sam- tals 750 milljón nýfranka lán til að aðstoða ýmsar miklar áætlanir í efnahagslífi Spánar.. Samningur um þetta var undirritaður af fjár- málaráðherrum ríkjanna í dag. Gosið KJ-Reykjavík, 25. nóv. Gosið við Vestmannaeyjar virð- ist nú heldur í rénun. Eru ekki eins stöðugar sprengingar og áður voru, en þó eru all.taf sprengingar öðru hvoru. Eyjan er nú orðin all- stór, um það bil 900 m. á lengd og 700 m. á breidd. Sigurður Þórar- insson jarðfræðingur fylgdist með gosinu frá borði í varðskipinu Þór um helgina, og í morgun fór hann ásamt tveim brezkum jarðfræð- ingum út að gosinu. Lágskýjað var í Vestmannaeyjum, og sást gosið því óglöggt úr Eyjum. NTB-Moskva, 25. nóv. Málgagn Sovétstjórnarinnar lzvestija minnist á morð Kennedys forseta í dag á sama hátt og mál- gagn kommúnistaflokksins, Pravda gerði í morgun. Er morðinu líkt við Þinghúsbrunann í Berlín árið 3 933, sem nazistarnir stóðu á bak við, en kommúnistar voru sakað- ir um. Izwestija segir frá orðrómi um að Oswald hafi nýlega sézt í nætur klúbb Jack Ruby, og telur, að báð- ir mennirnir hafi tekið þátt í sam- særinu, sem einnig aðstoðarmenn Dallas-lögreglunnar hafi verið blandaðir í. . í Tass-fréttum frá Moskvu, sem byggðar eru á útsendingum sjón- vanpsins í Dallas ,er sagt frá því að nafnlausir menn hafi hringt m. a. ;. borgarstjórann og aðra háttsetta menn í Dallas og hótað þeim öllu illu. Cabell borgarstjóri, sem ætl- 'iði að fljúga til Washington, var liótað að flugvél hans yrði sprengd i loft upp. Tass segir að ailt bendi i.il þess að morðið á Kennedy for- seta hafi verið fyrirfram ákveðið og framkvæmt af fólki, sem standi lerigzt til hægri, fasistum og kyn- þáttaofstækismönnum. Báts var saknaS KJ-Reykjavík, 25. nóv. í dag var auglýst eftir litlum báti, sem fór frá Vopnafirði á laugardag og ætlaði til Raufar- hafnar. Ekkert hafði spurzt til bátsins og voru menn farnir að ótt- ast 'um hann. Skömmu eftir auglýsinguna kom tilkynning þess efnis, að báturinn væri kominn fram. Einn maður var á bátnum, og sakaði hann ekki þrátt fyrir útivistina. Hann hafði segl og árar um borð hjá sér og gat bjargað sér á því, þangað til bátur kom og fór með hann til Þórshafnar. FB-Reykjavík, 25. nóv. Að undanförnu hefur verið frá því skýrt í blöðum, að sætanýt- varðberg" í EYJUM Stofnfundur annars VarS- bergsfélagsins utan Reykíia- víkur var haldinn í Vest- mannaeyjum sunnudaginn 27. okt. Rúmlega 30 ungir menn úr lýðraeðisflokkunum þrem- ur stóSu aS stofnun félagsins. Fundurinn hófst með að kosinn var fundarstjóri Sig- fús Johnsen og fundarritari Adoif Bjarnason. Þá fluttu Hörður Sigurgests- son, frá stjórn; Varðbergs í Reykjavík erindi um starf Varðbergs, tilgang félagsins og framtíðarverkefni þess. Þá fór fram stjórnarkjör og voru eftirfarandi kosnir í stjórn: Sigfús J. Johnsen, for maöur; Eggert Sigurláksson, 1. varaform.; Hermann Ein- arsson, 2. varaform.; Stefán Björnsson, gjaldkeri; Sigur- bergur Hávarðsson, ritari. — Meðstjóimendur: Hjörleifur Hall'grímsson, Atli Ásmunds- son, Garðar Arason, Vilhelm Júlíusson, Jón Stefánsson, Jó- hann Stefánsson og Pálmi Pét ursson. Ssm kunnugt er, var Varð- berg stoínað á Akureyri fyrir um það bil mánuði, en auk þess verða Varðbergsfélög stofnuð næstu vikurnar á Akranesi, Sauðárkróki, Siglu- firði, Húsavík og Keflavík. Myndin er af stjórninni ný- kjörnu í Vestmannaeyjum. Holur FB-Reykjavík, 25. nóv. Hitaveitan er smám saman að beizla fleiri holur með heitu vatni hér í Reykjavík. Fyrir nokkrum dögum var einni holu bætt inn á Reykjavíkurkerfið, en úr henni koma um 40 sek/lítrar af 130—135 stiga heitu vatni. Að sögn Jóhannesar Zoega hita- veitustjóra verður væntanlega bætt við tveimur borliolum einhvern tíman seint í þessum mánuði cöa í næsta ínánuði. Vatnið í þeim er heldur minna en í þeirri sem kom inn á kerfið um daginn, eða Féll3m. niBuráís PE-Hvolsvelli, 25. nóv. Milli kl. 8 og 9 í morgun varð það slys við gömlu Þverárbrúna, sem nú er verið að rífa, að Jóhann Jónasson frá Seli í Austur-Land- eyjum féll niður af sverum burð- arbita, sem reyndist fúinn, þegar á var stigið, niður' á ís. Fallið var 2—3 metrar og slasaðist Jóhann illa. Þorgeir Gestsson, héraðslækn- ir gerði að meiðslunum til bráða- birgða, en síðan var Jóhann flutt- ur á sjúkrahúsið á Selfossi og þaðan til Reykjavíkur á Lands- spítalann. Blaðið fékk þær upplýs- ingar á Landsspítalanum í dag, að Jóhanni liði bærilega, en hann hefði viðbeinsbrotnað. ingin í Atlantshafsfiugi SAS með lágu fargjöldunum sé mjög léleg eða allt niður í 30%. Biaðið spurði Karl Nilsson framkvæmdastjóra SAS, hvað hæft væri í þessu, en hann sagði að ferðirnar hefðu gengið sæmilega. Fulltrúai Loftleiða og Flugfé- iagsins héi heims sögðust ekkert hafa um þetta heyrt, annað en það, sem þeir hefðu lesið í blöð- um. Alfreð Elíasson sagði einnig, að ekki væri enn hægt að segja um það, hvort þetta flug SAS hefði tekið farþega frá Loftleiðum, til þess hefði þetta flug ekki staðið nágu lengi. Blaðið talaði við Karl Nilsson forstjóra SAS og spurði hann, hvernig þessar ferðir hefðu geng- ið. Hann kvað þær hafa tekizt sæmilega eða eins og við hefði mátt búast, en nákvæmar skýrsl- ur um útkomuna hefði hann ekki fengið enn, enda hefðu ferðirnar staðið stutt, og því lítil reynsla komin á þær Ekki kvaðst Nilsson heldur geta sagt um það, hvert á- framhald yrði á ferðunum. Það væri á 1 di TATA, hvað úr þeim yrði. FLUGIÐ GANGI SÆMILEGA NILSON SEGIR, AÐ ÖDÝRA beizlaðar í kerfið milli 20 og 30 sek/lítrar, en hit- inn er sá sami. Þessar holur eru allar ofanverðu við Suðurlands- brautina, en á þessu svæði eru < nn eftir nokkrar holur óvirkjaðar. Hitaveitan hefur verið að prófa sig áfram með dælurnar og fyrir komulag þeirra í holunum, og verð ur ekki fleiri holum bætt við fyrr en næsta sumar, þegar reynsla er l:omin á þær sem þegar hafa verið virkjaðar. Ekki sagði hitaveitustjóri full- sannað enn þá, hvort vatn minnk aði ekki i einni holunni, þegar ónnur væri boruð skammt frá eins og gert hefur verið við Suður- Inndsbrautina en að sálfsögðu hiytu að vera einhver takmörk fyrir því hversu mikið mætti bora á sama svæðinu, án þess að vatnið í holunum sem fyrir væru minnk- aði. Rannsóknarboranir hafa farið íram inn við Elliðaár, og er hér urr mælingaholur að ræða. Þær eru flestai um 200—300 metrar að dýpt og hitinn i þeim um 60 stig Hitinn í eldri og grynnri holun- u.t í Reykjavíkurkerfinu er um 30 gráður, en þær eru 3—400 metrai djúpar. Nýrri og dýpri holurnar tru frá 800 í 1200 metra djúpar að einni undanskilinni, sem er 2200 metrar, og hitastigið í þeim er 130 —340 stig HAFORN heimsotti

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.