Tíminn - 26.11.1963, Side 7

Tíminn - 26.11.1963, Side 7
Útgefcindi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Tómas Árnason. — Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Frétta. stjóri: Jónas Kristjánsson. Auglýsingastj.: Sigurjón Davíðsson. Ritstjómarskrifstofur f Eddu húsinu. símar 18300—18305 Skrif stofur Bankastr 7 Afgr.sími 12323 Augl., sími 19523 Aðrar skrifstofur, sími 18300. Áskriftargjald kr. 80,00 á mán. innan- iands. í lausasölu kr. 4.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f — Byggt land eða óbyggt GERUM RÁÐ FYRIR, að ókunnugur útlendingur spyrði: Hvað er það, sem einnkennir Framsóknarflokkinn og hefur gert hann svo langlífan á sviði þjóðmálanna? — Gerum ennfremur ráð fyrir, að fynr svörum yrði ein- hver þeirra traustu og góðu drengja víðs vegar um land, sem lengst og bezt hafa lagt fram lið sitt til að efla þessi samtök í heimabyggð sinni í sveit eða við sjó. Hvernig myndi hann þá svara? Honum myndi í svari sínu áreiðanlega farast orð eitt- hvað á þessa leið: Eitt aðaleinkenni Framsóknarflokksins er landnáms- og landsbyggðarhugsjón hans. Hann hefur orðið og mun enn verða langlífur í landinu, af því að hann trúir á landið og sýnir það í verki. Á Alþingi því, er nú situr, hafa Framsók'narmenn enn á ný á ýmsan hátt, fylgt fram þeirri stefnu, sem hér er um að ræða, m. a. með flutningi iagafrumvarps þess, er áður hefur verið getið hér í blaðinu um ráðstafanir til að stuðla að jafnvægi í byggð landsins. í þessu frum- varpi er gert ráð fyrir að komið verði upp sérstakri rík- isstofnun í tengslum við Framkvæmdabankann, er hafi það eitt með höndum, að vinna að eílingu byggða í þeim landshlutum, sem eiga við beina eða hlutfállslega fólks- fækkun að stríða, og fái til umráða í því skyni fastákveð- in hundraðshluta (1V2%) af ríkistekium ár hvert. Miðað við gildandi fjárlög ætti þetta að vera 33 millj. á þessu ári. Með því að ákveða tekjur landsbyggðastofnunarinnar eða jafnvægis sjóðsins á þennan hátt, á að koma í veg fyr- ir, að þessi téð framlög til eflingar landsbyggð dragist aftur úr um leið og fjárlögin hækka og krónan minnkar eins og nú hefur orðið raunin á am ríkisframlög tii ýmissa framkvæmda, sem að því miða að bæta aðstöðu þeirra landshluta, sem nú eru illa o vegi staddir. Gert er ráð fyrir þeim möguleika, að einstakir landshlutar geti sjálfir tekið í sínar hendur að meira eða minna leyti þa starfsemi sem hér er um að ræða, hver á sínu svæði og fengið þá sinn hluta úr hinum alm-nna jafnvægissjóði ef þeir geti útvegað nokkurt fé til ./.ðbótar heima íyrir Þá er og gert ráð fyrir sérstakri og skjótri aðstoð við þau byggðarlög, sem dregizt hafa aftur úr eða yfirvofandj hætta er á að dragist aftur úr því, sem almennt er, enda séu þar vel viðunandi atvinnurekstrarskilyrði frá náttúr- unnar hendi á landi eða sjó. Landið hefur skapað þjóðina, mennmgu hennar og sjálfstæði. Við íslendingar, svo furðu fámennir sem við erum samanborið við íbúa annarra lar.da, erum sjálfstæð þjóð af því að við eigum einir og' byggjum einir land okkar. Landið hefur stækkað þjóðina í augum sjálfrar sín og umheimsins. Landið er dýrmætasta eign hennar, og á meðan hún á það með öllum þess framtíðarmöguleikum má hún teljast rík þjóð. En þjóð getur ekki átt land sitt ti frambúðar, nema hún ræki þá frumskyldu sína að byggja það og tengja við það líf sitt og starf. Ef landsbyggð leggst niður — ef þjóðin safnast öll saman á litlum blett. — mun hún, er stundir líða glata „obyggðum“ þeim, ei ráðherra einn gerði að umtalsefni fyrir nokkrum árum og láta sig það litlu skipta Hún mun þá einnig glata sjálfri sér. Landsbyggð er landvörn. Su þroun, að fólki fjölgi aðeins i höfuðborg hennaj og nágrenni, en fækki í öðrum landshlutum, er uggvæn leg fyrir hina vaxandi höfuðborg ekkert síður en aðra landshluta. Þegar landsbyggðin og þa> með framtíð þjé/ arinnar er í hættu eins og raun ber' vitni, erum við öll sama bát sem af íslenzku bergi erum brotin. hvort sem við eigum heima í Reykjavík eða í þorpi eða sveit. Veröur Johnson góöur forseti? ForfíS hans spáir vel um forsetastjórn hans DAGINN, sem Franklin Del- ano Roosevelt dó, rakst blaða- maður á einum ganginum í þinghúsinu í Washington á ung an þingmann, sem var með tár í augunum og átti erfitt um mál. Honum fórust orð eitthvað á þessa leið: — Hér ex nóg eftir af mönnum sem ýmist eru að vinna að mál- um eða tefja fyrir þeim. En sá, sem stjórnaði öllum leiknum, er fallinn frá. Síðan bætti hann við: — Roosevelt var mér alltaf eins og góður faðir. Hinn ungi þingmaður, sem mælti þessi orð, var Lyndon B. Johnson. Það var ekki sízt fyrir hvatn- ingu frá Roosevelt, að Johnson bauð sig fram til þings. John- son var þá fulltrúi í Washing- ton hjá einum þingmanninum frá Texas. Roosevelt kynntist honum af tilviljun og leizt giftu samlega á hinn unga mann. Síð an hél'zt alltaf kunningsskapur þeirra og Johnson hefur jafnan síðan litið á Roosevelt sem pólitískan lærimeistara sinn. Annar maður hefur þó kannske haft meiri áhrif á Johnson. Það var Sam Rayburn. sem einnig var frá Texas og var áratugum saman helzti leið- togi demokrata í fulltrúadeild- 'innj og oft revndist' beim Roose; velt og Truman mikil hjálpar- hella Á áratugnum 1950—60 voru þeir Ravburn og .Tohnson val'damestu menn þingsins Johnson í öldungadeildinni og Rayburn í fulltrúadeildinni. Nær allt. löggjafarstarf Eisen- howers bvggðist á aðstoð þess- ara tveggja manna. Flokkur hans var lengstum í minnihluta í báðum deildum. og því þurfti hann að sækia undir leiðtoga demokrata á þingi Þeir John son og Ravburn fóru óneitan- lega drengilega meS þetta vald sitt gagnvart Eisenhower Fyr- ir þetta blaut .Tnhnson hins veg ar á sie meira hægra nrð en hann át.ti skilið. en hinum gömlu féihgum hans i friál.siynh ara armi demokrat.a þótti hanr stundum ganga of langt til mála JOHNSON vann sér það orð sem þingmaður. að hann mun iafnan talinn í rn« áhrifamestu manna sem átt. hafa sæti á þingi Bandaríkjanna. Hann átti fyrst í 10 ár sæti í full t.rúadeildinni. en síðan i 12 ár i öldungadeildinni Hann hafði aðeins verið í öldungadeildinm í 4 ár. begar hann var kjörinn formaður demokrata þar eða sama árið og Eisenhower varð forseti Tnhnson náði fljótt eft ir það slíkum áhrifum í öld ungadeildinni að hann er tal- inn hafa verið valdameiri þar um skeið en nokkur ann- ar maður á bessari öld Þetta hvggðist einkum á tvennu Hann var hamhlevpa við störf — vann oftast 16—18 klst dag lega — ng kvnnti sér menn or málefni mjög gaumgæfilega Hann þekkt’ alia þingrnennlna vissi um óskir þeirra þekkt' styrkleika þeirra ng veiklelka og eins oe spilaði á þá efti' ’-iöivm. Hkt og Roosevelt forð .uii Þetta gerði hann að frá 1 BRM LYNDON B. JOHNSON bærum samningamanni og hef- ur stundum verið sagt, að Bandaríkjamenn hafi ekki átt annan meiri málamiðlunar- mann. Öldungadeild Bandaríkj- anna skipar svo sundurleitur hópur. að fáum meiriháttar 1 málum verður komið þar fram. nema með mikilli lagni og ein- beitni þess. er beitir sér fyrir þeim. A þeim vettvangi kemur sér vel það kjörorð, sem John- son hefur oft vitnað tii: Stjórn- málin oru vísindi um hið mögu- lega VEGNA þess að Johnson hafði mikið saman við Eisen hower að sælda, — en hann var einmitt foringi demokrata í öldungadeildinni sömu árin og Eisenhower var forseti, — þurfti hann oft að miðla mál um við republikana. Þetta kom á hann meiri hægri stimpli en hann verðskuldaði, og var hon- um til hnekkis. er hann keppti við Kennedy við forsetakjörið 1960. Ef athuguð er þingsaga þeirra Johnsons og Kennedys mun koma í ljós. að Johnson var sízt minna til vinstri en Kennedy Hann naut líka sem forsetaefni ákveðins stunðings margra forustumanna í frjáls forsetaefni ákveðins stuðnings þar fyrst nefna Truman for seta. er taldi Johnson og Harri man vera beztu forsetaefni demokrata Truman studdi Johnson mjög eindregið sem fr'vc;etaefni 1960 Það. sem réði baggamuninn á fiokksþingi demokrata 1980 °r þeir Kennedy og Johnson kepptu um framboðið, var ekki aðeins fyrirmennska Kenn edys, heldur engu síður það. að Johnson var Suðurríkjamaður. Síðan í borgarastyrjöldinni hef- ur ekki þótt heppilegt að bjóða Suðurríkjamann fram sem for- setaefni, en þeir hafa oft verið varaforsetar. Johnson er fyrsti Suðurnkjamaðurinn, sem sezt í forsetastól Bandaríkjanna sið an 1865, er nafni hans, sem einnig var varaforseti, tók við af Abraham Lincoln. Þótt þeir Johnson og Kenn- edv hefðu deilt hart hvor á annan fyrir fiokksþing demo- krata 1960. bauð Kennedy John- son eigi að síður varaforseta- sætið og Johnson þáði það. Fyr- ir vikið bóttu þeir báðir meiri menn eftir en áður Vafasamt er talið. að Kennedy hefði náð kosningu. ef Johnson hefði ekki verið varaforsetaefnið og notið vinsælda sinna í Suðurríkjun- um. ÞVÍ VAR spáð að Johnson mvndi kunna bví illa að verða varaforseti eftir að hafa verið E valdamesti maður Bandaríkja- B þings. Varaforsetinn verður að H gæta þess að gera ekki neitt. skyggi á forsetann og segja K ekki neitt. sem gæti verið hon- H um óþægilegt Þetia gekk þó 8 hetur en búizt var við Kenn fe pdv fól Johnson líka meiri || =törf en varaforseti hafði gegnt k áður og lét hann hafa sem * bezta aðstöðu til að fylgjast K með á öllum sviðum Johnson g| hefur því fengið betn undirbún g ’ng til að taka við forsetaemb i ættinu en nokkur fyrirrennari | hans og er þaulkunnugur mál ’’m jafnt utan lands sem innan Samvinna þeirra Johnsons £ og Kennedys tóksl ínjög vet | Framhald á 13 síðu. 2 J T f M I N N, þriðjudaginn 26. nóvember 1963. 7 I

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.