Tíminn - 03.12.1963, Blaðsíða 14

Tíminn - 03.12.1963, Blaðsíða 14
ÞRIÐJA RÍKIÐ WILLIAM L. SHIRER Á þegsari alvarlega stundu skarst Adolf Hitler sjálfur í leik- inn og hafði saraband við Stalín. Hann kyngdi stoltinu og fór þess persónulega á leit við Sovét-ein- ræðisherrann, sem hann svo oft og svo l'engi hafði verið illviljaður, að hann tæki á móti utanríkisráð- herranum í Moskvu þegar í stað. Skcyti hans var sent í flýti til Moskvu klukkan 6:45 á sunnu- dagseftirmiðdag, 20. águst, aðeins tólf stundum eftir að skýrsla Schulenburgs barst. Foringinn sagði sendiherranum, að afhenda Molotov skeytið „undir eins“. „Stalín, Moskvu. Ég fagna af heilum hug undir- ritun hins nýja sovét-þýzka-verzlun arsamnings, sem fyrsta skrefinu í áttina að bættu sambandi milli ríkjanna. Fyrir mér er undirritun „ekki- árásarsamnings“ við Sovétríkin sem upphaf að langvarandi breyttri utanríkisstefnu. Með því tekur Þýzkaland upp stjórnmála- stefnu, sem héfði verið hagkvæm báðum ríkjum síðústu aidirnar . . . Ég samþykki uppkastið að þess- um samningi, sem utanríkisráð- herra yðar, Molotov, hefur afhent, en tel bráðnauðsynlegt, að gengið veröi frá ýtnsum atriðum í sam- bandi við hann eins fljótt og auð- ið er. Viðbótarsamningunum, sem Sov- étríkin æskja eftir, verður án efa hægt að ganga frá á mjög skömm- um tíma, ef ábyrgur þýzkur stjórn- málamaður getur komið til Moskvu í eigin persónu til samn- ingaviðræðna þar. Á annan hátt getur stjórnin ekki séð, hvernig hægt yrði að ganga frá þessum samningi á skömmum tíma. Spennan milli Þýzkalands og Póllands er orðin óbærileg . . . og til átaka getur kornið hvenær sem er. Þýzkaland er staðráðið í því héðan í frá, að gæta hágsmuna Ríkisins og beita til þess öllum þeim aðferðum, sem það hefur yfir að ráða. Skoðun mín er sú, með tilliti til þeirrar fyrirætlunar ríkjanna beggja að koma á betra samkomu- lagi sín í millum, þá sé um að gera að láta engan tíma fara til spillis. Því sting ég enn upp á því, að þér takið á móti utanríkisráðherra mínum þriðjudaginn 22. ágúst, en í síðasta lagi miðvikudaginn 23. ágúst. Utanríkisráðherra Ríkisins hefur fullt vald til þess að gera og undirrita sáttmála um að ekki verði gerð árás á Sovétríkin, sem og viðbótarsamning þann, sem um hefur verið rælt. Utanríkisráðherr ann getur ekki staðið við í meira en einn eða tvo daga í Moskvu vegna ástandsins í alþjóðamálum. Ég myndi verða glaður að fá svar frá yður sem fyrst. ADOLF HITLER." Næstu tuttugu og fjórar klukku- stundirnar frá sunnudagskvöldi 20. ágúst, þegar bæn Hitlers til Stalíns var send ál'eiðis til Moskvu, og þar til næsta kvöld, var for- inginn í þannig hugarástandi, að hann var að því kominn að fá taugaáfall. Ilann gat ekki sofið. Um miðja nótt hringdi hann í Göring til þess að segja honum frá áhyggjum sínum yfir viðbrögð um Stalíns við skeyti hans og til þess að þrasa yfir drættinum í Moskvu. Klukkan 3 um nóttina, 21. ágúst, barst utanríkisráðuneyt- inu „mjög áríðandi“ skeyti frá Schulenburg, þar sem sagt var að skeyti Hitlers, en Weizsacker hafði sagt honum frá því fyrir fram, hefði enn ekki borizt. „Opin- ber skeyti milli Berlínar og Moskvu eru fjórar til fimm klukku stundir á leiðinni,“ sagði sendi- herrann, „þar með talinn tveggja stunda tímamismunur. Þar við verður að bæta tíma til lesturs á skeytinu." Klukkan 10:15 á mánu- dagsmorgun, 21. ágúst, sendi hinn bráðláti Ribbentrop af stað áríð- andi skeyti til Schulenburgs: „Gjörið svo vel að gera það, sem í yðar valdi stendur til þess að tryggja það, að af ferðinni geti orðið. Og dagsetningarnar verði eins og stendur í skeytinu.“ Stuttu eftir hádegi, sagði sendiherrann í skeyti til Berlínar: „Ég á að hitta Molotov klukkan 3 í dag.“ Að lokum klukkan 9:35 að kvöldi þess 21. ágúst kom svar Stalíns yfir símalínurnar til Berl- ’ ínar. „TIL KANSLARA RÍKISINS A. Hitlers: Ég þakka yður bréf yðar. Ég vona, að þýzk-sovézkur samningur um, að ríkin muni ekki gera árás- ir hvort á annað, muni koma til leiðar breytingu til hins betra á stjórnmálasambandi landa okkar. Þjóðirnar þarfnast friðsamlegr- ar sambúðar. Samþykki þýzku stjórnarinnar á þessum sáttmála er undirstaða að því að gera að engu spennu þá, sem ríkir í stjórn- málum og koma á friði og sam- vinnu milli landanna. Sovétstjórnin hefur falið mér að tilkynna yður, að við samþykkjum, að Herr von Ribbentrop komi til Moskvu 23. ágúst. J. STALÍN.“ Af eintómri kaldhæðni hafði svo farið, að nazistaeinræðisherrann hafði hitt fyrir jafningja sinn þar sem var kominn sovézki einræðis- herrann. Nú var leiðin opin fyrir þá að ganga nákvæmlega frá ein- hverjum af skuggalegustu samn- ingum þessa skítuga tímabils. Svar Stalíns var sent áfram til ! foringjans í Berghof klukkan 10:30 um kvöldið. Fáum mínútum síðar, minnist höfundurinn þess — kl. 11 um kvöldið — a'^skyndilega var rofin tónlistarútsending í þýzka útvarpinu og rödd heyrðist tilkynna: „Stjórn Rikisins og Sov- étstjórnin hafa samþykkt að gera samning, sem kemur í veg fyrir, að ríkin geri árás hvort á annað. Ríkis-utanríkisráðherrann mun halda til Moskvu á miðvikudaginn, 23. ágúst, til þess að taka þar þátt í lokaviðræðunum um málið.“ Næsta dag, 22. ágúst 1939, eftir að Stalín sjálfur hafði fullvissað Hitler um, að Rússland rnyndi verða vinsamléga hlutlaust, þá kall aði liann enn einu sinni á fund sinn æöstu menn herjanna, en fundurinn var haldinn í Obersalz- berg, og þar þuldi hann yíir þeim heilmikið um mikill'eik sjálfs sín og þörfina á þvi að háð yrði dýrs- leg styrjöld og án nokkurrar með- aumkunar og skýrði þeim frá því, að ef til vill myndi hann gefa út skipun um að ráðizt skyldi á Pól- land innan fjögurra daga, laugar- daginn 26. ágúst — sex dögum á undan áætlun. Stalín, liinn mikli ó.vinur foringjans hafði gert þetta mögulegt Hernaðarráðstefnan 22. ágúst Hershöfðingjarnir hittu Hitler í einu af hans mestu hrokaköstum, og sjaldan hafði hann verið jafn ósveigjanlegur. „Ég hef kallað yður hingað“, sagði hann, „til þess að gefa ykkur yfirlit yfir stjóm- málaástandið, svo að þér getið haft nokkra innsýn í einstök atriði, sem hafa orðið undirstaða að hinni ó- umbreytanlegu ákvörðun minni um að grípa til aðgerða og til þess að styrkja traust yðar. Að því loknu munum við ræða hermálin." Fyrst af öllu“. sagði hann, „eru tvö atriði, sem athuga þarf. — Persónuleiki sjálfs mín, og Mussolinis. Allt byggist á tilveru minni og á mér, vegna stjórnmálahæfileika minna. Þar að auki á þeirri stað- reynd, að' ef til vill mun enginn annar eiga eftir að hafa eins allt traust þýzku þjóðarinnar eins og ég hef nú. Vel getur verið, að aldrei aftur í framtíðinni verði maður valdameiri en ég er. Til- vera mín er því mjög mikilsvert atriði. En mér getur verið rutt úr vegi á hverju augnabliki, og það 28 — Hey!, sagði hann reiðilega, en hann horfði aðeins á græna hurðina, sem hún hafði skellt aftur á nefið á honum. Phil strauk fingr- unum eftir vörum sér og seildist eftir vasaklútnum til að þurrka burtu blóðið, sem vætlaði fram. — Fari það í heitasta . . . taut- aði hann og sneri frá dyrum henn- ar. Hann gerði sitt bezta til að skell'a lyftuhurðinni harkalega ^aft- ur, og áður en hann fór að sOfa, reyndi hann að svala sárustu gremju sinni á dauðum hlutum í íbúðinni. — Stelpufjandi, tautaði hann fyrir munni sér, jafnvel meðan hann var að festa svefninn. Þetta var á laugardagskvöldi, eða öllu heldur snemma á sunnu- dagsmorgni. Þetta var í fyrsta skipti, sem kona hafði nokkru sinni snoppungað Phil, og hann hafði alls ekki hug á að láta það endtittaká sig. Hann svaf lengi frarti éftir, fór til kirkju sarn- kvæmt venju, og fékk sér svo aft- ur blund undir kvöldið. Regnið hélt áfram að streyma úr loftinu. Hann fór út til þess að borða kvöldverð, en kom heim aftur um níuleytið og var niðursokkinn í bréfaskriftir — hafði reyndar ný- lokið einu til mín — þegar sím- inn hringdi. Hann greip símtólið og heyrði ofurlítið æsta kven- mannsrödd kynna sig sem Page Arning. Phil sperrti brýnnar í undrun. — Já, sagði hann varfærnislega. Það væri þó saga til næsta bæjar, ef hún vogaði sér nú að biðjast fyrirgefningar. — Mér þykir mjög leitt að ó- náða þig svo seint, læknir, sagði hún titrandi röddu. — Ó, það er er allt í lagi. Kiukkan er aðeins rétt rúmlega tíu. — Já, ég veit það. Ég hef nefni- lega verið að vinna hérna. — Hérna hvar? — Á rannsóknarstofunni. Ég vinn oft hérna á sunnudögum, en ég vann óvenju lengi fram eftir núna, fékk svo mikinn áhuga á því, sem ég var að fást við. Og . . . og satt að segja er ég hrædd um, að ég sé læst hérna inni. — Ja, nú er illt í efni, sagði Phil, en augu hans l'jómuðu af kát- ínu. — Já, það má nú segja, því að það er ekki einungis, að ég hef ekki etið matarbita, síðan í morg- un, heldur eru gólfin hérna líka dálítið hörð til að sofa á. — Og er ekki nokkur sála þarna í nánd? — Ég veit það eiginlega ekki. — Æ, það er rétt, þú getur ekki heyrt í þeim. — Nei. Þetta var rödd lítillar og óttasleginnar stúlku. Ég er bú- in að reyna að hringja á dyra- vörðinn, en hann svarar ekki. Hann er líklega úti í garðinum, kannske í fylgd með stúlku. — Nei, áreiðanlega ekki. Bros hans var breitt, hann naut þess- arar stundar í ríkum mæli. — Ja, svona er þetta nú, sagði Page, mjóum, óöruggum rómi. — Það rignir, dr. Arning. Ef salt skal segja, þá er alveg helli- rigning. — Er það? Hann heyrði, að hún greip andann á lofti, og hann fann til sektar. — Hvað viltu annars að ég geri? Það gæti verið hættulegt að eltast við dyravörðinn, ef hann er með stúlkul en ég mundi auð- vitað gera það fyrir þig. — Nei, sagði hún og var nú lík- ari sjálfri sér. — Uppástunga mín er sú, að — ég er búin að reyna allt, sem mér dettur í hug í heilan ÁSTII K LÆKNISIh IS ELIZABETH SEIFERT þarna á gistíhúsinu, og mér finnst ég þekkja þig nógu vel — ég gæti náttúrlega beðið dyravörðinn en . . . — Nú, nú? — Ég gæti hringt í dyravörðinn og beðið hann að hleypa þér inn í íbúð mína. Þar feætir þú fundið lykilinn að byggingunni hérna í bláu töskunni minni á borðinu. Það er ekki líkt mér að gleyma töskunni minni og lyklunum, en . . . Já, nú heyrði hann greinilegt kjökur. — Nei, heyrðu nú, reyndu nú að vera róleg, sagði Phil fljót- mæltur. Hann skemmti sér ekki lengur yfir óförum hennar. Það hlaut að vera allt annað en á- nægjulegt að vera lokaður inni í þessu völundarhúsi. — Ég kem eins fljótt og ég get. Hann hafði skóskipti i snatri og þreif regnfrakkann sinn. Hann talaði við dyravörðinn og náði í lykilinn í bláu töskuna — sömu bláu töskuna og hún hafði verið með kvöldio áður — og hraðaði sér niður Kingshighway. Hann tók það ráð að ganga vegna hinnar miklu umferðar. sem hafði tafið hann á bílnum. Dyravörðurinn var enn ekki kominn, borðið hans var autt, nema klukkan lá á hvolfi við hlið- ina á símanurt, - Skrópari, sagði Phil upphátt, og veggirnir berg- mánuðu draugaleg orð hans. Hann fór inn í lyftuna og stöðv- aði hana á þeirri hæð. sem hann vonaði að væri sú rétta. — Til klukkutíma — en þú býrð núlfjandans með allar varúðarráðstaf- anir og tauðhreinsaða galla, taut- aði hann, bakteríurnar hljóta að virða helgi dagsins. Eftir að hafa þrætt í gegnum nokkur dauð- hreinsuð herbergi, rakst hann loks á réttu dyrnar, og þar fann hann Page. Hún stóð þarna hjálparvana, með hvítan kappa í hendinni, varir hennar titruðu, og hún var stór- eyg af skelfingu. Hann opnaði faðminn, og hún hvarf til hans. Hann kyssti hana, eins og hann hefði kysst óttaslegið barn, og hún leyfði honum það. — Vesalings barn, sagði hann blíðl'ega, og hún snökti við öxl hans. — Ég skil ekki, hvers vegna ég hef verið svona hrædd, kjökraði hún. — Þetta er svo kjánalegt. — Það er ekki vitund kjánalegt. Staðurinn er draugalegur. jafnvel í dagsbirtu Og hann kyssti hana aftur, í þetta sinn sem konu. Og aftur leyfði hún honum að gera það, þó að hún losaði faðmlögin fljótt. Hún gaut tii hans augunum og roðnaði. — Ég verð að skipta um föt, sagði hún feimnislega — Vitaskuld Ég bíð þín fyrir utan dyrnar Hann hallað: sér upp að veggn- um og blístrað- tjörlega, þangað til hún birtist, klædd Ijósri regn- kápu með lítinn hatt á höfðinu. Phil horfði á hana meiri for- vitnisaugum er nokkur baktería hafði nokkrii sinni vcrið litin í þessari mikli rannsóknarstofnun. — Segðu mér eitt, sagði hann, um leið og hann elti hana í átt til lyft- unnar. — Um hvað fjallaði dokt- orsritgerð þín? Og hún svaraði sínum mjúka rómi: — Um steinbítsheilann. Hlátur hans bergmálaði í tómu húsinu. Hann var enn hlæjandi, þegar þau náðu til útidyranna. Page gaut augunum upp á hann. Ljós lokkur liðaðist fram undan hattbarðinu. — Ég býst varla við, sagði hún alvarlegri röddu, að þú kærir þig um ofurlítinn útdrátt úr ritgerðinni? Svo gat hún ekki gert að sér að hlæja. Hann þurrkaði sér um augun og opnaði fyrir henni dyrnar. — Ef til vill gætirðu gætt hann ein- hverju lifi, — en ég efast satt að segjá um það — Ég fékk þó doktorsgráðu út á þetta, áminnti hún hann hreykn- islega. — Ég þori að veöja, að enginn hefur lesið hana. En drottinn minn dýri. líttu út. og ég, sem kom ekki á bílnum. — Kápan mír> og hatturinn eru vatnsþétt Svo mikih is hafði bráðnað við hressilegan hlátur þeirra, að hún leyfði honum að taka hönd henn- ar. í handarkrika sinn, og þannig þrömmuðu þau hlið við hlið í rigil- ingunni Hún gaf honum ekkert eftir á göngunni. og barðið á litla snotra regnhattinum hennar bar yfir hægri öxl hans — Á ég ekki að biðja um smurt brauð Og súkkuláði upp í íbúðina mína?, spurði hann, þegar þau Irnrrm tricfi hncci nc T7rt 14 TIMINN, þriðiudaginn 3. desember 1963.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.