Tíminn - 08.12.1963, Síða 8

Tíminn - 08.12.1963, Síða 8
Mikill bókmenntaviðbnrður: Ný skáldsaga eftir IticfríSa Gr. Þorsíeinsson Land og synir Menn hikuðu ekki við að fullyrða, að S.jötíu og: níu a( stiiöinni vaeri bezta íslenzka skáldsagan, sem út kom á sjötta áratug aldarinnar. Og ekki orkar tvímælis, að Land Og synir er langfremst þeirra íslenzku skáldsagna, sem komið hafa út á sjöunda áratugnum. Land oá synir er enn betur skrifuð en Sjötíu og níu af stöðinni og er þannig fullnaðarsönnun þess, að Indriði G. Þorsteins- son er mikilhæfastur þeirra rithöfunda, sem kvatt hafa sér hljóðs á íslandi eftir lok heimsstyrjaldarinnar síðari. IÐUNN Skeggjagötu 1 - Sími 12923. Í25J iEI DVOL Af tímai’tinu DVÖL eru *ál nokkrir elar. árgangar ig exn- stök hei'ti rrá fyrri timum — Hafa ven>' <eknii saman aokKr- ir Dvalarparrar sem hafa inni að halda nn 1500 blaðsíður *f Dvaiarhc-rurr með um 200 smá sögum rðfl'pga býddum urvais sögum aii'i margs annars efn- is. greins Ijóða Hver þess ara pakKf n.istai kr 100.— og verður sení burfiargjaldstrftr. ef greiðsla fylgi» pöntun ann ars i postsjöfu — Wikið ag gott lesefn' ryrjj litið fé — Pantanii ivndist til' Tímar'fið DVÖL Di$ranesveg! 107. Kópavogi. GfSLl B. BJÖRNSSON AUGLÝSINGASTOFA ÞINGHOLTSSTRÆTI 3 SfMI 1 15 17 - 365 35 <r' ■■ • -vj WÉÍMtti POLJOT- URIÐ NÁKVÆMT, STERKT, HÖGGVARIÐ, VATNSÞÉTT í stjórnklefa geimskipsins jafnt og á hendi kafarans, hafa hinir miklo kostir sovézku armbandsúranna „POLJOT" komið í Ijós NÝTÍZKULEG, FORM- FÖGUR ÚR, MEÐ 16 TIL 22 STEINA AKKERISVERKI framleidd í fjölda gerða; meðal annars með DAGATALI, SJÁLFVINDU OG VEKJARA. AHar nánari upplýsingar gefur SIGURÐUR TÓMASS0N, Skólavöröustíg 21 — Reykjavik Tálf bækur frá Ægisútgáfunni Ægisúlgáfan (Guðm. Jakobs- son) gefur út á þessu hausti 12 bækur, og hefir tveggja þeirra verið áður getið. en þær eru: í BJÖRTU BÁLI er frásögn Guð- mundar KarlsSonar, blaðamanns og fyrrum slökkviliðsmanns, af brunanum mikla í Reykjavík. árið 1915 Þetta er 229 blaðsíðna bók í stóru broti og prýdd fjölda mynda frá atburðinum og af mönn | um þeim, sem helzt koma við [ þessa sögu af mesta eldsvoða á íslandi. Þeir, sem ætla kynnu að þessi atburður i sögu höfuðborg- arinnar, væri ekki efni nema svo sem í einn kafla, munu hljóta leið- réttingu í bók Guðmundar, því kaflarnir eru tuttugu og tveir: Reykjavík 1915. Daginn áður, Brúðkaupsveizlan Herbergi nr. 28, Eldur! Eldur! Maður brennur inni, Neyðarhringing, Bardaginn hefst, Cheviot úr Syndikatinu, Víg- stöðvarnar, Lúðrablástur, Byssan og Biblían, Blóð og bruni, Ekki verður feigum forðað, Fyrsta vél- dælan, Þar sem hættan er mest, Kassinn dularfulli, Lágspenna — Lífshætta, Húsin sem brunnu, Dag- inn eftir Heiðruðu viðskiptavinir og loks Til þess eru vítin að var- ast þau. Og vera kynni að þeir yrðu býsna margir, sem kæmust að þeirri niðurstöðu að lesinni bók- inni, að engum þessara kafla væri ofaukið. Guðmundur tileinkar þessa fal- legu bók minningu föður sins Karls Ó. Bjarnasonar, varaslökkvi liðsstjóra DÆTUR FJALLKONUNNAR nefnist bók eftir skáldkonuna Hug rúnu, og hefur að geyma æviminn- ingar tveggja kvenna. Sigríðar Sveinsdóttur, sem hefir lagt gjörfa hönd á margt og er óvenju fjöl- hæf og listfeng kona, m.a. hefir hún smíðað hin fegurstu líkön af ýmsum munum og fleira mætti telja. Saga hinnar konunnar, Önnu Margrétar, er baráttusaga fátækr- ar alþýðukonu, eins og hún gerð- ist hörðust um og upp úr síðustu aldamótum. Bókin er 169 bls. UNDIR GARÐSKAGAVITA eftir Gunnar M. Magnúss. 360 blaðsíðna bók í stóru broti, prentuð á gljá- pappír og prýdd fjölda mynda. Þessi bók hefur að geyma sögu byggðarlaganna tveggja, Garðs og Leiru, allt frá landnámsöld. í þess- ari miklu bók Gunnars M. Magn- úss getur að finna nokkra skýr- ingu á því þreki og þeirri atorku, sem gerði þeim Suðurnesjamönn- um fært að sækja jafn fast sjóinn og um var kveðið. Mun lesandinn undrast kynsæld hinna fornu Suð- urnesjamanna, því furðulegur fjöldi nafntogaðra atorkumanna, sem efst ber á landi hér í dag, á ættir að rekja undir Garðskaga- vita, samkvæmt fræðum bókar- innar, og ljóst verður einnig af lestrinum, að aflasæld formanna gengur að verulegu leyti í erfðir. ALLTAF MÁ FÁ ANNAÐ SKIP heitir fyrsta fók Sigurðar Hreið- ars, blaðamanns; 230 bls. og geym ir farmennskuminningar Rikka í Höfnum, sem er nú góður og gild- ur borgari síns byggðarlags, en sigldi fyrrum á erlendum skipum um heimahöfin Rikki í Höfnum segir sína sjóarasögu af því æðru- leysi og þeirri hreinskilni, sem slíkum frásögnum hæfir bezt og Sigurður Hreiðar hefir fært hana í skemmtiiegan búning. EINFALDIR OG TVÖFALDIR — ný bók eftir Gísla J. Ástþórsson, safn smásagna i léttum dúr með lítils háttar ívafi af alvöru. sem Gísla lætur einkar vel. Höfundur hefir sjálfur gert nokkrar spaugi- legar teikningar, sem prýða bók- ina. Gísli J Ástþórsson hefir öðl- azt slíkan sesc í hugskoti ílenzkra lesenda að mönnum hefir jafnan þótt líða of langt á milli bóka hans, og þessi er vissulega hæfileg til þess að lýsa upp skammdegis- rökkrið, fremur en hitt, og hjálpa mönnum til að brosa. Þessi bók er 140 blaðsíður. GENGIS KHAN, hershöfðinginn ósigrandi eftir Harold Lamb, kem- ur hér út í þýðingu Gissurar Ó. Erlingssonar í 210 blaðsíðna bók. Þessi ævisaga Mongólahöfðingj- ans mikla, sem hóf baráttu sín^ í örbirgð, en lagði undir sig meg» inhluta Asíu og Evrópu, hefur verið þýdd á fjölda tungumála og hvarvetna þótt bæði merkilega fróðleg og ákaflega skemmtileg af- lestrar, enda aldrei gerzt annað eins ævintýri í hernaðarsögu mannkyns og landvinningar Mon- góla undir stjórn Gengis Khan. TÖFRAR ÍSS OG AUÐNA heitir bók eftir danska landkönnuðinn og ævintýramanninn Ebhe Munck, en Gissur Ó. Erlingsson þýddi. Formála að þessari bók skrifar Ejnar Mikkelsen skipherra, sá er Peter Freuchen dásamar mest í bókum sínum, enda fjallar þessi bók að mestu um mannraunir höf- undar og félaga hans á auðnum Grænlands. Að vísu segir þar einnig frá síldveiðum á íslenzku skipi og upphafi útgerðarveldis Lofts Bjarnasonar, — en það er útúrdúr. Töfrar íss og auðna er nær 200 blaðsíðna bók, prýdd fjölda Ijósmynda. ÁST OG ÖRLÖG — þetta er ís- lenzk skáldsaga eftir höfund. sem nefnir sig Jón Vagn Jónsson. 196 blaðsíðna bók. Eins og nafnið bendir til. er hér á ferðinni ástar- saga í hefðbundnum stíl, og gerist hún á dögum dönsku verzlananna. Á kápusíðu segir að Jón Vagn Jónsson sé. hvað sem dulnefninu líður, einn af hinum þekktari með- al íslenzkra rithöfunda IIJÚKRUNARNEMINN eftir Re- née Shann er ein þeirra bóka. sem Gissur Ó Erlingsson hefir þýtt fyrir Ægisútgáfuna, — 240 blað- síðna ástarsaga. BRIMGNÝR OG BOÐAFÖLL heit- ir bók, sem Jónas St Lúðvigsson hefir tekið samán um stórorrustur á sjó og aðra hrikaleiki á höfun- um Segir þar frá mönnum sem horfðust óhræddir í augu við hætt- una og brugðust ekki á hverju sem gekk. Þessi bók er 226 Waðsíður. 8 T f M I N N, sunnudaginn 8. desember 1963,

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.