Alþýðublaðið - 07.04.1943, Blaðsíða 3
AL»VÐUBIAPIQ
*
Míðvikudagur r 7. aprí) 1943»
Joftbardagana í Tunis
Mynd þessi er af þýzkum flugvélum, sem liafa hrapað niður í éyðimörkina af afloknum
bardögum í Tunis.
skjóta niðir 48 fli|
mðndnlvelduniD
vægasta bækistöð Möndulveld-
anna í Tunis.
Bandarfiklamenis og 1. taerinn
breaskl sækfa enn fram.
LONDON í gærkvöldi.
HELSTU fréttirnar frá Túnis eru af loftsókn Banda-
,. manna þar. Flugvélar Bandamanna gerður í gær 10
árásarferðir yfir Tunis og nágrenni.
Þær skutu niður 48 fiugvélar fyrir möndulveldimum.
Af þessum flugvélum voru 18 flutningaflugvélar, Junkers
52, 6 steypiflugvélar og 7 orrustuflugvélar.
Talið er víst, að hinar stóru
flutningaflugvélar hafi verið að
flytja benzín, af því að strax og
skotið var á þær kviknaði í þeim
og urðu þær á svipstundu alelda'
8. herinn hefir hafið stór-
skotahríð á hersveitir Þjóðverja
við Wadi Akoreth, en þetta er
yenja 8. hersins áður en lagt er
til stórárása.
Hersveitir Pattons hafa hald-
ið áfram áhlaupum sínum við
EÍ Gouettar og tókst að ná
tveimur hæðum á sitt vald
þrátt fyrir mjög harða mót-
spyrnu Þjóðverja, sem gera sér
Ijósa hættuna, sem stafar af her
Bandarík j amanna á þessum
slóðum.
Fyrsti herinn brezki þokast
liægt en stöðugt áfram, og er
hann nú óðum farinn að nálg-
ast útvirki Bizerta, sem er mikil
Hðkarl gððnr til
matar.
WASHINGTON
SAMKVÆMT nýjum fregn-
um er nýr hákarl góður
til malar. Vitneskja um þetta,
ásamt uppskrift af mörgum
ö^rum ljúffengum réttum,
gerðum úr fismeti, var birt af
Bureau of Fisheries, til þess að
hvetja fólk að neyta fisks,
vegna strangrar skömmtunar á
kjöti.
i\ ..
Rússar sækja nú úr tveim-
ur áttum að Novorossisk.
MersveiflE* peirra ©m aðeisis 25
fem frá iMÞrglMislo
--------«----
LONDON í gærkvöldi.,
SÓKN Rússa í Vestur-Kákasus heldur áfram. Rússar hafa
rekið breiðan fleyg inn í víglínu Þjóðverja á þessum
stöðvum og segir í rússneskum fréttum að rússneskár her-
sveitir nálgist Novorossisk úr tveimur áttum, úr norðri og
austri.
Rússar hafa tekið mörg þorp
á leiðinni, og hafa Þjóðverjar
varizt af mestu harðleikni.
Rússar hafa stráfellt setulið-
in í þessum þorpum áður en
þeir náðu þeim á vald sitt.
Þjóðverjar hafa endurtekið
árásir sínar við Isyum við Do-
netzfljótið, en Rússar hafa
hrundið þeim öllum.
Yfir Leningrad hafa verið
háðir ákafir loftbardagar, og
segjast Rússar hafa skotið nið-
ur 42 flugvélar fyrir Þjóðverj-
um, en misst 8 sjálfir.
Terða Japauir nú
hraktir frá Aieit-
eyjura?
(WASHINGTON er gizkað
á það, að herstjórnin hafi
ákveðið að láta til skara skríða
gegn Japönum. á Aleutaeyjum
á næstu vikum.
Er búizt við því, að sömu að-
ferð verði beitt þarna og á Salo-
monseyjum, þar sem komið var
í veg fyrir alla flutninga til eyj-
anna, svo að Japanir neyddust
til að hafa sig á brott þaðan.
Hinar tíðu loftárásir á Kiska
munu vera einn liður í þessari
sókn, sem á að færast í aukana
jafnt og þétt eftir því sem veð-
ur fara batnandi með vorinu.
í sambandi við þessa loftsókn
má svo einnig gera ráð fyrir
þvi. að lið verði flutt á skip til
eyjanna, sem Japanir eru á, til
þess að flýta fvrir því, að hætt-
unni verði bægt á brott frá
meginlandi Ameriku úr þessari
átt.
Hryðjuverk Þjóð-
verjaœí Póllandi
halda áfram.
PÓLSKA stjórnin í London
hefir skýrt frá því, að
Þjóðvcrjar geri ítrekaðar til-
raunir til að uppræta leynilegt
blað í Póllandi, sem heitir
„Rödd Póllands.“
í fregnum Þjóðverja var fyr-
ir skemmstu sagt, að þeir hefði
stöðvað útgáfu blaðsins, en
pólska stjórnin segir, að það
liafi aðeins tekizt um tírna.
Þegar Þjóðverjar fundu húsið,
seúi blaðið var prentað í á laun
umkringdu þeir það og vörpuðu
fyrst liandsprengju inn um
gluggana, en skutu síðan inn
um þá af hríðskotabyssum. í
húsinu voru 83 menn og biðu
þeir allir hana. Fáeinum dögum
síðar kom hlaðið aftur út, segir
í tilkynningu stjórnarinnar i
London.
Loftsékn Bandamanna
gegn meglnlandinn.
Loftárás á Brest og Antwerpen*
-.. •
ANDAMENN hafa haldið áfram loftsókn sinni gegn
meginlandi Evrópu.
Eftir hinar miklu loftárásir
á París, Kiel, Essen og Napoli
hafa flugvélar bandamanna
gert loftárásir á Antwerpen í
Hollandi, og varð höfnin þar fyr-
ir mörgum sprengjum. Þá var
ráðizt á Abbeville og Dieppe á
Frakklandi og einnig á höfnina
í Brest á Bretagneskaga í Frakk-
landi, og urðu miklar skemmdir.
Bretar segja, að þessar loft-
árásir séu aðeins byrjunin á því,
sem koma skal.
Vinnuskyldan i
Noregi.
Frá blaðafulltrúa Norð-
mánna hér.
Vinnumiðlunarskrifstofa
Quislings tilkyhnir, að skráning
vinnuaflsins í Suður-Noregi sé
lökið.
Alls hafa þar verið skráðir um
300.000 manns. í Oslo, Bergen
og Þrándheimi hafa verið skráð-
ir um 135 000 manns.
Það er tilkynnt, að aðeins lít-
ill hluti af þeim, sem skráðir
hafa verið, verði nú þegar kall-
aðir til vinnu.
Áætlanirnar um þegnskyldu-
vinnu allrar þjóðarinnar eru að
eins á byrjunarstigi, og þeir,
sem nú þegar hafa verið kallað-
ir til vinnu, verða aðallega send-
r.til Norður-Noregs.
Fleiri Indverslúr hermenn
i ber Breta en frá nekkri
sjálfstjðrnarnyiendanna.
London í gær.
UMRÆgUM, sem fóru
fram um Indlandsmálin í
efri málstofunni, kom í ljós, að
indverski flotinn hefir tifald-
ast nú, meðan á stríðinu hefir
ttölskn herskipia
skata hvort ð ann-
að í fátinn.
Þegar brezb hership gerðu
árás á skipalestina.
BRE£KI FLOTINN gerði
mikinn usla á siglingaleið
möndulveldanna milli Sikleyj-
ar og Tunis í fyrrhótt
Undan ströndum Tunis rák-
ust lítil brezk herskip á þrjú
flútningaskip óvinanna, sem
voru undir herskipavernd. Eitt
flutningaskipið var hitt með
tundurskeyti og sökk tafarlaust.
Annað varð fyrir tveimur tund-
urskeytum, og er nokkurn veg-
inn víst, að það hefir sokkið,
þótt það sæist ekki.
Slíkt fát kom á óvinina við á-
rásina, að ítölsku herskipin
byrjuðu í ógáti að skjóta hvert
á annað af hinum mesta krafti.
Herskip Breta urðu ekki fyrir
neinu tjóni.
Loftárásir i Barraa.
BREZKAR sprengjuflugvél-
ar gerðu í fyrradag miklar
árásir á herstöðvar Japana í
Burma, þar á meðal eina á aðal-
járnbrautarstöðina í höfuðborg-
inni, Rangoon, þar sem 1000
punda sprengjum var varpað
niður.
Á einum stað lenti í loftorr-
ustu við Japani. Ein japönsk
flugvél að minnsta kosti var
skotin niður.
staðið og fleiri indverskir her-
menn hafa tekið ]>átt í stríðinu
með Bretlandi lieldur en frá
nokkru öðru landi í brezka
! heimsveldinu.
Leynivopn Breta.
Eins og menn rekur minni lil vörpuðu Þjóðverjar á sínum tíma
niður fjölda segulmagnaðra tundurdufla við Englandsstrendur
og gerðu þar fyrst í stað mikin ursla. — En Bretar fundu fljót-
lega vopn gégn þeim, og birtist hér með fyrsta myndin af þessu
leynilega brezka vopni. Þetta leynilega vopn er þannig útbúið að
segulmaðnaður liringur e rfestur á flugvél. Síðan flýgur flug-
vélin lágt yfir sjávarfletinum og ef eitthvert seguhnaðnað tund-
urdufl er á reki, þá springur það, þegar það nálgast segulhring-
inn á flugvélinni. Þetta „leynivopn“ Breta reyndist svo vel að
Þjóðverjar hætiu að nota segulmögnuð tundurduf1
i