Alþýðublaðið - 25.06.1943, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 25.06.1943, Blaðsíða 3
Föstudagur 25. júní 1943. ALÞYÐUBLAÐIÐ 5 | f ( s s s \ s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s Delr lögða á ráðin um hernaðinn"aep mðndulveldunnm i sumar. Eins og kunnugt er komu nokk úr æðstu herforingjar Bandamanna saman í Washington samtímis ráðstefnu þeirra Roojevelts og Ohurchills til þess að leggja á ráðin um hina fyrir- huguðu sókn Bandamanna gegr möndulveldunum í sumar. — Myndin hér að ofan er af her- foringjum Breta og Bandaríkjamanna, sem sátu þessa ráðstefnu. Vinstra megin við borðið framan frá og inneftir eru þeir herforingjarnir J. T. MacNarney, varaformaður ameríska herforingjaráðsins, George Marshall, formaður ameríska herforingjaráðsins, John R. Deane, ritari herforingjaráðs samræmdra hernaðaraðgerða, William Leahy, flotaforingi, yfirmaður Roosevelts yfir herforingjaráðunum, Ernest J. King, yfirmaður Bandaríkjaflotans, og hers- höfðinginn R. L. Vittrup vararitari herforingjaráðs hinna samræmdu hernaðaraðgerða. Hægra megin við borðið framan frá inn eftir sitja brezku herforingjarnir R. D. Coleridge, vararitari brezka herforingjaráðsins fyrir samræmdum hernE.ðaraðgerðum og H. Redman, ritari sama ráðs, John Dill marskálkur, Sir Charles, Portal, flugmarskálkur, Sir Allan Brooke formaður brezka herforingja ráösins, Sir Dulley Póund, yfirmaður brezka flotans, og Sir Hastings L. Ismay, meðlimur brezka herforingjaráðsins. > S V s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s * s s 4 I s s t Flugu frá Englandi til Norð ur^Afríku og tii baka. Réðust á Friedrichshafea á Þýzkalandi á suðurleið en Spezia á Ítalíu á norðurleið. Um 500 flugvélar réðust á stöðvar í Holiandi og Norður-Frakklandi í gær. LONDON í gærkveldi. MILLI 400—500 FLUGVÉLAR frá Bretlandi gerðu loft- árásir á ýmsa staði í Hollandi og Norður-Frakklandi, allt frá Vlissingen í Hollandi til Cherbourg-skaga í Frakk- landi. 11 orustuflugvélar voru skotnar niður fyrir Þjóðverj- um. Bandamenn misstu 5 flugvélar. Loftárás var gerð á flotastöðina á Spezia á Italíu í nótt og kveikt í olíugeymum við höfnina. Það voru sömu Lan- casterflugvélarnar og réðust á Friedrichafen, á sunnudags- nótt, sem gerðu þessa árás. Éfttir árásina á Friedrichshafen flugu þær yfir Alpafjöll til Norður-Afríku og tóku þar elds- neyti og flugu síðan aftur til Englands eftir nokkra hvíld og gerðu þessa árás á Spezia á heimleiðinni. Er vegalengdin, sem þessar Lancaster flugvélar hafa flogið fram og til haka um 4000 km. Vekur þetta flug hvarvetna milda athygli. Ny uppfinninn: Efnablanda sem drep nr lnngnabólgusýkla innaohnss. VÍSINDAMENN við Chicago háskólann, er starfað hafa að rannsóknum á lungnahólgu síðustu 4 árin, hafa nýlega birt fregn þess efnis, að þeir hafi uppgötvað efnablöndu, sem er þess eðlis, að ef henni er spraut að inn í herbergi þá drepi hún þegar lungnabólgusýkla, ásamt nokkrum öðrum sýklum. Farsóttanþfnd hermálaráSu- neytis Bandaríkjanna tilkynnti nýlega, að ekki þyrfti meira en fulla fingurbjörg af efni, sem þekkt er undir nafninu triet- hylene glycol,- í stór herbergi, t. d: hermannaskála, og dræpi þessi litli skammtur lungna- foólgusýkla og ýmsa aðra sýkla á örfáum mínútum. Vísindamenn þeir, er gerðu uppgötvunina, segja, að efna- folandan drepi inflúensusýkla og að líkindum veríjulega kvef- sýkla. Dr. Oswald H. Robertson, sem er prófessor í læknisfræði og átt mestan þátt í uppgötvun efnablöndunnar, hefir verið kjörinn meðlimur Ameríska Vísindafélagsins. Dr. Robertson sagði, að sýkl- ar þeir, sem berast um í loft- inu, sætu á örsmáum vatns- dropum, er berast um loftið. En efnablandan sameinast þess- um vatnsdropum og drepur sýklana. Hann sagði einnig, að þar sem sýklar, sem berast um í loftínu, séu innanihúss, sé hægt að nota efnablöndun, til þess að sótthreinsa loftið í opinber- um byggingum, sjúkrahúsum, hermannskálum og á fleiri stöð um. Hann skýrði einnig frá því, eð efnablaðandan væri ódýr og að eitt pund væri nóg, til þess að halda 800 rúmfeta herbergi sýkla-fríu í 90 daga. Einasta vandamálið í sam- bandi við þetta ,sem ennþá er óleyst, sagði Dr. Robertson, væri hvernig bezt mætti koma efnablönduninni á auðveldan hátt út í loftið. Auðveldasta að- ferðin nú væri að setja pönnu með blöndunni í samband við loftræstingarkerfi. Mi ern það Bretarnir sem eri ð ferð. MERÍSK-SKANDINAV ISKA fréttastofan skýrir frá því að sænsk hlöð hafi ný- lega, er þau ræddu um loft- hernaðinn, gert að umræðu- efnj tíma þann á árinu 1940 þegar daglegar loftárásir voru gerðar á London og fyrirsagnir þýzku hlaðanna voru á þessa leið „Þjóðverjarnir hafa kom- ið.“ í ritstjórnargrein í Dagens Nyheter, er heitir „Bretarnir hafa komið“ er rætt um reiði möndulveldanna í garð Banda- manna vegna loftárása þeirra á borgir og iðjuver möndulveld anna og ber blaðið hana saman við tal Hitlers 1940, um að hann ætlaði að eyða hinum brezku borgum, og einnig ber blaðið hana saman við fréttaflutning ítala þá, en þeir sögðu að Þjóð- verjar ætluðu að reka íbúa hinna ensku borga út á gadd- inn, „og koma á svo mikilli ringulreið að England yrði að gefast upp.“ Blaðið ber saman tal Þjóðverja um að þeir ætl- uðu að brjóta á bak aftur sið- Mörg brezk blöð skrifa í dag leiðara um, sem þau kalla or- ustuna um Ruhr. Brezkar flug- vélar hafa í loftsókn sinn gegn Ruhr varpað niður 10 þúsund smálestum sprengja á 10 borg- ir þar. Brezk blög ræða nú mjög um loftsóknina gegn Ruhr, sem að undanförnu hefir verið mjög árangursrík, svo að jafnvel mikill hluti stórra borga er í rústum. íSagt er að nazistar hafi sennt stormsveitir til Ruhr til þess að berja niður uppþot, sem hafa orðið þar. Göbbels hefir nú breitt um óróðursaðferð í sambandi við ferðisþrek Breta við ákvörðun Bandamanna um að ráðast ein- vörðungu á hernaðarmikih/æga staði. loftárásir Breta á Ruhr. Hann hefir ákveðið að senda blaða- menn til borganna, sem hafa orðið harðast úti í loftárásun- um og eiga þeir að segja frá hinu mikla tjóni sem hefir orðið og þjáningum íbúanna þar. Þá hejfir veiráð opnuð myndasýning í Vín, sem sýnir hörmungar þær sem íbúarnir í Ruhnhéruðunum eiga við að búa. Frækileg flugferð. Afrek hinnar brezku Lan- caster flugsveitar, sem gerði á- rásina á Friedrichshaven í Suð- ur-Þýzkalandi og flaug síðan til stöðva Bandamanna í Norð- ur-Afríku, vekur mikla athygli, og gerði loftárás á flotahöfnina í Spezia á ítalíu á heimleiðinni. Myndir, sem könnunarflug- vélar hafa tekið af Friedrichs- haven eftir að árásin var gerð, leiða í ljós, að mikið tjón hefir orðið á hinum mikilvægu út- varps- og mælitækjaverksmiðj- um í borginni. Að minnsta kosti einn hektari lands, sem aðal- byggingarnar standa á, er í rúst- um. Einn flugmannanna, sem tók þátt í árásinni, sagði við blaða- menn þegar hann kom til Eng- lands í dag, að þeir hafi getað séð eldhafið úr verksmiðjunum þegar þeir flugu í hvarf fyrir Alpana. Á leiðinni yfir ítalíu urðu þeir engra orustuflugvéla varir. Sólin var að koma upp við Miðjarðarhafið þegar flug- sveitin eygði strönd Norður- Afríku. Á heimleiðinni, þegar flug- sveitin réðist á Spezia á Italíu, urðu þeir ekki varir neinna or- ustuflugvéla, en hins vegar þegar flogið var yfir Frakklandi urðu þeir fyrir nokkurri loft- varnaskothríð og eins réðust nokkrar næturorustuflugvélar á þá. Allar flugvélarnar skiluðu sér aftur heim til Englands úr þessu langa ferðalagi. ÁRÁSIRNAR í DAG Brezku flugvélarnar, sem réðust á Vlissingen í Hollandi í dag, kveiktu þar í olíugeymum. Aðrar brezkar sprengjuflugvél- ar réðust á flugvöll við Cner- bourg og hernaðarstöðvar við Abberville, Rouen og Brest. Bretar misstu aðeins 5 flug- vélar í öllum þessum árásum, en skutu niður 11 flugvélar fyrir Þjóðverjum. Mikið tjón í loftá- rás Þjóðverja í Hull ÞJÓÐVERJAR gerðu í gær all skæða loftárás á Hull. Varð talsvert manntjón og eigfia tjón í borginni. Brezknr kafbátnr eyðileggnr radiomið nnarstðð á eyjn skammt frá Sikiley. London í gærkveldi. REZKIR kafbátar á Mið- jarðarhafi hafa að undan- förnu látið mikið til sín taka. Brezkur kafbátur hefir slcotið af fallbyssum sínum á radiomiðun- arstöð á Salínaeyju, sem er skammt frá Sikiley, og mun stöðin hafa eyðilagzt. Þá hefir brezkur kafbátur sökkt 7000 smálesta ítölsku kaupskipi, tveimur flutninga- skipum meðalstærðar, hæft 8000 smálesta skip þrem tund- urskeytum og einnig tundur- spilli. Ekki er vitað hvort tundurspillirinn sökk. Þá hafa brezkir kafbátar sökkt 8 smærri skipum fyrir ítölum. Skorað á franska járis- brantarstarfsmenn að vera viðbúna. LONDON í gærkvöldi. ff KVÖLD var lesið í brezka útvarpinu ávarp frá leyni félagsskap í Frakklandi til hinna 800.000 járnbrautarverka manna sem starfandi eru nú í Frakklandi. í ávarpinu er skorað á þá að vera viðbúna þegar til inn- rásar kemur í Frakkland að eyðileggja járnbrautirnar og sjá um að ekki ein einasta járn- brautarlest komist á réttan á- kvörðunarstað þegar sú stund kemur. Með því móti segir í ávarpinu er hægt að eyðileggja alla ihernaðaráætlun Þjóðverja. Þetta sé að vísu mjög hættulegt starf en verði að vinna til þess að hægt sé að vinna sigur á Þjóðverjum og frelsa Frakk- land. 60 Norðmenn hafa íatist t fangabúðnm í Dýzha- landi síðan nm áramðt. P RÉTTASTOFUR í Stokk- hólmi skýra frá því, að vikublaðið Nordens Frihet hafi sagt frá því, að nm 60 Norð- menn hafi látið lífið í fanga- búðum Þjóðverja frá síðustu áramótum. Flestir þeirra dóu í Oranienburg, sem er skammt fyrir utan Berlín. Hér er kafli úr einni frétt- inni: „dauðsföll hafa verið óvenjulega mörg meðal fanga þeirra sem fluttir voru til Oranienburg frá Oslo 15. febr. Þetta mun stafa að versnandi meðferð á föngunum og er það augljóst að Norðmenn eru tald- ir til „lægra setts kynþáttar- ins.“ Norðmenn hafa séð hvernig Þjóðverjar hafa farið með Pólverja, Serba og Gyð- inga, svo þeir vita hvað þeir eiga nú í vændum." Gnrtio héit velli, en vill nyjar kosbiigar. London í gærkveldi. FTIR að Curtin forsætis- ráðherra í Ástralíu hafði fengið samþykkt tvö þýðingar- mikil frumvörp sín og haldið Frh. á 7. síðu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.