Alþýðublaðið - 09.07.1943, Page 7

Alþýðublaðið - 09.07.1943, Page 7
Fösindsgi::- 9. iúlí 2943 AtÞVD.USJLAÐlÐ |Bærinn í dagj Næturlæknir: Læknavarðstofa Eeykjavíkur, sími 5030. Næturvörður er í Lyfjabúðinni Iðunni. * ÚTVARPIÐ: 12,10—13,00 Hádegisútvarp 15,30—16,00 Miðdegisútvarp. 19,25 Hljómplötur: Harmonikulög 20,00 Fréttir. 20,30 íþróttaþáttur Í.S.Í. 20,45 Strokkvartett útvarpsins: Kaflar úr kvartett op. 77 nr. 1 í g-moll eftir Haydn. 21,00 ,,Úr handraðanum“ (Níels Dungal prófessor). 21,20 Symfóníutónleikar (plötur) Tónverk eftir Cesar Frank: a) Symfónisk tilbrigði. b) Symfónía nr. 2. Happdrættið. I dag er síðasti söludagur í 5. flokki og allra síðustu forvöð að kaupa miða og endurnýja. Á morgun verða engir miðar af- greiddir. Pakkir. Fyrir hönd bókasafns sjúklinga á Vífilsstöðum færum við Glímu- fél. Ármann beztu þakkir fyrir á- góðann af skemmtun, sem þeir færðu okkur að gjöf, að upphæð kr. 2753,80. Einnig sömu þakkir til húsráðenda Oddfellows, sem lánuðu húsið endurgjaldslaust. — Bókasafnsnefndin. Nýlega hafa þessi prestsembætti verið veitt: Síra Eiríki Helgasyni veitt Bjarnanesprestakall í Austur- Skaftafellssýslu, cand. theol. Gunnari Gíslasyni veitt Glaum- bæjarprestakall í Skagafirði, sr. Ingólfi Ástráðssyni veitt Staðar- prestakall í Steingrímsfirði og síra Þorgeiri Jónssyni veitt Hólma- prestakall í Reyðarfirði. Hjúskapur. Nýlega voru gefin saman í hjónaband af síra Friðrik Hall- grímssyni ungfrú Helena G. Zoéga og Ólafur Guttormsson stud .jur., Stýrimannastíg 3. Níels Ðungal prófessor er ekki aðalmaðurinn í hlutafé- lagi því, sem ætlar að gefa út heilsufræðibókina fyrir almenn- ing, sem skýrt var frá hér í blað- inu í gær. Hins vegar hefir hann tekið að sér að sjá um útgáfuna. Símanúmer Snorra Hallgrímsson- ar læknis misprentaðist og í blað- inu. Það er 5849. Lúðrasveitin Svanur leikur á Austurvelli í kvöld kl. 9. Stjórnandi: Árni Björnsson. BÓH SUMABSlKSj Meðal MANM 00 DfEAl Sex sögur eftir STEINDÓR SIDURÐSSON ■ Síðasta sagan snertir viðkvæmasta vandamál okkar eftlr hernámið. \ Mi| vantar íbðð i ^ nú þegar eða 1. september.S Má vera fyrir utan bæinn.\ C s 3 Upplýsingar í síma 4900.^ S ( Barbaraí blússunni Hún segir, að það sé eins gott og dýrustu ballkjólar, en það er hvít, bróderuð blússa og sterkrósótt pils með breiðu belti. Stúlkan heiiir Barbara Britton. Eldor á Skélavðrða- E LDUR kom upp í sölubúð í kjallara á Skólavörðu- stíg 17 seint í gærkveldi. Slökkviliðið var kallað á vett- vang og tókst því fljótlega að slökkva eldinn. En skemmdir urðu nokkrar í íbúðinni bæði af eldi og vatni. Álitið er, að kviknað hafi í út frá rafmagnsofni. Verðappbætnraar á » * a ÍL Innanfélapsmót Ar- maBQS fyrir drengi fór fram i gærkveldi INNANFÉLAGSMÓT ÁR- MANNS fyrir drengi, 15— 19 ára, fór fram í gærkveldi og var keppt í 80 m. hlaupi, þrí- stökki og kúluvarpi. Úrslit urðu þessi: í hlaupinu varð Arnkell Guð- mundsson fyrstur á 10,1 sek. Annar Bragi Guðmundsson á 10,3 sek. Þriðji Ulrik Hansen á 10,3 sek. í þrístökki varð Ulrik Han- sen efstur með 11,71 m. Annar Magnús Þórarinsson með 11,60 m. Þriðji Halldór Sigurgeirsson með 11,01 m. í kúluvarpi varð Halldór Sig- urgeirsson fyrstur með 11,13 m. Annar Árni Kristjánsson með 10,65 m. Þriðji Einar Hjartar- son með 9,85 m. ðnnur lítgáfa: Söpupættir landpóst anoa ern komnir óí. SÖGUÞÆTTIR LANDPÓST- ANNA, önnur útgáfa er J komin út. Eins og kunnugt er | kom fyrri útgáfan út fyrir síð- I ustu. jól og seldist hún upp á skömmum tíma. Eftir að útgef- endunum höfðu borizt margar áskoranir um að gefa bókina út í annarri útgáfu, réðust þeir í það, og er hún nú komin út. Frh: af 2. síðu. bæta upp hvert kílógramm? Er það ekki gert fyrir blessaða neytendurna hans, svo að „neytendastyrkurinn“ 'verði þeim mun hærri? Til þess að fá vitneskju um þetta hringdi Alþýðublaðið inn í mjólkurstöð og spurði hver munur værj þar talinn á kg. mjólkur og líter. Svarið var, að 100 kg. af mjólk samsvöruðu 96 lítrum. Hér kemur sem sé eðlisþyngd mjólkurinnár til greina. Með öðrum orðum, að mjólkurbúin fá 35 krónur í verðuppbætur fyrir hver 100 kg. af mjólk á meðan liið sama magn, sem er 96 lítrar, lækkar í verði til neytandans um kr. 33,60. Hér er ekki stór upphæð á ferðinni á hver 100 kg., og lætur ekki mikið yfir sér, en safnast þegar saman kemur, eins og rýrnunin. ^ Láta mun nærri að þetta hvort tveggja, mismunurinn milli kg. og líters og rýrnunin, nemi um í0'/i-. Af 16 milljóna kg. mjólkurmagni, sem ætla má rnjólkurmagnið á þessu verð- jöfnunarsvæði í ár, eru það 1,6 milljón kg. af mjólk, sem bætt er upp að óþöríu og er það lið- lega 560 þúsundir króna miðað við~uppbót þá, sem búunum var greidd fyrir maímánuð, eða 46,6 þúsund krónur hvern mán- uð, sem uppbætur eru greidd- ar. Er þá ótalin upphæð sú, sem reglugerðin hagræðir úr ríkis- sjóðnum til uppbótar á smjör- mjólkina, fái reglugerðin að njóta sín, eítir að smjörið sjálft hefir verið verðuppbætt í fullt verð með annarri reglugerS. Er þar að sjálfsögðu um enn stærri upphæðir að ræða. En það, sem einna mesta at- hygli vekur í þessu sambandi, svona eftir á a. m. k., eru fund- arsamþykktirnar utan af landi um að kalla styrkinn „neyt- endastyrk“. Sér er það nú hver neytendastyrkurinn. Hefði ekki verið sæmra fyrir fundarmenn að hinkra örlítið við og bíða eftir reglugerð Vilhjálms Þórs og athuga hverjir græða þar mest, ef hægt er að nefna þess- ar tilfærslur fjármunanna því saklausa nafni. Bóiíin um: Dr.MyliogMr.Eyde kemar á ísieszki. I NNAN SKAMMS kemur á bókamarkaðinn ný bók, sem líklegt er að veki allmikla at hygli. Það er skáldsaga Robert Louis Stevenson, Dr. Jekyll og mr. Hyde. Kvikmynd eftir þessari sögu hefir verið sýnd þrem sinnum hér í bænum með fárra ára millibili og vakið mikla eftir- tekt og umtal. Efni bókarinnar er mjög óvenjulegt og áhrifa- mikið, eins og kvikmyndin gef- ur glögga hugmynd um. Höf- undurinn, R. L. Stevenson, er víðkunnur brezkur skáldsagna- höfundur, sem ritað hefir fjölda bóka. Jón Helgason blaðamaður hefir þýtt bókina á íslenzku, en Bókaútgáfa Guðjóns Ó. Guð- jónssonar gefur hana út. Hjúskapur. Síðastl. laugardag voru gefin saman í hjónaband af síra Friðrik Hallgrímssyni ungfrú Kristín Ágústsdóttir og Karl Gustav Gust- avsson sjómaður, bæði til heimil- is á Klapparstíg 13. Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför mannsins míns SIGURÐAR BJARNASONAR Sigríður Sigurðardóttir. Jarðarför dóttur minnar og systur okkar KRISTÍNAR DAGBJARTAR SIGURÐARDÓTTUR fer fram frá Lokastíg 11 laugardaginn 10. þ. m. kl. H f. h. Halldóra Hjörleifsdóttir og systkini. Innilega þakka ég öllum þeim mörgu, er sýndu mér og fjölskyldu minni ógleymanlega samúð við fráfall og jarðar- för systur minnar, MARÍU EINARSDÓTTUR, i. Steindór Einarsson. Sljfsavarnalélagið. Nýtt stéttarfélsg. Frh af 2 síðu orðið var við áhuga skipaeig- enda fyrir þeim.“ — Hversu margar björgunar- stöðvar hefir Slysavarnafélagið nú? „Þær eru 45 að tölu, en margar eru svo smáar, að 35 ljóskastarar uppfylla alveg þarfir Slysavarnafélagsins.“ — En væri Slysavarnafélagið ekki albúið að útvega slíka ljóskastara handa skipum? „Jú, það tel ég alveg sjálf- sagt, að við myndum veita alla á aðstoð í því efni, sem í okkar valdi stendur." Heifflsœet Arne And- erson I mílnhlsQpi. |%/1T EÐAN augu íþróttamanna mæna til Ameríku, þar sem Gunder Hágg er að keppa við beztu hlaupara Ameríku- manna og búizt er við metum og stórafrekum, berast óvænt miklar fregnir heiman frá Sví- þjóð. Þar geta fleiri hlaupið en Hágg, því að Arne Anderson hefir áett nýtt heimsmet í mílu- hlaupi (1609 m.). Bætti hann hið fyrra met Hággs um 2 heil- ar sekúndur eða úr 4:04,6 í 4:02,6 mínútur. Annar í hlaup- inu var Rune Gustavsson á gamla mettímanum. Þetta mun þó ekki hafa komið Hágg á ó- vart, því að hann hafði lýst því yfir vestra, að auk þessara tveggja væru tveir hlaupagarp- ár enn. sm gætu hreyft við metinu hvenær sem er. Þeim, sem kannast við Arne Ander- son, eða „Arne med bröstet“, eins og Svíar kalla hann stund- um, kemur þetta ekki allsendis á óvart, því að Arne hefir gert „kraftaverk“ á hlaupabrautinni áður. Frh. af 2. síðu. samningunum, að stúlkur, sem hafa unnið að saumaskap í 2 ár taki stykkjasaum, það er fái á- kvæðisvinnu, en þá skulu þeim þó tryggðar kr. 250,00 á mán- uði. Hins vegar geta þær með ákvæðisvinnunni fengið meira en gert er ráð fyrir í mánaðar- kaupinu, ef þær fara í ákvæðis- vinnuna. Það var mikil nauðsyn fyrir stúlkur í þessum iðnaði að efna til samtaka, því að þær hafa aldrej haft nein samtök og kjör þeirra hafa alla tíð verið mjög slæm, sérstaklega þó hvað námstímann snertir. Silreiðar til sBIu. Nýleg 5 manna bifreið, keyrð 12000 mílur, og Ford, 4-manna, 1934, 5-manna, 1938, og 5-manna 1935. Einnig fleiri tegundir. Steján Jóhannsson. Sími 2640. Handknðttleihsmöí fyrir stúlknr. Frh. af 2. síðu. á Akureyri og'vann „Ármann“ þá. Nú er talið ómögulegt að spá neinu um úrslitin. Meðan gestirriir utan af landi dvelja hér, verða flokkar ,,Þórs“ og íþróttaráðs Vest- fjarða gestir „Ármenninga“. Glímufélagið „Ármann“ sér um mótið. Kvenvesti (prjónasilki) fyrirliggjandi í mörgum litum. i j.ys'iCHiLra nnþi.-n „Rifsnes 44 Tökum á móti flutningi til Reyðarfjarðar og Eskifjarðar fram til hádegis í dag, eftir því sem rúm leyfir. Vegna innanhússbreytinga í Góðtemplarahúsinu, verða eng- ir fundir eða dansjeikir í húsinu fram að mánaðamátum júlí— ágúst. Hússtjórnin.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.