Alþýðublaðið - 12.08.1943, Blaðsíða 7
.Fimmtudaginn 12. ágúst 1942. ____________________________ALÞYÐUBLAÐIÐ
Sfarfsemi Sjómamia- og gesfa
heimiiis SiglufjarÓar
Mikil aðsókn að heimilinu, enda var
miki! þörf ffyrir það
Innilegt pakklæti vottum við öllutn þeim. skyldum
og vandalausum, sem sýndu okkur sámúð og hluttekn-
tekningu við andlát og jarðarför okkar hjartkæru dóttur
og systur
JÓHÖNNU,
og glöddu hana i veikindum hennar.
Guð blessi ykkur öil
Guðmunda Magnúsdóttir. Jón Péturssou.
Kristjana Jónsdóttír.
Næturlæknir er í læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Ingólfsapó-
teki.
ÚTVARPIÐ
12,10—13,00 Hádegisútvarp.
15,30—16,00 Miðdegisútvaxp.
19,25 Hljómplötur: Tataralög,.
19,40 Lesin dagskrá næstu viku.
20,00 Fréttir.
20,20 Útvarpshljómsveitin (Þór-
arinn Guðmundsson stjórn-
ar):
a) Dansar úr óperunni
,,Faust“ eftír Gounod.
b) Idylle eftir Gabriel-Ma-
rie.
e) Ungverskur mars eftir
Liszt.
20.50 Minnisverð tíðindi (Axel
Thorsteinsson).
21,10 Hljómplötur:
a) Forleikur eftir LiszL
b) Sorgarvals eftir Sibelius
21,30 „Landið okkar“. Spurningar
og svör (Pálmi Hannesson
rektor).
21.50 Fréttir.
Dagskrárlok.
TEMPLARAR ■
Frh. af 2. síðu.
landsspildu þessa til umráða.
1 tilefni af því hefir stjórn
Jaðars bfðið bæjarráðsmönnum
Reykjavíkur ásamt blaðamönn-
um og forystumönnum úr yfir-
stjórn Reglunnar og hinna ein-
stöku stúkna hér í bænum upp
að Jaðri. til þess að gefa þeim
kost á að sjá þær framkvæmd-
ir sem þar hafa verið gerðar
á þeim 5 árum sem liðin eru
síðan templarar hófu þar starf-
semi sína .
Áður en lagt verður af stað
up pað Jaðri verða sýndir kvik-
myndaþættir frá störfunum
þar, sem kvikmyndatökumað-
ur Reglunnar hefir tekið á
undanförnum árum.
Sú sýning fer fram í Templ
arahúsinu.
Dm 60 þðsondir Str.
til baraaspitalaos.
Ágætur árangur af fjársofu-
unarstarfi Hringsins
GÆTUR ÁRANGUR varð
af fjársöfnunarstarfi
Hringsins fyrir væntanlegan
barnaspítala hér í borginni, á
sunnudag og mánudag.
Enn er ekki vitað með vissu
hversu miklu kostnaður við
starfsemina nemur, en gert er
ráð fyrir að hann sé ekki yfir
10 þúsundir króna.
Alls komu inn þessa tvo daga
um 70 þúsundir króna, og mun
merkjasalan þar af ein um 30
þúsundum króna. Galdramað-
urinn aflaði hinsvegar um 11
þúsundir króna. Hitt kom inn
fyrir veitingar og ýmislegt ann-
að, sem um hönd var haft.
Félagskonur . í Hringnum
hafa unnið hér mikið. glæsi-
legt og óeigingjarnt stárf, sem
bæjarbúum í heild ber að þakka
þeim.
Verður þessi ágæti árangur
áreiðanlega til þess að flýta
mjög fyrir því að hinn nauð-
synlegi barnaspítali verði
byggður.
.Sjálfsagt virðist að svona fjár
söfnunrstarfsemi, fari frám á
hverju sumri.
SJÓMANNA og gesta-'
heimili Siglufjarðar
hefur starfað undanfarin ár
og við vaxandi vinsældir,
enda var mikil þörf fyrir það.
í gær barst Alþýðuhlaðinu
skýrsla frá stjórn heimilís-
ins um starfsemi þess á s. 1.
ári og fer aðalefni hennar
hér á eftir:
Sjómanna- og gestaheimili
Siglufjarðar tók til starfa 1.
júli, um það leyti sem síldveið-
arnar byrjuðu, en lauk störfum
23. september. Var þá síldveið-
um lokið og aðkomufólk flest
farið frá Siglufirði. Heimilið
starfaðí því alls rúman 2Vz
mánuð.
Húsakynni voru þá hin sömu
og áður ,en miklar endurbæt-
ur höfðu verið gerðar á húsinu
frá því árið áður, meðl annars
hafði snotur veitingasalur ver-
ið útbúinn uppi á lofti við vest-
urhlið hússins. Er gengið upp
í hann úr aðalsalnum. Hitunar
tæki voru endurnýjuð og hús-
ið málað.
Dagleg störf á heimilinu önn
uðust þær: frú Guðlaug Stein-
grímsdóttir og frú Lára Jóns-
dóttir, en hr. Eiríkur Sigurðs-
son kennari frá Akureyri. starf-
aði einnig við heimilið um 5
vikna skeið.
Heimilið var opið alla daga
frá kl. 9 árdegis til kl. 21,30
að kvöldi. Öllum var frjáls
aðgangur, en ákveðnar reglur
voru settar um framkomu og
umgengni. Á lesstofu lágu
frammi flest blöð og tímarit
landsins til afnota fyrir gest-
ina. Pappír og ritföng gátu
menn fengið eftir þörfum og
þurftu ekki að greiða fyrir það
frekar en þeir óskuðu. Bækur
úr bókasafni heimilisins gátu
menn einnig fengið lánaðar. I
veitingasal voru veitingar
frmreiddar alla daga.
Þá var annast um sendingu
bréfa, peninga og símskeyta
fyrir þá, er þess'óskuðu. Margs
konar leiðbeiningar voru veitt-
ar þeim, er ókunnugir voru í
bænum, og reynt að greiða
fyrir þeim eins og tök voru á.
Úlvarp var jafnan í gangi á
útvarpstíma, orgel og píanó
voru í veitingasal og var gest-
um frjálst að leika á þau, er
þeir óskuðu. Föt og munir voru
geymdir fyrir allmarga sjó-
menn á síldarskipum og einnig
var haft sérstakt herbergi, þar
sem menn gátu haft fataskipti
og snyrt sig.
Aðsókn að heimilinu var yfir-
leitt góð, og voru gestirnir að-
allega sjómenn af síldarskip-
um og einnig nokkuð af fólki.
er stundaði síldarvinnu í landi
og bjó í vinnuskálum. Land-
vinna var þó með minnsta móti
þetta sumar. Reynt var að fylgj
ast nokkuð með gestafjöldanum
og í gestabók heimilisins skráðu
nöfn sín 2326 manns, úr öllum
landshlutum, en auk þess kom
jafnan á heimilið fjöldi gesta,
sem ekki skráði nöfn sín. Eft-
ir því sem næst varð komizt
voru skrifuð 763 bréf, þar með
talið peningabréf, má þó gera
ráð' fyrir að þau hafi verið all-
mikið fleiri, því að margir
gestir höfðu sín eigin brefsefni
og komu bréfum sínum í póst.
P|eningar„ er teknir voru til
geymslu og sendir, voru um
55130.06 kr. Allmargir létu
senda bréf og pakka til heim-
ilisins og vitjuðu þess þar.
Landssímasamtöl og símskeyti
voru afgreidd á heimilinu fyrir
fjölda manna, og kom það sér
oft sérstaklega vel, einkum
eftir lokunartíma símstöðvar-
innar. Bæjarsíminn var og mjög
mikið notaður af gestum
heimilisins, endurgjaldslaust.
Umgengni og reglusemi
gesta og framkoma öll var, bin
prýðilegasta.
Allmargar samkomur voru
haldnar yfir starfstímann. guðs
þjónustur, fræðandi erindi
vor.u flutt, ennfremur upp-
lestrar, kvikmynda- og skugga-
myndasýningar. Á samkomum
þessum var og oft einsöngur og
kóráöngur. Oft voru samkom-
ur þessar haldnar um helgar
eða þegar líkur voru fyrir góða
aðsókn. Má og segja, að hún
hafi yfirleitt verið góð, eftir
atvikum. Oflast var ókeýpis að-
gangur að samkomum þess-
um, en að kvikmýndasýning-
unum var aðgangur seldur og
þá til ágóða fyrir heimilið.
iSamkomur þe^sar hafa frá
upphafi verið hugsaðar sem
einn liður í því menningar-
starfi, sem Sjómannaheimilið
vill vinna. ,
Heirpilið naut), eints og að
undanförnu, opinberra styrkja
til starfsemi sinnar og var þeim
sérstaklega varið til rekstursins
enda eru það hinar öruggu
fastatekjur heimilisins, aðrar
tekjur þess fara mjög eftir at-
vikum, svo sem árferði o .fl.
Heimilið hlaut styrk frá
þessum aðiljum:
Ríkissjóðúr kr. 2055,76, Stór-
stúka Islands kr. 1500,00,
Bæjarsj. Siglufjarðar kr. 206.00
Samtals kr. 5555,76.
Þá hefur st. Framsókn lagt
mikið af mörkum, bæði beint
og óbeint, . til starfsemi heim-
ilisins bæði með vinnu ein-
stakra félaga stúkunnar og
fjársöfnunarstarfsemi. Má t. d.
geta þeiss, a'ð allur ágóði af
leikstarfsemi stúkunnar rennur
til Sjómannaheimilisins og er
þá sérstaklega varið til endur-
bóta á húsinu eða á annan hátt
heimilinu tii hag'sbóta.
Útgefendur blaða og tímarita
hafa látið heimilinu ókeypis í
té blöð sín og tímarit, og er
hér jafnan um töluverða upp-
hæð að ræða.
Ágóði af vejtingasölu varð
nokkúr, en þó minni en ætla
mætti ,því að veitingar allar
eru jafnan seldar svo vægu
verði, sem fært þykir.
Þá má síðast en ekki sízt
minnast á hinn mikla fjárhags-
lega stuðning, sem heimilið
naut á árinu frá sjómönnum
og útgerðarmönnum og kom í
sérstaklega góðar þarfir til
þess að standast hinn mikla
kostnað við endurbætur þær á
húsinu, er framkvæmdar voru
veturin náður.
Gjafir frá skipshöfnum bár-
ust til heimilisins að upphæð
kr. 6583,60.
Eins og áður er sagt fóru
fram mikilsverðar endurbætur
á húsakynnum heimilisins, áð-
ur en sumarstarfið hófst, þó
að ennþá standi margt til bóta,
■er getur aukið þægindi og gert
starfsemina í heild fjölbreyttari.
Verður unnið að því að auka
starfið og efla, eftir því sem
efni og ástæður leyfa.
Bókasafnið var aukið nokkuð
á árinu, áhöld enduhnýjuð og
húsgögn lagfærð.
Sjómenn hafa sýnt starfi
heimilisins mikinn velvildar-
hug og hafa sýnt, að þeir kunna
að meta það og má nú svo
segja, að staður þessi sé orðinn
heimili þeirra, þegar þeir vilja
eiga kyrrlátar stundir í landi.
Allmörg blöð og tímarit hafa
gtaið starfseminnar mjög vin-
samlega og farið um hana mjög
lofsamlegum orðum. Allt er
mikil hvatning áð efla starfið
sem mest og gera heimilið sem
bezt úr garði.
St. Framsókn nr. 187 hefur
eins og að undanförnu annast
rekstur Sjómannaheimilisins og
skipuðu stjórn þess þeir: Pétur
Björnsson, kaupm. séra Óskar
J. Þorláksson, sóknarprestur
og Andrés Haíliðason forstjóri.
Stjórn Sjómanna- og Gesta-
heimilis Siglufjarðar vill að
lokum flytja öllum þeim opin-
berum stofnunum, fyrirtækjum
og einstaklingum, nær og fjær,
sem styrkt hafa heimilið með
gjöfum fjárframlögum eða á
annan hátt, beztu þakkir, fyrir
allan stuðning og velvild á
starfsárinu 1942.“
Helsingiar, hið eip-
lega rit sjúklinga í
Kristoeshæli.
Sjúklingarnir vænia gess að
Reybvikmgar kaupi ritið strax
SVO erfiðlega tókst til með
lausasölu hér í bænum á
riti þeirra sjúklinganna í Krist-
neshæli, ,,Helsingja“, að ógern-
ingur reyndist að fá söludrengi.
Þrátt fyrir það að öll dagblöð
bæjarins reyndu að leggja lið
í því efni. Eru yfir höfuð mikl-
ir örðugleikar á því að fá
drengi eða unglinga til lausa-
sölu eða útburðar á blöðum.
En nú hafa bókaverzlanií
bæjarins heitið stuðningi sín-
um við hinn góða málstað, er
rit þeirra sjúklinganna berst
fyrir — þeim, að reyna að
safna nokkru fé handa hinu
tekjulausa bókasafni hælisins,
með útgáfu þess.
Verða • ,,Helsingjar“ til sölu
í bókaverzlunum nokkra daga
fyrst um sinn, og viljum vér
heita á hina mörgu bæjarbúa,
sem við vitum að vilja styrkja
sjúklingana í viðleitni sinni, að
kaupa ritið strax í dag.
Eins og nú horfir mun það
láta nærri, að auglýsingar og
lausasala í stærri bæjum úti á
landi svari aðeins rúmlega öll-
um útgáfukostnaði og öðrum
útgjöldum, því eins og allir
vita, er til þekkja, er verðlag
á öllu, sem lýtur að útgáfu svo
vandaðs rits sem þessa geypi-
legur nú á tímum.
Eini möguleikinn til þess að
sjúklingarnir geti keypt nokk-
uð verulegt af þessa árs bókmn
í haust er því algerlega fólginn
í því að skyndisala náist á rit-
inu hér í horginni.
Að þessu vilja nú bókaverzl-
anir bæjarins hlynna með því
að leggja áherzlu á sölu ritsins
nú í nokkra daga og afhenda
svo félagi berkalsjúklinganna
þá upphæð strax að því loknu
og án nokkurra bóksölulauna.
Blöðin og útvarpið munu held-
ur ekki láta sitt eftir liggja við
að aðstoða bókaverzlanirnar
við þessa drengilegu hjálp
þeirra sjúklingunum til handa.
Og vér vitum að hundruð
manna um alla borgina hafa
beðið þess eins að fá tækifæri
til að kaupa ritið og leggja með
því sinn skerf í þessa sjálfsögðu
hjálp til fólksins, sem örlögin
hafa fjötrað bak við hælismúr-
ana. Óg nú er það tækifæri
komið, þó að ekki takist að fá
lausasölu af stað í bænum.
Og það er ekki mikil upphæð
nú á tímum, þessar þrjár krón-
ur og fimmtíu aurar, sem ritið
kostar, og ritið sjálft er svo fal-
legt, eigulegt og skemmtilegt,
aflestrar, að það sjálft þorgar
þá upphæð fyllilega.
Alþýðublaðið skorar því á
alla hina mörgu hjálpfúsu
Reykvíkinga og hugsandi fólk,
sem skilur nauðsyn þessa máls,
að láta það ekki dragast að
koma við í bókaverzlununum
og kaupa „Helsingja".
Minnist þess að með því að
gera það þessa dagana, kemur
hjálpin sjúklingunum mest að
notum, því það, sem kemur
smátt og smátt inn fyrir ritið
hjá bóksölum víðs vegar um
landið, kemur ekki bókasafn-
inu eða hinu sjúka fólki að
notum fyrr en á næsta ári.
Og minnist þess nú þessa
dagana, sem ,,skyndisalan“
stendur yfir, að nú eru þeir hér
í liðsbón hjá okkur höfuðstað-
arbúum, sem enginn góður
drengur lætur synjandi frá sér
fara. Og að þa'ð er á okkar
valdi Reykvíkinga algerlega, að
stytta hinar löngu og dimmu
skammdegisstundir sjúkling-
anna í Kristneshæli.
ÞINGVELLIR
Frh. af 2. síðu.
Þarna er líka að finna skýr-
inguna á því, að Steindór, sem
hefir sérleyfi á Þingvallaleið-
inni 6 daga vikunnar, selur far-
ið til Þingvalla á sunnudögum
á 10 krónur, en alla aðra daga
á 8 krónur, eða 2 krónum dýr-
ara. '
Það er bersýnlegt, að ekkert
er hægt að gera til þess að bæta
úr því ófremdarás’tandi, sem
nú ríkir á þessari leið. Ef á-
standið á ekki að verða eins
næsta sumar, verður að breyta
lögunum og ákveða a'ð sérleyfi
sé einnig á þessari leið um
helgar. Ef það verður gert,
verður sérleyfishafinn skyldur
til að selja farseðla einnig frá
Þingvöllum fyrirfram og getur
fólk þá verið öruggt um pað
að komast heim; á tilsettum
tíma.
Bifreiðastjórar, sem eiga bif-
reiðar sínar ög aka frá stöðv-
um hér í bænum. hafa að vísu
mikið að gera að því er virð-
ist, en vel myndi þó borga sig
fyrir þá að stunda akstur til
og frá Þingvöllum á sunnudög-
um og selja á 10 krónur hvert
sæti.
Það þýðir ekki fyrir einstak-
ar stéttir að gera kröfur en
svíkjast svo um að uppfylla
skyldur sínar gagnvart almenn-
ingi. Slík framkoma borgar sig
ekki til lengdar.