Alþýðublaðið Sunnudagsblað - 18.10.1936, Qupperneq 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Bifreiðakappakstur.
Er hann
nokkuð meira
en sport og
— vitfirring'?
IEftirfaraudi grein er efíir
þektan danskan verkfræð-
ing, sem mikið hefir kynt
sér byggingu bifreiða og með-
ferð þeirra.
KAPPAKSTURSBIFREIÐ
EFTIRVÆNTINGIN skín út úr
hverju einasta andliti. Hver
taug titrar af ofsalegum spenn-
ingi.
Ailra augu og ailir sjónaukar
Stefna að síðustu beygjunni á öku
brautinni. Hér fer fram einn
stærsti bifreiðaakstur heimsins og
nú fara úrslitin að nálgast og
la.liir bíða eftir þeim. Hér er háð
barátta upp á líf :>g dauða um
foringjatitilinn, og hún er ekki
laðeins háð milli einstaklinga,
heldur — og jafnvel miklu frem-
lur — milli þjóða.
Vagnar hinna fyrstu eru nú
komnir í síðustu hringferðina. —
Hvaða vagn kemur fyrst í
Ijós, þarna við hina kröppu
beygju? Einn hinna þýzku hvítu
vagna, blóðrauður ítalskur vagn
eða blár franskur. Hver þjóð hef-
ir sinn lit. Er þarna eimn vagn
— eða eru þeir tveir?
Það er ómö"ulegt að sjá.
Titrandi bylgja fer um mann_
hafið. Hvítur vagn skýzt eins og
ör af boga fyrir hornið. Það er
'Rudolf Caracíola í 'Meroedes Benz
vagni. Og þarna, einni vagulengd
á eftir honum Tazio Nuvullari í
rauðum Alfa Romeo. Umluktir
þykku rykskýi þjóta þeir áfram
og stefna að markinu. Hávaðinn
fer vaxandi. Véla- og hjóliaskrölt-
ið verður afskaplegt um leið og
þeir fara fram hjá, en svo dregur
úr því um leið og þeir fjarlægj-
ast. Hraðinn er ótrúlegur. Hjólin
virðast ekki koma við hina egg-
sléttu braut.
Eitt brot úr augnabliki sér mað-
ur Caraciola beygðan yfir stýrið.
Hann bítur saman tönnunum,
titrándi af áhrifum hraðans, hver
einasta taug er spent til hins ítr-
HSta. Hin skörpu augu hak við
gleraugun, sjá ekkert nema hina
hvítu rönd fyrir framan bílinn.
Hinn eldraúði vagn Nuvullaris er
eins og eldrönd úr „rákettu.“ —
Hann eykur hraðann eins oghalnn
gétur. Með öskrandi hraða þýtur
bann áfram. Hann hugslar aðeins
eitt, eitt, áfram, áfram, ég skal
verða fyrstur. Mannbafið fylgist
með, þáð hefir heldur ekiki inemia
eina einustu hugsun: Hver verður
fyrstur?
Hér er háð barátta upp á líf
og dauða, um brot úr sekúndu.
Hinir vagnarnir virðast tilkomu-
litlir, þegar þeir koma eftir þenn-
an ægilega spenning.
Úrin eru tekin fram. Menn
fylgja sekúnduvísinum mieð aug-
unum. Eftir finun og hálfa mih-
útu eiga þeir aftur.áð fara fram
hjá.
Hvað er þetta?
Vagn Nuvullaris skjögrar. Hiainn
verður að draga úr hraðanum.
Og loks þjótia þeir yfir mar'klín-
una svo að segja hlið við hlið
— og þó er Caraciola hálfri viagns
lengd á undan.
I 4 klukkustundir hafa þeir bar-
ist um sigurinn — hverja sekúndu
með lífið að veði — og þó varð
munurinn ekki meiri.
Jæja, munu flestir segja, en
eru þessir bifreiðaakstrar nofckuð
íannað en leikur með manaslíf?
Hiafa þeir nokkra þýðingu aðra,
nokikra praktiska þýðingu? Við
þessari spurningu er aðeins hægt
að gefa eitt svar: Bifreiðakapp-
akstrar hafa altaf haft og munu
hafa mjög mikla praktisku þýð-
ingu fyrir bifreiðaiðnaðinn. Ef
þessir kappakstrar hiefðu ekki
verið háðir, þá væru bifreiðaimaj
ekki eins fullkomnar og raun er á.
Fjölda margar uppfinningar
hiafa verið gerðar einmitt með
kappákstrama fyrir augum — og
svo þegar þær höfðu sýnt yfir-
burði síma og nota,gildi sitt við
kappaikstra, voru þær settiar í
venjulegar bdfreiðiar. Hjólin, siem
hægt var að taka af, voru t. d.
fyrst notuð á kappialkstursbraut,
en á þieim hefir það geisilega
þýðingu, hve fljótt hægt er að
gera við sprungnar slöngur. —
Þannijg befir verið um mikinín
fjölda af þeim umbótum, sem
gerðar hafa verið á bifreiðum á
undiainförn'um árum.
Aliar hafa þær verið reyndar
fyrst á kappakstursbifreiðum.
Kappaksturinn er því ekki að
eins vitfirt keppni. —
Stökk lengra en Skarp-
héðinn.
Þetta bar til áður en hafskipa-
bryggja kom á höfn eina norð-
anlands, og fóru menn þá á bát-
um fram í skip, sem lágu á
höfninni. Eitt sinn lá skip á höfn-
inni, og þurfti maður einn að
konm'st í bát franx í s’kip. Maður-
inn var allfeitur. Þegar hann kom
franr á bryggjusporðinn, sá hann
að báturinn var nýlagður frá
bryggjunni. Sýndist honum ekki
meir en meðahnannsverk aó
stökkva út í bátinn, og hóf sig
á loft. Lenti hann nieð magann
á þóftu í bátnum og leið yfir
hann rétt sem snöggvast. Þegar
hann reis á fætur var báturinn
kominn um hundrað faðma frá
bryggjunni. Snéri hann sér þá að
mönnunum, sem voru í bátnum,
og sagði hreykinn:
— Þetta var laglega stokkið,
piltar!
Málsháttur.
— Timinn er peningar, sagði
maðurinn, sem pantsetti úrið sitt.
VEKÐ VIÐTÆKJA EK LÆGKA HÉK A
LANDI, EN I ÖÐRUM LÖNDUM ÁLF-
UNNAR.
Viðtækjaverzlunin veitir kaupendum viðtækja
meiri tryggingu um hagkvæm víðskifti en nokkur
önnur verzlun mundi gera, þegar bilanir koma
fram í tækjunum eða óhöpp bera að höndum.
Ágóða Viðtækjaverzlunarinnar er lögum samkv.
eingöngu varið til rekstur útvarpsins, almennrar
útbreiðslu þess og til hagsbóta útvarpsnotendum.
Takmarívið er: Viðtækl inn á hvert heimili.
Viðtækjaverzlaa
Lækjargötu 10 B. Sími 3823.