Alþýðublaðið - 17.10.1943, Side 8

Alþýðublaðið - 17.10.1943, Side 8
Sunnudagur 17. október 1943» ALÞYÐUBLAÐIP i HTJARNARBI6B Takið undir! (PRIORITIES ON PARADE) Amerísk söngva- og gaman- mynd. Ann Miller, Betty Rhodes, Jerry Colonna Johnny Johnston. Aukamynd: NORSKUR HER Á ÍSLANDI (Arctic Patrol) Sýning kl. 3, 5, 7 og 9. Sala aðgöngumiða hefst klukkan 11. SKYNSAMLEG TILLAGA. Þau eru bæði komin til ára sinna, Jón og Gunna. Og nú eru þau að ræða um allar breyt- ingarnar og byltingamar, sem nútíminn hefur leitt af sér. „Og nú er bæjarstjórnin far- in að breyta götunöfnunum, Gunna mín,“ segir Jón. „Ojú, ég held nú það, svarar Gunnq, gamla. „Og það er fleira sem þeir breyta blessaðir. Ég er nú ekki lengur farin að þekkja mig á mínum fæðingar- stað. Sýnist þér ekki, Jakob minn, að það hefði þó ekki ver- ið til of mikils mælzt, að svo mikið tillit væri tekið til okk- ar gamla fólksins, að öllum þess um breytingum væri frestað, þangað til við erum komin í gröfina?“ . * :!: * SKILYRÐI Húsbóndinn er í afleitu skapi og hreytir út úr sér: „Farðu til fjandans, strákur, ég vil ekkert með þig hafa!“ „Ég fer ekki eitt fet nema hún mamma mín fari með mér,“ svaraði strákur hálfskælandi. * * * ILLT í EFNI. Gísli Jóhannsson á Bíldudal fylgdist með gamalli konu í bíl milli ísafjarðar og Dýrafjarðar, og taldi konan að þjóðarskútan væri að strandi komin. Gísli svaraði: „Þjóðarskútan gekk á grunn, gapir sundur öll að framan; stjórnin virðist vera þunn. Varla’ er nú á ferðum gaman. engan biðja hjálpar. Ég varð að standast þessa raun af eigin ramleik,, eða sjálfstraust miit myndi brotið á bak aftur fyrir fullt og allt. Ein leið var augljós. Ég átti auðvitað kost þess hlutskiptis, sem títt var að ungar stúlkur af góðum ættum, er neyddust til að vinna fyrir sér, völdu jafnan. Ég gat lagt fyrir mig heimilis- kennslu eða gerzt lagskona aldraðrar hefðarfrúar. Ég sá mig í anda sniglast um híbýli bráðókunnugs fólks, líkt eins og ég væri afturganga Karolinu frænku. Ég fylltist óhugnan við þá tilhugsun. Ég hætti þessum bollaleggingum og ákvað að velja mér sama hlutskipti og þær stúlkur, er ekki gátu stuðzt við ættgöfgi sína. Ég afréð að nema hraðritun og læra að skrifa á ritvél. Til þess þurfti að ganga á sex mánaða nám- skeið, sem kostaði sextíu krón- ur. Þá mundi ég eiga eftir fjárhæð, sem_ svaraði einni krónu á dag. Á því yrði ég að lifa þennan tíma. Nú öðlaðist ég kyrrð og frið í sál minni. Það voru engar hljómhviður leiknar framar inni í höfðinu á mér. Það hafði vel borgað sig að ienda í járnbrautarslysi til þess að losna við Konserto í A-dúr eftir Mozart, og jafnvel þó að maður yrði að bæta ofan á það sex mánaða sárustu fá- tækt og undirbúningi undir það að ganga í milljónaher hraðrit- aranna. Ég dró djúpt. andann, bretti upp ermarnar og sann- færðist um, að ég var glöð og ánægð og gædd innri frið, sem ég hafði aldrei haft neitt af að segja til þessa. Vorið kom snemma. Hesli- hnetutrén laufguðust og sýr- ingarnir stóðu í blóma. Ég tók mér bólfestu í bak- húsi sem leigjandi hjá Mataus- chek skósmið. Ég bjó í herbergi með tveimur öðrum stúlkum. En þar að önnur þeirra vann við kabarett og kom heim á morgnana til að ganga til sæng- ur, komu þrengslin ekki að sök. við snæddum saman morgun- verð og að því búnu fóru tvær okkar til vinnu sinnar. Minna réð þá ein yfir herberginu og snaraði sér í rúmið. Hún hafði mkiinn áhuga fyrir klæðaburði kvennanna í kabarettinum og sagði okkur margar skrítnar sögur um þá hluti. Hin stúlkan, sem bar hið fátíða nafn Maja, var sýningarstúlka. Hún hafði mjög glæsilegan vöxt, ef miðað er við smekk manna fyrir stríð. En ég er hrædd um, að hún þætti heldur gildvaxin nú. Þettá var virðulegt og heið- arlegt hús, sem ég hafði tekið mér bólfestu í. Það var þéttset- ið af þessú hversdagslega fólki og andrúmsloft þess mettað hversdagslegum viðfangsefnum þess. Þar var slátrari, bakari og eldspítnagerðarmaður. Þetta var eins og lítið, sjálfstætt þjóðfélag, sem var sjálfu sér nóg og allir vissu allt um alla. Það var að vísu ekki laust við, að söguburður og smávegis öf- undsýki væri á kreiki. En það skorti heldur ekkert á hjálp- semi og samhug í garð náung- ans. Þetta andrúmsloft hjálp- seminnar var mér alveg nýtt. Það voru stöðugir flutningar milli eldhúsanna á sykri, mjöli og svínafeiti, sem hafði verið fengið að láni. Það var talin sjálfsögð skylda allra að gefa auga börnunum, sem voru að leikjum sínum í húsagarðinum eða á götunni, líkt eins og all- ir ættu þau í sameiningu. Þeirra, sem veikir voru, var vitjað af nábýlisfólkinu og bætt úr þörfum þeirra. Þeir, sem voru í vanda staddir, þágu ráð- leggingar og stuðning hjá hin- um. Ef ættingi manns lézt, tóku nágrannarnir þátt í sorg manns og voru síðan viðstaddir jarð- arförina, klæddir í dökku spari fötin sín. Ef kona fæddi barn, voru allar konur úr húsinu reiðubúnar til hjálpar. Þær hituðu vatn böðuðu hvít- voðunginn, hituðu kaffi og hug- hreystu hinn kvíðandi eigin- mann meðan á fæðingunni stóð. Ef einhver gekk í hjónaband, sýndu allir íbúar hússins hinn mesta áhuga og fögnuð í því sambandi og voru viðstaddir vígsluna. Ef unnustinn yfirgaf mann, tóku allir afstöðu með manni og kölluðu reiði drottins yfir höfuð hins svikula elsk- huga. Ég var sterk og hreykin af sjálfri mér og næstum því ham- ingjusöm. Ég var búin að losa mig við allar grillur og hafði nú loks fasta jörð undir fótum. Ég deildi kjörum með þessum hversdagsmanneskjum, sem voru nábýlisfólk mitt, og mér hlýnaði við það um hjarta- rætur. Það tekur sárasta brodd- inn úr einmanakenndinni að skipa sér í hóp með öðrum. Ég var hreinasta gáfnaljós á verzlunarnámskeiðinu. Eftir að hafa hlotið þá ströngu þjálfun, sem þarf til þess að verða fiðlu- leikari, reyndust mér þessi við- fangsefni næsta auðveld. Sá, sem hefir hlotið þjálfun í að læra eitthvað til fullrar hlítar, á næsta auðvelt með að læra allt annað. í fyrsta sinn á æf- inni hafði ég yfir kappnógum frístundum að ræða, er ég gat varið mér til skemmtunar. í fremstu röð þeirrar ánægju, I NÝJA BÍÚ ! MðBfnn líðnr. GAMLA BlÓ | VdrnlB frækm. (The Moon is Dow») Stórmynd eftir söfu JoBn Steinbeek. Bönnuð börnum innan 16 ára Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9. Sala aðgm. hefst kl. 11 f.h. Á morgun kl. 5: DÁÐADRENGUR (A Gentleman at Heart) Cesar Romero, Carole Landis. „WAKE ISLAND“ Paramountmynd um hina frækilegu vörn ameríska setuliðsins á Wake-eyju gegn ofurefli liðs Japana. Brian Donlevy, Robert Preston, MacDonald Carey, Albert Dekker. Sýnd klukkan 3, 5, 7 og 9. Bannað fyrir böm innan 16 ára. Aðgöngumiðasala frá kl. 11 f. h. sem mér veittist, var að snæða. Ég var alltaf svöng. Ég gat al- drei leyft mér að neyta matar nema eftir nákvæma íhugun. Og hver einasta máltíð, sem ég neytti, var eins og hátíð. Fyrstu hugsanir mínar á morgnana snerust um mat. I síðdegishlé- inu í skólanum fór ég á mark- aðinn. Ég gekk meðfram sölu- borðunum, sem stóðu í röðum, og leitaði að beztu og ódýrustu matvælunum, sem á boðstóln- um vöru. Sölukonurnar kölluðu upp vörur sínar og hældu þeim á hvert reipi og köstuðu fram gamanyrðum og skjalli í því skyni að lokka mann til að kaupa fremur af sér en a£ keppinautunum. Það þurfti ekki annað en líta yfir öll þessi býsn af kirsúberjum, nýjum STEINI SLEG6JA Hann réðst á mótstöðumann sinn af grimmd tígrisdýrs- ins. Meðal áhorfendanna ríkti grafarþögn. Höggin dundu á Grogan, sem hörfaði smátt og smátt undan 1 áttina út að reipunum . Jock linaði ekki sóknina. Grogan hraktist nú víðsvegar um sviðið og hvað lítt að honum. En allt í einu þóttist hann eygja það tækifæri, sem hann hafði beðið eftir allt kvöldið. Hann lyfti vinstri handleggnum og bjóst til að koma á and- stæðing sinn einu af þessum nafntoguðu vinstri handar högg- um sínum, er gert höfðu hann víðfrægan. En Steini sleggja sá hvað verða vildi og var vandanum fyllilega vaxinn. Hann reiddi líka vinstri hnefann til höggs. Krass! Höggið hitti Grogan með heljarafli, svo að kvað við. Hann hné til jarðar og heyrðist hvorki frá honum hósti né stuna. Tímavörðurinn lauk við að telja. Grogan bærði ekki á sér. Sigur Steina sleggju var ótvíræður. Fagnarlæti áhorfendanna brutust út með hvílíkum helj- arhávaða, að slíks voru engin dæmi. Ef þau lægði andartak, uxu þau bara um allan helming aftur. — Hvað sagði ég þér ekki, lagsi, sagði sigurvegarinn við ráðsmann sinn, heldur en ekki kampakátur. — Har^ hafði lítið að gera í hendumar á mér! Ég lagði hann á hans eigin bragði! Þú getur séð, að ég muni hafa náð í rétta ná- unga til að æfa mig á! Sjómennimir af Mary Jane höfðu nú safnazt saman umhverfis grindurnar. eftir að þeir voru búnir að öskra sig hása. , — Herra minn trúr! stundi Nippy upp og lét sig fall- ast niður í stól. — Þessu hefði ég aldei búizt við! Þetta er stærsti sigurinn, sem þú hefir unnið! — Já, og hann gefur peninga í aðra hönd, kunningi? sagði Jock. — En helmingnum af þeim ætla ég að verja tii að halda skipshöfninni á Mary Jone ærlega veizlu! ENDIR. A- A j TWAT'íi TW0 5ECONP- TIME VOU’VE 5AVEU ME,FREO\/ I WONT- r foroet/^ I'LL ALWAV‘7 PE WHEfe’E VOU NEEPME.P’ARLINS' PUTWÉ ML)5T HURRV' 15 THE FLANE -----r IZBAPy? ,--------- TOOT: Þetta er öðru sinni, sem þú kemur alveg á síðustu stundu til að bjarga lífi mínu, Frieda. Því mun ég aldrei gleyma. FFRIEDA: Eg mun alltaf verða þar, sem þú þarft á mér. að halda, vinur minn. En nú verðum við að flýta okkur! Er flugvélin ferðafær? \ ALWAyg 15 A LONST<ME,FJ?EPA FEAl?..MUCHTOO LONS/ VOUIS . KE5CUE OFME HA5 FILLEPMV NEEP FOE V0U...5O...FROM HERE IN.VOUK PRE5ENCE 15.... TOOT: „Allt af“ er stór orð Frieda. — Allt of stórt. Þegar þú hefir nú bjargað lífi mínu, fínn ég hversu mjög ég þarfnast þín (slægðin skín í auga hans) — Og návíst ■ þín — er nauðsynleg úr þc fanturinn slær hai

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.