Alþýðublaðið - 03.11.1943, Page 3
Miðvikudagur 3.
nóv. 1943.
ALÞYÐUBLAOIÐ
Næstsíðasta ráðstefnan.
Mynd þessi er frá ráðstefnu bandamanna í Quebec í Kanada, sem var næsta ráðstefna
bandamanna á undan þríveldaráðstefnunni í Moskva, en hana sátu fulltrúa Rússa eigi, enda
var þar einkum rætt um styrjöldina gegn Japönum. — Frá vinstri til hægri sitjandi: Mac
Kenzie King. Roosevelt og Churchill. Standandi: H. H. Arn-old, Sir Charles Portal, Sir A1
an Brooke Emest J. King, Sir John Dill, George C. Marshall, Sir Dudley Pound og William
D. Leahy.
Rðssar sækja hratt fram soðnr Krimskaga.
Og nálgast Nikopoi og Kherson í tvelm fylkingarörmum.
HERSVEITIR RÚSSA, sem náðu Perekop á vald sitt,4
sækja hratt fram suður Krímskagann og hafa tekið
hæinn Armyansk. Telja fréttaritarar í Moskva aðstöðu liðs
Þjóðverja á Krímskaganum vonlausa.
Rússnesku hersveitirnar, sem hófu hina vasklegu fram-
sókn frá Melitopol vestur að Dniepr sækja fram í tveimur
fylkingarörmum. Náigast annar þeirra Nikopol, en hinn
Kherson. Veita Þjóðverjar lítt teljandi viðnám á þessum
slóðum. í Dnieprhugðunni var mest barizt við Krivoirog
síðasta sólarhringinn og gera Þjóðverjar þar öflug gagn-
áhlaup.
Rússnesku hersveitirnar, sem
tóku Perekop, sækja nú hratt
fram suður eftir Krímskagan-
anum. Láta Þjóðverjar undan
síga, enda er þungi framsóknar
Rússa mikill. Tefla Rússar eink
um fram skriðdrekann og Kós-
akkahersveitum í sókn sinni.
Fréttir frá Moskva í gær láta
þess getið að lið Þjóðverja
á Krímskaganum myndi nema
nær 250.000. Er her þessi tal-
inn í hinni alvarlegustu hættu,
og láta fréttaritarar svo um
mælt, að Þjóðverjar á Krím eigi
aðeins þriggja kosta völ: Freista
þess að komast brott frá skag-
anum sjóleiðis, gefast upp skil-
yrðislaust eða berjast til þraut-
ar. Undanhald Þjóðverja sjó-
leiðis mun þó reynast miklum
erfiðleikum búið, því að Rússar
hafa mikla yfirburði á sjó og
í lofti og munu því greiða þeim
mörg högg og þung á undan-
haldinu. Þjóðverjar létu þess
getið í fréttum sínum í' gær,
jafnframt því sem þeir viður-
kenndu framsókn Rússa á Pere-
kopeiðinu, að Rússar hefði freist
að þess að setja lið á land í
Krím yfir Kerchsund.
Rússnesku hersveitirnar, sem
hófu hina miklu sókn frá Meli-
topol vestur til Dniepr, nálg-
ast nú fljótið óðum, og eru
framsveitir þeirra komnar að
austurbakka þess á nokkrum
stöðum. Sækja hersveitir þess-
ar fram í tveim fylkingarörm-
um. Stefnir annar þeirra í átt-
ina til Nikopol, en hinn til
Kherson. Þjóðverjar veita lítt
teljandi viðnám í átökum þeim,
sem þarna er til efnt, og gjalda
mikil afhroð á mönnum og her-
gögnum. Hefir fjöldi hinna
þýzku hermanna drukknað á
undánþaldinu vestur yfir
Dniepr. — Rússar tefla fram
flugher í framsókn sinni á aust-
urbakka Dniepr, eins og raun-
ar hvarvetna á austurvígstöðv-
unum, og vinna þapnig hinum
flýjandi þýzku hersveitum
mikið grand. Telja fréttaritarar
og hernaðarfræðingar í Moskva
að þess muni skammt að bíða,
að Rússar nái borgunum Niko-
pol og Kherson á vald sitt.
Litlar fréttir bárust í gær af
bardögum norður í Dnieprbugð
unni annars staðar en við Kri-
voirog. Rússar telja sig treysta
aðstöðu sína þar með hverjum
degi, sem líður, en Þjóðverjar
halda upp öflugum gagnáhlaup
um og spara hvorki lið sitt né
hergögn í hinni örvæntingar-
fullu baráttu sinni. Hins vegar
telja Rússar, að þýzku hersveit-
irnar við Krivoirog og inni í
Ufanrfkismálaráð-
herra Tyrklands fer
til fundar við Eden.
¥ UNDÚNAFRÉTTIR í gær-
kvöldi skýrðu frá því, sam
kvæmt frétt frá Ankara, höf-
uðborg Tyrklands, að utanríkis-
málaráðherra Tyrkja og sendi-
herra Breta í Tyrklandi væru
á förum til Kairo, höfuðborg-
ar Egyptalands. Munu þeir
eiga þar viðræðu við Anthony
Eden á heimleið hans frá þrí-
veldaráðstefnunni í Moskva.
Deining meðal grísku
skæruflokkanna.
"P REGNIR hafa borizt um ó-
" einingu meðal skæruflokk
anna í Grikklandi. Standa átök-
in um það hverjir skuli hafa
yfirstjórn skæruflokkanna með
höndum, og hefir komið til
nokkurra árekstra með hinum
andstæðu hópum. Þjóðverjar
hafa langt mikla áherzlu á það
að auka viðsjár með Grikkjum.
í fréttum í gær, þar sem rætt
var um viðhorfin í Grikklandi
var þess þó getið, að góðar lík-
ur væru fyrir því, að sættir
kæmust á með grísku skæru-
flokkunum innan skamms.
borginni muni vart geta veitt
viðnám til lengdar, þar sem
þær hafi verið innikróaðar og
sé því hvorki auðið að freista
undanhalds né draga að sé liðs-
kost og nauðsynlegar vistir og
hergagnaforða.
■ _____ S
5. herinn sækir fram app f
Hassicofjðllin.
Sókninni til Isernia miðar vel áfram.
—.............. • —........
jC1 RAMSÓKN HERJA bandamanna á Ítalíu heldur áfram,
-V þrátt fyrir óhagstæð veðurskilyrði. 5 herinn hefir
sótt fast fram uppi í fjalllendinu, þar sem Þjóðverjar hafa
komið upp hinni nýju varnarlínu og tekið bæinn Casanova.
8. herinn hefir og treyst aðstöðu sína norðan við Trignoá og
miðar báðum herjum bandamanna örugglega áfram í sókn
sinni til Isernia. Flugher bandamanna á Ítalíu og við Mið-
jarðarhaf hefir sig einnig mjög í frammi.
5. herinn vinnur örugglega*
að því að ryðja sér braut gegn
um hina nýju varnarlínu
þýzka hersins. — Hefir honum
orðið vel ágengt síðasta sólar-
hringinn og treyst mjög að-
stöðu sína með töku bæjarins
Casanova. Þjóðverjar hafa bú-
izt vel um í Massicofjöllunum,
enda eru skilyrði þar til varn-
ar mjög góð af náttúrunnar
völdum, og auk þess eru veður-
skilyrði á Ítalíu en hin óhag-
stæðustu. Eigi að síður miðar
sókn 5. hersins vel áfram, og
telja hemaðarfræðingar, að
Þjóðverjum muni vart auðið
að veita langvinnt viðnám í
hinni nýju varnarlínu uppi í
fjöllunum. En verði þeir hrakt-
ir þaðan brott, mun þeim lítt
varnar auðið norðan Rómaborg-
ar.
Hægri fylkingararmur 5.
hersins og vinstri fylkingár-
armur 8. hersins sækja og fast
fram í áttina til Isernia, hinnar
mikilvægu miðstöðvar varna
Þjóðverjum á miðvígstöðvun-
um á Ítalíu. Einnig hefir 8; her
inn treyst aðstöðu sína norðan
Trignoárinnar, þar sem hafn-
arborgin Vas'to er takmark
framsóknar hans.
Flugher bandamanna á ítal-
íu og við Miðjarðarhaf, hefir
verið athafnasamur síðasta sól-
arhringinn, þrátt fyrir illviðri.
Voru harðar árásir gerðar á
hafnarborgirnar Spezia á vest-
urstrÖndinni og Ankona á aust-
urströndinni. Fljúgandi amer-
ísk virki réðust og til atlögu
við Wienerstadt í Austurríki.
Urðu mikil spjöll af völdum á-
rása þessara.
f Lundúnafregnum í gær var
þess ge^ið, að Badoglio mar-
skál veitist örðugt að fá fulltrúa
allra flokka til þess að taka
sæti í stjórn sinni. Hinir rót-
tækari flokkar krefjast þess að
sögn, að Sforza greifi og Bene
detto Crose, heimspekingurinn
heimsfrægi. taki sæti í stjórn-
inni til þess að þeir telji sér
unnt að veita henni stuðning.
Hins vegar er með öllu óvíst,
að Sforza og Croce vilji taka
sæti í ríkisstjórn, sem lýtur for-
ustu Badoglios og Viktors
Emanuels.
C RÉTTIR frá skrifstofu
norska blaðafulltrúans í
Reykjavík greina frá því, að
Noregshjálpinni í Svíþjóð hafi
safnazt 4 milljónir króna. Eru
það einkum sænskir verka-
menn, sem hafa látið fé þetta af
mörkum.
Árangri Moskvaráðsfefn-
unnar hvaryefna fagnað í
löndum bandamanna.
i<'XO'QÁ'
¥X ELZTA umræðuefni hinna
*■■■ sameinúðu þjóða, segir í
frétt frá Washington, er um
þessar mundir árangur sá, sem
náðist á þrívpldaráðstefnunni í
Moskva, er virðist vekja al-
menna ánægju. F. Knox flota-
málaráðherra hefir látið þann-
ig um mælt í Washington, að
árangur sá, er náðist á ráð-
stefnunni, væri jafn mikils-
verður og sigur bandamanna -—
hvort heldúr væri á vígstöðv-
unum í Evrópu eða Asíu. Dag-
blaðið New York Sun komst
þannig að orði um árangur þrí-
veldaráðstefnunnar, að hann
væri hryllilegur ósigur fyrir
möndulveldin. í grein blaðsins
segir svo: — Bandamenn hafa
unnið sigur, sem jafngildir ger-
eyðingu fjölda þýzkra her-
sveita á orrustuvelli.
Cordell Hull, utanríkismála-
ráðherra, fulltrúa Bandaríkj-
anna á ráðstefnunni fórust
orð á þessa lund í gærmorgun:
Ráðstefnan er nýtekin til
starfa, en hér eftir munu
þjóðir þær, sem hér sitja á rök-
stókim, vinna að því að ger-
breyta þessum heimi einangr-
unarstefnunnar.
í öllum dagblöðum Rúss-
lands birtust samningar þeir,
sem gerðir voru, í heild, og Is-
vestia kvað þannig að orði, að
hann væri fyrsta skrefið, sem
stigið væri til uppbyggingar
nýs heimsskipulags eftir stríð-
ið. T. V. Soong, utanríkismála-
ráðherra Kína, fagnaði mjög
árangri þeim, sem náðst hefði
á ráðstefnunni, og kvaðst
vona, að hann mætti orka því,
að aldagamall draumur mann-
kynsins, rættist.
í gær barst sú frétt frá Lund
únum, að fyrsti fundur ráð-
gjafanefndar Evrópuþjóðanna
muni verða haldinn þar í
lok næsta mánaðar.
Franco fær aadijr.
FRÉTTIR frá Lissabon láta
svo um mælt, að átta
spánskir hershöfðingjar hafi
sent áskorun til Francos um
það, að hann afsalaði sér ein-
ræðisvaldi sínu. Þess er og get-
ið, að mikill fjöldi stjómmála-
manna og áhrifamana styðji
þessa málaleitun hershöfðingj-
anna.