Alþýðublaðið - 03.11.1943, Side 6
ff
Kvöldkjóll.
Hann er úr svörtu slæðu-
efni os það er ameríska
leikkonan Ann Miller, sem
lét sauma hann fyrir sig.
HANNES Á HORNÍNU
(Frh. af 5. síðu.)
ur um það að menn ættu að
reyna að byggja hús sitt sjálfir.
SÉjg hygg að hér sé um mjög
merkilegt mál að ræða, sem vel
megi hrinda í framkvæmd, ef all-
ir sýna góðan vilja og sérstaklega
lýst mér vel á tillögu Hjalta um
Garðborgina. En það er eitt í því
sambandi, sem ég vil vekja máls
á. Verkamenn þekkja bezt allra
stétta hvað mikið þeir hafa get-
að bætt kjör sín með því að standa
saman og hjálpa hver öðrum. Sam
tök þeirra í félögunum sýna það
deginum ljósara.“
EINS ER MEÐ þetta bygginga-
mál. Ég hefi aflað mér upplýs-
singa um það og einn arkitekt
sagði til dæmis nýlega, að hann
gæti byggt sér fimm herbergja ný
tísku íbúð út af fyrir sig fyrir
sama verð og þriggja herbergja
íbúð kostar í nýju bæjarhúsunum.
Og það er vitað að hægt er að
kom upp góðum íbúðum fyrir
margfalt lægra verð en venjuleg-
ur kostnaður er við íbúðarhúsa-
byggingar hér í bænum. Hvað
gætu verkamenn þá gert, ef þeim
væru úthlutaðar lóðir, þeir fengju
einhverja eftirlitshjálp og nokkr
ar leiðbeiningar og að þeir hjálp
uðu svo hver öðrum að byggja í
eftirvinnu?“
ÉG VIL hvetja verkamenn til
að athuga þetta og slá sér saman.
Eæðið um þetta í vinnuflokkum,
stéttarbræður góðir. Það mun
reynast ykkur betur en snýkjurifr
ildisáróður kommúnista í vinnu-
flokkunum, sem maður hefur eig-
inlega aldrei orðið frið fyrir. Hús
næðisleysið þjakar fjölskyldu okk
ar. Við skulum hefjast handa um
þessi mál, bindast samtökum og
ríða á vaðið. Við skulum fyrst
og fremst gera kröfur til okkar
sjálfra og hjálpa okkur sjálfir, síð
an skulum við fara fram á að-
stoð, sem hægt er að veita og sjálf
sagt virðist að veita húsnæðis-
lausu fólki til að bjarga sér
sjálft.“
Dömutöskur,
Dömuhanzkar,
fóðraðir og ófóðraðir, einnig
BARNASOKKAR og
HOSUR nýkomið.
Unnur
(horni Grettisgötu og
Barónsstígs).
ALÞYÐUBLAÐIO Miðvikudagur 3. nÓT. 1943,
Agiist H. Pétairsson:
Opið bréf til formanns
MIG undraði stórum þegar
ég kom á æskulýðsfund-
inn í Gamla Bíó s. 1. sunnudag,
sem þið samherjarnir, ungir
komxnúnistar og félag þitt, boð-
uðu til hversu fimlega þér tókst
að rangfæra staðreyndir um
undirbúningsatriði þessa fund-
ar, er lutu að þeim samræðu-
fundum, er ég fyrir hönd Fé-
lags ungra jafnaðarmanna var
staddur á.
En áheyrendur þeir, sem á
fundinum voru, og þá sérstak
lega þeir, sem eitthvað höfðu
fylgst með máli þessu, fundu
það glöggt, að betra hefði það.
verið, að ræðumennirnir hefðu
borið bækur sínar saman, svo
andstæðumar hefðu ekki rekið
homin hver í aðra, og virðist
það nokkuð torskilið í málflutn-
ingi ykkar af hvaða ástæðu
F. U. J. var e'kki þátttakandi í
fundi bessum. þar sem ýkkur
gat ekki komið saman, og nokk-
uð hjákátlega tókst hinum ný-
krýnda formanni Æskulýðs-
fylkingarinnfar,'' þegar hann
taldi ástæðuna vera þá, að
héimsókn Stauníings forsætis-
ráðherra Dana 1939 hefði bann-
að það, eftir að þú varst búinn
að lýsa því yfir, að F. U. J. hefði
annaðhvort ekki þorað að mæta
ykkur hetjunum eða forystu-
menn Alþýðuflokksins hefðu
bannað félaginu að vera þátt-
takandi. N, „
Sökum þess að mér barst bréf
frá félagi þínu, undirritað af
þér sjálfum, varðandi umræðu-
fund um sjálfstæðismálið, þar
sem þess er óskað, að ég mæti
til viðræðna við þig eða stjórn
Iféla^s þíns um fyrirhugaðan
æskulýðsfund um áðumefnt
mál, finnst mér það rétt að
senda þér persónulega þessar
línur því ég tel það standa þér
næst að fara nokkum veginn
með rétt mál, þegar þú breiðir
almætti þitt út fyrir reykvíska
æsku með kommúnista þér við'
hönd til styrktar og stuðnings
málfærslu þinni og áróðri í ai-
mættisprédikunum * þínum um
sjálfstæðismálið og óhróðurs-
útbreiðslu um þau félagssam-
tök, er ekki voru þátttakendur
í fundinum með ykkur. ,
Ég hefði talið það virðingu
þinni og aðstöðu samboðið sem
formanni ungra sjálfstæðis-
manna, að minnast ekki á það
atriði að hin tvö æskulýsfélög
voru ekki með, og aðvara hina
ræðumennina ,einnig um það,
eöa taka þá leiðina að skýra rétt
ffá. en sú leið var takmarki
þínu hættuleg — heldur en að
auglýsa persónu þína með
dylgjum og óhróðri, sem þú
máttir vita að yrði hnekkt, og
er þess valdandi að ég sendi þér
þessi orð.
,Mér er það fvllilega ljóst,, að
þú ert afar gleyminn á þau at-
riði er fram komu á umræðu-
fundum formanna æskulýðsfé-
laganna. og í öðru lagi gæddur
töluverðum tilhneigingum, tii-
aið bregða rangfænsfum ‘fyrir
þig, ef það gæti í augnabhks
æsingi veitt málstað þínum ein-
hvern stuðning. Vil ég þar af
leiðandi minna þig á nokkur at-
riði, sem þú gekkst fram hjá,
en lést illgirnislegar tilgátur
koma í staðinn.
Þegar ég meðtók áðurnefnt
bréf frá félagi þínu, svaraði ég
því í samtali við þig samtímis,
og tjáði þér þá eftiríarandi: að
ég væri reiðubúinn tii að mæta
til viðræðna við þig um þetta
mál, en ég tæki það fram þar
sem málið hefði hvorki verið
rætt af stjórninni eða í félaginu
að þátttaka félagsins væri bund
in því skilyrði, að öll félögin
yrðu með í fundarboðuninni og
--------- ♦
undirbúningi hans. Sagðir þú
Jpá að afstaða þín og félags þíns
væri slík hin sama. Töldum við
báðir, að þar sem hér væri um
mikilvægt málefni að ræða,
ibæri að forðast, að æskulýðs-
félögin véktu upp óeiningu um
það, á meðan það væri ekki
lengra á veg komið en það var
þá. og taldi ég það heppilegra
að við færum ekki af stað með
slíkan fund, ef öll félögin.
treystu sér ekki til að standa að
honum. Varst þú fullkomlega
sammála þessu atriði. Eftir
nokkrar vikur var boðaður um-
ræðufundur þar sem við mætt-
um ásamt formanni F. U. F.
Skýrðir þú okkur þá frá því,
að tilgangur fundarins ætti að
vera sá, að fá samþykkta
traustsyfirlýsingu á störf stjóm
arskránefndar og ályktun varð-
andi sambandsslit ekki síðar en
17. júní 1944. Var ákveðið að
athuga þetta mál og koma sam-
an síðar, enda var ekkert vitað
um afstöðu kommúnlista,; þvtí
þeir höfðu þá engu svarað mála
leitun bréfs þíixs.,
Næsti fundur var haldinn,
en þar vorum við tveir a'ðeins
mættir. Lagði ég þar fram til-
lögu, sem ég óskaði að yrði at-
huguð við undirbúning fundar-
ins. f tillögunni var þess vænst,
að allir flokkar ynnu að því að
ísland yrði frjálst og fullvalda
lýðveldi svo fljótt sem verða
mætti á löglegan og lýðræðis-
legan hátt. Taldir þú tillögu
þessa góða og þig samþykkan
henni að öllu leyti.
Á næsta undirbúningsfundi
mættu fulltrúar allra félag-
anna. og gaf iormaður félags
ungra Framsóknarmanna þá
þau svör, að hans myndi
ekki verða þátttakandi í boðun
almenns æskulýðsfundar um
sjálfsstæðismálið, þar sem félag
hans teldi þetta mál ekki nægi-
iega upplýst, þar sem það væri
vitað að ekkert hefði fram kom-
ið af hálfu hins opinbera, annað
en þingskjal, er formaður
stjórnarskrárniefndar lét prenta
og útbýta á alþingi. Hann benti
á aðrar leiðir, sem hann taldi
að yrðu framgangi málsins til
meiri ávinnings en boða til fyr-
irhugaðs fundar og iáta sam-
Þykkja þar ályktun urn mál,
sem þjóðin væri enn ekki búin
að fá allar upplýsingar um, að
hún gæti tekið beina og skyn-
samlega afstöðu til málsins, en
þegar þær upptlýsingar væru
fengnar,' taldi hann tímabært
að ræða málið., 5
Þá var ákveðið að halda ann.
an samræðufund um þetta at-
riði og vita hvort ekki væri
hægt að ná samkomulagi. Það
var gert. Afstað^ Framsóknar.
manna var óbreytt, og tjáði ég
þá, að hin fyrstu skilyrði mín,
stæðu óbreytt, eftir að ég var
þá búinn að leita álits félags-
stjórnar. — Skýrði ég fundar-
mönnum þá frá því, að ég væri
reiðubúinn til að athuga allar
leiðir, sem gætu orðið til sam-
komulags svo að fyrirhugaður
fundur yrði haldinn á þeim
grundvelli, að öll félögin yrðu
með og stæðu að honum. Lagði
ég fram þá spurningu, hvort fé-
lögin treystu sér til að boða til
fundarins á þeim grundvelli, að
þau væru óbundin hvort öðru
um þá tillögu eða ályktun, er
borin yrði upp á honum. Ósk-
aði ég, að stjórnir félaganna
gæfu sér tíma til að athuga
þetta eða aðrar tillögur, sem til
samkomulags gætu leitt. Hafði
þá fyrrverandi formaður æsku-
lýðsfylkingarinnar í hótunum,
og gúf það greinilega í skyn, að
við mættum vænta blaðaskrifa
um framkomu okkar. Hvatti ég
hann eindregið til að hverfa frá
þeirri hugmynd, því að ef opin-
Heimdallar.
berar deilur risu um slíkt atriði
sem þetta, yrði árangurinn að-
eins sá, að spilla fyrir fram-
gangi málsins, og það væri að
mínu áliti fjarstætt því tak-
marki, sem við værum að
vinna að.
Málaleitun minni, um að
reyna samkomulagsleiðina á-
fram, var tekið á þá leið, að
mér var tilkynnt af þér, ásamt
hinum nýkjörna formanni
kommúnista, með bréfi dag-
settu 26. þ. m., að Heimdallur
og Æskulýðsfylkingin hefðu á-
kveðið að boða saman til opin-
bers æskulýðsfundar í Gamla
Bíó, 31. þ. m. um sjálfstæðis-
málið. Var F. U. J. og F. U. F.
boðið að taka þátt í fundinum.
Með þessu var ekki lengur
um neitt samkomulag að ræða,
og því slegið föstu, að ef jafn-
aðarmenn og framsóknarmenn
vildu ekki skilyrðislaust ganga
að þeim tillögum, sem þið, sam-
herjarnir, voruð búnir að leggja
blessun ykkar yfir, þá hefðuð
þið ekkert við okkur að ræða
meir um undirbúning þessa
máls, við gátum aðeins af náð
og miskunnsemi ykkar fengið
að skríða undir hina dúnmjúku
sæng, sem átti að hylja óhróð-
ur ykkar og ádeilur.
í dálkum sumra dagblaðanna
og Ríkisútvarpinu, auglýstuð
þið svo hinn fyrirhugaða fund,
þar sem jafnaðarmönnum og
framsóknarmönnum var boðin
þátttaka í fundinum. En nú vil
ég spyrja þig L. H: Buðuð þið
þessum félögum þáttöku vegna
áhuga fyrir einingu í málinu,
eða vegna þess, að þið tölduð
það víst, að þau myndu ekki
senda neina fulltrúa fyrir sig?
Buðuð þið þessum félögum þátt-
töku aðeins í auglýsingu til að
auka aðsókn á fundinn, ráðnir
í því að standa ekki við boðið,
ef félögin vildu notfæra sér
það? Og í þriðja lagi: Var það
vegna gleymsku lélegrar fund-
arstjórnar eða svika við auglýst
boð, eða vegna þess, að ræður
ykkar voru einkenndar með
rangfærslum um þessa aðila, að
þið ekki gáfuð eða þorðuð að
gefa boðsgestunum tækifæri til
að svara illmælgi ykkar og
dylgjum, sem ég get sagt þér
L. H. að voru einkennandi við
fundinn og eyðilögðu tilgang
hans með öllu, ef tilgangurinn
hefir þá frá upphafi verið ann-
ar en sá, er berlega kom í ljós?
Á þessu getur þú nú L. H.
glögglega séð hvort orð þín um
hræðslu F. U. J., orð þín um
forboð forráðamanna Alþýðu-
flokksins, eða orð hins ný-
kjörna formanns kommúnist-
anna, Stefáns Ó. Magnússonar,
um dvöl látins forsætisráðherra
Dana hér á landi 1939, hafi
orðið þess valdandi, að F. U. J.
setti ákveðin skilyrði fyrir þátt-
töku sinni, og var ekki með,
vegna þess að enginn vilji var
af ykkar hálfu til þess að ná
samkomulagi um ágreiningsat-
riðin.
Þetta var þér allt vitað, en
þér hafa þótt hendur þínar
nokkuð dökkar eftir samkomu-
lagsmakkið við kommúnistana,
og þú hefir viljað breiða yfir
það, í stað þess að ávarpa fjöld-
ann og tilkynna hina einhuga
fylkingu, albúna til atlögu við
samtök okkar úngra jafnaðar-
manna.
Hefðu óheilindi ykkar verið
vituð fyrir fram, mundi hvorki
F. U. j. eða F. U. F. hafa átt
viðræður við þig eða kommún-
istana um þetta mál. í trú á
það, að hér væri um alvarlegt
málefni að ræða, með það bezta
fyrir augum, gekk ég til við-
ræðna við þig.
Ég vil taka undir það með
þér, sem þú sagðir í ræðu þinni
um sjálfstæðismálið, að það ætti
að vera hafið yfir allt daglegt
Regnfrakkar
á unglinga og fullorðna.
H. TOF T.
Skólavörðustíg 5. Sími 1035.
i
------j------------------
KvæSi og sögur
Jóhanns Gimnars Sigurðs-
sonar. Þetta er bók, sem er
gædd ölluni eiginleikum
sannrar listar. Tær, látlaus
ag heillandi skáldskapur,
slunginn angurværum lífs-
trega manns, sem varð mikið
að reyna. — Kennið ung-
lingunum að meta göfugar
og sígildar bókmenntir.
Veljíð þessa ágætu bók sem
Fermingargjöf.
________________
þras og flokkadeilur, en það á
einnig að vera hafið yfir illgirn-
islegar tilgátur, óhróður um
menn og félagssamtök og á-
byrgðarlausan flokksáróður.
Allir geta nú lagt blessun
sína yfir hina pólitísku sam-
vinnu flokks þíns og kommún-
istanna um þetta mál, en hrædd
ur er ég um að faðmlögin verði
þér nokkuð erfið, ef dæma skal
af þeirri reynslu, sem alþjóð er
kunn um samvinnu flokka eða
félaga við kommúnista á grund-
velli alvarlegra þjóðmála, svo
kunnur er áróður þeirra og
starfsaðferðir. Starfsemi þeirra
í lýðræðisþjóðskipulagi hefir
um allan heim miðað í þá átt,
að grafa undan þjóðskipulaginu
og koma einræði kommúnism-
ans á. Þessi afstaða þeirra hefir
í engu breytzt við það, að verða
lausir að málamynd við fyrir-
skipanir Sovétríkjanna. Þeir
eru hinir sömu kommúnistar
með sams konar skoðanir á sjálf
stæði íslands og þeir voru, þá
er flokkur þeirra varð til. Áð
þeir standa nú í fylkingu með
þér og flokki þínum, er ekki til
annars en skapa glundroða í
þjóðskipulaginu, berjast á móti
Alþýðuflokknum og fjandskap-
ast við Alþýðuflokkana á Norð-
urlöndum, skapa það ástand
fyrir íslenzku þjóðina, inn á við
og út á við, að hún komi sem
margskiptust út úr hörmungum
styrjaldarinnar. Það er þeirra
sólargeisli í sjálfstæðisbarátt-
unni, geislinn, sem á að lýsa
þeim til að gera stefnu þeirra
alráða hér á landi, að styrjöld-
inni lokinni.
Það er gleðilegt fyrir þig
L. H., að geta yljað þér við
þennan arineld innileikans og
samkomulagsins, og gleðilegt,
að þú skulir haf brotið odd af
oflæti öreigaflokksins, til þess
að hann nú geti talað við aftur-
haldið og milljónaauðkýfingana
í flokki þínum, en ég vænti þess
þó, þér til öryggis, að þú hafir
valið þér hvílustað til að geta
notið endurminninganna eftir
að kommúnistar þurfa eigi
lengur á þér að halda í einingar
pólitík þeirri, sem Sjálfstæðis-
flokkurinn og kommúnistar
heyja nú.
Að lokum fer ég þess vinsam-
lega á leit við þig, að þú opin-
berlega hrekir þær orsakir er ég
hér færi fram fyrir því, að F.
U. J. var ekki með í æskulýðs-
fundinum s. 1. sunnudag, eða þú
beiðist velvirðingar á þeim get-
sökum, sem þú og félagar þínir
lögðu fram fyrir áheyrendur
fundarins varðandi F. U. J.
Með vinsemd og virðingu.
, Ágúst H. Pétursson.