Alþýðublaðið - 05.11.1943, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 05.11.1943, Blaðsíða 3
Fösíudagur 5. nóvember 1943. ALÞYÐUBLAÐIÐ 8 Á mynd þessari af hinni fornfrægu borg, Köln, sést annar turn hinnar frægu dómkirkju, sem Þjóðverjar tilkynna að hafi tvisvar sinnum orðið fyrir skemmdum í loftárásum bandamanna. Einnig sést á myndinni jEfohenzollernbrúin, sem liggur yfir ána Rín, en Köln stendur á bökkum hennar. Myndin vár tekin úr þeim turni dómkirkjunnar, sem ekki sést á myndinni.' 8* herinn Nesfa dagárás á Þýzkaland hefir tekið Isernia. i*lÞjóðverjar hðrfa norður Garig- lianodalinn. P RÉTTIR FRÁ ÍTALÍUVÍGSTÖÐVUNUM í gær, greina frá nýjum sigrum beggja herja bandamanna síðasta sólarhringinn. 8. herinn hefir tékið Isernia, hina mikilvægu samgöngumiðsíöð. 5. herinn hefir og sótt fram og eru Þjóð- verjar nú á braut úr Massicofjallgarðinum og af St. Croce- fjalli. Hörfa hersveitir þeirra norður Garaglianodalinn, en bandamenn reka flótta þeirra og halda uppi ákafri stór- skotahríð. Einnig sækir hægri fylkingararmur 5. hersins fast fram í áttina til Venafro á miðvígstöðvunum, — segir Stimseíí. OFTSÓKN Bandamanna gegn Þýzkalandi og stöðv- um Þjóðv. í hernumdu lönd- unum á meginlandinu fer sí- fellt harnandi. Megiriþunga loft sóknarinnar í fyrradag var beint gegn Wilhelmshafen og komst Stimson, hermálaráð- herra Bandaríkjanna þann- ig að orði í gær, — að það hefði verið mesta dagárás, sem gerð hefði verið á Þýzkalandi til þessa, enda hefðu meira en þúsund flugvélar lagt þá til at- lögu við Þýzkaland. Mestar árásir í gær vbru gerð ar á Dússeldorf og Köln, svo og á Ruhr og Rínarbyggðir. Urðu miklar skemmdir af völdum á- rása þessara,-eink. í Dusseldorf og Köln. Létu Þjóðverjar þess getið að skemmdir hefðu orðið á dómkirkjunni í Köln. Einnig lögðu flugvélar bandamanna til atlögu við stöðvar Þjóðverja í Frakklandi og Niðurlöndum með miklum árangri. Alls voru 4000 smálestum af sprengjuefni varpað yfir Þýzkaland í árás- um bandamanna í gær. H. H. Arnold, hershöfðingi, yfirmaður flughers Banda- ríkjanna hefir skýrt frá því, að Bandamenn hafi hafizt handa um smíði nýrrar tegundar flugvéla. Munu flugvélar þess- ar verða hinum amerísku fljúgandi virkjum. mun full- komnari, og er yfirburður þeirra einkum í því fólginn að þær geta flutt meira sprengju- magn. Bandamenn hafa mjög bætt aðstöðu sína á upplandinu með töku Isernía, sem er mikilvæg samgöngumiðstöð. Jafnframt því, sem 8. herinn hefir náð henni á vald sitt, sækir hægri fylkingararmur 5. hersins hratt fram í áttina til Venafro. — Er ætlun bandamanna greinilega sú að brjóta varnir Þjóðverja á miðvígstöðvunum og halda þannig uppi öflugri sókn á gerv allri víglínunni frá Massico- fjallgarði um Venafro og Isernía til Trignoárinnar. Jafn- framt sókninni á miðvígstöðv,- unum heldur framsókn vinstra fylkingararms 5. hersins örugg- lega áfram. Hafa Þjóðverjár nú verið hraktir á braut úr Massi- cofjallgarðinum og af St. Croce fjalli. Láta hersveitir þeirra undan isíga norður Garagliano- dalinn, og befir þýzkur hem- aðarfræðingur komizt þannig að orði, að Þjóðverjar muni koma sér upp vetrarvörnum á norðurbakka Gariglianoárinri- ar. Stórskotalið 5. hersins held- ur uppi áköfum árásum á þýzku hersveitirnar á undanhaldi þeirra. Hins vegar draga hern- aðarfræðingar bandamanna eigi dul á það, að vænta megi harðnandi viðnáms af hálfu Þjóðverja á Ítalíuvígstöðvun- um, enda séu varnarskilyrði norðan Gariglianoárinnar goð. Eftir hina vasklegu framsókn herja bandamanna síðustu dægrin er fyllsta ástæða til þess að ætla, að þeir muni leggja mikla áherzlu á sókn sína norð- ur til Rómaborgar, sem greini- lega er takmark þeirra. Hafa þeir lagt allt kapp á að treysta aðstöðu sína sem bezt og er taka Isernia mikilvægur áfangi í undirbúningi þeirra undir á- framhaldandi sóknaraðgerðir á upplandinu. Eins mun mega vænta þess að Venafro. falli þeim brátt í hendur, og eru miðvarnir Þjóðverja þá brotn- ar. Eftír það er líklegt, að efnt verði til úrslitaátaka af hálfu 5. hersins í Gariglianodalnum, en trúlegt er að 8. herinn muni hins vegar beina meginþunga sóknar sinnar gegn Vasto. Hernaðarfræðingar og blaða- menn telja að aðstaða Þjóð- verja á Italíu gerist nú alvar- legri með degi hverjum og minna á það, að þegar þýzku hersveitirnar hörfuðu brott úr Napoli létu Þjóðverjar orð um það falla, að þeir myndu taka hana aftur fyrir jól. Nu séu hins vegar sigurvonir þeirra allar úr sögu og líklegt, að við- nám reynist þeim harla örðugt. Rðssar komnlr að Khersoo. Halda uppi grimmilegum loftárásum á Nikolajev. O ÚSSNESKU HERSVEITIRNAR, sem sækja fram í áttina til Kherson, áttu aðeins nokkra km ófama til borgarinnar síðla í gærkvöldi. Einnig miðar Rússum vel áfram í sókn sinni til Nikopol og halda uppi grimmilegum loftárásum á Nikolaev. Eru varnir Þjóðverja austan Dniepr nú gersamlega brotnar. Miklir bardagar geisuðu í gær við Krivoirog. Fram- sókn Rússa suður Kímskagann miðar ömgglega áfram og greina Þjóðverjar frá miklum liðflutningum þeirra yfir Kerchsund. Fréttir frá austurvígstöðvun-* um í gær greindu frá því, að viðnám þýzka hersins austan Dniepr væri nú gersamlega brotið á bak aftur og streymdu hersveitir Rússa vestur yfir fljótið. Hafa Rússar náð bæn- um Alyeskhi á vesturbakkanum á vald sitt og voru síðla í gær kvöldi á næsta leiti við Kher- son en til hennar beina þeir meginþunga framsóknar sinnar á þessum slóðum. Einnig sækja rússneskar hersveitir hratt fram í áttina til Nikopoí, en grimmilegri loftsókn er haldið uppi gegn Nikolaev. Tefla Rúss ar mjög fram skriðdrekum, stórskotaliði og Kósakkaher- sveitum á vesturbakka Dniepr. Rússar hafa tekið bæinn Krasnoyansk í Dnieprbugðunni um 45 km frá Krivoirog, en harðfengilegir bardagar geis- uðu umhverfis hana 1 í gær. Þjóðverjar gera hvert gagná- hlaupið af öðru, en Rússar hrinda þeim jafnbarðan fræki- ega. Er ætlun Þjóðverja greini lega sú að freista þess að rjúfa hinn mikla hring, sem Rússar hafa slegið um Krivoirog. Rússnesku hersveitirnar suð- úr á Krímskaganum sóttu hratt fram í gær og treystu mjög að- stöðu sína, en Þjóðverjar veita þeim lítt viðnám enn sem kom- ið er. Þjóðverjar greina og frá miklum liðflutningum Rússa yfir Kerschsund og skýra frá miklum bardögum milli land- gönguliðs þessa og þýzka hers- ins á skaganum sunnanverðum. Þessa hefir þó eigi verið getið enn í fréttum bandamanna. i Fréttir í gærkvöldi greindu einnig frá aukinni sókn Rússa norður við Kiev og Velikie Luki. Eden og Hull farnir frá Moskva. Memenjoglu kom- inn til Kairo. UNDÚNAFRÉTTIR í gær- kveldi létu þess getið sam kvæmt fregn frá Kairo, að M. Memenjoglu, utanríkismála- ráðherra Tyrkja væri nú kom- inn til Kairo til samræðna við Anthony Eden, sem lagði af stað frá Moskva í fyrrakvöld á- samt Cordell Hull. Stokkhólms útvarpið lét þess og getið í gær, að óstaðfestar fréttir, sem þó hefði ekki verið mótmælt í Ankara hermdu, að líkur væru fyrir því, að Tyrkir létu Ný gerð skipa í U.S.A. TUriÐ NÝJA „Victory“-skip, •■■■*• sem siglingamálanefnd Bandaríkjanna hafði ákvarðað að verða skyldi endurbót á „Liberty“ skipunum, mun verða hraðskreiðara og fallegra en hin síðarnefndu skip. Hið nýja skip mun verða búið gufu vél, sem muri hafa meira en helmingi fleiri hestöfl en vél- arnar í „Liberty“-skipunum, eða 6,000 hestöfl á móti 2,500 hestöflum „Liberty“-skipanna. Helzti yfirburður nýja skips- ins mun verða hinn aukni hraði, því að hann mun valda því, að unnt verði að auka siglingahraða skipalesta. Hraði skipsins mun verða 15 sjómíl- ur á klukkustund, en hraði „Liberty“-skipanna er 11 sjó- mílur á klukkustund. „Victory“ skipið mun verða 455 fet, eða þrettán og hálfu feti lengra en „Liberty“-skipið. Smálestatala beggja skipanna mun verða hin sama, 10.800. Samningar hafa þegar verið gerðir um smíði 411 „Victory“-skipa. — Búizt er við, að skip þessi verði fullgerð vorið éða sum- arið 1944. Ný rússnesk fónsmíð leikin í U.S.A. |LT ÝJASTA tónsmíð rúss- ■A-™ neska tónskáldsins Dmi- tri Shostokovich, sónata 2 fyr- ir slaghörpu, Op. 64, var í fyrsta sinni leikin í New York hinn 29. sept. Flutning tónverks ins annaðist hinn frægi tón- . snillingur, Vera Brodsky, og var leik hennar útvarpað um gervöll Bandaríkin, sem lið í sérstakri hljómlistardagskrá. Handritið af tónsmíð þessari var sent loftleiðis til Banda- ríkjanna frá Rússlandi. — £ Bandaríkjunum tóku félagar Ameríska-rússneska hljómlist- arfélagsins, útgefendur og þeir — sem vinna að útbreiðslu rússneskrar hljómlistar í Bandaríkjunum, á móti hand- ritinu. bandamönnum í té flota- og flugstöðvar við Dardanella- sund og myndi mál þetta m a. verða tekið fyrir á ráðstefnu þeirra Edens og Memenjoglu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.