Alþýðublaðið - 04.12.1943, Blaðsíða 3
Xattgardagur 4. desember 1943
ALÞÝÐUBtAIÍIÐ
3
FéjMi gremja í SvípjóA vegna
fangelsananna I Noregi.
Sænsk blöð segja: Sviar verða að
gripa til sinna ráða.
FRÁ LONDON ER SÍMAÐ til norska blaðafulltrúans í Reykja
vík, að Stokhólmsfregnir hermi, að vopnaðir lögreglu-
menn Ieiti nú að stúdentum þeim, sem komust undan ofbeldis-
verkum Þjóðverja s.l. þriðjudag. Gert er ráð fyrir, að flestir
•þeirra, sem sluppu, hafi leitað til sænsku landamæranna*.
Á myndinni sést sprengjufiugvél af Liberatorgerð, sem mjög eru notaðar il árása á Þýzka
land. Þær bera 4—5 smálesir sprengna og eru mjög hraðfleygar.
Lancaster- og Halrfcdíugvélar vorp~
uðu 1500 smáíestum *prengna á borg-
ina á 20 minútum.
IFYRRAKVÖLD gerði brezki loftherinn enn eina stórárás á
Berlín og olli óskaplegu tjóni. 1500 smálestum sprengna
var varpað'ú borgina, einkum á miðbik hennar. Komu upp fjöl-
margir eldar og miklar sprengingar urðu. Samkvæmt tilkynning-
um Breta týndist 41 flugvél í árásinni, en Þjóðverjar segjast hafa
skotið niður 53 flugvélar bandamanna.
Árásin hófst kl. 8 að kvöldi
Þrátt fyrir tilraunir hins
þýzka lögreglustjóra,- Rediess,
til þess að koma stúdentunum á
óvart, hafði orðrómur komizt á
kreik um ráðstafanir Þjóðverja.
Um það bil 300 lögreglumönn-
tim háfði verið skipað að H:aka
þátt í ofbendisverkunum. Með-
-al þeirra voru margir, sem
höfðu samúð með stúdentum og
komu þeir boðum til þeirra um
það, er í vændum var. Sænska
blaðið „Nya Dagligt Allehanda“
skrifar, að í þessu fellst skýr-
'íngin á því, hvers vegna svo
margir komust undan. Á frið-
artímum voru milli 3 og 4 þús.
stúdentar við háskólann í Osló,
en þeim hefir fækkað nokkuð
síðan ófriðurinn hófst. Það er
nú upplýst, að 1200—1500 stú-
dentar voru fangelsaðir á þriðju
daginn var.
Á þriðjudaginn voru lög-
reglusveitir þjóðverja önnum
kafnar við það að elta uppi
stúdenta, svo og á aðfaranótt
miðvikudags. Lögreglumennirn
ír slóu hring um háskólahverfið
og í þeim götum, sem næst eru
háskólanum voru ,,hirðmenn“
Quislings á verði. Á miðviku-
dagskvöld voru stúdentar flutt-
ir í vörubifreiðum í sérstakar
bækistöðvar og þar sleppt þeim,
•sem taldir voru tryggir quisl-
ingum.
Sænska fréttastofan „Tidn-
ingarnes Telegrambyraa“ í Oslo
greinir frá því, að margir þeir,
sem handteknir voru á þriðju-
dag í grennd við háskólann,
séu enn í haldi. Þjóðverjar lýsa
yfir, að þessir menn hafi látið
í ljós andúð sína á því, sem
skeði, og því sé fangelsun þeirra
réttlætanleg. Lögreglan þýzka
hefir látið fara fram húsrann-
sókn í háskólabyggingunum í
Oslo til þess að reyna að komast
yfir einhver grunsamleg plögg,
sem sannað gætu sekt stúdent-
anna.
Svíar hafa mótmælt opin-
berlega í Berlín framferði hinna
þýzku ofbeldismanna. Mikil
gremja ríkir í Svíþjóð vegna
þessara atburða. Blaðið „Social
demokraten“, sem er málgagn
meirihluta sænsku stjórnarinn-
ar skrifar m. a., að hið villi-
mannlega framferði Þjóðverja
geti haft einhver áhrif á við-
skiptasamninga þá, sem nú
standa yfir milli Svíþjóðar og
Þýzkalands. í nær öllum blöð'-
um Svíþjóðar hafa komið fram
harðorð mótmæli. Á miðviku-
dag kom nefnd sænskra stú-
denta á fund Pers Albins Hans-
sons, forsætisráðherra, og fór
þess á leit, að sænska ríkisstjórn
tn heitti öllum ráðum til þess
að fá þýzku stjórnina til þess
að láta af framferði sínu í garð
norskra stúdenta.
Ekki er talið ósennilegt, að
Þýzkaland muni ekki skella
skolleyrum við þessari mála-
leitan Svía, vegna sambúðar
þessarar þjóða í framtíðinni.
í báðum deildum sænska
þingsins hafa komið fram á-
kveðnar raddir um óhæfuverk'
Þjóðverja. í háskólabæjunum
Uppsölum og Lundi blöktu fán-
ar á hálfri stöng í tilefni af
þessum tíðindum.
I Danmörku hafa þessara að-
farir vakið feikna gremju.
Margir stúdentar við Hafnar-
háskóla gerðu umsvifalaust
verkfall í mótmælaskyni. í
Finnlandi hafa stúdentar einnig
látið í Ijós reiði sína á ótvíræð-
an hátt. í sambandi við fangels-
un hinna norsku prófessora
hefir formaelandi norsku stjórn-
arinnar í London lýst yfir þakk
læti stjórnarinnar í garð Svía
fyrir þá samúð, sem þeir hafa
sýnt.
Sænska blaðið „Dagens Ny-
heter“ skrifar m. a. á þessa leið:
„Sérhver maður getur spurt
sjálfan sig um það, hvort Sví-
þjóð geti ekki fylgt fram mál-
um sínum með öðru móti en
því, að mótmæla. Svíþjóð hef-
ir önnur ráð, og nú er tími til
þess kominn, að þeim sé beitt“.
Blaðið ,,Aftonbladet,“ sem er
talið frekar á bandi Þjóðverja
skrifar, að fangelsanirnar í Oslo
hafi vakið mikla gremju í Sví-
þjóð og rektor Uppsalaháskóla
hefir skýrt frá því, að stúdent-
ar þar í 'borg séu mjög æstir út
af þessum atburðum.
Tveiœ japðnsknm
tnndnrspillnm
Sðkht.
JAPANIR hafa enn orðið
hart úti í viðureigninni við
Biandaríkjiamen-n. Hafa flugvél-
ar og herskip Bandaríkj amanna
val'dið miklum spjöllum á skip-
um Japana undan Gilber-t- og
Marsh-all-eyjum. 10 þúsund
smálesta ka-upfari Japana var
sökkt undan Nýja írlándi. Þá
féllu sprengjur á tvo tundur-
spilla og eitt oláuskip Japana.
Miklar loftárásir hafa verið
gerðar á herflokka Japana á
Bougainville-eyju.
Berlínarútvarpið hefir til-
kynnt, að Japanar hafi sökkt
19 flugvélaskipum Bandaríkja-
manna frá ófriðarbyrjun. í
Washingtton er viðurkennt, að
einu flugvélaskipi hatfi verið
sökkt í bardögunum við Gilbert-
eyjar, svo. og einum tundur-
spilli, en aðrar sigurfregnir
Japana hafa ekki verið stað-
festar.
og stóð í 20 mínútur. Var hún
feiknahörð og er talið, að upp
undir 1000 sprengjuflugvélar,
einkum Halifax- og Lancaster-
flugvélar hafi tekið þátt í henni.
flugmenn, sem þátt tóku í á-
rásinni skýra svo frá, að reykj-
armökkurinn af eldun-um í borg
inni hafi náð marga kílómetra
í loft upp. Á meðan á árásinni
stóð var útvarpað frá Berlínar
útvarpsstöðinni frásögn um það,
hve vel loftvanir Þjóðverja
reyndust. Er talið að með þessu
hafi verið r-eynt að sitappa stál-
inu í borgarbúa og þeim talin
trú um, að loftvarnir Berlínar
séu n-ú miklu öf-lugri en áður
fyrr, en talið er, að um þriðj-
ungur borgarinar sé í rústum.
Loftvarnaskothríð var mjög
hörð og mikill fjöldi ljósbastara
var -í notkun. Samt tókst brezku
flugmönnunum að hæfa skot-
mörk sín og urðu gífurleg spjöl-1,
svo sem fyrr getur. Nánari
fregnir af árásinni verða ekki
birtar fyrr en ljóismyndir könn-
unaflugmanna hafa verið fram
kallaðar.
Þó hafa formælendur flug-
málaráðuneytisins brezka lýst
yfir því, að margar mikilvægar
verksmiðjur hafi orðið fyrir
sprengjum. Er igetið um, að raf
tækjaverksmiðjur A.E.G. og
Siemens auðhringanna hafi
skemmst mjög mikið, svo og
Daimler-Benz bifreiðasmiðjurn
ar og flugvélasmiðjur Focke-
Wulf og Heinkels. Þá er og
skýrt frá því, að Potsdam-braut
arstöðin haf i orðið fyrir skemmd
um. Enginn blöð komu út í
Berlín í gær, og borgin var, gas-,
rafmagns- og vatnslaus í gær.
í þýzkum fregnum er árásinni
lýst sem ógnarárás, svo sem
venja er til og getið um mikið
tjón.
Himmler, inanríkisráðherra
Þýzkalands, hefir látið fjölga
slökkviliðssveitum Berlínar, en
annars vinnur fjöldinn allur af
óbreyttum borgurum Berlínar
að slökkvi- og ruð-ningsst-arf-
semi. Harðar árásir voru einnig
gerðar á ýrnsa staði í Yestur-
Þýzkalan-di. Voru það Mosquito
flugvélar, isem þar voru að
verki.
Rfissar I sókn á
austurvigsíöðvnnnm.
¥¥ HARÐAR orustur geisa nú
á austurvígstöðvunum, —
allt frá Gomel til Svartahafs.
Yfirleitt má segja, að Rússar
séu í sókn, eða þeir hri|idi öll-
um gagnáhlaupum Þjóðverja.
sem víða eru mjög hörð.
Rússar hafa tekið um 80
þorp og byggð ból. Hjá Kre-
menchug er barizt í ákafa og
Rússar eru nú skammt undan
Znamenka, sem er þýðingar-
mikill járnbrautarbær. — í
Moskvafréttum í gærkveldi var
sagt, að á einum sólarhring
hefðu fallið um 3500 menn af
liði Þjóðverja. Við Pripet-fljót
hafa Rússar enn tekið 8 bæi
og við Cherkassy hefir gagn-
áhlaupum Þjóðverja verið
hrundið. Þá hafa Rússar og
tekið varnarstöðvar Þjóðverja
í grennd við Kremenchug og
Krivoi Rog.
á Berlin
Italla:
Þjéðverjar enn á
undanhaldi.
Wy RÁ aðalbækistöðvum Eis-
*■ enhowers segir, að Þjóð-
verjar séu á undanhaldi, en 8.
hemum brezka miði vel áfram.
Er barizt af mikilli heift í ná-
vígi við bæinn Lanciano, sem
er á fjalli, sem gnæfir yfir mik
ilvægan þjóðveg. Hersveitir
Montgomery’s hafa tekið bæinn
Castel di Frentano, sem talinn
er mikilvægúr frá hernaðar-
sjónarmiði. Á stöðvum 5. hers-
ins er minna um að vera, að
hann er samt í sókn og hefir
náð nokkurri landspildu á sitt
vald, þrátt fyrir mikla vél-
byssuskothríð Þjóðverja og
gaddavírsgirðingar þeirra.
Lofther bandamanna hefir
verið mjög á ferli á Ítalíuvíg-
stöðvunum. Ráðizt var á járn
brautina, sem liggur um Brenn-
er-skarðið, svo og borgina Bol-
zano og urðu mikil spjöll af:
Brezkir tundurspillár hafa
skotið á hafnarborgina Duraz-
zo í Alnaníi. Þá var ráðizt á
stöðvar Þjóðverja á Marseill-
es í Suður-Frakklandi, eink-
um á' járnbrautarlínum.
HETJA LOFTSINS
Á mynd þessari sést amJeríski
flugmaðurin Can S. Hough
ofursti, sem nú hefir bækistöð
sína einhvers staðar á Englandi.
Mynd þessari var útvarpað frá
Lundúnum til New York.