Alþýðublaðið - 16.01.1944, Side 7
AL>YÐUBLAÐK>
Sunnudagur 15. janúar 1944
7
Bœrinn í dng.j Talar í Iðnó í dag um
Næturlæknir er í nótt í Lækna-
varð stofunni sími 5030.
Helgidagslæknir er Úlfar Þórð-
arson, Sólvallagötu 18, Sími 4738.
Næturvörður er í Iðunnarapóteki
ÚTVARPIÐ:
11.00 Morguntónleikar (plötur):
a)Kvartett í G-dúr eftir Mozart. b)
Mansöngur. Op. 8, eftir Beetoven.
12.10—13.00 Hádegisútvarp. 14:00
Messa í Hallgrímssókn (séra Sig-
urbjörn Einarsson. 15.30—16.30
Miðdegistónleikar (plötur): Þættir
úr „Töfraskyttunni“ eftir Weber.
18.40 Barnatími (Ragnar Jóhannes
son, séra Jakob Jónsson, Eggert
Gilfer o. fl.). 19.25 Hljómplötur:
Lög eftir Chopin. 19:50 Auglýsing-
ar. 20.00 Fréttir. 20.20 Samleikur
á harmoium og píanó (Eggert Gilf-
er og Fritz Weisshappel): Hugleið
ing um sálmalagið: „Ofan af himn-
um hér kom ég“ eftir Hasselstein.
20.35 Erindi: Ósýnilegir flutning-
ar (Sigurður Einarsson dósent).
21.00 Hljómplötur: Norrænir söng-
varar. 21.15 Upplestur (dr. phil.
Guðmundur Finnbogason). 21.35
Hljómplötur: (Klassiskir dansar):
21.50 Fréttir. 22.00 Danslög. (Dans
hljómsveit Þóris Jónssonar, kl.
22.00—22:40).
Á MORGUN:
Næturlæknir er í nótt í Lækna-
varð stofunni sími 5030.
Næturvörour er í Iðunarapóteki.
ÚTVARPIÐ:
20.00 Fréttir. 20.30 Erindi: Vinnu
haeli berklasjúklinga. séra Eiríkur
Albertsson, dr: theol). 20.55 Hljóm
plötur: Szigeti leikur á fiðlu. 21.00
Um daginn og veginn (Gunnar
Thoroddsen alþingismaður). 21.20
Útvarpshljómsveitin leikur íslenzk
alþýðllög. — Einsöngur: séra Garð
ar Þorsteinsson syngur lög eftir
norsk tónskáld. 21:50 Fréttir. Dag
skrárlok.
Orðsending
frá útgerðarmanni m. b: Austri
G. K. 210, Birni Gottskálkssyni
Skálavík, Seltjarnarnesi. — Að
gefnu tilefni, út.af blaðaummælum
leyfi ég mér vinsamlegast að biðja
blað yðar að birta eftirfarandi:
Kl. 0.10 13. þ: m. símaði herra Jón
Bergsveinsson erindreki Slysa-
varnafélags íslands til mín og
tjáði mér, að m. b. Autri, sem var
farið að óttast um, væri kominn
í höfn á Patreksfirði og öllum
rinönnum þar um borð liði vel. Þá
mæltist Jón ennfremur til þess.
að ég tilkynnti nánustu vanda-
mönnum skipshafnarinnar þessi
tíðindi og var mér það ljúft, enda
gerði ég það þá þegar.
Sigurður Noídal prófessor.
SIGURÐUR NORDAL próf-
essor er einn af þeim þjóð-
kunnu mönnum, sem tala á
fundi lögskilnaðarmanna í Iðnó
kl. 2 'í dag.
Hraðskilnaðarflokkarnir
ætluðu , að þagga niður rödd
hans með því að synja honum
um leyfi til þess að flytja 2
erindi um skilnaðarmálið í út-
varpið. En þeim tekst það ekki.
Sigurður Nordal prófessor tal-
ar fyrir Reykvíkingum í dag.
Heilsaverndarerindi
á fnsdi Mvenfélags
AllíýMlokksins
a :nað kvðid.
11 VENFÉLAG Alþýðu-
flokksins efnir til
fræðslu- og skemmtifundar
.annað kvöld kl. 9 stundvís-
lega í fundarsal Alþýðubrauð
gerðarinnar.
Aðalefni fundarins verða er-
indi, sem þeir flytja um heilsu-
vernd Jónas KrLstjánsson læknir
Björn L. Jónsson veðurfræðing-
ur og Helgi Tryggvason kenn-
ari.
Félagskonur eru hvattar til
að f jölmenna á fundinum, en all
ar Alþýðuflokksbonur eru vel-
komnar meðan húsrúm leyfir.
Aðgöngumiðar á 2 kr. fást í aðal-
toúð Alþýðuibrauðgerðarinnar,
hjiá hverfastjórum og við inn-
ganginn ef eitthvað verður eftir.
Síðasfi dagur atkvæðagreiðsl-
unnar I Dagsbrún er í dag
Allsherjaratkvæða-
GREIÐSLAN í Dagsbrún
liefir nú staðið í tvo daga og
virðist þáttakan í henni hafa
verið ör og jöfn.
Verkamenn munu hafa veitt
því athygli að Morgunblaðið
birti 1 gær grein um þessa at-
kvæðagreiðslu, þar sem verka-
menn eru hvattir til þess að
taka ekki þátt í atkvæðagreiðsl-
unni. Það blað veit hvað það
syngur. Það veit, að ef verka-
menn sýna það tómlæti að sitja
heima og taka ekki þátt í at-
kvæðagreiðslunni, þá hefir það
þau áhrif á áframhaldandi
baráttu verkamanna að veikja
hana mjög og styrkja málstað
atvinnurekenda, enda ekki óeðli
legt — eftir reynslu liðinna
ára að dæma, að atvinnurek-
endur gangi á lagið ef þeir finna
tómlæti meðal verkalýðsins
um eigin hagsmunamál. Það er I
ekki nóg fyrir verkamenn að
segja þann sannleika að betra
hefði verið að segja upp samn-
ingum þegar það var hægt á
síðasta sumri. — Gerð mistök
verða ekki aftur tekin — en
betri er hálfur skaði en allur.
Nú er í öllu falli aftur tækifæri
til þess að fá endurbætur á
kjörum sínum — en þær fást
því aðeins að verkamenn fylki
sér einhuga um kröfurnar um
bætt kjör. — Ef yfirlýsing
verkamanna við þessa atkvæða
greiðslu verður nógu öflúg,
verða líkurnar því minni að til
verkfalls þurfi að koma.
í dag er síðasti dagur alls-
her j aratkvæðagreiðslunnar.
Stendur hún til klukkan 22 í
kvöld. Fylkið ykkur saman í
dag, verkamenn, sýnið vilja
. ykkar og einhug. Svarið Morg-
j unblaðinu á eftirminnilegan
» hátt.
Hristfnar,
dóttur okkar og systur, sem andaðist 9. þ. xn. fer fram frá Dóm-
Hrkjunni þriðjudaginn 18. þ. m. og hefst með bæn að helmili
okkar, Spítalastíg 4 B klukkan 1 e. h.
Jarðað verður í Fossvogskirkjugarði.
Jófríður Kristjánsdóttir, Sigurður Magnússon og böm.
Þökkum hjartanlega auðsýnda hluttekningu og vinsemd við
fráfall og jarðarför móðursystur okkar,
Kristínar Einarsdóttur.
Guðrún, Ingveldur og Kristin Jóhannsdætur.
Saltkjöt.
Höfum til:
Heiltunnur frá Borgarfirði eystra og DjúpavdgL
Hálftunnur frá Flatey á Breiðafirði, Djúpavogi og
Bakkafirði.
Sendum heim í Reykjavík samdægurs, ef pantað er
fyrri hluta dags, en út um land með fyrstu ferð. —
Samband ísl. samvinnufélaga.
Þeir, sem fórnst.
Frh. af 2. síðu.
Guðmundur Einarsson, háseti,
Bárugötu 36, fæddur 19.
jan. 1898, kvæntur og átti 2
börn, annað á 1. ári og hitt
10 ára.
Gunnlaugur Guðmundsson, há-
seti, Óðinsgötu 17, fæddur
15. jan. 1917, einhleypur.
S gurður Viggó Pálmason, há-
seti, Bræðaborgarstíg 49,
fæddur 25. nóv. 1894, ekkju-
maður, en átti 2 börn, 11 og
13 ára.
Valdimar Hlöðver Ólafsson,
háseti, Skólavörðustíg 20 A,
fæddur 3. apríl 1921, hjá
foreldrum sínum.
Amór Sigmundsson, háseti,
Vitastíg, fæddur 3. okt. 1891,
kvæntur.
Gísli Eiríksson, háseti, Vífils-
götu 3, fæddur 1. apríl 1894,
kvæntur og átti 3 uppkomin
börn, en eitt 14 ára.
Magnús Jónsson, háseti,
Frakkastíg 19, hjá foreldr-
um sínum, fæddur 11. ágúst
1920.
Guðmundur Þorvaldsson, há-
seti, Selvogsgötu 24 í Hafn-
arfirði, fæddur 7. des. 1899,
kvæntur og átti 6 börn, það
yngsta 4 ára, en það elzta um
tvítugt.
Aðalsteinn Ámason, háseti,
Efstasundi 14 Langholti),
fæddur 16. sept. 1924.
Ari Friðriksson, háseti, líörpu-
götu 9 (frá Látrum í Aðal-
vík), fæddur 4. apríl 1924.
Jón Ólafsson, háseti, Keflavík,
fæddur 22. marz 1904.
(Mynd af Aðalsteini Árna-
syni, háseta, hefir blaðið ekki
getað náð í).
Ítalía.
Frh. af 3. síðu.
stöðvar Frakka, en þeim var öll
um hrundið.
Bandamenn þrengja nú æ
meir hring'inn um Cassino og
sumar hersveitir þeirra reyna
að sækja framihjá borginni til
þess að komast aftan að henni.
Stórskotalið bandamanna hefir
haft sig mikið í frammi og látið
kúlnahríðina dynja á varnar-
virkjum Iborgarinnar og hafa
Þjóðverjiaf orðið að Íáta undan
síga.
Veður er nú gott á ítalíuvíg-
stöðvunum og eru nú. loftárás-
ir gerðar í stærri stíl en áður,
bæði á Ítalíu sjálfri og á ýmsar
stöðvar iÞjóðverja í Júgóslavíu.
Mikill fjöldi stórra sprengju-
flugvéla, varðar orrustuflugvél
um, réðust á Mostar-flugvöllinn
í Júgóslavíu. Sprengjur féllu á
flugvélabyrgi og urðu miklar
sprengingar, en eldar feomu upp.
Þá var og ráðizt á skipalest við
Sibenik, svo og ýmis hafnar-
mannvirki og hlauzt mikið ijón
af.
iEnginn tíðindi hafa borizt frá
vígstöðvum 8. hersins.
Rússland.
Frh. af 3. síðu.
þessa atburði, en viðurkennir,
að þýzki herinn vestur af Sarny
hafi komið sér fyrir í nýjum
varnarstöðum.
Gyðingurinn I
gangandi.
Frh. af 3. síðu.
kaupsýslumenn, og sögurnar
um sviksemi þeirra og pretti
í viðskiptum eru mikið til
uppáfinning keppinauta
þeirra, sem ekki gátu staðið
þeim á sporði. Að vísu eru
þar undantekningar eins og
hin síðari ár, og mun orðið
upprunnið í þriðja ríkinu.
Vandamálið er í því fólgið, að
Gyðingar höfðu komið sér
alls staðar annars staðar.
MÖNNUM HEFIR orðið mjög
tíðrætt um Gyðingavandamál
vel áfram. Þeir áttu afbragðs
rithöfunda, eins og til dæmis
Stefan Zweig, Lion Feucht-
wanger og Jacob' Wasser-
mann, sem auðguðu bók-
menntir heimsins með fág-
uðum listaverkum sínum. —
Ritsnillingar nazista urðu
undir í samkeppni við menn
sem þessa — og fundu sárt
til þess. Þeim reyndist einnig
ókleyft að hafa upp á manni
af þeirra sauðahúsi, sem
reyndist jafnslyngur Albert
Einstein í tölvísi. Þessir
menn urðu því fyrir hatri
hinna „þjóðlegu“ — enda þótt
þeir hefðu ekki, svo vitað sé,
haft nein afskipti af stjórn-
málum meira en gerist og
gengur.
HINS VEGAR LIGGJA hinar
eiginlegu rætur Gyðingaof-
sóknanna dýpra, en það yrði
of yfirgripsmikið mál, að
rekja það hér. Engar áreiðan-
legar tölur eru fyrir hendi um
fjölda Gyðinga í heiminum.
Ætla mætti, að þeir séu ná-
lægt 20 milljónir samtals,
þar af um helmingur í Ev-
rópu. En Gyðingum hefir
fækkað allverulega, eins og
kunnugt er, síðan „hreinsun-
arstarfsemi“ þeirra Himmlers
og félaga hans hófst fyrir
alvöru. *
TIL ER munnmælasaga um
Gyðinginn gangandi, sem er
dæmdur til þess að ráfa eirð-
arlaus land úr landi, allt til
enda veraldar. Sagt er, að
saga þessi hafi fyrst komizt
á kreik á fyrri hluta 13. ald-
ar. í henni segir, að maður sá,
er gætti dyranna hjá Ponti-
usi Pílatusi hafi slegið Jesús,
er hann var leiddur á brott til
krossfestingar. Snemma á 17.
öld hefir sagan breytzt á
þann veg, að nú er Gyðingur-
inn gangandi skósmiður í
Jerúsalem og nefndur Ahas-
verus. Á leið sinni til Gol-
gata hvílist Jesús andartak
við hús hans, en skósmiður-
inn hrekur hann á brott.
Jesús á þá að hafa sagt — að
honum verði refsað með því
að flakka hvíldarlaust um
heim allan til dómsdags.
í FORNUM BÓKUM má finna
frásagnir um menn, er segj-
ast hafa séð Gyðinginn gang-
andi. Hann er skorpinn, sam-
anfallinn af elli og mosavax-
inn. Á jólanótt má hann hvíl-
ast örskamma stund. Styðst
hann þá við plóg úti á akri,
en verður brátt að halda á-
fram píslargöngu sinni.
ÞETTA er að vísu munnmæla-
saga, en hún er engu að síð-
ur táknræn fyrir þessa ógæfu
sömu þjóð, sem er dæmd til
þess að hrekjast land úr
landi, réttlaus og smáð. Von-
andi fer það svo, að við, sem
nú lifum, megum sjá fyrir
endann á píslarsögu þessara
meðbræðra okkar.