Alþýðublaðið - 22.01.1944, Blaðsíða 6
8
ALÞTOUBLAÐIÐ
Laugardagur 22. janúar 1944.
Stjórnmála- og fræóslurit Alþýóufl. III.
Allir SÓSÍALISTAR þurfa að lesa rit Gylfa Þ. Gíslasonar:
SOSIA LIS
á vegum lýðræðis eða einræðis
Fæst í bókabúðum. Kostar aðeins 2 krónur.
Áður hafa komið út 2 stjórnmálarit með
þessum ritgerðum:
I. Sigurður Jónasson: Rafmagnsveitur fyrir allt ísland.
Jón Blöndal: Beveridgeáætlunin. Kostar kr. 1,25.
II. Jón Blöndal: Þjóðnýting og atvinnuleysi.
Sigurður Jónasson: Þjóðnýting á íslandi. Kostar kr. 1,00.
Eignist ÖSS stiórnmála- ©g fræfelurit
Kaupum aliar bækur,
fímarit og bM
Síðustu forvöð að ná í eftirtaldar bækur:
Um refsivist á íslandi, ritgerð eftir dr. Björn Þórðar-
son, forsætisráðh.
Ljós og skuggar, eftir Jónas frá Hrafnagili.
Teitur, eftir Jón Trausta.
Skólaræður, eftir Magnús Helgason.
Baldursbrá, eftir Bjarna frá Yogi.
Veraldarsaga Sveins frá Mælifellsá.
Nokkur complett tímarit. Einnig mikið
úrval af skáldsögum til skemmtilesturs.
Bókabúð
GUÐMUNDAB GAMALlELSSONAB
Lækjarg'ötu 6. — Sími 3263.
AUCLÝSID Í ALÞfDUBLAÐIHU
Rafketillinn
ér eimketill framtíðarinnar. — Við höfum smíðað
og sett upp nokkra slíka eimkatla með þeirri
rejmslu, að þeir:
1. Spara vinnukraft.
2. Spara húsrúm.
3. Auka öryggið, með því að engin
sprengihætta stafar af þeim.
4. Stórauka hreinlætið.
Þeir, sem kynnu að óska upplýsinga viðvíkjandi
RAFKATLINUM,
gjöri svo vel að snúa sér til
t
Vélaverksf. Slgurðar Sveinbjörussonar
Skúlatúni 6.
Sími 5753.
S
s
s
s
s
s
s
s
S
s
\
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
5
ðsýnilegir flntoinger
Frh. af 4. síðu.
þá hafa einnig hér orðið ósýni-
legir flutningár — vér höfum
flutzt aftur fyrir fylkingu sið-
menntaðra þjóða og mun verða
skgmmtaður hlutur og réttur
eftir því, hvað sem vér kjósum
áð nefna ríki vort eða stjórnar-
fyrirkomulag. En það er hollt
að læra að leggja þenna mæli-
kvarða framtíðarinnar á sjálfan
sig í tíma og gera það í alvöru
og auðmýkt — leggja hann á
stofnanir og stefnur, fram-
kvæmdir, úrræði, leiðir og leið-
toga, — og fella svo sinn dóm.
Undir því er komin gifta vor.
Ég drap á hina ósýnilegu
flutninga á svæðum andlegs lífs
— hin afar merkilegu straum-
hvörf, sem þar eru að gerast í
djúpinu — á sviðum trúar, vís-
inda, bókmennta og lista. Það
er ekki tími til þess að ræða
þau að þessu sinni. En þar
munu blasa við augum merki-
legir hlutir. Vera má að mér
gefizt tækifæri til þess að víkja
að þeim síðar. Hitt kann og að
vera, að hér þyki þegar helzti
margt mælt, en það hlægir mig,
að allt mun þetta koma fram,
þó að nú kunni að láta sumum
miður vel í eyrum.
Samvinnufélög Islend-
inga í amerískum
klöðurn
Hjálmar björnsson,
fyrrv. fulltrúi landbúnað-
arráðuneytis Bandaríkjanna hér
á íslandi, hefir ritað grein í
amerískt tímarit, er fjallar um
vöxt og framkvæmdir íslenzkra
samvinnuf élaga.
Grein Hjálmars, er nefnist:
„Samvinna undir miðnætursól“
er aðalgreinin í septemberblaði
tímarits, er landbúnaðarráðu-
neyti Bandaríkjanna gefur út
og útbýtt er á meðal rúmlega
8000 sveitasamvinnufélaga í
Bandaríkjunum, en meðlimir
þessa félags eru um tvær og
hálf milljón. Greinin fjallar um
vöxt íslenzkra samvinnufélaga
og segir frá mörgum staðreynd-
um viðvíkjandi starfsemi Sam-
bands íslenzkra samvinnufé-
laga.
Með greininni eru myndir af
aðalskrifstofum KEA á Akur-
eyri, mjólkurstöðinni, korn-
geymslunni, matvælaverzlun-
inni og sláturhúsinu á Akureyri,
og enn fremur mynd af bryggju,
er samvinnufélag á norður-
strönd íslands notast við. Eftir-
farandi atriði gefa góða hug-
mynd um anda greinarinnar.
„Það var Taine, sem "einu
sinni komst svo að orði, er hann
ritaði um ísland, „snilligáfa
frjóvgast ekki í jökulkuida". Er
hann kastaði þessu fram tók
hann ekki tillit til ósveigjan-
leika sniiligáfunnar, sem hin ó-
frjósamasta gróðurmold getur
ekki bugað. Hann sýndi um
leið, hve litla vitneskju hann
hafði um snilligáfu íslendinga
hvað viðvíkur bókmenntum og
stjórnsemi, sem íslendingar
hafa þroskað innan skugga
Norðurheimskautsins í meir en
10 aldir.
„í þúsund ár hafa íslendingar
sýnt, hve miklum hæfileikum
þeir eru búnir fyrir samvinnu.
Þegar árið 930 var aiþingi
stofnað á íslandi, sem, þótt það
yrði fyrir margs konar breyt-
ingum, gat' minnzt 1000 ára af-
mælis síns 1930. Það starfar enn
þann dag í dag sem aðsetur for-
ustumanna íslands í stjórnmál-
um, einmitt er þjóðin nálgast
fullkomið frelsi.
„Á rúmri öld hefir ísland
breytzt úr miðaldaríki í nýtízku-
ríki. Bættir vegir liggja um
landið þvert og endiiangt, þar
eru góðar hafnir, síma- og loft-
skeytasamband, áætlunarbifreið
ar og vörubifreiðar halda uppi
samgöngum til yztu kima lands-
ins og þjóðin á sínum eigin
kaupskipaglota og loftsam-
göngum að fagna. Framfarir
þær, er orðið hafa á íslandi síð-
ustu 5 áratugi, eru mikið fjöl-
hæfni landsmanna og þekkingu
forustumanng. þjóðarinnar að
þakka, — en öllum kemur sam-
an um það, að samvinnufélögin
eiga mikinn þátt í endursköpun
hins nýtízku íslenzka ríkis. Án
efa munu samvinnufélögin hafa
ríkjandi áhrif á framtíð ís-
lands.“
Kvennaðeild Slysavamafélags fs-
lands í Reykjavík,
hefir ákveðið að gefa 10 þús. kr.
til smíðis björgunarbáts, er starfa
skal í Reykjavík og nágrenni.
Heldur hann konungdómi ?
Það hefir síðustu mánuðina mikið verið um það talað, hvort
Viktor Emanuel muni takast að halda konungdómi á Ítalíu.
Háværar kröfur hafa komið fram um það, að hann segi af
sér, en öllum ákvörðunum um það virðist hafa verið frestað.
Enn lætur hann að minnsta kosti taka myndir af sér í hlut-
verki konungsins. Hér er hann að sæma ítalskan hermann
heiðursmerki fyrir vasklega framgöngu í baráttunni við
Þjóðverja.
UigmennafélSoin i Ár-
nes od Rangárvaltasýsln
ætla að hyygja Iprötta-
vSll að Þjðrsártnni.
. o'
Frá árspingi Skarphéðins.
Héraðssambandið
Skarþhéðinn hélt ársþing
sitt á Stokkseyri 8.—9. janúar
1944. Mættir voru 35 fulltrúar
frá 15 félögum.
Forseti var kjörinn Þorsteinn
Sigurðsson, Vatnsleysu, og rit-
ari Eyþór Einarsson, Gröf. Sig-
urður Greipsson sambandsstjóri
skýrði frá störfum sambandsins
s.l. ár. Hafði það haldið héraðs-
mót að Brautarholti, sent tvo
fimleikaflokka og 14 keppendur
á landsmót U.M.F.Í. á Hvann-
eyri og haldið lögreglunám-
skeið að Brautarholti s.l. haust,
sem stóð í 14 daga, með 22 þátt-
takendum frá 8 Umf. Kennari
var Erlingur Pálsson yfirlög-
regluþjónn. Þá var rekið happ-
drætti til ágóða fyrir íþrótta-
völl sambandsins.
Helztu samþykktir þingsins
voru þessar:
„Héraðsþingið samþykkir að
hefja undirbúning að íþrótta-
velli að Þjórsártúni fyrir hin
árlegu héraðsmót sambandsins
og aðra íþróttastarfsemi ung-
mennafélaganna í Árness- og
Rangárvallasýslu.
Þá skal stjórninni heimilt að
ráða fastan íþróttakennara til
starfa á sambandssvæðinu.“
Þá var samþykkt að veita kr.
500,00 í Minningarsjóð Aðal-
steins Sigmundssonar kennara.
Umf. Framtíðin í Þykkvabæ
gekk í sambandið og eru félög
þess nú 21. Sigurður Greipsson
flutti erindi um þjóðfánann og
færði sambandinu að gjöf fána
og stöng. Umf. Eyrarbakka bauð
fulltrúum að sjá sjónleikinn
„Ævintýri á gönguför“, sem
það hefir sýnt að undanförnu.
Var hin bezta skemmtun að
því.
Unstav Vigeland
Frh. aí 5. síðu.
og mikilúðar Noregs, landsins,
sem snillinginn ól.
Hinir norsku nazistar hafa
gert tilraunir til þess að láta
ljómann, sem stafar af Vigeland,
falla á sig. En slíkar tilraunir
eru allra fyrir gýg unnar.
íSkuggi svikaranna mun aldrei
falla á nafn og minningu hins
mikla hugsuðar, sem gaf köld-
um steininum líf og sál.
Gustav Vigejland lézt Hin(n
11. marz 1943 og var, samkvæmt
ósk sjálfs sín, borinn til hinztu
hvíldar í kyrrþey.
Aðalfnndnr Virabfl-
stjórafelagsins
Drótíur.
VÖRUBIFREIÐASTJÓRA-
FÉLAGIÐ „Þróttur“ hélt
aðalfund sinn síðastliðinn
sunnudag. Var þar borin upp
og samþykkt tillaga, sem heim-
ilaði stjórn félagsins að sækja
um upptöku í Alþýðusamband
íslands, en áður voru vörubif-
reiðastjórarnir, sem deild í
Dags'brún.
Þá var og samþykkt heimild
h'anda stjórn félagsins til að
segja upp samningum við at-
vinnurekendur, þegar henni
þætti það tímabært.
Kosning stjórnar fyrir félag-
ið fór fram á fundinum, og
hlutu þessir menn kosningu:
Friðleifur Friðleifsson, for-
maður, Sveinbjörn Guðlaugs-
son, varaformaður, Einar Ög-
mundsson, ritari, Pétur Guð-
finnsson, gjaldkeri, Jón Guð-
laugsson, meðstjórnandi.
Stjórn sambandsins skipa nú:
Sigurður Greipsson, Haukadal,
forseti, Emil Ásgeirsson, Gröf,
ritari og Þórður Loftsson, Bakka
gjaldkeri.