Alþýðublaðið - 22.01.1944, Blaðsíða 7
Laugai'dagur 22. janúar 1944.
alþyðublaðið
[Bœrinn í dag. |
Næturlæknir er í Læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Iðunnarapó-
teki.
ÚTVARPIÐ:
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
15.30-—16.00 Miðdegisútvarp.
18.30 Dönskukennsla, 2. fl.
19.00 Enskukennsla, 1. fl.
19.25 Hljómplötuf: Karlakór R,-
víkur syngur.
20.00 Fréttir.
20,20 Minningarkvöld um Kai
Munk (Félag íslenzkra leik
ara).
21.50 Fréttir.
22.00 Danslög.
24.00 Dagskrárlok.
Hallgrímsprestakall.
kl. 2 e. h. á morgun, messa í
Austurbæjarskóla. Séra Jakob
Jónsson. Kl. II f. h. barnaguðs-
þjónusta, séra Sigurbjörn Á. Gísla-
son. Kl. 10 f. h. sunnudagaskóli í
Gagnfræðaskólanum við Lindar-
götu. Kl. 8V2 e. h. Kristilegt ung-
mennafélag heldur fund í Handíða
skólanum, Grundarstíg 2 A. Bald-
ur Jónsson stud. art. talar.
Fríkirkjan.
Messað á morgun kl. 2, sr. Árni
Sigurðsson. — Unglingafélags-
fundur í kirkjunni kl. 11 stund-
víslega.
Laugarnessprestakall.
Barnaguðsþjónusta í samkomu-
sal Laugarnesskirkju kl. 10 f. h.
— Engin síðdegismessa.
Messað í kapellu háskólans
á morgun, (sunnudag), kl. 5
e. h. Guðmundur Sveinsson, stud.
theol. prédikar.
Frjálslyndi söfnuðurinn.
Mess^ð á morgun kl. 5, síra Jón
Auðuns.
Fríkirkjan í Hafnarfirði.
Messað á morgun kl. 2, síra Jón
Auðuns.
Nesprestakall.
Messað í Mýrarhúsaskóla kl. 2 Vz
síðdegis. Jón Thorarensen.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir „Vopn guðanna11 annað
kvöld, og hefst sala aðgöngumiða
kl. 4 í dag.
Hin árlega hlutavelta
Kvennadeildar Slysavarnafélags
íslands í Reykjavík, sem ékki
fékkst húsrúm til að halda seinni-
hluta f. á. verður haldin um n.k.
mánaðamót, og vonast deildin til
þess, að bæjarbúar sýni Kvenna-
deildinni sömu velvild og ávallt
að undanförnu, með því að gefa
muni á hlutaveltuna að þessu
sinni, af sömu velvild og áður.
I
! Híílar
; barnaslinnhúfur
1
I nýkomnar.
H.TOFT
Skólavorðostíg 5 Simi 1035
riTO^TTra7
standa tast ntn 8
stnnda vinnodaginn.
Rlótmæli marfira verkalýðsíé-
laga gegn sktr »ingu*hans.
X 1 ERKALÝÐSFÉLÖGIN
' víða um land hafa ekki
í hyggju að láta taka af sér
þá réttarbót. sem þau fengu
með 8 stunda vinnudeginum.
. Vegna þingsályktunaríillögu,
sem borin var fram á alþingi í
haust um afám 8 stunda vinnu-
dags hafa mörg félög samþykkt
mótmæli, og hafa þessi borist
nú síðast:
Á fundi í Verkalýðsfélagi
Hríseyjar, sem haldinn var 2.
jan. s.l. var samþykkt svo
hljóðandi tillaga; með samhlj.
atkv.:
„Fundurinn mótmælir harð-
lega þingsályktunartill. vissra
þingmanna, um skerðingu 8
stunda vinnudagsins í vega-
vinnu og brúargerð, og skorar
enn fremur á Alþýðusamband
íslands að beita sér fyrir því,
að ekki verði samið um neinar
tilslakanir á því, sem unnizt
hefur.“
Á fundi Verkalýðsfélagsins
,,Baldur“ á ísafirði, sem hald-
inn var 2. jan. s. 1., var ein-
róma samþykkt eftirfarandi
tillaga:
„Verkalýðsfélagið „Baldur“
á Isafirði, mótmælir eindregið
fram kominni þingsályktunar-
tillögu um afnám 8 stunda
vinnudags í vega- og brúargerð
og æskir þess, að Alþýðusam-
band Islands komi mótmælum
þessum á framfæri við alþingi
og Ríkisútvarpið.“
Á fundi, sem haldinn var að
Heimalandi undir Eyjafjöflum,
30. des. 1943, í Verkamanna-
félaginu ,,Dimon“ í Rangár-
vallasýslu, var eftirfarandi
tillaga samþykkt einróma af
öllum fundarmönnum:
„Fundur haldinn í Verka-
mannafélaginu ,,Dimon“ í Rang
árvallasýslu, 30. des. 1943, mót-
mælir harðlegá þingsályktunar
tillögu fram kominni á alþingi
þess efnis, að 10 stunda vinnu-
dagur verði framvegis látinn
ráða í vinnu við vega- og brú-
argerðir ríkisins, en krefst þess
hins vegar, að 8 stunda vinnu-
dagurinn verði látinn ráða í
þess stað í þeirri vinnu sem
annarri, svo sem átt hefir sér
stað nú um skeið.“
u
fySVERRIR1
Tekið á móti flutningi til Búð-
ardals, Gilsfjarðarhafna og
Flateyjar í dag.
Samlórs Reykjavíkur
SÖNGSKEMMTUN Sam-
kórs ' Reykjavíkur og
karlakórsins „Arna“ í Gamla
Bíó í fyrrakvöld tókst mjög
vel. Húsið var fullskipað áheyr-
endum, sem fögnuðu söngfólk-
inu ákaft. Barst því og söng-
stjóranum rnikið af blómvönd-
um— og varð að endurtaka
mörg lögin.
Samkórinn og ,Ernir“ efna
til annarrar söngskemmtunar í
Gamla Bíó á morgun.
Þýzk veðurattuigunarstöð á Grænlandi
Guðmundur Finnbogason dr. phil.,
flytur fyrirlestur á morgun kl. 2
e. h. í hátíðasal háskólans, og kall-
ar hann: „Tíminn og eilífðin“.
Samningar
f um kaup og kjör skipstjóra og
stýrimanna, hafa komizt á milli
Skipstjóra- og stýrimannafélags-
ins ,,Grótta“ og Vélbátafélags
íslands, Útgerðarfélags Keflavík-
ur, Útvegsbændafélags Gerða-
hrepps hins vegar, á skip állt að
75 rúmlestum.
Fyrir nokkru var frá því skýrt í fréttum,‘að Bandaríkjamenn hefðu tekið þýzka veðurat-
hugunar- og útvarpsstöð, sem leynst hafði á austurströnd Grænlands, en danskir fiskimenn
orðið varir við og skýrt frá. Þegar Bandaríkjamenn tóku stöðina, var þar aðeins einn Þjóð-
verji; hinir voru farnir. Á myndinni sjást amerískir hermenn vera að skoða tæki hinnar
þýzku leynistöðvar.
MÍDNÍngarorð um
Sólveign Mrtalls-
dóttur HaubatUBgu í
Kolbe! iisstaðahreppi.
ÞINN 15. þ. m. andaðist að
Haukatungu í Kolbeins-
staðahreppi, ekkjan Sólveig
Þórhallsdóttir, 92 ára að aldri.
Sólveig var fædd 6. jan. 1852
að Tungu í Möðrudal í Dala-
sýslu. Foreldrar hennar voru
Þórhallur Jónsson og Signý
Sæmundsdóttir.
Þegar hún var 6 ára gömul,
fluttist hún að Kvennabrekku
til síra Guðmundar Einarsson-
ar og konu hans Katrínar Ólafs
dóttur Sívertsen, og er þau
Guðmundur og Katrín fluttu
búferlum að Breiðabólsstað á
Skógarströnd, fór hún með
þeim og dvaldist á heimili
þeirra hjóna þangað til hún
giftist manni sínum, Jóni Guð-
mundssyni á Innra-Leiti á Skóg
arströnd. Þar voru þau í 1 eða
2 ár, en fluttu þá að Ölvers-
krossi í Kolbeinsstaðahreppi. Ár
ið 1901 missir hún mann sinn,
en býr áfram á Glverskrossi
með börnum sínum, til ársins
1909 er hún missti alveg sjón-
ina, þá 57 ára gömul. Flytzt
hún þá að Hraunholtum í sömu
sveit og er þar í nokkur ár,
þaöan að Mýrdal og er þar í
3 ár, og síðast rð Haukatungu
og dvaldi þar til dánardægurs.
Sólveig var kona fríð sýnum,
tápmikil, prýðilega verki farin,
bókhneigð og mjög vel gefin.
Hennar lán var það, að alast
upp á einhverju því mesta
myndar- og regluheimili, sem
þá var á Islandi. Á því heim-
ili var ekki skólalærdómur,
heldur vinna, og húsbændurnir
kunnu verkin og vildu láta
gera þau vél. Einnig var þar
margt að nema annað, þó það
kæmi ekki vinnunni við, sem
jaíngáfuð kona og Sólveig gat
tileinkað sér, þó það færi fram
hjá fjöldanum.
Að þessu bjó Sólveig alla tíð
og var langt umfram samtíðar
konur sínar á ýmsum sviðum.
Sá er þetta ritar, minnist
margra sagna, er hún sagði
honum frá uppvaxtarárum sín-
um á Breiðabólsstað, og sér-
staklega er honum minnisstáett,
með hvað mikilli hlýju hún
minntist dætra síra Guðmund-
ar og Katrínar, þeirra Theó-
dóru Thoroddsen og Ásthildar
Thorsteinson.
Þau Jón og Sólveig eignuð-
ust 5 börn. Elzta barnið Guð-
mund að flafni, misstu þau ný-
fæddan, en hin, náðu öll þroska
aldri. En það var henni sár
harmur að missa þá tvo syni
sína uppkomna, með tiltölulega
skömmu millibili, þá Guðmund
yngra og Ásmund, mjög vel
gefna og drengdléga menn. Hin,
sem á lífi eru, er Málfríður,
kona hér í bænum, og Guðlaug-
laugur, sem starfar í rannsókn-
arlögreglu Reykjavíkur hjá
sakadómara.
Það er löng nótt að vera
blindur í 35 ár, en ekki var það
á Sólveigu að finna, hún var
alltaf glöð og kát og sívinnandi.
Undruðust allir, er sáu hvílík
fyrirmyndarvinna þar var, er
hún skilaði.
Það var skemmtilegt að sjá
hana síðustu árin háaldraða,
teinrétta, slétta í andiiti eins og
unga stúlku, alltaf snaribúna,
þó hún væri í hversdagsfotun-
um og sívinnandi, sem gat tal-
að um hvað eina eins og al-
sjáanái maður, er vel hafði
fylgzt með, slíkt íólk er ekki
hversdagsfólk.
Iiún verður í dag borin tii
hinztu hvíldar að Kolbeins-
stöðu.m. S. G.
VIKUR
HOLSTEINN
EINANGRUNAR-
PLÖTUR
Fyrirliggjandi.
PÉTDR PÉTDRSSON
Glerslipan & speglagerð
Síini 1219. Hafnarstrœti 7, ’
I Kemisk-hreinsun.
Fatapressun.
Fljót afgreiðsla.
P. W. Biering,
(Við Hverfisgötn).
Traðarkotss. 3. Sími 5284. |
Nýstárlegl happdrælti
NATTSPYRNUFÉLAG
REYXJAVÍKUR efnir nú
næstunni til happdrættis til a-
góða fyrir starfsemi félagsins,
sem alltaf er að verða fjöl-
hæfnari og yfirgripsmeiri ár frá
ári.
Happdrætti þetta er hvorki
um hús eða bíl, heldur um þrjá
merka hluti, sem hverri hús-
móður mundi þykja fengur í
að eignast: ísskáp, þvottavél
og strauvél. Þetta eru allt nýir
hlutir, nýkomnir frá Ameríku
og taldir iþað nýjasta nýja, hver
á sínu sviði. sem framleitt sé
þar í landi.
Ilaaapnsn tuskur
hæsta verði.
'Húsgagnavinnusío
fijfittfttfttfitthjfttf^^
ÖtbreM Aiþýðublaðiö.
Ödýrf!!
Gardínutau frá kr. 1,50
Sirs _ 1,85
Léreft, mislit 2,00
Tvisttau 2,00
Kjólatau 6,50
Fóður 3,50
Silkisokkar 5,50
Éarnabuxur 7,50
Verzlunin Dyngja
Laugavegi 25.