Alþýðublaðið - 26.01.1944, Side 7
Miðvikudagur 26. janúar 1944
iBœrinn í dagÁ
Næturlæknir er í nótt í Lækna-
varðstofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Ingólfsapóteki.
ÚTVARPIÐ:
20.00 Fréttir.
30.30 Kvöldvaka: a) Gísli Guð-
mundsson tollvörður: Veið-
ar í vötnunum í Manitoba,
II. Erindi. b) 21.00 Kvæði
kvöldvökunnar. c) 21.10
Takið undir! (Þjóðkórinn.
-— Páll ísólfsson stjórnar).
20.50 Fréttir.
Ármenningar!
Stúlkur) — Piltar! „Þakkarhá-
tíð“ verður í Jósefsdal laugardag-
inn 29. janúar. Á sunnudag verður
innanfélagmót í svígi. Hátíðin er
fyrir sjálfboðaliða, sem unnið
hafa við skálabygginguna 1942 og
1943. Farmiðar seldir í skrifstofu
Ármanns, íþróttahúsinu, miðviku-
dag kl. 8 til 10 e^ h. — Skíðanefnd-
in. — Stjórn Ármanns.
Ameríá jól
á íslandi.
ISÍÐASTA vikublaði tíma-
ritsins Life er þremur síð-
um helguð myndagrein, er fjall-
,ar um „þriðju og beztu jól am-
eríkanska setuliðsins á íslandi“.
í greinni er komizt svo að
orði: „Á Aðfangadagskvöld
voru dyr Dómkirkjunnar í
Reykjavík opnar upp á gátt fyr-
ir hermenn, er hlýða vildu á
guðsþjónustu. íslenzkur karla-
kór heimsótti fjölda herbúða og
hermennirnir buðu ísl, börnum
■á jólatrésskemmtanir. . . Allir
voru í bezta jólaskapi. . . Jólin
voru meira að segja haldin
inn á einangruðum stöðum þar
sem varðsveitir teptar, vegna
snjókomu, héldust við. Jóla-
trjám og pósti var varpað nið-
ur til þeirra úr flugvélum.“
Meðal myndanna voru þess-
ar: Herbúðir skreyttar jóla-
skrauti; jólaguðsþjónusta fyrir
kermenn í Dómkirkjunni í
Reykjavík, söngflokkur setu-
liðsins að syngja jólasálma fyr-
ir Svein Björnsson ríkisstjóra.
Hermenn í flutningaflugvél að
kasta út jólatrjám og pósti nið-
ur til einangraðra varðsveita;
hermenn að heilsa ísl. börnum
á jólatrésskemmtun ^og ísl.
karlakór að syngja í Nissenkofa
á sjúkrahússkemmtun.
;hvað segja hin blöðin?
Frh. af 4. síðu.
Sjömenn vita það vel, að þegar
skipin eru orðin svo framhlaðin,
að þau stinga sér í ölduna í staðinn
fyrir að reisa sig upp á hana, þá
má ekki mikið út af bera svo skip-
in gangi undir.
Hvað þarf að ske svo útgerðar-
menn og liið opinbera fái opin
augu fyrir þessari geigvænlegu
hættu, sem getur vofað yfir hverri
skipshöfn ef lengra verður haldið
á þessari óheillabraut. Eru menn
hættir að geta hugsað rökrétt? ís-
lenzka þjóðin hefir þurft að færa
dýrar fórnir að undanförnu, sum-
ar þeírra hafa til orðið vegna óvið-
ráðanlegra orsaka, en um orsakir
annarra leikur meiri vafi.“
Vissulega eru umræður blað-
anna um þessi mál orð í tíma
töluð, og er vonandi, að hægt
verði að skapa ný viðhorf í þess
um efnum.
ALÞYÐUBLAÐIÐ___ 7
Jarðarför konunnar minnar,
fer fram föstudaginn 28. þ. m. og hefst með húskveðju að heimili
hinnar látnu, Þórsgötu 22 A, kl. 1 e. h.
Jarðað verður frá Fríkirkjunni.
F. h. aðstandenda.
Vilbogi Pjeturssou.
/
kÉúíiM Ðaphritar
verður haldin í Iðnó og Alþýðuhúsinu við Hverfis-
götu laugardaginn 29. janúar. Skemmtiskrá auglýst
síðar. Aðgöngumiðar fást í skrifstofu félagsins í Al-
þýðuhúsinu. Aðgangur takrnarkaður. Tryggið yður
miða í tíma. Skemmtinefndin.
~ ' ——————— ______
Gamall kunningi
í Tjarnarbíó.
T ALJLA du er sommer-
99JLJ nattens ljusa vackra
dröm . . . . “ Það er eins og að
hlýða á fyrsta lækjarniðinn í
vorleysingum að heyra sænsk-
una talaða aftur í bíó. —■ Mér
hefir alltaf þótt sænska fagurt
mál, en aldrei eins hressandi,
eins syngjandi, og hrynjandi
tungunnar aldrei eins blæ-
brigðaríkur og nú.
Þessa sömu mynd. Lajla,
sá ég haustið 1937 í Kau jþ
mannahöfn, enda er sú útgáfa,
sem hér er sýnd, farin að láta
á sjá, orðin nokkuð óskýr og
hljóðið, (söngurinn) er hætt að
falla inn í á rétlum augnablik
■um, hvort sem það kann að
vera upprunalegur galli eða
orðinri til vegna notkunar. Ég
minnist þess, að eftir að Lajla
var sýnd í Höfn, mætti maður
engurn sendisveini svo. að
hann flautaði ekki sönginn um
Lajlu, enda er hann fallegur og
á efilaust mikla framtíð fyrir
sér á vörum reykvískra sendi-
sveina.
Kvikmyndin geri,st í Norður
Svíþjóð, í heimkynnum Lapp-
anna. sem enn þann dag í dag
lifa hinu frumslæða hjarð-
mannal'ífi sínu, ós.nortnir af
vélamenningu og hamförum
20. aldarinnar. ,,Una glaðir við
,sitt“ á hjanbreiðum norðurs-
ins óg flytja sig eftir árstíðum
óravegu til fanga og aftur til
vetursetu. Hngindýrahjarðir
þeirra láta þeim í té allt, sem
iþeir þarfnast til viðhalds líf-
inu: Fæði klæði og húsnæði,
og þeir lifa því í sátt og sam-
lyndi við allt og alla nema þeg
ar brennivínið er annarsvegar
og það „slettist upp á vinskap
inn“ milli þeirra og útlending
anna ,,Daro?anna,“ íeáns og
þeir nefna þá.
Að sjálfsögðu er skelmirinn
Amor með í leik'num og hann
lætur ekki gamlar erfðavenjur
eða þjóðflokkaríg hefta för
sína, drengurinn sá. —
Leikur Aino Taube, sem er
finnsk að ætt og nú ein fremsta
leikíkona við leikhús Stock-
hólmsborgar, er frábær og hef
ir hann borið hróður hennar
víða, og síðast þegar sá, sem
línur þessar r.itar, frétti, hafði
hún fengið álitlegt tilboð um
atvinnu við kvikmyndir í
Hollywood. — Aðrir leikend-
ur eru og góðir.
Þessi kvikmynd færir manni
sannarlega frískandi andblæ
frá frændum okkar Svíum.
Andblæ, sem við þekkjum svo
vel, en kunnum vart að meta,
andblæ norðursins, hjarnbreið
anna, vorleysinganna og mið-
nætursólarinnar. Frjálst, sjálf-
stætt en frumstætt líf, sem fel-
ur þó í sér fullkomnari ham-
inigjiu og sannari túlifeun ,til-
finninganna en við eigum að
venjast.
Engan iðrar að sjá þessa kvik
rnynd, hún er sönn og hún er
Mka sænsk, en enski textinn
mætti alveg missa' sig.
G. S.
ISijórnarkosninB i
verkRÍsðsféiaoi
!á- Kúnvetninga.
AÐALFUNDUR var nýlega
haldinn í Verkalýsfélagi
Austur-Húnvetninga á Blöndu-
ósi.
í stjórnina voru kosnir: Jón
Einarsson, formaður, Guðmann
Hjálmarsson, ritari og Guðm.
Agnar Guðmundsson, féhirðir.
Árásirnar á Gylfa.
Frii. af 2. síðu.
og hagfræði-deild háskólans, að
Gylfi tæki við þessu embætti,
enda er hann viðurkenndur
fyrir fjölhæfar gáfur, alhliða
menntun og mikla kennarahæfi
leika.
En það er háttur kommúnista
— og ,,skóli“ þeirra, að ráðast
persónulega á andstæðinginn,
þegar rökin þrýtur.
Þá sakar blaðið Gylfa um
fölsun á því hvað sá stefna
kommúnistaf lokksins.
Um stefnu þeirra segir Gylfi
Þ. Gíslason m. a.:
„Sósíalistaflokkurinn vill alls
staðar, einnig í lýðræðisríkjun-
um. skapa hin pólitísku skilyrði
í til framkvæmdar sósíalismans
með því, að gerð sé stjórnar-
bylting, „einræði öreiganna“
komið á fót, en öll mótspyrna
brotin á bak aftur með valdi.
Sólíalistaflokkurinn er því ekki
lýðræðisflokkur, þótt málsvarar
hans látti stundum í veðri vaka
í áróðursskyni, að svo sé, enda
hafa forystumenn hans oft lýst
yfir fylgi sínu við byltingar-
leiðina og hina svo nefndu bylt-
ingarsinnuðu túlkun á Marxism-
anum, sem og þá fræðimenn,
sem henni halda fram, og enn
ekki tekið aftur neitt af fyrri
ummælum sínum“.
Allir vita, að þetta er stefna
kommúnistaflokksins, bein og
ómenguð, enda marg yfirlýst af
forystumönnum flokksins, þing-
um hans, ráðstefnum hans og
blöðum hans. En þegar rök
Gylfa Þ. Gíslasonar fyrir því að
sósíalisminn á vegum lýðræðis
sé heppilegri og heilbrigðari
fyrir mennina, en einræðis-
hyggja þeirra, sem annars játa
sig sósíalista, eru athuguð, þá
sást ljóslega hversu höllum
fæti kommúnistar standa í
áróðri sínum. Þetta sáu komm-
únistar er þeir lásu rit Gylfa .—
og þess vegna grípa þeir til
þess óyndisúrræðis að ráðast
gegn höfundinum með persónu-
legum rógi — og saka hann um
falsanir!
Leikíélag Reykjavíkur
sýnir Yopn guðanna annað kvöld
og hefst sala aðgöngumiða kl. 4 í
dag.
Mikilvægi Berlínar.
Frh. af 3. síðu.
LOKS ER BERLÍN ein mesta
járnbrautarmiðstöð Þý.rka-
lands og ef bandamömum
tæki’st að lama hinar miklu
járnbrautarstöðvar borgar-
innar, Friedrichstrasse,,
Lehrter, Stettiner, Potsdam
og Anhalter-stöðvarnar, —
myndi það torvelda stórkost-
lega allan hernaðarrekstur
Þjóðverja. Þá er og miðstöð
flugsamgangna í Berlín við
Tempelhof-flugvöllinn.
HÉR VERÐUR EKKI SAGT,
að Þjóðverjar kynnu að
tapa styrjöldinni vegna þess
eins, að Berlín yrði fyrir
hrikalegri loftárásum en
dæmi eru til; en margt bend-
ir til þess, að það gæti haft
hinar víðtækustu afleiðingar,
og þetta er skýringin á sí-
vaxandi sókn lofthers banda-
manna á þessa taugamiðstöð
hins nazistíska þriðja ríkis.
til sölu, (12 lampa tæki).
Til sýnis í Meðalholti 5,
klukkan 4—7 í dag.
Félagslíf.
Hæðrafélagið.
Mæðrafélagið heldur fund
fimmtudaginn 27. janúar kl.
8.30 að Skólavörðustíg 15.
Fundarefni: Ýms félagsmál,
kaffi, skemmtiatriði. — Félags-
konur! Mætið vel og stundvís-
lega og takið gesti með ykkur.
Stjórnin.
Konungurinn við síýrið.
Á myndinni sést Farouk Egyptalandskonungur við stýrið á jeep-bílnum sínum, sem bandaríski
herinn gaf honum. Hann er á leið til að skoða flugvélar og mannvirki í hinni nýju flughöfn
' Bandaríkjahersins í grend við Kairo. — Á myndinni sjást þessir menn, talið frá vinstri:
Ralph Royce, hershöfðingi Bandaríkjanna í löndunum við austan vert Miðjarðarhaf, Farouk kon
ungur, Alexander Kirk, sendiherra Bandaríkjanna í Kairo, og Ibrahim Attala Pasha, formað-
ur egypzka herforingjaráðsins.