Alþýðublaðið - 28.01.1944, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 28.01.1944, Blaðsíða 7
7 Föstudagur 28. janúar 1944. r* sSfEit: . Næturlæknir er í nótt í Lækna- varðstofunni, sími 5030. Næturvörður er í Ingólfsapóteki ÚTVARPIÐ: 20.00 Fréttir. 20.30 Útvarpssagan: „Bör Börs- son“ efir Johan Falkberget, IV (Helgi Hjörvar). 21.00 Strokkvartett útvarpsins. 21.15 Fræðsluerindi í. S. í.: Skíða iþróttin (Steinþór Sigurðs- son magister). 21.35 Spurningar og svör um ís- lenzkt mál, Björn Sigfússon. 21.55 Fréttir. 22.00 Symfóníutónleikar (plötur): Tónverk eftir Brahms: a) Symfónía nr. 2. b. Sorgar- forleikurinn. 23.00 Dagskrárlok. 60 ára er í dag Jón B. Pétursson skó- smíðameistari í Hafnarfirði, einn af beztu borgurum bæjarfélagsins. Aðalfundur Skátafélagsins. Skátafélag Reykjavíkur hélt að- alfund sinn í fyrradag. í stjórn fé- lagsins voru kosnir B. D. Bendtsen formaður, Þórarinn Björnsson rit- ari, Hjalti Guðnason gjaldkeri og Róbert Schmidt og Sigurður Ólafs- son meðstjórnendur. Varamenn í stjórn voru kosnir Ástvaldur Stefánsson og Óskar Pétursson. Kvennadeild Slysavarnafélags fsl. heldur sína árlegu hlutaveltu þ. 2. febr. í Listamannaskálanum. Deildin treystir öllum bæjarbúum til þess að taka vel beiznum kvenn- anna um muni á hlutavelturia, og biður meðlimi sína að sýna sama dugnað og fyrr við að afla vel. Munum má skila á skrifstofu Slysavarnafélagsins í Hafnarhús- inu. Eyrbekkingafélagið heldur fund í ltvöld kl. 8.30 í Samkyæmissölum í Alþýðuhúsixlu. Þetta er skemmtifundur með bögglauppboði og sameiginlegri kaffidrykkju. Gjafir til kvennadeildar Slysavarna- félagsins í Hafnarfirði: Frá skip- verjum á b.v. Surprise 1525.00 kr., frá vinnuflokki Geirs Zoéga 302.00 Minningargjöfum Ragnhildi Guð- mundsdóttir frá Beiru á 80 ára afmæli hennar, 50 kr. frá böm- um á Hverfisgötu 53. Kærar þakk- ir. Síjórnin. Karlakór Iðnaðarmanna heldur samsöng í Gamla Bíó á sunnudaginn kemur kl. 1.20 stund- víslega. PðlIandsdeilaD. Frh. af 3. síðu. málin í sambandi við ítaUu, situr Rússinn Yishinsky, hinn opinberi ákærandi rúss- nesku stjórnarinnar í hinum miklu málaferlum fyrir nokkrum árum. — Það er eins og einhver rauður þráð- ur gegnum stjórnmálastefnu þeirra, að láta engan skinta sér af Austur-Evrópumálefn- um, en vera albúnir sjálfir til afskipta af annarra þjóða málum. RÚSSAR MUNU FÆRA FRAM sér til málsbóta í Póllands- deilunni ákvörðunarrétt þjóðabrota og smáþjóða; en hvernig má það sameinast afskiptum þeirra af Finn- landi, auk landanna, sem nefnd hafa verið, og við- skipti Molotovs við Kuusin- en, hinn illræmda undanfara Quislings, sem gildan full- trúa Finnlands? Þessi og fleiri mál bíða svars tímans. Umræður á þjngi um þormóðsslysið. Frh. af 2. síðu. í frekari umræðum, sem út af þessu spunnust, kom fram sú skoðun, einkum hjá Bjarna Ben., að draga bæri fyrir lög og dóm þá menn, er rætt hefðu í blöðunum um sjóhæfni skip- anna og öryggi sjófarenda, með því að ýmiss blaðaummæli í þessum málum væri eigi á rök- um reist. DAGSKRÁRMÁLIÐ TEKIÐ ÚT AF DAGSKRÁ. Fundir voru ekki boðaðir í déildum í gær, aðeins í sam- einuðu þingi. Þar hafði verið tekin á > dagskrá þingsályktun- artillagan um birtingu skjala varðandi/ sambandsmálið. Þegar forseti hafði sett fund- inn, kvað hann ósk hafa borizt um það, að umræðunni yrði frestað, vegna aðkallandi starfa í nefndum. — Kvaðst forseti mundi verða við þessari ósk, frestaði umræðunni og sagði því næst fundi slitið. ABALFUNDUR BiF- VÉLAVIRKJA. /IÐALFUNDUR í félagi bif- vélavirkja var haldinn 26. jan. s.l. í stjórn voru kosnir: Valdimar Leonhardsson for- maður. Varaform. Á vbgk vbgk vbg Árni Stefánsson, varaform. Sigurgestur Guðjónsson rit- ari. Gunnar Bjarnason varagj. Stjórnin var öll endurkosin. AÐALFUNDUR VERKALÝÐSFÉL. GR8NDAVÍKUR C-UNNUDAGINN 23. þ. m. var haldinn aðalfundur Verkalýðsfélags Grindavíkur. í stjórn voru kosnir: Svavar Árnason, form. Ólafur Sigurðsson, gjaldk. Guðbrandur Eiríksson ritari. loDbrotsþjófar staðn ir að verki. Vaxandi Diófc r bænutn. LÖGREGLAN hafði í íiótt hendur í hári tveggja inn brotsþjófa, sem voru staðnir að verki. Var það snarræði manns nokkurs að þakka, að þjófarnir voru staðnir að verki. Þjófarnir, sem voru piltar innan við tvítugsaldur, voru að brjótast inn í húsið Lækjar- gata 2. Var annar þeirra kom- inn inn í húsið og inn á gang, sem liggur að skrifstofu verzl- unar Haraldar Árnasonar. ' Maður nokkur, sem átti leið þarna framhjá, ásamt unnustu sinni, heyrði brothljóð í rúðu og fór inn í portið til að svip- ast um. Handsamaði maðurinn þann þjófinn, sem var úti fyrir, en bað stúlkuna að gera lög- reglunni aðvart um hinn. Beið hann sjálfur á meðan þar til lögreglan kom og tók báða sökudólgana í sínar hendur. Þá hefir einnig verið brotizt inn í nokkur íbúðarhús að und- anförnu. Fara þjófnaðir í vöxt í bænum og eru það aðallega unglingar, innan tvítugsaldurs, sem valdir eru að innbrotum. ALÞYÐUBLAÐIÐ Stöii viðskiptaráðs í eitf ár. Frh. af 2. síðu. 1. Reglur þær, sem giltu um það, hvernig verðlagningu skyldi háttað og kostnaðar- verð ákveðið, voru teknar til endurskoðunar og gerðar á þeim ýmsar breytingar, sem miðuðu að því að kcma regl- unum í fastara horf og eyða vafaatriðum, en einnig voru settar skorður við því, hve hátt mætti reikna einstaka kostnaðarliði. Sem dæmi til skýringar má nefna kostnað við heimflutning vara frá skipaafgreiðslu að sölustað. Þessi kostnaður var áður reiknaður mjög misjafnlega enda venjulega áætlaður, en engin skilríki til fyrir greiðsl unni. Nú er aðeins leyft að reikna þennan kotsnað í á- kveðnu hlutfalli við uppskip- unarkostnað< 2. Innflytjendum var gert að skyldu að senda afrit af verð- útreikningi á sérhverri vöru- sendingu til skrifstofunnar. Til tryggingar því, að enginn bregðist þeirri skyldu, fær skrifstofan að láni allar inn- flutningsskýrslur frá tollyfir- völdunum. 3. Heildverzlunum var gert að skyldu að senda skrifstofunni afrit af öllum sölunótum sín- um, og smásöluverzlunum var gert að skyldu að senda mánaðarlega skýrslu yfir innkaup sín frá heildverzl- unum. 4. Landinu var skipt í eftirlits- svæði og trúnaðarmenn skip- aðir í þau. Eftirlitssvæðin voru uphaflega 7, en eru nú 9. Þegar þessar breytingar voru á orðnar var hægt að fram- kvæma eftirlitið á miklu hag- kvæmari og öruggari hátt. Eftir litið með heildverzluninni get- ur nú að langmestu leyti farið fram á skrifstofunni. Þar er hægt að yfirfara verðútreikn- ingana og bera söluverðið sam- an við sölunóturnar. Eftirlitið með smásöluverzlununum verð ur líka miklu raunhæfara en áður var. Þegar eftirlitsmaður kom í verzlun til eftirlits fékk hann stundum þau svör, að eng- ar nýjar vörur hefðu komið síðan hann var síðast þar, og var þá oft erfitt fyrir hann að gera sér grein fyrir því, hvort sú fullyrðing væri á rökum reist. Nú getur eftirlitsmaður séð það á sölunótum heildverz- ananna hvaða vörur verzlunin hefir fengið og reiknað út leyíi legt verð hennar, áður en hann fer til eftirlits. Þessar ráðstaf- anir hafa því orðið til að styrkja eftirlitið og draga úr verðlags brotum. Einnig má nefna eina þýðing- armikla ráðstöfun enn, sem verkar á sama hátt, en hún er sú, að niðurstöður allra dóma fyrir verlagsbrot eru undan- tekningarlaust sendar dagblöð- unum til birtingar. Með þessum ráðstöfunum hefir einnig það áunnist, að allar vörutegundir eru raun- verulega komnar undir verð- lagsákvæði að því er heildverzl un snertir. Þó vörutegund sé ekki undir beinum verðlags- ákvæðum verða heildverzlanir að senda verðútreikning á skrif stofuna, og getur þá verðlags- stjóri úrskurðað, hvað verð hennar megi vera. Þótt verzlan irnar séu ekki lagalega séð skyldar til að hlíta þeim úr- skurði, verður þó næstum alltaf sú raunin á, enda mundi varan að öðrum kosti þegar í stað verða sett undir ákvæði. Verðlagsákvæði á vörum: Ný verðlagsákvæði hafa ver- ið sett á eftirtaldar vörur og vöruflokka: a) Með hámarksálagningu: Raf- magnsvörur, niðursöðuvör- Sonur okkar, j| Jón Haukur, \ andaðist 27. þessa mánaðar. Kristín Brynjólfsdóttir. Guðmundur Guðjónsson. Karlagötu 21. Kaupum aiiar bækur, fímarif og blöð Síðustu forvöð að ná í eftirtaldar bækur: Um refsivist á íslandi, ritgerð eftir dr. Björn Þórðar- son, forsætisráðh. Ljós og skuggar, eftir Jónas frá Hrafnagili. Teitur, eftir Jón Trausta. , Skólaræður, eftir Magnús Helgason. Baldurshrá, eftir Bjarna frá Vogi. Veraldarsaga Sveins frá Mælifellsá. Nokkur complett tímarit. Einnig rnikið úrval af skáldsögum til skemmtilesturs. Bókabúó GUÐMUNDAR GAMALlELSSONAR Lækjargötu ur, vélar (mótorar) og við- gerðarefni bifreiðaverk- stæða, vélsmiðja, skipasmíða stöðva og dráttarbrauta. b) Með hámarksverði: Raf- magnstæki (innlend fram- leiðsla), lax (nýr og reykt- ur), amboð, rabarbari, stál- lýsistunnur, olíufatnaður (innl. framleiðsla), ölföng og rjúpur. c) Hánjarsákvæði hafa einnig verið sett á bækur, þannig að útgefendur mega ekki á- kveða verð þeirra nema með samþykki verlagsstjóra. Þá hafa einnig verið gerðar ýmsar breytingar á eldri ákvæð um, t. d. var álagning lækkuð nokkuð á vefnaðarvörum og skófatnaði. Þá má geta þess sérstaklega. að þegar hækkun var leyfð á flutningsgjöldum frá Ameríku s. 1. vor var innflytjendum bann- að að reikna álagningu á þá hækkun, og síðan var lækkuð álagning á öllum vörum sem . hámarksálagning gilti um til samræmis við það. Önnur verðlagsákvæði: Verðlagsákvæði hafa verið sett á þjónustu eftirtaldra aðila: Bifreiðaverkstæða, vélsmiðja, skipasmíðastöðva, dráttarbrauta veitingahúsa, matselja, klæð- skera hraðsaumastofa, kjóla- saumastofa. hattasaumastofa, hárgreiðslustofa, rakarastofa, efnalauga og múrara. Ákvæði þessi hafa verið með ýmsu móti, eftir því sem við á í hverju tilfelli, og væri of mikið mál að lýsa þeim hér. Önnur störf: Um flestar þjónustur og vör- ur, sem ekki hlíta verðlags- ákvæðum, er í gildi bapn við hækkun nema með leyfi verð- lagsstjóra. Beiðnir um slíka hækkun berast skrifstofunni mjög oft, en rannsókn þeirra- og afgreiðsla er í sjálfu sér engu þýðingarminni en verðlags- ákvæði. og hefir sama gildi. Verð á fjölmörgum iðnarvörum og ýmsum þjónustum hefir ver- ið ákveðið á þennan hátt, enda í þótt engin tilkynning hafi ver- I ið birt um það, og það þar af leiðandi ekki talið upp hér að framan. Þó að hér sé oftast um að ’æða synjun um ónauðsynlega 6. — Sími 3263. hækkun, eða heimild fyrir óhjá- kvæmilegri hækkun, og frum- kvæðið því í höndum hlutaðeig- andi fyrirtækis, getur þó það gagnstæða átt sér stað. Má í því sambandi geta þess,_ að s. 1. vor fékk Eimskipafélag íslands leyfi til að hækka flutningsgjöld á vörum frá Ameríku, en vegna foreytinga. sem síðar urðu á að- stöðu félagsins, var því fyrirskip uð lækkun flutningsgjaldanna um s. 1. áramót. Bæjarstjórn skorar ð aipingi og rfkisstjðrn að loka vlnverzl- unlnni. Samþykkir að kjósa nefnd fiB aó afhuga skemmfanalífið og gera filEögur um úr- bæfur á því. A BÆJARSTJÓRNAR- ^ FUNDI, sem haldinri var í gærkvöldi var samþykkt tillaga, sem borin var fram á síðasta fundi, þess efnis að skora á alþingi og ríkisstjórn ina að loka vínverzluninni. Jafnframt var samþykkt svo- hljóðandi tillaga frá Jóni Axel Péturssyni og Helga Hermann Eiríkssyni. „Bæjarstjórn samþykkir að kjósa 5 manna nefnd til að at- huga og gera tillögur um endur bætur á skemmtanalífi og veit- ingastöðum í bænum. Skal neíndin leita samstarfs við verkalýðsfélög, Góðtemplara- regluna, íþrótta- og æskulýðs- félög svo og eigendur og for- ráðamenn samkomuhúsa í bæn- um.“ Var auðheyrt að bæjarfull- trúum þykir, sem skemmtana- lífið í bænum sé á villigötum og að brýn nauðsyn sé á endur- bótum á því. Ákveðið var að bæjarráð kysi nefndina. ^ *Æí

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.