Alþýðublaðið - 29.01.1944, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 29.01.1944, Blaðsíða 7
Laugardagur 29. janúar 1944. •♦0000000®00<3>O00®0O<!X3>0^<3><3>é Næturlæknir er í nó.tt í Lækna- ■varðstofunni, sími 5030. Næturvörður er í Ingólfsapóteki ÚTVARPIÐ: 19.25 Enskukennsla, 1. flokkur. 19.25 Hljómplötur: M. A. kvartett inn syngur. 20.00 Fréttir. 20.20 Leikrit: „Daníel Hertz“, eftir Henri Nathansen (leik- stjóri: Haraldur Björnsson). 23.30 Fréttir. 23.40 Dansliög. Hallgrimsprestakall. Messa á morgun kl. 2 e. h. séra Sigurbjörn Einarsson, kl. 11 f. h. barnaguðsþjónusta, sér Jakob Jóns son, kl. 10 f. h. sunnudagaskólinn. Hafnarfjarðarkírkja. Messa á morgun kl. 2, séra Oarðar Þorsteinsson. Börn, sem eiga að fermast á þessu ári og næsta ári komi í kirkjuna til við' tals. Hafnarfjörður.i Árshátíð Aiþýðuflokksfélaganna í Hafnarfirði er í kvöld í Góðtempl arhúsinu. VerzlunarmannaféL Reykjavíkur. heldur afmælishátíð sína að Hótel Borg í kvöld (laugar- dagskvöld) og hefst hún með borð- haldi kl. 7V2. Leikfélag Reykjavíkur sýnir Óla smaladreng kl. 5 á morgun og hefst sala aðgöngu- miða kl. 1 á morgun. Leikfélag Reykjavíkur sýnir Vopn guðanna annað kvöld Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4 til 7 i dag. Leikfélag templara ' sýndi í fyrrakvöld í Iðnó sjón- leikinn „Tárin“ eftir Pál J. Árndal Húsið var þéttskipað áhorfendum, og komust færri að en vildu. Léik- urinn þótti takast með ágætum. '1 ráði er að næsta sýning „Tár- anna“ fari fram í Hafnarfírði á þriðjudaginn kemur. Félag járniðnaðarmanna heldur árshátíð sína í kvöld í Tjarnarcafé og hefst hún með feorðhaldi kl. 3. Árshátíð Dagstamnar verður í kvöld í Iðnó og Alþýðu- húsinu. Margt verður til skemmt,- unar, ræðuhöld, upplestur, kvik- myndasýning og dans. Gömlu dans arnir verða í AlþýSuhúsinu. Dags- brún er nú 38 ára gömul. Hjónaefní Nýlega hafa opinberað trúlofum sína ungfr. Öndís Önundardóttir, Bakkastíg 8 og Bjiörgvin Leó Gunn arsson Bakkastíg 4. Skíðafélag Reykjavíkur ráðgerír að fara skíðalör næst- komandi sunnudagsmorgun. Lagt á stað kl. 9 frá Austurvelli. Far- míðar seidír hjá L. H. Muller í dag frá kl. 10 til 4- til félagsmanna en frá 4 til 6 til utanfélagsmanna ef óselt er. Banasiúkan ,Unnur‘ nr. 38: Fundur á morgun kl. 10 fyrir hádegi. Stúkan ,Jólagjöf‘ heimsækir. Barnastúkan ^Svava' nr. 23: Fundur á morgun kl. 1 eftir hádegi. V / Barnast. ,Æskan‘ nr. 1: Fundur á morgun kl. 3.30 eftir hádegi. Barnast. „Díana“ nr. 54: Fundur á morgun kl. 3.30 (uppi). MóSir okkar og tengdamóðir, Arnbförg GísSadóttir, andaðist að heimili sínu, Barónsstíg 13, að morgni þess 28. þ. m. Kristín GuSmundsdóttir. Brvnjólfur Jónsson. Sólveig Jónsdóttir. Gísli Guðmundsson. Hér með tilkynnist, að bróðir okkar, Jén Arnórsson, andaðist að heimili sínu Piney, Manitoba, Canada, hinn 17. september 1943. ) Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna. Guðrún Arnórsdóttir. j Móðir og tengdamóðir okliar, ÁstríÓur Jónsdóttir, fyrrverandi SlósmóÖ&rF andaðist 27. janúar að Bergþórshvoli. Jenny og Jón Skagan. Áslaug og Helgi Sivertsen. tmmowmmmémBœwmmmaM til flutnings í samræmi við nið- urröðun vöruflokkanna. Nokkrum nauðsynjavörum, svo sem skömmtunarvörum, fóðurvörum, olíum, áburði og timbri, er að mestu ráðstafað í hvert einstkat skip héðan. Samkvæmt skýrslu, er Við- skiptaráðinu barst, laust eftir áramótin, nam þá vörumagn í New York, bókað til flutnings, um 7.000 smál. eftir að ráðstaf- að hafði verið í skip þau, sem þá voru í New York. Nokkur hluti þessara vara mun þó ekki hafa verið tilbúinn til afgreiðslu Síðast liðið ár voru fluttar hingað til lands frá Ameríku, samt. 84.645 smál. af vörum Þar af voru fluttar með skip- um Eimskipafélagsins ca. 34.732 smál., með þrem fastleiguskip- um ca. 31.077 smál. og með aukaleiguskipum og skipum á vegum herstjórnarinnar 18.836 smál. Um allar flutningaráðstafan- ir, hefir orðið að vera samvinna við Eimskipafélag íslands. Hef- ir sú samvinna verið hin ákjós- anlegasta. Segja má einnig, að afskipti ráðsins af flutnings- málunum hafi mætt skilningi hjá innflytjendum. Ástandið í flutningamálun- mun verða all erfitt fyrstu mán uði þessa árs, einkum á meðan stendur á flutningi áburðar, en að óhrey-ttum núverandi að- stæðum og skipakosti má gera sér vonir um, að það lagist nokkuð, er á árið líður. Náttúrufræðafélagið heldur fund í fyrstu kennslust. háskólans á mánudagskvöld kl. 8.30 Jón Eyþórsson flytur erindi um Kötlugjá og Mýrdalsjökul. Ármenningar! Skíðaferð verður í Jósefsdal á sunnudagsmorgun kl. 9 frá íþrótta húsinu. Svigkepprii fer fram fyrir drengi og fullorðna. Farseðlar seldir í Hellas, Tjarnargötu 5, til kl. 4, laugardag. Málverkasýning var opnuð í Safnahúsinu við Hverfisgötu í gær. Sýnir Jóhann M. Kristjánsson framkvæmdar- stjóri þar tvö stór málverk af Gullfossi ásamt nokkrum minni myndum, þar á meðal útsýni yfir Reykjavík og útsýni frá Grábrók- arhrauni í Norðurárdal með Baulu í baksýn. Sýningin verður opin næstu daga frá kl. 10—10. Húsaleigsn í Hifla- borg. Frh. af 2. síðu. Að minnsta kosti verður að krefjast þess, að bæjaryfir- völdin gefi einhverja viðunandi skýringu á þessu dularfulla nýja mati. Sagt er og að allt húsnæði, sem þeir Steinþór og Einar meti, hækki mjög. Er það ein- kennileg útkoma — og virðist að minnsta kosti að fulltrúi kommúnista, sem að þessari leiguhækkun vinnuir, sé annar á borði en í orði! Skipaeffirlifið. Frh. af 2. síðu. eigi eridurskoðuð, og virðist þó full þörf á því. Flm. leggja engan dóm á, hverju hin einstöku sjóslys eru að kenna, þó að eigi verði var- izt þeirri hugsun eftir blaða- skrifum um málið, að annað hvort sé einhverju ábótavant við reglurnar um skipaeftirlitið eða þá að skipaeftirlitið sjálft sé eigi nógu öflugt. Má í því samlbandi benda á. iað í skipaeftilitinu er enginn skipaverkfræðingur starfandi, og virðist það þó eðlilegt. Atburðir hinna síðustu mán- aða hafa orðið því valdandi, að almennar kröfur eru upp koran ar um rannsókn á þessum mál- •um. Menn vilja fá úr því skorið, ef unnt er, hverjar orsakir era til slysanna, en jafnframt getur líf margra manna verið undir því komið, að sú þekking, er slík rannsókn kann að leiða í ljós. verði notuð til hins ýtr- asta til þess að koma í veg fyrir að slysu-m haldi áfram, efir þvf sem mannlegur máttur megnar. iÞessa reynslu verður að not- notfæra tafarlaust, og miðar tíl- laga þessi að því, að svo verði gert. Flm. telja eðlilegast, að löggjöf um þeta verði undirbú- in af fulltrúum frá samtökuim sjómanna og útvegsmanna og á iþan nhátt náist beztur árangur, enda verði nefndinni tryggð að- stoð skipaverkfræðings, er sé formaður hennar. ViSskiptaráðið. Frh. á 7. síðu við var að etja. En samkvæmt upplýsingum V iðskiptamála- ráðuneytisins, biðu um 40 þús. smál. af vörum flutnings frá Ameríku um áramótin 1942— 1943. Af þessu var auðsætt, að fara varð gætilega í veitingu nýrra innflutningsleyfa, ef koma átti í veg fyrir, að vörur héldu áfram að safnast fyrir á afgreiðslustöðum í Ameríku og híða flutnings um lengri tíma og ef takast átti að ná tökum á flutningamálum og færa birgðimar niður í magn það, sem samsvaraði flutninga- möguleikum. Hér var og um það mikið vörumagn að ræða, að úthlutun i ýmsum vöruflokk um mátti telja óþarfa fyrst um sinn. b. Gildandi samninga um inn flutning til landsins. En þegar um áramöt var búið að veita innflutningsleyfi fyrir og festa kaup á öllu því vörumagni í sumum flokkum, er fáanlegt var til 30. júnl 1943, samkvæmt áðurnefndum samningum. c. Ráðstöfun Gjaldeyris- og innflutningsnefndar næsta ár á undan. En á því ári voru leyf- isveitingar mjög rúmar. Inn- flutningur frá Ameríku var ekki heftur verulega og frá Bretlandi mátti heita, að hann væri í rauninni frjáls, einkan- lega síðari hluta ársins. Af þessu leiddí, að allmiklar birgð ir voru hér í landinu af ýmsum vörum, og að miklar vörubirgð- xr lágu á afgreiðslum erlendis og biðu skipsrúms. Af sömu á- stæðum var einnig óvenjul .ga mikið í umferð af leyfum um áramót. 1 mjög mörgum til- fellum höfðu leyfishafar þegar gert ráðstafanír í sambandi við þessi leyfi. Varð því ekki kom- izt hjá að framlengja þau. Að framangreindum atriðum athuguðum, varð stefna V'ý skiptaráðsins sú, að draga fyrst um sinn úr leyfisveitingum fyr- ir öllum vörum, nema brýnum nauðsynjum, þ. e. nauðsynleg- um neyzluvörum og nauðsyn- legum vörum vegna útflutnings framleiðslu. Innflutningur þeirra vara var veittur án tak- markana, eftir því sem hægt var að fá þær. Ennfremur var leitast við að bæta úr nauð- synlegum þörfum innlends iðn- aðar. Gjaldeyrísleyfi til náms og nauðsynlegra ferðalaga voru veitt án veruiegra takmarkana. Jafnskjótt, sem rættist úr mestu flutningaerfiðleikunum, voru gerðar almennar úthlut- anir í ýmsum vöruflokkum, svo sem rafmagnsvörum, búsáhöld- um, skófatnaði, vefnaðarvöru, einstökum byggingarvörum o. il. Á síðast liðnu ári minnkaði innflutningur frá Bretlandi mjög, en óx að sama skapi frá Ameríku. Sumar vörutegundir, sem áður fengust frá Bretlandi, fengust nú aðeins frá Ameríku. Þannig var það t. d. um skó- fatnað og búsáhöld, vefnaðar- vöru að miklu leyti og ýmsa fleiri vöruflokka. > Skipfing innflutningsleyfa á milli innflytjenda hefir löngum verið deiluatriði. Skömmu eft- ir að Viðskiptaráðið tók til starfa, lét það, að fyrirlagi Við- skiptamálaráðuneytisins, safna skýrslum í ýmsum vöruflokk- um um fyrri innflutning og innkaup þeirra aðila, sem ósk- uðu að koma til greina við ú+- hlutun innflutningsleyfa fram- vegis. Skýrslur þessar voru látnar ná til áranna 1938—’42. Var ætlunin að reyna að fá með þessu fastari grundvöll undir skiptingu innflutnings- leyfa, en verið hafði. Skýrslu- söfnun þessari var lokið síðari hluta ársins. Hafa síðan verið gerðar úthlutunarskrár eftir skýrslunum og sumar þeirra þegar verið teknar í notkun nú. Verða skýrslur þessar væntan- ALÞYÐUBLAÐIÐ lega lagðar til gi-undvallar í að- alatriðum við úthlutun leyfa á þessu ári. Að gefnu tilefni skal eftir- farandi tekið fram um innflutn ing ávaxta, bifréiða, leikfanga og skrautvara: Þurrkaða ávexti hefir verið reynt að flytja inn eftir því, sem unnt hefir verið, enda hafa þeir verið fáanlegir hér mestan hluta ársins. Nýja ávexti var ekki unnt að flytja inn fyrri hluta ársins, vegna erfiðleika á flutningum. Þegar rætast fór úr flutningavandræðunum, var komið fram á vor og þótti þá ekki fært að flytja þá, vegna skemmdarhættu. Seint á s.l. sumri veitti ráðið innflutnings- leyfi fyrir um 360 smál. af nýj- um eplum. Komu þau hingað fyxir jólin. Sítrónur hafa verið fluttar inn allt árið. Nú nýlega haí'a veii'ð veitt innflutnings- leyfi fyrir nokkru af þurrkuð- imi, nýjum og niðursoðnum á- vöxtum. Mun Viðskiptaráðið leyfa innflutning ávaxta eftir því, sem skiprúm og aðrar á- stæður frekast leyfa. Viðskiptaráðið veitti engin ný leyfi fyrir bífreiðum s. 1. ár. Á árinu voru þó fluttar inn 95 nýjar fólksbifreiðar, sem Bifreiðaeinkasalan hafði keypt á árinu 1942, fyrir milligöngu Viðskiptanefndar. Einnig voru fluttar inn 70 notaðar fólksbif- reiðar, sem Gjaldeyris og inn- flutningsnefnd hafði veitt inn- flutningleyfi fyrir á árinu 1942. Síðan Viðskiptaráð tók til starfa, hefir það ekki veitt nein ný gjaldeyrisleyfi fyrir leik- föngum, keramikvörum, skraut vörum úr gulli og silfri eða öðrum þeim vörum, sem hægt er að nefna glysvarning og ó- þarfa. Árið 1942 nam heildarinn- flutningurinn kr. 248,02 millj. en árið 1943 nam hann 247,9 millj. Verzlunarjöfnuður var ‘ó'hagstæður s. 1. ár um kr. 14.09 mill. en árið 1942 var hann ó- hagstæður um 47,6 millj. Inn- s'tæður bankanna erlendis hafa hins vegar aukist á árinu um nal. 153,7 millj. króna. Búast má við, að vöruútveg- un frá Ameríku verði nokkru erfiðari á yfirstandandi ári, en verið hefir, og að fleiri vöru- tegundir verði skammtaðar til útflutnings en áður. Viðskiptaráðið hefir látið gera nákvæmlega sundurliðaða áætlun um vöruþörf landsins á þessu árí. Þessi áætlun hefir verið sendi sendiskrifstofum ís- lands í Washington og London, ásamt rökstuddri greinargerð fyrir því, hversvegna hlutað- eigandi vöru er þörf. Má gera ráð fyrir, að áætlun verði höfð til hliðsjónar við úthlutun til íslands í þeim vöruflokkum, sem takmarkaðir verða til út- flutnings. Flutningsviál. Eins og áður er sagt, var talið, að í byrjun ársins 1943 lægju um 40.000 smál. af vör- um í höfnum vestan hafs og biðu flutnings. Þessi vörusöfn- un, sem aðallega hafði til orðið síðustu mánuði ársins 1942, var að skapa öngþveiti í flutnings- málunum, sem varð að ráða fram úr. Jafnframt því, sem Viðskiptaráðið dró úr nýjum leyfisveitingum til vörukaupa Ameríku, eftir því, sem framast var unnt, var reynt að koma skipulagi á vöruflutningana, er tryggði flutninga brýnustu nauðsynja fyrst og fremst og síðan jafnaði aðra vöruflutn- inga, þannig, að ekki þyrfti að koma til þess að þurrð yrði á einstökum vörutegundum, meðan óþarflega mikið kæmi af öðrum. I þessu skyni var gerð skrá yfir allar vörur, er flytj- ast áttu frá Ameríku, þar sem vörurnar voru flokkaðar með tilliti til þess, hve telja mátti þær nauðsynlegar. Þessi skrá var síðan send afgreiðslu Eim- skipafélagsins í New York og lagt fyrir hana að bóka vörur Nesprestakall. Messað í kapellu háskólans kl. 2 á fnorgun. ÚtbreiSið Albvðublaðið.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.