Alþýðublaðið - 25.02.1944, Page 2
<M-P»^PUBLAPIP
Föstndagur 25. februar IMC
Hinn fyrirhugaði Melaskóii.
Myndin er af líkani, gerðu eftir teikningu Einars Sveinssonar arkitekts.
Melasköli
mikil
inn-
fluiningur á
fainaði.
Hvers vegna er
ekki tekin upp
skömmtun?
i
INNFLUTNINGSLEYFI skó
fatnaðar til landsins mink
ar að verulegum mun. Þrátt fyr
ir það telur ríkisstjórnin ekki
nauðsynlegt að taka upp skömmt
un á skófatnaði og verður það
að teljast mjög vafasöm ákvörð-
un.
Til þessa heíir innflutningur
skófatnaðair verið litlum tak-
anörkunum háður, en vegna erf-
iðleika hafa viðskiptaþjóðir okk
ar ekki talið sig geta látið okk-
«r fá hann ótakmarkaðan í
framtíðmni.
Samningar hafa verið gerðir
um þessi mál og hef ir samist svo
'um að við fáum 68.625 pör af
ársfjórðungi, en þetta magn
skiptist þannig:
Verkamannaskór 8100 pör.
Karlmannaskór 13500 pör. kven
skór 22275 pör, baraskór 15750
pör og inniskór, allar tegundir,
9000 pör.
Hefir verið samið um þetta
magn fyrir tvo næstu ársfjórð-
unga. — Til viðbótar er svo
framleitt nokkuð af skófatnaði í
landinu sjálfu, en þegar innflutn
ingur er takmarkaður virðist
nauðsynlegt að taka upp skömmt
.un svo að hægt sé að koma í veg
fyrir hömstrun.
Fjölmenn jarðarför
Jóhanns Þorkeís-
sonar fyrrv. dóm-
kirkjuprests.
TARÐARFÖR Jóhanns Þor-
kelssonar fyrrverandi dóm
kirkjuprests fór fram í gær að
viðstöddu geysimiklu f jölmenni.
Mættu meðal annars margir
prestar.
Jarðað var í gamla kirkjugarð
inum.
í byrjun fundar sameinaðs
þings í gær minntist forseti hins
látna kennimanns, en þingheim
ur reis úr sætum sínum.
og
MafiM haBÉ.ts tisn t&FHÍPnf8M
Einar Sveinsson arkitekt teikn-
aði skólabyggínguna.
H
AFIZT verður handa um
byggingu Melaskóla,
eins og nafnið bendir til verð-
ur hann reistur á melunum,
sunnan Hringbrautar, um 160
metra suður of Reynimel.
Formaður skólanefndarinnar,
Lárus Sigurbjörnsson, skólastjór
inn Arngrímur Kristjánsson,
arkitektinn, sem gert hefir teikn
ingu af þessari stórhyggingu,
Einar Sveinsson og fræðslufull-
trúi bæjarins Jónas B. Jónsson,
kölluðu á blaðamenn í gær til
þess að sýna þeim teikningarnar
og líkan, sem Axel Helgason
hafði gert af skóianum.
Arngrímur Kristjánsson skóla
stjóri lét þess getið sérstaklega
að hann hefði kynnt sér teikn-
ingarnar með aðstoð arkitektar-
ins og yrði hann að segja, að
hann teldi mjög vel séð fyr-
ir öllum þörfum slíkrar stofn-
unar.
Arkitektinn skýrði teikning-
arnar fyrir blaðamönnum og for
maður skólanefndarinnar ræddi
um skólann.
Gáfu þeir eftixfarandi lýsing-
ar á þessum fyrirhugaða skóla.
Skólinn er byggður fyrir skóla
skyld -börn í Skildingarnesskóla
hverfi, sem nú er, þar áð auki
er ætlast til þess, að hann létti
að verulegu leyti af Miðbæjar-
barnaskóla. Tvísettur tekur skól
inn 1300-—1400 börn, en gert er
ráð fyrir að þar verðí til kennslu
1200 börn. Myndi skólinn þá
taka við ca. 800 þörnum sem nú
eru skólaskyld til Miðbæjarskól-
ans, en það þýðir aftur, að Mið-
bæjarskóli gæti létt töluvert af
Austurbæjarskólanum.
Skólahverfi hins nýja skóla
tekur væntanlega til meginhluta
Nessóknar (að Seltjarnarnesi
undanskyldu) og ef til vill nokk
urs hluta Vesturbæjarins. Tak-
mörk annars skólahverfa í bæn-
um myndu svo breytast tilsvar-
andi.
Á skipulagsuppdrætti bæjar-
ins sunnan Hringbrautar er skól
anum ætlaður staður á Melun-
um ca. 160 m. suður af Reyni-
mel og austanvert við götu, sem
stefnir á Elliheimibð við Hring
braut. Á næsta þyggingarreit við
skólann er gert ráð fyrir annari
opinberri byggingu. (Neskirkju).
Skólabyggingin er þríiyft
steinsteypuhús auk kjallara.
Þriðja og efsta hæð hússins er
samt ekki byggð upp úr nema
að okkru leyti, þar sem breiðar
svalir eru framan við kennslu-
stofur á þriðju hæð. Útbygging-
ar eru við skólann að vestan og
austan, önnur er leikfimishús
skólans, en hin er fyrir fata-
geymslu (neðri hæð) og kennara
stofur (efri hæð).
Aðal-leikvangur skólans er
suðaustanvert við bygginguna
og ganga börnin frá leikvangi
inn í hina hringmynduðu við-
byggingu um þrennar dyr. Neðri
hæðin er hólfuð niður fyrir fata-
geymslu og liggur þaðan greið-
ur gangur um veglegan skála,
sem er anddyri hússins, og grein
ast þaðan leiðir barnanna um
stiga og ganga inn í kennslustof-
ur og aðrar vistarverur.
Skálinn er í beinu sambandi
Frh. á 7. síðu
Samkeppninni om teikn-
ingar að Neshirkjn lokið.
Ágúst Pálsson fekk fyrstu verðlaun*
Bárður ísleifsson önnur og Sigurður Guð
mundsson og Eirikur Einarsson þriðju.
SAMKEPPNI um teikningar að hinni fyrirhuguðu Nes-
kirkju er lokið og hefir dómnefndin kveðið upp úr-
skurð sinn. Alls bárust 8 teikningar og hlutu þrjár verð-
laun. Fyrstu verðlaun hlaut Ágúst Pálsson, önnur verðlaun
Bárður ísleifsson og þriðju verðlaun Sigurður Guðmundssom
og Eiríkur Einarsson.
Dómnefndina skipuðu þessir
menn: Dr. Alexander Jóhann-
esson, Jón Thorarensen prestur,
Sigurður Jónsson skólastjóri,
sem er formaður sóknarnefnd-
arinnar, Sigurjón Pétursson
framkvæmdastjóri og Björn Ó1
afsson Mýrarhúsum. — Nefnd-
in ákvað þegar í fyrra að skrifa
félagi húsameistara og biðja
það að tilnefna tvo menn úr
hópi félaga sinna í nefndina.
Varð félagið við því og til-
nefndi þá Gunnlaug Halldórs-
son og Halldór Jónsson. Störf-
uðu þeir með nefndinni og varð
úrskurður allrar nefndarinnar
samhljóða.
Dr. Alexander Jóhannesson
hafði orð fyrir nefndinni, er
hún boðaði blaðamenn á fund
sinn í gær. Sagði hann meðal
annars:
„Flestar kirkjuteikningar til
þessa, hér á landi, hafa verið
gerðar af hinum viðurkennda
húsameistara ríkisins, en nú
var út af þessu breytt. Eftir að
sóknarnefnd Neskirkju hafði
snúið sér til mín og beðið mig
að vera í nefndinni, var ákveð-
ið að efna til opinberrar sam-
keppni um teikningu að kirkj-
unni. Var gefinn ársfrestur og
ákveðið að veita þrenn verð
laun: 7 þúsund, 5 þúsund og 3
þúsund. Alls bárust okkur 8
teikningar og höfum við nú
kveðið upp dóminn. Ágúst Páls-
son fékk fyrstu verðlaun, Bárð-
ur ísleifsson önnur verðlaun og
þeir Sigurður Guðmundsson og
Eiríkur Einarsson fengu þriðju
verðlaun. Við vitum ekki hverj-
ir sendu hinar teikningarnar.
Við erum mjög ánægðir yfir úr-
slitum þessarar samkeppni. All-
ar hugmyndirnar hafa margt
til síns ágætis — og margar eru
mjög fallegar. Ég vil taka það
fram, að nefndin felldi úrskurði
sína einróma.
Frh. á 7. síðu.
Flytt af st|érgiarskráriiefnd neSri desldar.
S
TJÓRNARSKRÁRNEFND lagði fram í neðri deild al-
þingis í gær frumvarp til laga um réttindi danskra ríkis-
borgara á íslandi. í greinargerð fumvarpsins segir, að það sé
samið að tilhlutun skilnaðarnefndar sameinaðs þings og
stj órnarskrárnefnd beggja deilda í samvinnu við dómsmála-
ráðherra.
Frumvarp þetta stendur í sam
bandi við afgreiðslu skilnaJðar-
málsins og lýðveldisstjómar-
skrárinnar. Skulu lögin öðlast
gildi samtímis þingsályktuartil-
lögunni um niðurfellingu sam-
bandslagasáttmálans.
Frumvarpið er svohljóðandi:
„Þeir, er danskan ríkisborg-
ararétt hafa öðlazt samkvæmt
þeim reglum, er þar um giltu
fyrir 9. apríl 1940, eða öðlast
hann síðar eftir áðurnefndum
reglum, skulu hér á landi njóta
þess jafnréttis við íslenzka rík-
isborgara, er þeim var áskilið í
6. gr. sambandslaga íslands og
Danmerkur 30. nóv. 1918, fyrst
um sinn, þar til 6 mánuðum
eftir að samningar um það mál
geta hafizt milli íslands og
Danmerkur.“
Sameieiað þing:
Skilnaðariillögunni
vísað lil 2. umræðn.
U RAMHALD fyrri um-
ræðu um tillögu til
þingsályktunar um niðurfell
ingu dansk-íslenzka sam-
bandslagasamnings fór fram
í sameinuðu þingi í gær. Varð'
umræðunni lokið og kom því
næst til atkvæða breytingar
tillaga skilnaðamefndar. Var
hún samþykkt með samhljóða
atkvæðum og tillögunni síð-
an vísað til 2. umræðu með'
43 samhljóða atkvæðum.
Umræður um málið urðu
ekki miklar á þessu stigi. Til
máls tóku: Bjarni Benediktsson,
Einar Arnórsson dómsmálaráð-
herra og Stefán Jóhann Stefáns;
son.
Bjarni Benediktsson var fram
sögumaður skilnaðarnefndar.
Mælti hann fyrir breytingartil-
lögu og áliti nefndarinnar og
rakti auk þess nokkuð baráttu
íslendinga fyrir sjálfstæði sínu
og eðli og innihald sambands-
lagasamningsins.
Stefán Jóh. Steíánsson kvað,st
ekki þurfa að fjölyrða um mál-
ið á þessu stigi. Hann hefði í:
upphafi umræðunnar látið f
ljós þá skoðun, hvílík höfuð-
nauðsyn væri á því, að íslend-
ingum auðnaðist að standa sam-
an um lausn þessa mikilvæga
máls, svo og, að farið væri að
lögum um niðurfelling sam-
bandslagasáttmálans. í skilá-
aðarnefnd hefir nú náðst sam-
samkomulag, sem ég get Vel
unað, sagði Stefán Jóhann. Og
það má án efa gera ráð fyrír,
að í þjóðaratkvæðagreiðslunni
fáist sú þátttaka, er sambands-
lögin tilskilja, þegar allir flokk-
ar þingsins hafa bundizt sam-
tökum um að beita áhrifum
sínum í þá átt. Og ég vil láta í
ljós þá ósk og von, sagði Stefán
Jóhann að lokum, að atkvæða-
greiðslan fari fram með þeirri
festu og myndarskap, að þjóð-
inni megi verða til sæmdar, og
efla aðstöðu hennar út á við.
SkðmitBn ðkveðÍR ft
kalfibæti.
AKVEÐIÐ hefir verið að
taka upp skömmtun á kaffi
bæti. Fylgir það fregninni að
skömmtunin gildi um þann kaffi
bæti, sem til sé í landinu, en
enginn kaffiibætir hefir fengist
undanfarið, eins og kunnugt er.
Er ætlast til að hver einstak-
lingur, sem orðinn er 12 ára fái
125 gr. af kaffibæti...