Alþýðublaðið - 25.02.1944, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 25.02.1944, Blaðsíða 5
Fösiudagur 25. febrúar 1944. ALÞYOUBLAÐIÐ * Pfisfcr 'y- ■ - '' . . . . _ Mynd þessi er af sérstæðri leiksýnmgu aftien.sKra skóladrengja. Einn þeirra leikur Churcnill forsætisráðherra Breta og hefir hann Adolf Hitler í bandi. Annar leikur Roosevelt forseta og hefir hann Tojo í þandi. Má af þessu glöggt ráða það, hvernig æskuna í Yesturheimi dreymir um að atyrjöldinni lykti. EndtiEminningar frá Persiu. ÞEGAR blöðin gera Iran að umræðuefni, vitjar endurminningin um Persíu jafan huga míns. Það er aðeins skammt um liðið eftir að hið forna nafn var lagt niður og hið nýja valif). En nafnið Iran lætur ókunnuglega í eyrum okkar. Pería er aftur á móti gamalkunnugt orð, sem á sér mikla sögu, enda er þess víða getið í fornum ritum og af mikil hæfum snillingum. Við það eru tengdir fornir sögustaðir og nöfn manna, sem hátt hafa borið í veraldarsögunni. Þeg- ar það hljómar í eyrum okkar, reikar hugurinn til fortíðai- innar, sem sveipuð er dul og dulmögnum, ævintýrum og furðusögnum. Ég leyfi mér því jafnan, að nefna land það, sem nú ber heitið Iran, hinu forna heiti þess. Persía er mér kær og við hana á ég margar hugljúf- ar endurminningar tengdar, því að þar dvaldist ég þrjá ein- hverja hina sælustu og Ijúfustu mánuði ævi minnar. Nú eru nær fimmtán ár liðin síðan ég sá til hinna fögru Elburzfjalla úr loftinu yfir Kaspíahafinu. Fegurð landlagsins í Persíu, glæsileiki borga hennar, hið milda loftslag hennar og góð- vinir þeir, sem eg eignaðist þar valda því, að ég á mér margar Ijúfar endurminningar þaðan. Margir ímynda sér, að Persía sé aðeins land ferskjutrjánna og rósanna, næturgalanna og mánaskinsins, enda þótt slíkir menn sem Curzon, Sykes og Arnold Wilson hafi lýst landi þessu og þjóð á skilmerkileg- an hátt í ágætum ritum. En raunverulega er Persía, sem er tólf sinnum stærri en England, mest megnis eyðdmörk, þar sem borgirnar eru eins konar vinjar. Mestur hluti landsins eru sléttur, og sumar þeirra liggja í allt að sex þúsund feta hæð yfir sjávarmáli. Þar em hörkufrost og mikið fannkingi á vetrum. Á sumrin er þar aft- ur á móti óbærilega heitt um daga en þægilega svalt um nætur. íbúarnir hafa mikið yndi af blómum, enda hafa þeir getið sér mikinn orðstír sem garðyrkjumenn. — Af sléttum þessum rísa svo ein- stök háfjöli. Það er því mikl- um erfiðleikum háð að ferðast yfir þvert landið, nema þá loft- leiðis. Fjarlægðirnar milli borganna eru miklar. Sú endur minning ferðamannsins, sem GREIN ÞESSI, sem er eft- ir Raymond Mortimer og hér þýdd út tímaritinu World Digest, fjallar um hið forna og sögufræga land Persíu, sem nú hefir verið skírt upp og nefnt Iran. Mun lesendum þykja fróð- legt að lesa endurminningar höfundarins frá þessu fjar- læga landi, þar sem hann hcfir ferðazt um og kynnzt landi og þjóð. verður honum að líkindum ríkuSt í minni, er frá einhverju þorpinu við þjóðveginn og þá helzt að náttarþeli, þegar hann elur aldur sinn í herbergi, þar sem engin húsgögn getur að líta, en ábreiður prýða hins vegar gólf og veggi og verið er að framreiða kjúklinga, sem slátrað hefir verið til þess að búa gestinum sem ljúffengast- an málsverð. Te er þjóðar- drykkur Persa, en Shirazvínið, sem raunar hefir verið bann- að vegna krafna Múhammeðs- trúarmannanna, er vissulega drykkur, sem verður er frá- sagnar. Að morgni heldur ferða langurinn svo ferðinni áfram eftir hinu fagra landslagi, og sagan um gistrisnina og alúð- ina endurtekur sig kvöld eftir kvöld. Og hin fögru, bláu fjöll og tign umhverfisins tekur hug hans fanginn. * FERÐAMANNI þeim, sem lesið hefir Þúsund og eina nótt, kemur allt það harla kunnuglega fyrir sjónir, sem blasir við augum hans á leið- inni frá Khanikin til Teheran eða frá Teheran til Shiraz. Landslagið á leið þessari er eitthvað hið fegursta og eftir- minnilegasta, sem ég hefi aug- um litið. Maður kynnist hinni mikilfenglegu náttúru Asíu og hreysti og harðfengi fólksins, sem landið byggir. Manni verð- ur innan brjóst eins og maður gisti heim ævintýra og furðu- sagna. Maður fær staðfestingu á því, sem maður las hugfang- inn um í æsku. Raunar eru þó borgirnar í Persíu ekki eins glæsilegar og borgirnar í Mar- okkó. Klæðaburður fólksins þar er ekki eins sérkennileg- ur og klæðaburður Máranna, og eftir að ég dvaldist þar hefir þetta þó enn breytzt því að Persar hafa mjög tamið sér klæðaburð Evrópumanna eftir það. ❖ EVRÓPUMÖNNUM þeim, sem eru því andvígir, að þjóðir Austurlanda taki upp siði og háttu Evrópu, er jafnan borin íhaldssemi á brýn. Ef til vill er það íhaldsemi að leggja á móti því að fornir siðir og hættir séu lagðir niður. Mér finnst persónulega jafnsjálf- sagt að leggja á móti því, að þjóðir eins og Persar og Tyrk- ir taki upp siði og háttu Evrópu manna og því, að hætt verði að sýna sögustöðum heimalands míns ræktarsemi þá, sem skylt er. Drottnarar eins og Ataturk og Reza Shah halda því fram, að sjálfstæði lands þeirra sé ekki hvað sízt undir því komið, að þjóðin tileinki sér hinn nýja tíma. Ég er hins vegar á ann- arri skoðun. Ég hefi litla trú á því, að þjóðir eins og Tyrkir og Persar geti orðið iðnaðar- þjóðir í líkingu við Breta eða Þjóðverja. Hins vegar er sjálf- stæði þjóða sem þeirra mikið undir því komið, að unnt reyn- ist að koma nýrri skipan á al- þjóðamálin eftir stríð, hvaða leiðir sem farnar kunna að verða að því takmarki. En þær skyldur varast það að fórna þjóðareinkennum sínum fyrir ,,menningu“, sem ef til vill reynist þeim fremur til óheilla en heilla. Yið Evrópumenn ætt- um að geta borið manna bezt um það, hvort allt muni vera fengið með hinni nýju öld vél- anna og iðnaðarins. Við höfum að sönnu fengið margt, en höf- um jafnframt orðið að fórna miklu, fara mikils á mis. Þessa hefir gætt á ýmsum sviðum og ef til vill ekki hvað sízt í skáld- skap Evrópumanna hina síð- ustu áratugi. Því verður ekki neitað, að mikill er munurinn á samtíðarbókmenntunum og bókmenntum eins og Þúsund og einrii nótt. Ekki get ég varizt því, að ég hefi meiri mætur á slíkum skáldskap en harmasöng samtíðarskáldanna, þótt raunar sé þar um að ræða bókmenntir fjarlægra landa, þar sem gætir áhrifa annarra trúarbragða en þeirra, sem við játumst. Því er þó ekki að neita, að Frh. af 6. síðu. Deilt á útvarpsráð — Kvöldviaka og föstumessa — Gripirnir, sem okkur voru gefnir — Hvar eru þeir- — Fornritaútgáfan, — ÓSir tímar. MÉR ÞYKIR undarleg sú fram- koma útvarpsráðs, a® gjör- breyta svo dagsKrá útvarpsins á miðvikudagskvöld, eíns og gert var. Að leikritakvöldum útvarps- ins undanskildum eru kvöldvöku- kvöldin viusælust og tugir þús- unda manna búa sig sérstaklega undir það að geta hlustað á kvöld- vökurnar. í fyrrakvöld átti þjóð- kórinn að syngja, og auk þess átti að i'Iytja erindi eftir alþýðukonu um ferðalag til Reykjavíkur fyrir 50 árum. Svona efni er mjög vin- sælt, og útvarpsráð lét tilkynna á miðvikudagsmorgunin að þannig yrffi kvöldvakan. EN HVORUGX þetta var fiutt. í stað þess var föstumessa sett í dagskrána, en hinu alveg útrýmt. Þetta er alveg óþolandi og þann- ig getur útvarpráðs ekki leikið sér að hlustendum. Þetta er fyrsta guðsþjónustan á föstunni. Ég veit að allmargir hlusta á guðsþjónust- ur og það er vitanlega sjálfsagt að flytja slíkt efni í útvarpið, enda hægt að flytja föstumessu s'ðar En útvarpsráði hlýtur að hata ver- ið ljóst fyrir löngu, að fyrsta föstu- messan yrði flutt þetta kvöJd — og þá átti að ætla henni rúm i dagskránni. En að sitja hana tnn í dagskrána fyrirvaralaust, -vona eins og gert var í fyrrakvöld, nær ekki nokkurri átt. Ég vil hafa föstumessurnar á sínum stað og kvöldvökurnar á sínum stað. Þessi óþolandi ruglingur og leikaraskap- ur með hlustendur nær ekki nokkurri átt. ANNARS VIL ÉG vekja athygli á því, að þó að sjálfsagt sé að ætla guðsþjónustum og sálmasöng ríf- legt rúm í dagskrá útvarpsins, þá á ekki áð auka það endalaust og láta slíkt ganga æ meira út vfir annað efni, sem telja verður mjög gott í útvarpinu. Hvert efni sinn skamt. Ef þetta verður ekki gert, þá vinnur útvarpsráð, ekki aðeins að því að minnka vinsældir út- varpsins, heldur eykur það og um leið á andúð gegn því að messur séu fluttar í útvarpið. Og það hygg ég þó að ekki sé tilgangurinn. ÉG GÆTI VEL trúað því, að þessi orð mín yrðu notuð til þess að stimpla mig sem andstæðing guðsþjónustuflutnings í útvarpinu. Það væri alrangt, en ég vil hins vegar ekki að guðsþjónusturnar hafi meira rúm en þær hafa nú þegar, því að mér virðist, sem þeim hafi verið gefinn tími, sem sé mjög sómasamlegur, og ég hygg, i að hann fullnægi alveg þrám þeirra, sem unna messunum og sálmasöngnum. ÉG VIL taka undir það með kollega mínum, sem minntist á dýrgripina, sem okkur voru gefn- ir árið 1930. Hvar eru þeir geymd- ir? Hvernig fer um þá? Það er ákveðið að efna til mikilla hátíða- halda þegar lýðveldi verður stofn- að og ríkisstjórnin mun vera í þann veginn að skipa nefnd til þess að undirbúa þesi hátíðahöld. Væri ekki tilvalið að safna öll- um þessum munum á einn stað og ætla þeim eitthvert rúm í þessum hátíðahöldum? Mér finnst að það ætti við, að þeir yrðu hafðir til sýnis fyrir almenning. Hvemig stóð á því, að ekki voru birtar myndir af þeim öllum í bókinni um Al- þingishátíðina, sem út kom fyrir jólin? Það skyldi þó ekki vera, að eitthvað af þeim væri tapað? ÚTGÁFA FORNRITA færist mik ið í vöxt. Um jólin kom út fyrsta bindið af Fornaldarsögum Norð- urlanda. Sú bók var mikið keypt, seldist upp að svo miklu leyti, sem hægt var, en þá var ekki hægt að fá nógu mikið af bókinni bund- ið, en enginn vill eiga svo merka bók óbundna. Úr þessu mun nú vera að rætast. FYRIR NOKKRUM dögum var tilkynnt, að Flateyjarbók myndi koma út á þessu ári í fjórum bind- um og mjög til þeirra vandað. Sig- urður Nordal ritar formálann. Og nú tilkynnir Helgafellsútgáfan að hún ætli að gefa út á þessu ári Heimskringlu Snorra Sturlusonar í tveimur bindum, sem bæða koma í einu. ÞESSI ÚTGÁFA öll gleður mig. Að vísu verða þessar bækur mjög dýrar og hætt við því, að menn eigi erfitt með að eignast þær. En hér er um mikil rit að ræða og gott er að unga kynslóðin fái tæki- færi til þess að kynnast þessum fornritum. Þau geta verið okkur styrkur og stoð á þessum óðu tím- um. Hannes á horninu. vantar okkur frá næstu mánaðarmótum til að bera blaðið um BræSrafoorgarstíg og HvefSsgöfsi. HÁTT KAUP Álfiýðublaðið. — Sími 4900.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.