Alþýðublaðið - 25.02.1944, Side 7
Föstudagur 25. febrúar 1944,
ALÞYÐUBl 'nm
^Bœrinn í dag. |
»<&®0©<3>03X3><3
Næturlæknir er í Læknavarð-
stofunni, sími 5030:
Næturvörður er í Ingólfsapóteki.
Næturakstur annast Litla bíla-
stöðin, sími 1380.
ÚTVARPIÐ:
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
18.30 íslenzkukennsla, 1. flokkur.
19.00 Þýzkukennsla, 2. flokkur.
19.25 Þingfréttir.
19.50 Auglýsingar.
20.00 Fréttir.
20.30 Útvarpssagan: ,,Bör Börs-
son“ eftir Johan Falkberget,
VIII (Helgi Hjörvar).
21.00 Pianokvartett útvarpsins:
Pianó-kvartett í g-moll eft-
ir Mozart.
21.15 Fræðsluerindi Stórstúkunn-
ar: Frá sjónarhóli lögregl-
unnar (Agnar Kofoed-Han-
sen lögreglustjóri).
21.40 Spurningar og svör um ís-
lenzkt mál (Björn Sigfús-
son).
21.55 Fréttir.
22.00 Symfóníutónleikar (plötur):
a) Fiðlukonsert í a-moll eft-
ir Prokoffieff. b) Symfónía
eftir Szostakowics.
23.00 Dagskrárlok.
Alþingi palkar Þjóð-
rækaisfélaginn vest-
an hafs.
VEGNA 25. ára afmælis
Þjóðræknisfélagsins í Vest
urheimi sendu forsetar alþingi.
Richard Beck forseta Þjóðrækn
isfélagsins svohljóðandi skeyti:
„í nafni alþingis sendum vér
félaginu árnaðaróskir með þökk
fyrir 25 ára starfsemi í þágu
íslends og íslenzkrar menning
ar.“
í gær barst forsetum alþingif
svohljóðandi skeyti:
„Alúðarþakkir til yðar og al
þingis fyrir heillaskeyti, kveðjur
og árnoðaróskir. Þjóðræknisfé-
lagið — Beck forseti.‘
Félagslil.
GuSspekifélagið
Aðalfundur Reykjavíkur-
stúkunnar verður í kvöld
kl. 8,30.
Erindi flutt.
Félagar beðnir að fjölmenna.
Skíðadeildin
Skíðaferðir að Kolviðarhóli á
Laugardaginn kl. 2 og kl. 8 ef
fært er. Farmiðar í ÍR-húsinu í
kvöld kl. 8—9.
Ásunnudag verður farið kl. 9
Farmiðar seldir í verzl. Pfaff
Skólavörðustíg á laugardag kl.
f. h. Ekið eins langt og fært er.
12—3.
Freyjufundur í kvöld kl. 8V2
G.T.-húsinu niðri. *
Endurinntaka.
Inntaka nýliða.
Upplestur o. fl.
Fjölmennið stundvíslega.
Æðstitemplar.
Ríkisstjóri ísalods á-
sarpar piag pjóð-
ræknisfélagsins.
Gleði meðai Vestur ís'endioga
yfir heimsókn blskups.
C VEINN BJÖRNSSON
^ ríkisstjóri sendi þingi
Þjóðrækniáfélags Vestur-ís-
lendinga ávarp á talplötu og
fór herra biskupinn með
hana vestur.
í gær fékk Alþýðublaðið eft-
irfarandi tilkynningu um komu
biskups vestur og ávarp ríkis-
stjóra.
„Ríkisstjóra hefir borist svo-
hljóðandi símskeyti:
„Heimsókn biskups söguleg-
ur viðburður. Ávarp hans til
þingsins og kveðjuávarpi yðar
af hljómplötu var tekið með
miklum fögnuði. Erum dnnilega
þakklátir fyrir kveðju yðar og
þjóðarinnar. Þjóðræknifélagið
Beck forseti.11
Ríkisstjóri hafði talað á hljóm
plötu stutt kveðjuávarp til
þings Þj óðræknisf élagsins en
bikup flutti hljómplötuna vest-
ur.
Enn fremur sendi ríkisstjóri
þinginu árnaðaróskir símleiðis.
Ávarpið á hljómplötunni var
svohljóðandi:
„Kæru landar vestan hafs.
Ungur átti ég í föðurhúsum
kost á því að sjá einstaka Vest-
ur-íslendánga, sem komu hing-
að til lands í heimsókn. Mér
fannst þá flestir þeirra vera
eins og útlendingar.
Árið 1913, þegar verið var
að undirbúa stofnun Eimskipa-
félagsins, komu hingað í um-
boði Vestur-íslendinga nokkr-
ir menn að vestan. Erindi þeirra
var að ræða við okkur á hvern
hátt landar okkar handan hafs-
ins gætu rétt hjálparhönd til
þess að koma í framkvæmd
þessu þjóðþrifafyrirtæki, sem
þá var talið Grettistak fyrir
okkar fámennu og fátæku þjóð.
Þá fann ég að Vestur-íslend-
ingar voru ekki útlendingar.
Þótt þeir væru borgar í öðru
landi var hugur þeirra hér
heima og umhyggja þeirra fyr-
ir velferð íslands engu minni
en okkar hér á íslandi.
Fyrir 25 árum stofnuðu þið
þjóðræknisfélagið í því skyni
að halda uppi á virkan hátt
rækt við ísland, íslenzka menn-
ingu og tungu. Félagið hefir
unnið að þessu sleitulaust síð-
an í aldarfjórðung og sýnir ekki
á sér nein ellimörk. Þið Vestur-
íslendingar urðuð löngu á und-
a-n okkur á íslandi um að skipa
fylkingu um þjóðleg, íslenzk
verðmæti.
Ég sé í huga mér fjölda á-
gætra Vestur-íslendinga
istáeyma úr mörgum áttum,
suma um langan veg, til árs-
þings félagsins. Það eru hvorki
vonir um glys, veraldarauð né
eitthvað annað, sem í askana
verður látið, sem' draga ykkur
til þessa fundar. Það er taug,
sem er miklu dýrmætari. Hún
er spunninn af sama toga, sem
sú hin ramma taug „er rekka
dregur fÖðurtúna til.“
Þið hafið gert ísland stærra
og verið okkur íslendingum hér
heima til heilbrigðrar áminn-
ingar um skyldu okkar við þjóð-
leg verðmæti. Þetta hlýjar okk-
ur um hjartaræturnar.
Hafið þúsundfaldar þakkir
fyrir.
í nafni íslenzku þjóðarinnar
færi ég Þjóðræknisfélaginu hug
heilar árjnaðaróskir á 25 ára
afmælinu. Og þeim óskum
fylgja alúðarkveðjur til ykkar
allra, hvers einstaks."
Hinn nýi Melaskóli.
Frh. af 2. síðu.
við leikfishúsið, en auk þess er
sérinngangur í það utan frá.
í kjallara hússins eru kennslu
stofur fyrir matreiðslu, smíðar
og annað verklegt nám. Þar eru
og salerni og snyrtiherbergi fyr-
ir drengi og stúlkur. íbúð um-
sjónarmanns er í suðaustur
horni byggingarinnar í kjallaran
um, 3 herbergi og eldhús.
Á fyrstu hæð eru 7 kennslu-
slofur og lækna- og hjúkrunar-
herbergi skólans. Kennslustofur
á fyrstu hæð eru ætlaðar yngstu
börnunum og er sérinngangur
fyrir þau frá leikvangi þeirra,
sem er suðvestan við bygging-
una og aðgreindum frá aðalleik
vangi.
Á annari hæð eru <11 kennslu-
stofur og áhaldaherbergi.
Á þriðju hæð eru 4 kennslu-
stofur og aðalsamkomusalur skól
ans. Frá þessum stofum og sam-
komusalnum er gengt út á sval-
ir skólans. Tilætlunin er, að í
þessum stofum fari fram fram-
halds-kennsla á vorin.
Samkomusalur verður þann-
ig útbúinn að þar geta farið fram
leikfimi yngstu baranna og
hafa þau sér búningsherbergi
og böð.
í skólanum verða þannig 22
kennslustofur og auk þeirra 5
stofur fyrir verklegt nám í kjall
ara.
Vel er séð fyrir skólastjóra
og kennurum hvað húsrúm
snertir í efri hæð hinnar hring-
mynduðu útbyggingar.
í leikfimishúsi skólans er sal-
ur 10x20 m. að innanmáli með
tilheyrandi búningsherbergj um
og böðum o. fl. Auk þess er gert
ráð fyrir að byggja útisundlaug
með sóibyrgi og fatageymslu á
skólalóðinni við leikfimishúsið.
100 þús. kr. í sjóðí
iii Lelkfimishúss
Kvennáskóians.
VT EMENDASAMBAND
Kvennaskólans hefir nú
þegar safnað rúmlega 72 þúsund
krónum til byggingar leikfim-
ishúss fyrir Kvennaskólann.
Bæjarstjórn Reykjavíkur hefir
og veitt kr. 30 þúsund til bygg-
ingarinnar á síðustu fjárhagsá-
ætlun. Mun verða hafizt handa
um bygginguna eins fljótt og
fært þykir.
Aðalfundur nemendasam-
bandsins var haldinn í fyrradag
og var hann fjölsóttur. Stjórn
sambandsins var endurkosin, að
undantekinni Mörtu Pétursdótt-
ur, sem var kosin meðstjórn-
andi í stað Guðrúnar Markús-
dóttur, en hún baðst undan
endurkosningu. Stjórn félags-
ins er nú skipuð sem hér segir:
Laufey Þorgeirsdóttir form.,
Aðalheiður Kjartandóttir ritari,
Þorgerður Þorvarðardóttir gjald
keri, Soffía Ólafsdóttir og Marta
Pétursdóttir. — Endurskoðend-
ur voru kosnir: Ragnheiður
Jónsdóttir og Sesselja Sigurðar
dóttir, formaður skemmtinefnd
ar Sigríður Þórðardóttir og’ for-
maður fjáröflunarnefndar Sig-
ríður Briem, sem var endur-
kosin.
Innilegar þakkir fyrir vottaða samúð og vinsemd við fráfall
og jarðarför föður míns,
J
Gunnars Einarssonar,
fyrverandi kaupmans.
Fyrir hönd batrna hins láta og annara aðstandenda.
Friðrik Gunnarsson.
Konan mín, móðir okkar og dóttir,
Anna Guðmundsdótiir,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni, laugardaginn, 26. þ. m.
Húskveðja hefst á heimili okkar, Baugsveg 29, kl. IV2 e. h.
Lárus Jónsson og börn.
Júlíana Sveinsdóttir. Guðmundur jónsson.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
ogföður okkar,
Ásgríms M. Sigfússonar framkvæmdastjóra.
Ágústa Þórðardóttir og böm.
Verkakvennafélagið Framsókn
er á þrítugasta ári sínu. Þetta
misprentaðist í blaðinu í gær.
Barnakórinn „Sólskinsdeildin“,
með aðstoð yngri kórsins, börn-
um 5—10 ára, efnir til söng-
skemmtunar í Nýja Bíó á sunnu-
daginn kemur kl. 1.30 — Allur á-
góðinn rennur til barnaspítala-
sjóðs Hringsins.
Trésmiðafélag Reykjavíkur
heldur aðalfund sinn í Baðstofu
iðnaðarmanna á morgun kl. 3.30.
Til umræðu verður húsbyggingar-
mál.
Neskirkja.
Framhald af 2. síðu.
Við gerðum þær kröfur, er
yið efndum til samkeppninnar,
að kirkjan yrði stílhrein og
fögur, að hún tæki a. m. k. 400
manns í sæti og yrði rúmgóð,
auk þess yrði gert ráð fyrir
kapellu fyrir allt að 150 manns,
þá skyldi einnig gert ráð fyrir
lestrarsal, kaffistofu, prestsher-
bergi o. fl.
Ég vil taka það fram, að enn
er ekki ákveðið eftir hvaða
teikningu verður byggt.
Um kirkju Ágústs Pálssonar
vil ég aðeins segja það, að teikn
ingin er mikil nýjung hér á
landi. Er hún fyrst og fremst.
iniðið við notkunarhæfileika.
Kirkjan á að snúa frá vestri til
austurs og rís upp í 20 metra
hæð. Hún getur tekið 600—700
manns. Hún er áætluð að vera
um 6 þúsund kúbikfermetrar,
og lauslega er áætlað, að hún
kosti um 1 milljón króna. Allar
þessar teikningar verða til sýn-
is á föstudag, laugardag og
sunnudag kl. 4—7.“
Ágúst PálSson lét fylgja
teikningu sinni skriflega lýs-
ingu. í henni segir meðal ann
ars um kirkjuna að utan:
„Eldri form og hlutföll í
kirkjubyggingmu eru ekki not-
uð, þótt fögur séu, nema þar,
sem þau eiga rétt á sér, en það
verður lítið áberandi vegna
þess, að önnur sjónarmið eru
ráðandi, eins og fyrr segir. Hér
er áherzla lögð á að form kirkj-
unnar segi til sín, bæði inni og
úti.“
Enn fremur segir arkitekt-
inn:
„Ég hefi hagað lögun kirkj-
unnar fyrst og fremst með til-
liti til þess, að hljómflutningur
og áhrif birtu fái sem bezt not-
ið sín. Allt, sem snertir guðs-
þjónustu, fer fram í kórnum.
Hið hækkandi loft gerir það að
verkum, að það, sem gerist í
kórnum, ræða, tón og söngur,
heyrist jafnvel, hvar sem er í
salnum. Jafnframt hefi ég gef-
ið veggjum salsins þá Iögun, að
hósti eða önur slík hljóð frá
kirkjugestum, berast tæplega
inn í kórinn. — Aftan við pré
dikunarstólinn er skábretti til
að beina tali prestsins sem bezt
fram til áheyrenda.
Hið síhækkandi loft, og hið
mikla ljóshaf, sem leikur um
kórinn, gefa honum tignarlegan
og áhrifamikinn svip, og draga
athygli að því, sem fer þar
fram. Aftur á móti hefur salur-
inn dempaða birtu aftan til.
Ný vísindi skapa ný efni, en
þetta hlýtur aftur að leiða til
þess, að ný form verði til. Því
fyrr sem vér lærum að þekkja
og viðurkenna þann sannleika,
þeim mun örari verður fram-
þróunin á sviði byggingarlistar-
innar,sem er einn hinn mikils-
verðasti þátturinn í framþróun
meningarinnar. “
Því miður var engin 1 jós-
mynd til af þeim teikningum, er
fengu verðlaun.
Meistarakeppni í
Bridgefélagimi.
Aíís taka 8 sveitir
þátt í keppninni.
]MJ EISTARAKEPPNI Bridge
iwj. félags Reykjavíkur hefst
næstkomandi sunnudag kl. 1.30
að Hótel Borg. Alls taka 8 sveit-
ir þátt í keppninni .
Éru sveitirnar þannig skip-
aðar: .
1. Sveit Gunnars Guðmunds-
sonar (Lárus Karlsson, Bene-
dikt Jóhannsson, Árni M. Jóns-
son).
2. Sveit Lárusar Fjeldsted
(Pétur Magnússon, Guðmundur
Guðmundsson, Brynjólfur Stef-
ánsson).
3. Sveit Harðar Þórðarsonar
(Einar Þorfinnsson, Torfi Jó-
hannsson, Gunnar Pálsson).
4. Sveit Stefáns Þ. Guð-
mundssonar (Helgi Guðmunds-
son, Sigurhjörtur Pétursson,
Óli Hermannsson).
5. Sveit Axels Böðvarssonar
(Helgi Eiríksson, Stefán Stef-
ánsson, Einar B. Guðmundsson).
6. Sveit Ársæls Júlíussonar
(Baldur Möller, Þorgeir Stein-
þórsson, Magnús Björnsson).
7. Sveit Brands Brynjólfs-
sonar ( Ingólfur Isebam, Ing-
ólfur Guðmundsson, Eggert
Hannah).
8. Sveit Gunngeirs Péturs-
sonar (Örn Guðmundsscn,
Skarphéðinn Pétursson, Einar
Ágústsson).
Keppninni stjórna þeir Pétur
Sigurðsson, Árni Snævarr og
Gunnlaugur G. Björnsson. Öll-
um er heimill aðgangur. Félags-
menn fá ókeypis aðgang, enda
sýni þeir skírteini við inngang-
inn. Gengið er inn um suður-
dyrnar. Spilaðar verða 7 um-
ferðir, þar af 4 á Hótel Borg,
en 3 úti í bæ.
„Hreyfill“,
bifreiðastjórafélagið, heldur árs-
hátíð sína næstkomandi mánudags
kvöld í Oddfellowhúsinu.