Alþýðublaðið - 21.03.1944, Blaðsíða 7
%
Maðurinn minn og faðir okkar,
Sigurgeir Þórðarson,
andaðist á Landssptalanum 19. marz s. 1. v
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Sigríður Erlendsdóttir og börn.
Jarðarför
tCristJáns Sigurðssonar
hefst með húskveðju að heimili hins látna, Bergstaðastrœti 28 B.,
kl 2 e. h., miðvikudaginn 22. marz.
Jarðað verður frá Dómkirkjunni.
Aðstandendur.
Þriðjudagur 21. marz 1944.
^ ii !■■■«■■ m iii iii i—■■ I I 11.11 i i
ÍBœrmn í dag.|
Næturlæknir er í nótt í Lækna-
varðstofunni, sími 5030.
NæturvÖrður er í Ingólfsapó-
teki.
Næturakstur aniiast Bifreiða-
stöð íslands, sími 1540.
ÚTVARPIÐ:
12.10.—13.00 Hádegisútvarp.
13.00—15.00 Bænda- og hús-
mæðravika Búnaðarfélags-
ins: Ýmis erindi.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
18.30 Dönskukennsla, 2. fl.
19.00 Enskukennsla, 1. fl.
19.25 Hljómplötur: Lög úr óper-
ettum og tónfilmum.
20.00 Fréttir.
20.30 Erindi: Eistland og Eystra-
salt (Knútur Arngrímsson
kennari).
20.55 Tónleikar Tónlistarskólans:
Svíta í G-dúr fyrir celló,
eftir Joh. Seb. Bach (dr.
Edelstein).
21.15 Erindi bænda- og hús-
mæðlravikui Búnaðarfélags-
ins: Um byggingarefni og
byggingamál (Jóhann F.
Kristj ánsson arkitekt).
21.40 Hljórpplötur: Norðurlanda-
söngvarar.
21.50 Fréttir.
Hjónaband.
í dag verða gefin saman í hjóna-
band af séra Bjarna Jónssyni, ung-
frú Steinvör Fjóla Steingríms-
dóttir, Fossvogsbletti 6 og Jóhann-
es R. Jóhannesson, Vitastíg 3.
Skfðamót á Akorejrri
á sunnndag.
Frá fréttaritara Alþýðu-
'blaðsins á Akureyri.
FYRiRI hluti skíðamóts Ak-
ureyrar fór fram við Dauðs
mannshóla á sunnudaginn.
Keppt var í þremur flokk-
um í svigi karla. Keppt var um
svigmeistarabikar Akureyrar.
Hlutskarpastur varð Magnús
Brynjólfsson (K. A.). Fyrstur
varð í B-flokki Guðmundur Guð
mundsson (K. A.), fyrstur í C-
flokki varð Vignir Guðmunds-
son (Þór). K. A. vann svigbikar
Akureyrar til eignar fyrir bezta
fjögurra manna sveit.
Skíðamótið heldur áfram
næsta sunnudag. Keppt verður
í bruni karla, svigi drengja 13—
16 ára, kvennasvigi og göngu
karla og unglinga.
Hafr.
Kemisk hreinsun. -
Fafapressun.
Áyalt fljótt og vel af hendi
leyst.
Fatapressun
P, W Biérsng.
Afgreiðsla Traðarkotssundi 3.
Sími 5284.
(Tvílyfta íbúðarhúsið).
Bióma- og matjurta-
fræið
er komið.
Blómabúðin Garður
Garðastræti 2. — Sími 1899.
Úlbreiðið AlþýðublaSiS.
Skíðamót á Siglufirði.
Keppt I göngu á
sunnudag.
Frá fréttaritara AiLþýðu-
blaðsins á Siglufirði.
IÞRÓTTARÁÐH) á Siglu-
firði hefir efnt til skíða-
móts, sem stendur yfir um þess
ar mundir. Fer mótið fram við
Skíðafell á Saurbæjamesi. Snjór
er nú lítill á Siglufirði og hefir
það tafið mótið.
Á sunnudaginn var keppt í
göngu og urðu úrslit þessi:
Fyrsti flokkur, 12 km. vanga:
1. Ásgrímur Stefánsson (Skíða-
fell), 32.57 min. 2. Jón Þor-
steinsson (Skíðafell) 33.47 mín.
3. Jónas Ásgeirsson (Skíða-
borg) 34.00 mín.
17—18—19 ára flokkur, sama
ganga: 1. Haraldur Pálsson
(Skíðafell), 30.32 mín. 2. Val-
týr Jónasson (Skíðafell), 35.28
mín.
10—11 ára flokkur, 2 V km.
ganga: 1. Örn Norðdal (Skíða-
fell), 7.38 mín.
13—14 ára flokkur, 4 km.
ganga: 1. Sverrir Pálsson
(Skíðafelli) 16.50 mín.
Á jörðu var nýr frostsnjór.
Hægur skafrenningur var og
fauk í slóð. Um næstu helgi
verður sennilega kenpt- í stökki
og svigi. Um 50 íþróttamenn
hafa begar tilkynnt bátt+öku
sína í landsmótinu, sem háð
verður á Siglufirði um pásk-
ana.
Viss.
10 500 000 krónur.
Meinleg prentvilla slæddist inn
í grein Sæmundar Ólafssonar um
Dagsbrúnarsamningana á sunnu-
daginn. í>ar stóð, að það væru kr.
10 500.00, sem ráðsmennska komirt
únista í Dagsbrún hefði fært í vasa
íslenzkra og erlendra atvinnurek-
enda á einu ári, með því að Dags-
brúnarsamningunum var ekki sagt
upp ári áður en gert var; — en átti
að vera kr. 10 500 000.00 — tíu
milljónir og fimm hundruð þúsund
— eins og raunar augljóst ér af
því, sem á undan var farið.
Skfðanót Bvikar.
Frh. af 2. síðu.
í skíðagöngu a- og b-flokks,
urðu úrslit þau, að Björn
Blöndal (KR) varð fyrstur, á
1 klst. 20 mín. 20 sek., annar
varð Hjörtur Jónsson (KR) á
1 klst. 21 mín. 47 sek. og þriðji
Stefán Stefánsson (Á) á 1 klst.
21 mín. 49 sek. Brautin var um
14 km.
Skíðastökkskeppnin fór svo
fram á sunnudag. Var keppt á
stóra pallinum að Kolviðarhóli
og er það í fyrsta skipti, sem
keppt er á honum.
í stökki 17—19 ára urðu
úrslitin þessi:
Haukur Benediktsson (ÍR),
hlaut 208.8 stig. Stökklengdir
hans voru 30.5 og 32 metrar.
Lárus Guðmundsson (KR),
hlaut 201.6 stig. Stökklengdir
29 og 29.5 metrar. Magnús Guð
mundsson (SSH), hlaut 200.5
stig. Stökklengdir 28 og 31
metrar.
í skíðastökki 20—32 ára a)
og b flokki), sigraði Sveinn
Sveinsson (ÍR), hlaut 211.7
stig. Stökklengdir 35.5 og 35.5
metrar. Sverrir Runólfsson
(ÍR), hlaut 204.8 stig. Stökk-
lengdir 32 og 32.5 metrar.
Stefán Stefánsson (Á), 'hlaut
198.2 stig. Stökklengdir 29 og
29.5 metrar.
Lengstu stökki náði Bjöm
Blöndal (KR), 36 metrum, en
hann féll í stökkinu.
Brunið átti að fara fram eftir
hádegið," en vegna hríðarveðurs
varð að hætta við það.
HSTÐUBI ~Bff>
áðatfundnr Náltúru-
lækningafélagsins.
AÐALFUNÐUR Náttúru-
lækningáfélags fslands var
í Tjamarcaíé sunnudaginn 19.
xnarz s. L
Fundir hafa verið 8 á árinu,
auk eins útbreiðslufundár og
eins skemmtifundar, til þess að
minnast 5 ára afmælis félags-
ins, sem var í jan. s.l.
S.l. suraar var farið í grasa-
ferð upp undir Skjaldbreið.
Yíir 50 manns tóku þátt í för-
inni og öfluðu mikilla grasa.
Hagur félagsins nú
með miklum blóma. Félagatal-
an hefír meira en þrefaldazt á
tæpu ári, og telur félagið nú
um 780 félaga. Á
gengu milli 20 og 30 inn í fé- !
lagið, og daglega bætast við
nýir félagsmenn.
Félagið hefir gefið út 3 bæk-
ur, sem allar mega heita upp-
seldar. Ákveðið hefir verið að
gefa þá síðustu, „Matur og
megin“, út aftur nú þegar.
Á fundinum var samþykkt
skipulagsskrá* fyrir Hælissióð
félagsins. Söfnunarnefnd hefir
verið starfandi fyrir sjóðinn, og
eru komnar í hann t"'nar 50
þúsund krónur. í stjórn sjóðs-
ins og til að annast fjársöínun
voru kosin: Frú Guðrún Þ.
Björnsd., Pétur Jakobsson fast-
eignasali, Frú Fanney Ásgeirs-
dóttir og frú Kristjana Carls-
son, en formann skipar stjórn
félagsins.
Félagið mun gangast fyrir
því, að gerð verði efnagreining
á ýmsum innlendum nytjajurt-
um, villtum og ræktuðum, og
er lítilsháttar byrjað á því.
Sl. sumar gat stjórn félags-
ins útvegað félagsmönnun ó-
dýrt grænmeti, og væri æski-
legt að geta haldið því áfram.
Akveðið hefir verið, að
Matstofa félagsins taki til
starfa í vor.
Stjórn félagsins hefir von
um, að geta útvegað félags-
mönmjm ísienzkar, þurrkaðar
dirykkjurtir næsta sumar eða
hausí, og til notkunar í staðinn
fyrir útlent te eða kaffi.
Stjórn félagsins skipa nú:
Jónas Kristjánsson, forseti, og
meðstjórnendur Björn L. Jóns-
son, Hjörtur Hansson, Sigur-
jón Pétursson, allir endur-
kosnir, og Axel Helgason lög-
regluþjón, sem var kosinn í
stað f rú Rakelar P. Þorleifs-
son, en hún baðst undan endur-
kosningu.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir leikritið: „Ég hef komið
hér áður“, í næstsíðasta sinn, ann-
að kvöld. Aðgöngumiðasala hefst
kl. 4 í dag.
Amerískir ódrengir.
Frh. af 3. síðu.
Press og blaðið New York
Times. Hann reyndist brátt
ginnkeyptur fyrir loforðum
Þjóðverja og ritaði fyrrver-
andi starfsbræðrum sínum
opið bréf frá Berlín, þar sem
hann lætur í ljós fyrirlitn-
ingu sína á lýðræðisskipu-
laginu og lýsir yfir því, að
þátttaka Bandaríkjanna í
styrjöldinni sé uppgjöf fyrir
kommúnismanum.
MEÐAL ANNARS HEFIR
Best þessi komizt svo að
orði í útvarpserindum frá
Berlín: Ég er þakklátur for-
sjóninni fyrir það, að Evrópu
og Þýzkalandi vor gefinn
maður eins og Adolf Hitler,
og ég er líka þakklátur fyrir
það, að Þjóðverjar reyndust
nægilega skynsamir ti þess
að fela honum forsjá málá
sinna til þess að geta bjargað
Þýzkalandi og Evrópu allri,
svo og Ameríku ur klóm bol-
sévismans. — Það er nokk-
urn veginn augljós hlutur, að
kommúnisminn, eins og hanri
birtist í Rússlandi og starfs-
hættir kommúnista yfirleitt,
hæfa ekki Norðurlanda-
þjóðunum, né heldur lýðræð
isríkjum heimsins yfireitt.
En á hinn bóginn er erfitt
að skilja menn, sem þakka
forsjóninni fyrir „náðargjöf1*
slíka sem Adolf Hitler og
bófaflokk hans.
ANNAR ÞEIRRA MANNA, sem
bezt hafá gengið fram í því
að vinna á móti þjóð sinni
heitir Frederick W. Kalten-
bach. Hann er af þýzku
bergi brotinn, en fæddur í
Iowa í Bandaríkjunum. Þessi
maður sagði meðal annars á
þessa leið í þýzka útvarpið:
Roosevelt hefir orðið vel á-
gengt. Honum hefir tekizt
að steypa Ameríku úti í styrj
öldina, sem hann hefir keppt
að um langt skeið. — Má
geta nærri, hvar Kaltenbach
þessi hefir gengið í skóla í
Þýzkalandi síðan styrjöldin
hófst. Manni finnst maður
heyra rödd Göbbels leggja
honum orð í munn.
Kaupum tuskur
hæsta verði.
Búsgagoayionnstofan:
Baldursgöfu 30.
Joseph Stalin, hinn rússneski (á miðri myndinni) sést á
myndinni hér að ofan ganga sér til hressingar fyrir framan
bústað rússneska sendiherrans í Teheran í Iran, en þar fór
hinn sögulegi fundur þríveldanna Rússlands, Bandaríkjanna
og Englands fram. H. H. Arnold hershöfðingi, yfirmaður
flughers Bandaríkjanna, sést til vinstri, en Winston Church-
ill, forsætisráðherra Breta, er til hægri í einkennisbúningi
flugmarskálks. Hann snýr baki að.
*