Alþýðublaðið - 22.03.1944, Síða 3
Milhrikodi^w 22. man 1944.
ALfrYPUBLAÐIP
ÞAÐ LtEHKUR ekki á tveim
ttmgum, að Finnar eiga
miklum vinsældum að f agna,
bæði hér á íslandi og annars
staðar á Norðurlöndum og
kom það ekki sízt í Ijós, er
Rússar réðust á þá, sam-
ikvæmt uppskrift Hitlers vet-
urinn 1939; en vissum hópi
íslenzkra manna fannst samt
viðeigandi að nefna samúðar
vott við bágstadda bræðra-
jþjóð Finnagaldur, og hafa
menn þessir hamrað á því
síðan, ef ske kynni, að þeir
gætu með því blekkt eithvað
af fólki til fylgis við sig.
ÞVÍ ER ÞAÐ, að menn fylgj-
ast vel með því, sem nú er að
gerast í Finnlandi. Fáar þjóðir
hafa átt eins erfitt og Finnar
nú, mætt eins mikilli and-
spymu úr flestum áttum og
verið jafn nauðulega staddar.
Það hefir áður verið minnzt á
það í þessu blaði, að það væri
hörmulegt, að þessi Norður-
landaþjóð skuli berjast við
hlið þýzka nazismans, og að
Norðmenn séu gramir Finn-
um brautargengi, en á hinn
um breutargengi, en á hinn
_ bóginn verður að segja, að af-
staða Finna er samt skiljan-
leg, ef málið er skoðað hleypi
dómalaust.
ALLT FRÁ DÖGUM Péturs
mikla, laust eftir árið 1700,
hafa Finnar og raunar Skand
inavía öll, verið í hinni
mestu hættu vegna ásælni
Rússa, og nú er ekki annað
sýnna, en að þeir hafi á ný
tekið upp stórveldastefnu
zarstjórnanna á fyrri öldum.
Það er vitaskuld barnalegur
fyrirsláttur að leggja trúnað
á æfintýrið um, að Lenin-
grad hafi verið innan skot-
máls finnskra fallbyssna, og
að erlend stórveldi hafi ætl-
að að nota Finnland sem ein-
hvers konar stökkpall til á-
rása á hina blásaklausu
Rússa. Ef menn athuga
vandamál Finna með hlið-
sjón af kröfum Rússa á
hendur Pólverjum, svo og
fyrra framferði Rússa í
Eystrasaltsríkjunum, er auð
velt að sjá, hvað fyrir þeim
vakir. Og hver veit, hvort
þeir hugsa ekki til einhverra
athafna í Norður-Noregi?
Þetta eru að vísu getgátur
einar, en þær eru hreint ekki
út í bláinn.
FINNAR LÝSA YFIR ÞVÍ, að
þeir geti ekki fallizt á vopna-
hlésskilmála Rússa, meðal
annars vegna þ^ss, að þeir
viti ekki, hvernig e'instök
atriði þeirra kunni að verða
túlkuð. Vekur þetta þá grun
semd, að Rússar hafi haft
skilmálana loðnari en sann-
gjarnt var og ætlazt eitthvað
meira fyrir en þeir vildu
vera láta fyrst í stað. Þá var
og úr vöndu að ráða fyrir
Finna, hvernig þeir ættu að
fara að því að afvopna her
Dietls í Finnlandi. Má gera
ráð fyrir, að blóðug borgara-
styrjöld hefði gosið upp í
landinu er til átaka kæmi
Frfc. á 7. sáðu.
Hann hertók Ungverjaland.
Mynd þessi er ekki alveg ný. Hún sýnir Adolf Hitler, er hann var hylltur á austurvígstöðv-
unum, en sá tími mun nú liðinn. Nú hefir hann, að því er síðustu fregnir herma, hertekið Ung-
verjaland, vegna þess, að hann fékk ekki þá hjálp frá landinu, sem nauðsynleg var.
Þjóðverjar herlóku allt Ungverjaland á
sunnudaginn var, segja svissnesk blöð.
Horfhy ríkisstjérl neitaði kröfum Þjóðverja.
SS-sveitir Þjóðverja ráóa nú öilu í Búdapest
ÞAÐ ER NÚ talið fullvíst, að þýzkar hersveitir hafi með
öllu hertekið Ungverjaland. í Lundúnafregnum í gær
var fullyrt, að svo væri, enda þótt opinber tilkynning væri
enn ekki fyrir hendi um þetta mál. Yfirvöldin í Berlín hafa
ekkert látið uppi um þessa atburði. Formælandi þýzku her-
stjórnarinnar lét svo um mælt, er blaðamenn leituðu fregna,
að ekkert væri hægt að segja um hernaðarviðbúnað Þjóð-
verja að svo stöddu og er talið, að þar hafi verið átt við skipti
Þjóðverja og Ungverja. Blaðafregnir hlutlausra landa benda
ótvirætt í þá átt, að Ungverjar hafi nú tapað því, sem eftir
var af sjálfstæði þeirra.
Blöð í Svisslandi segja, að
Þjóðverjar hafi hertekið Ung-
verjaland s.l. sunnudag. Þá
segír í fréttum frá Ankara, að
allir hernaðarlega mikilvægir
staðir séu nú á valdi Þýzka
hersins. Er hér um að ræða
járnbrautarstöðvar, opinberar
Staðfed, að Finnar \
Rússa
FINNAR hafa nú opinber-■
lega hafnað vopnahlés-^
skilmálum Rússa. En hins vegS
ar virðist ekki loku fyrir það^
skotið, að enn geti tekizt samn(
ingar með þessum ófriðarþjóðS
um. Eins og kunnugt er, höfðu^
Rússar 'lýst yfir því, að Finn-^
um yrði veittur frestur tils
miðnættis á laugardag. S
Útvarpið í Moskva hefir^
skýrt svo frá að Finnar verðR
nú að bera alla óbyrgð á því,S
sem framtíðin kunni að bera ■
í skauti sínu.
byggingar og ýmis hemaðar-
mannvirki.
í fregnum frá Stokkhólmi,
sem jafnan þykja áreiðanlegar,
segir meðal annars, að SS-sveit
ir Þjóðverja hafi nú tekið í
sína vörzlu allar mikilvægar
stöðvar í Budapest. Þá segir og,
að Horthy ríkisstjóri í Ung-
verjalandi og aðrir ráðherrar
hans hafi verið á fundi með
Hitler og hershöfðingjum hans
í aðalbækistöðinni á austurvíg-
stöðvunum. Ribbentrop var
þar staddur og er sagt, að naz-
istar hafi m. a. krafizt þess að
Ungverjar gengju að margvís-
legum kröfum, svo sem þeim,
að öll umferð á Dóná í Ung-
verjalandi yrði undir yfirstjórn
Þjóðverja, að almennt herút-
boð yrði hafið í landinu til að-
stoðar við Þjóðverja, og að út-
varp og blöð lytu einnig yfir-
stjórn Þjóðverja. Þessu mun
Horthy og ráðgjafar hans hafa
neitað. Fregnir þessar hafa vak-
ið feykilega athygli um heim
allan og er nú spurt að því,
hvert verði hlutskipti Ung-
verja, sem tekið hafa virkan
þátt í baráttu Hitlers um ný-
skipan Evrópu, þótt þeir nú
virðist hafa snúið bakinu við
hernaðarklíkunni þýzku.
Mlklar loltársir banda-
manna á Calais-svæðið
ITILKYNNINGU flugmála-
ráðuneytisins brezka í gær
segir, að amerískar Liberator-
flugvélar hafi ráðizt á Calais-
svæðið í Frakklandi. Thunder-
bolt-flugvélar voru þeim til
verndar. Áður höfðu brezkar
flugvé'lar ráðizt á ýmsa staði í
Vestur-Þýzkalandi.
Hröð sókn Rússa inn
í Bessarabíu.
1 ”
RÚSSAR halda enn áfram
harðri sókn inn í Bess-
arabíu og éru nú aðeins rúma
100 km. frá borginni Balti. Er
sú borg á leið Rússa til Yasí,
sem er mikilvæg samgöngumið-
stöð. Rússum hefir borizt veru-
legur liðsauki og herða sóka-
ina, en Þjóðverjar fá ekki að
gert.
Miklar loftorrustur hafa ver-
ið háðar og hafa Rússar beitt
Stormovik-steypiflugvélum sín
um- og valdið miklum spjöllum
í. liði Þjóðverja.
Fregnir hafa borizt um það,
a.ð hershöfðinginn von Kleist
hafi tekið við yfirstjórn þýzku
herjanna á suðurhluta austur-
vígstöðvanna, en. ekki er vitað
um afdrif von Mansteins. Von
Kleist er talinn sérfræðingur £
skriðdrekahernaði, en hins veg-
ar telja þeir, sem bezt þekkja
tiL þessara mála, að Manstein
hafi mistekizt hlutverk sitt og
þess vegna verið bolað frá her-
stjórninni.
í Póllandi eiga Rússar
skammt eftir ófarið til borgar-
innar Brody, á leið sinni til
Lwow (Lemberg). Engar nýjár
fregnir hafa borizt af bardög-
um í Tarnopol, en vitað er, að
þar geisa enn harðir götubar-
dagar.
í fyrrinótt réðust brezkaír Lan-
caster-flugvélar á verksmiðjur
skammt frá Bordeaux og lögðu
þær í rústir, að því er sagt í
brezkum fregnum. Lítið var um
viðnám af hálfu þýzkra orrustu-
flugvéla. Þá er og skýrt frá því,
að ráðizt hafi verið á ýmis járn
brautarmannvirki, skammt frá
Oise-fljóti í Frakklandi og hafi
f j ölmargir j árntorautarvagnar
eyðilagzt við það tækifæri.
Þjóðverjar verjast enn í rúsfum
Cassino, en bíða mikið mannfjón.
Skæðar loftárásir bandamanna á Kríi
FRÁ ÍTALÍU berast þær fregnir, að enn sé barizt í rústum Cass-
ino-borgar. Hafa Þjóðverjar sent fallhlífarhermenn á vett-
vang og verja þeir hvert hús og hvert fótmál. Manntjón þeirra er
talið mikið. Bandamenn sækja enn á, en hefir ekki orðið mikið á-
gengt. Þó eru Þjóðverjar hvarvetna í varnarstöðu á þessum slóð-
um. Fréttaritari brezka útvarpsins, BBC, greinir frá því, að bar-
dagar séu mjög grimmilegir og að bandamenn eigi enn í vök að
verjast. Er frá því skýrt, að bandamenn skorti olnbogarúm til þess
að koma hergögnum sínum við eða beita sér af alefli. Þjóðverjar
hafa komið sér mjög rammlega fyrir á fjallstindum og hæðum og
þess vegna er bandamönnum erfitt um vik.
Á Anzio-svæðinu hafa Þjóð-
verjar gert tvö skæð áhlaup,
sem báðum var hrundið við mik
ið manntjón í liði þeirra. Á víg-
stöðvum 8. hersins hafa staðið
yfir skæðar framvarðaorrustur
og stórskotaliðsviðureignir.
I Lundúnafregnum var greint
frá því, að Sir Henry Maitland
Wilson sé nú staddur í Cairo til1' bækistöðva sinna.
viðræðna við aðra hershöfðingja
bandamanna. Þá var og sagt frá
því, að brezkar flugvélar af
Wellington gerð hefðu farið til
árása á skip á Suda-flóa á Krít
og hæft þar þúsund smálesta
kaupfar. Einnig voru gerðar á-
rásir á ýmis mannvirki á Tylftar
eyjum. Allar flugvélar banda-
manna komu heilar aftur til