Alþýðublaðið - 20.05.1944, Blaðsíða 2
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Laugardagur 20. maí 1944.
Örlagastundin er upp runnin:
Fyrsti dagur
sambandsslil
YegavinniBdeiEan leysf
með samkomulagi
Verkamenn veröa þeerra kaupEiækkana
aSnjótandi, serrs hafa úti &sm Banci
síðan í fyrra
Samningar undirritaðir í fyrradag
DEILUNNI milli Alþýðusambands íslands og ríkisstjórn-
arinnar um kaup og kjör verkamanna við vegagerð,
brúasmiða og vitabygginga lauk með samkomulagi og undir-
skrift samninga hjá sáttasemjara ríkisins í fyrradag.
Úrslit deilunnar urðu jbau í fáum orSum, að Alþýðusambandið
fékk það kaup og þau kjör fyrir þessar starfsstéttir, sem það hafði
farið fram á, og verða þær því þeirra kai^phækkana aðnjótandi,
sem orðið hafa úti um land síðan í fyrrasumar.
1 aðalatriðum verða kjörin
eins og Ihér segir framjvegis:
Kaup. og kjör verða á kjara-
svæðum eftir núgildandi samn-
ingum, eða viðurkennduam töxt-
um þesis verkalýðisfélags, sem
næst er þeim stað þar sem vinn
an er framkvæmd.
Inná þetta vildi riíkisstjórnin
ekki ganga til að byrja með
iheldur aðeins það, að greitt
/ skyldi samikivæmt samningum
félagana á félagssvæðinu, sem
takmarkast oftast ými'st við
kauptún eða ihæistai'agi aveitafé-
lag.
Utan félagssvæðana ætlaðist
ríkisstjórnin til að landinu yrði
skipt í kaupsvæði á sama hátt
og í fyrra með sama kaupi og
þá gilti.'En samkvæmt samning
uoh, eins og þeir eru nú hækkar
kaup veruíega mjög víða.
Vinnutími verður alls staðar
á kjarasvæðum, saimkvæmt
samningi eða taxta viðkomandi
verkalýðsfélag's, en hann er 8
stundir. En til þess að fá ákveð-
ið um að leyfilegt væri ao skila
vinnujvikunni á 5 dögum, eins og
fjöldi vegavinnumanna hafði
ósfcað eftir, gaf Alþýöuisaimhand
ið eftir að á f jórum tilgreindum
stöðurn á 'heiðum uppi væri
heimilt að vinna, allt að 60
stundir á viku með venjulegu
dagvinnufcaupi, ef þess væri ósk
að af meirihluta vinnuhóps.
Um forgangsrétt til vinnunn-
ar varð það samkomulag, að á-
kveðinni grein um það yrði
sleppt úr sarnningunum, en um
forgangsrétt meðlimanna í fé-
lögurn innan Aiþýðusamibands-
ins, felst þó í 1. gr. samnings-
Frh. á 7 siöu
ÚrsknrSisr Félagsdéms:
síjérsiBHBíi Ecréiayr
atl ríkis-
í málslostnaó
TC' ÉLAGSDÓMUR kvað í gærmorgun upp dóm í máli því
sem ríkisstjórnin höfðaði gegn Alþýðusambandi ís-
lands. í
Málið féll á Alþýðusambandið og var verkfall það, sem Al-
þýðusamhandið ákvað að hefja og hófst 3. maí, dæmt ólögmætt.
Var Alþýðusambandinu gert að greiða végamálastjóra fyrir liönd
ríkisstjórnarinnar 500 krónur í málskostnað.
Dómendurnir voru sammála um dóminn.
Niðurstöður Félagsdóms fara
hér á eftir:
„Ár 1944, föstudaginn 19. maí
var í félagsdómi í málinu nr.
3/1944. Geir Zoega f. h. ríkis-
stjórnar íslands gegn Alþýðu-
sambandi íslands kveðinn upp
svo hljóðandi dómur:
Mál þetta er höfðað hér fyrir
dómi með stefnu, dags. 4. þ. m.
af Geir G. Zoega vegamálastjóra
f. h. ríkisstjórnar íslands gegn
Alþýðusambandi íslands.
Tildrög málsins og málavext-
ir eru þessir.
í aprílmánuði síðastliðnum,
fóru fram samningaumleitanir
milli vegamálastjóra f. h. ríkis-
stjórnarinnar annars vegar og
samninganefndar frá Alþýðu-
sambandi íslands hins vegar um
kaup og kjör við vinnu á vega-
og brúargerð um land allt á
komanda sumri. Þann 13. apríl
ritar Alþýðusambandið sam-
bandsfélögunum úti um land
bréf, þess efnis, að þar sem hugs-
anlegt sé, að ekki náist samn-
ingar við ríkisstjórnina um kjör
í nefndri vinnu, hafi sarnbands-
stjórn ákveðið að tilkynna henni
vinnustöovun með löglegum
fyrirvara, og leggur fyrir félög-
in að hefja vinnustöðvun í vega
og brúargerðavinnu frá og með
3. maí, ef sambandsstjórn hafi-
ekki fyrir þann tíma tilkynnt
samkomulag í útvarpinu.
Þann 24. apríl tilkynnir svo
Frh. á 7. síðu
H»er einasti íslendingur, sem geiur, greiðlr
atfcvæði sfrax í dag
-----—-—----
Sýeium einkisga þ|ó$ s þessu sílSasta á-
taki sjálfstæðisbaráttunnar!
U YRSTI dagair þjóðaratkvæðagreiðslunnar er í dag. Hefst
atkvæðagreiðslan hér í Reykjavík kl. 10 f. h. og stendur
óslitið til miðnættis. Á sunnudag, mánudag og þriðjudag
hefst atkvæðagreiðslan einnig kl. 10 f. h., en lýkur á þriðju-
dagskvöld kl. 12 á miðnætti. Atkvæðagreiðslan fer hér fram
í Miðbæjarharnaskólanum.
Aldrei hefir íslenzka þjóðin verið kvödd að kjörborðinu
til að greiða atkvæði um eins mikilvægt mál og það sem þessi
þjóðaratkvæðagreiðsla stendur um, hinn endanlega skiln-
að við Danmörku og endurreisn óháðs lýðveldis á íslandi.
Og enginn efast um, að hún muni því nú fjölmenna meira
að kjörborðinu en nOkkru sinni áður. En það er nauðsynlegt
að sem a'llra flestir greiði atkvæði þegar í dag til þess að
létta störf þeirra sem vinna að fyrirgreiðslu kjörsóknarinnar.
Frá þátttöku í þjóðaratkvæðagrciðslunni mun verða skýrt
daglega í blöðunum og það er metnaðarmál fyrir hvert kjördæmi
að sú þátttaka reynist sem mest, þegar á fyrsta degi. Frestið því
ekki að greiða atkvæði. Fjölmennið á kjörstaðinn strax í dag og
sýnið öllum heimi sjálfstæðisvilja íslenzku þjóðarinnar með því
að greiða atkvæði bæði með samhandsslitunum og endurreisn lýð-
veídisins.
....ul.l.t'-Á: ■ .
Hi$rdeildirnar.
Skiptingin í kjördeildir er
þanniig, og geta menn af henni
,séð, hvar þeir eiga að greiða at-
kvæði:
Á neðri hæð:
1. kjördeild Aagot — Arinbjöm,
2. Ármann — Axelandra, 3.
Bach — Bjiörn Friðrikseon, 4.
Björn Qíslasion — Einar ísaks-
son, 5. Einar Jóhannesson —
Ezra, 6. Faaberg — Guðbjartur,
7. Guðbjörg — Guðmundur Frið
riksson, 8. Guðlmundur Gamal-
íelsson — Guðríður, 9. Guðrún
—Guðiveigur, 10. Gunnar —
Hannes, 11. Hannesína — Hjalta
lín.
Á efri hæð:
12. kjördeild Hjaltested —•
Ingibjörg Rögnvaldsdóttir, 13.
Ingibjörg Sigfúsdóttir — Jó-
hann, 14. Jóhanna — Jón Orms-
son, 15. Jón Pálisson — Karl Jú-
ií'Usson, 16. Karl Karisson —
Kristine, 17. Rristinn — Lórens,
18. Lovísa — Margrét Runólfs-
dóttir, 19. Margrét Siglhvats-
dóttir — Ólafiía Jónisdóttir, 20.
ÓlaÆía Karlsidóttir Pálína, 21.
Páll — Rofcstad, 22. Rósa —
Sigríður Njálsdóttir, 23. Sigríð-
'Ur Oddileifisdóttir — Sigurður
Náelsson,
f leikfimishúsinu.
(Gengið úr portinu inn í
kjallarann að norð-^ - " '•
24. kjördeild Sigurður Oddgeirs
son — Sophus, 25. Stefán —
Sivenson, 26. Srverrir — Valur,
27. Vedder — Þórður Jónsson,
28. Þórður Kárason — Öster-
gaard.
Leiðbeiningar til ahnenninqs.
Frá þ j óðaratkvæðagreiðslu-
nefndinni hefur Alþýðublaðið
fengið eftirfarandi leiðbeining-
ar fyrir almfenning:
„Hverfisstjórar, aðstoðar-
menn við einstakar starfsdeildir
og aðrir Reykvíkinqar, veitið
því athyqli, sem hér fer á eftir:
Hverfisstjórar
eiga að mæta með hverfis-
skrárnar í Listamannaskálanum
kl. 9V2 á morgun. Aðstoðar-
menn þeirra við borð mæti á
sama stað og tíma.
Borð hverfis verður merkt
með númeri hverfisins (sjá
hverfaskrána).
Hverfisstjórar og aðstoðar-
menn þeirra fá merki, er heim-
ila þejm aðgang að salnum.
Kjördeildir.
Þeir,sem ætla að vinna í kjör-
deildum, eiga að gefa sig fram
í Félagsheimili verzlunarmanna
í Vonarstræti 4, kl. 9 árdegis.
Kennarar, sem hafa boðið
fram vinnu sína, oq ekki eru
ráðnir í hverfi, eru beðnir að
mæta har.
Bifreiðar oq aðstoðarmenn við
þær.
Þeir, sem ætla að lána bif-
reiðar sínar við kosningarnar,
og stöðvarbifreiðar, sem samið
hefir verið við, eru beðnir að
koma með þær til skrásetning-
ar á laugardagsmorguninn kl. 8
f. h. að Thorvaldsensstræti 2
(við Austurvöll). Þeir, sem ekki
geta komið því við, eru beðnir
að tilkynna skrifstofunni á sama
tíma, hvenær vænta megi bíl-
anna.
Hverfisstjórar, sem ætla að
nota bíla sína við akstur í hverf-
unum, eru beðnir að láta skrá-
setja þá á sama stað og tíma á
númer hverfsins. Þess er enn
fremur óskað, að þar og þá
mæti einn maður frá hinum
hverfunum, til þess að velja sér
bíl fyrir hverfið.
• Starfsmenn, sem ætla að veita
aðstoð á bifreiðaskrifstofunni
og í bílum, eru einnig beðnir að
mæta kl. 8 árdegis.
Símar bifreiðaskrifstofunnar
eru 1229, 1133, 1724. Símar
fyrir Skerjafjörð oq Grimsstaða
holt eru 3004.
Þeir, sem burfa á bílum að
halda í sambandi við kosninq-
Framhald á 6. síðu.
Svívirðileg misnolfcuR
úfvarpsins í gær
KðmmúriEsfl nofar ræSufíms sinn fH
ruddalegrar árásar á páiifísksn
andsfæéing
S
1 VÍVIRDILEG misnotkun út
varpsins var ein af þeim
ræðiun eða ávörpum, sem flutt
voru í það í gærkvöldi, að til-
hlutun útvarpsráðs, í tilefni af
þjóðaratkvæðagreiðslunni, sem.
hefst í dag.
Einn maður hafði verið val-
inn af útvarpsráði úr hverjum
flokki til þess að tala um þjóð-
aratkvæðagreiðsluna. Sigurður
Thoroddsen, sem valinn hafði
verið úr flokki kommúnista,
notaði þetta traust, sem honum
hafði verið sýnt, til þess að ráð-
ast af hinum mesta dónaskap'
og ódrengskap á pólitískan and-
stæðing sinn vestur á ísafirði,
Hannibal Valdimarsson skóla-
stjóra, og notaði það sem á-
tyllu, að Hannibal hefir látið í
ljós aðra afstöðu til annars
þeirra mála, sem greiða á at-
kvæði um, lýðveldisstjórnar-
skrárinhar, en Sigurður Thor-
oddsen þykist hafa.
Það er fyrir slíka framkomu
Sigurðar Thoroddsen engin máls
bót þótt gagnrýna megi afstöðu
Hannibals Valdimarssonar —■
það er þó málfrelsi hér á landi
um þjóðaratkvæðagreiðsluna
sem annað. Það er ódrengskap-
ur á fyrirlitlegasta stigi, að ráð-
ast á pólitískan andstæðing,
sem ekki hefir neitt tækifæri til
að bera hönd fyrir höfuð sér. Og
það er svívirðilegt trúnaðar-
brot við útvarpið, að nota það
til slíkrar árásar, undir hvaða
yfirskini, sem gert er. Og áreið-
anlega er málstað lýðveldisins
enginn greiði gerður með því
að láta slíka menn tala fyrir
honum. Þeir gera miklu frekar,
að hrinda mönnum frá honum,
en að vinna þá til fýlgis við'
hann.
risndum manii bjarg
IGÆR rétt eftir hádegið
féll erlendur maður sem
var utanborðis að miála erlent
skip, isem liggur hér á hötfninni
niður á sjóinn milli skipsdns og
bryggju. Ricihard W. Runólfs-
son, verkamaður, Þingholtsstr.
1 var þarna staddur og hljóp
þegar til að bjarga manninum.
Hugsaði. hann sér á fyrstu að
kasta sér niður, en svo þröngt.
var milli skipsins og bryggj-
unnar að hann sá að það var
ekki hægt. Niáði hann því £
stiga og klifra niður ti!l manns
ins, bomjst hann undir hann og
hióf hann upp fyrir sig. Var
maðurinn alblóðugur vegna þess
að hann hafði lent á bryggjunni
í fallinu. Var hann og nærri
meðvitumdarlaus. Richard gekk
m,jög erfið'Iega að komast upp
méð manninn, en aðrir sem
komu þarna að gátu sett hönd
í stigann og dregið stigann upp
með mennina.
Vann Ridhard mikið þrek-
virki með björgun mannsins.
J ARN ARBOÐHLAUP ^
knattspyrnufélags Rvíkur
^fer fram á morgun og hefst á
Fríkirkjuvegi kl. 14.
Hér er um boðhlaup að ræða,
og taka 7 sveitir þátt í því og
10 menn í hverri: 2 frá K.R.,
2 frá Ármanni, 2 frá Í.R. og 1
frá F.H.
Staðnæmst verður við Mið-
bæjarskólann. Keppt er um bik-
ar, sem K.R. gaf í fyrrá og
vann þá.