Alþýðublaðið - 24.05.1944, Blaðsíða 7
Miðvikudagur . 24. maí 1944.
7
^tíœrinn í dag*f
Næturlœknír er í LæknavarS-
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Laugavegsapó-
teki.
Næturakstur annast Litla bíla-
stöðin, sími 1380.
ÚTVARPIÐ:
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
19.25 Hljómplötur: Óperusöngvar.
20.00 Fréttir.
20.30 Fréttir af þjóðaratkvæða-
greiðslunni — létt lög af
liljómplötum.
21.00 Hljómplötur: - íslenzkir ein-
söngvarar og kórar.
21.15 Erindi: St. Helena (Thorolf
Smith blaðamaður).
21.35 Hljómplötur: Stenka Rasin
eftir Glasunow.
21.50 Fréttir.
í>rír íslenzkir sjómenn
voru fyrir nokkru sektaðir í
Bretlandi. Höfðu tollverðir í Grims
by fundið hjá þeim í skipi þeirra
saumavél, barnavagn og kíki, sem
þeir höfðu komizt með um borð
og falið vandlega. Voru mennirnir
sektaðir um fimmtán sterlings-
pund hver.
Fyrir rúmnm fimm’vikum
fóll tík niður í mjög djúpa hraun
sprungu á Þingvöllum og var þar
í fimm vikur milli heims og helju.
Voru það hermenn sem áttu tík
þessa og hentu þeir allan tímann
mat niður til hennar, en þó mun
hún elcki hafa fengiö nóg að eta,
þvi maturinn hefir ekki alltaf kom
izt niður í sprunguna, heldur lent
á syllum ofar í gjánni. Fyrir nokkr
um dögum seig svo Jón í Svarta-
gili niður í gjána og náði tikinní
upp, og var hún þá orðin mjög
horuð.
Leiðrétting.
í röð þeirra hreppa, sem taldir
voru upp í blaðinu í gær með 100%
þátttöku í þjóðaratkvæðagreiðsl-
unni var nefndur Sléttuhreppur og
að hann væri í Vestur-ísafjarðar-
sýslu. Það var rangt; hann er í
N or ður-í safj arðarsýslu.
Norska Ijósmyndasýnmgin
verður opnuð aftur í dag kl. 10
f. h. og verður opin til kl. 10 í
kvöld. Einnig verður sýningin opin
á morgun á sama tíma.
Skólastjóri Handíðaskólans
biður þess getið, að nemendur
skólans, sem eiga þar muni eða
teikningar eigi að vitja þessa í dag,
eða í síðasta lagi á morgun kl. 5-6
síðdegis.
Skinfaxi
tímarit U. M. F. í., aprílhefti
1944, er komið út. Af efni ritsins
má nefna: Ávarp frá stjórn U. M.
F. í. um lýðveldismálið. Greinar
um lýðveldismálið eftir þessa
menn: Eirík J. Eiríksson, Gísla
Andrésson, Þorgils Guðmundsson,
Kristján Jónssón, Halldór Sigurðs-
son, Jens Guðmundsson, Sigurð J.
Lindal, Sigurð Brynjólfsson, Har-
ald Magnússon, Þorgeir Sveinbjarn
arson, ■ Björn Þórarinsson, Skúla
Þorsteinsson, Sigurjón Jónsson. Sig
urð Greipsson og Bjarna Guðmunds
son. Ennfremur er- í ritinu: Ör-
nefnaskráning Umf. eftir Kristján
Éldjárn. Þjóðræknisfélagið 25 ára
eftir D. Á. Stúlka, eftir Guðmund
Inga Kristjánsson. Eiðaskólinn 25
ára, eftir Þórarinn Þórarinsson,
Bréfaskólar, eftir Jón Magnússon.
Kynningarfundur Þingstúku
Reykjavíkur er í G. T.húsinu í
kvöld kl. 9 (ekki í Listamanna-
skálanum).
Ræður.
Mondolínhljómsveit o. fl.
Allir velkomnir meðan hús-
rúm leyfir.
Noreg&sr í friði @g sfrföi:
Hugheilar þakkir færum við öllum þeim fjölmörgu bæði skyld-;
um og vandalausum, er vottuðu okkur samúð og vinsemd við and-
lát og jarðarför mannsins míns, föður okkar, tengdaföður og afa ;
Gissierar Quðmundssonar
frá Gljúfurárholti.
Við biðjum góðan Guð að launa yður ríkulega alla þá miklu
sæmd og vináttu.
Guð blessi yður öll.
Margrét Jónína Hinriksdóttir, börn, tengdaböm og bamabörn.
Bankasíræti 14. — Sími 4957
Mikið úrval af
Fatahreinnm
Fatapressun
FBjétusf afgreiBsBa í
bæeium
Laugaveg 7.
Sækjaim. Sendum.
Hesíaheimilið að Timgu — og
besíamannafélagið „FÁKUR“
STJÓEN herstamíannafélags-
ins „Fáks“ ræddi í gær
við blaðamerm um heiuaili hest-
anna í Reykjavík. Blaðamenn-
irnir skoðuð tvö hestbús að
Tungu, þar sem 3S hestar stóðu
við stall. Eimiig litu þeir á ami-
að hesíhús, þar sem æílast er til
að óskikíhross séu geymd.
Reykjavíkurbær hefir keypt
Tungu, en leigt „Fák“ með því
skilyrði að félagið gerði hest-
húsin nothæf — hestamannafé-
lagið hefur ekki látið standa á
sér.
Hesthúsin hafa verið fullbúin
og stallarnir eru hinir fullkomn-
ustu. Þó að gæðingunum virtist
ekki líða neitt sérstaklega vel í
margmenninu, sem heimsótti þá
í gær, var auðséð að eigendur
þeirra vildu gera allt, sem í
þeirra valdi gæti staðið til þess
að þeim gæti liðið sem bezt. Stall
arnir eru hinir fullkomnustu. í
hesthúsunum tveimur er rúm
fyrir 36 hesta — og þeir stóðu
þarna við stallana. En auk þess
er afhýsi, þar sem hægt er að
koma fyrir um 10 óskilahestum.
Allur aðbúnðaur „þarfasta þjóns
ins“ er hinn fullkomnasti og full-
komlega samboðin f élögum
hestamannafélagsins, sem, eins
og gefur að skilja, þykir vænt
um gæðingana sína.
Hestarnir í Reykjavík hafa
verið á flækingi, og eigendur
þeirra verið í vandræðum með
þá, þar til þeir eginuðust þetta
heimili, að Tungu. Félagið vant-
ar nú heimili fyrir 150 hesta,
svo að það geti fullnægt eftir-
spurninni, en í Tungu er ekki
rúm fyrir þá enn sem komið er.
Ef Reykvíkingar hafa nokkra
von um að þeir geti fengið rúm
fyrir hesta sína, þá mun hesta-
eigendum í Reykjavík fjölga
stórkostlega, því að margir Reyk
víkingar óska einskis frekar en
að eignast gæðinga. „Fákur“
stefnir og að því að eignast
heimili fyrir hestana, svo að þeir,
sem dá hesta, geti þjónað lund
sinni, og keypt sér gæðinga. Síð-
an þetta heimili, að Tungu, var
stofnsett, hefur fjölgað í „Fák“
og margir Reykvíkingar keypt
sér hesta.
„Fákur“ efnir til kappreiða á
annan í hvítasunnu, eins og allt
af áður, og í sumar, á þjóðháííð-
inni, hyggst félagið að efna til
fjölmennrar reiðar á Þingvelli,
eins og í gamla daga.
‘P INS og áður hefir verið
skýrt frá gafvnorskur mað-
ur, Gunnar Frederiksen kon-
súll í Melbu í Noregi, fyrir
nokkru 2000 krónur (norskar)
til styrktar íslendingum í Nor-
egi. Upphæð þessari hefir nú
verið skipt jafnt milli 10 íslend-
inga og eru þeir þessir: Stúdent
arnir Tryggvi Jóhannsson, Jón
Jónsson, Rögnvaldur Þorláks-
son, Hallgrímur Björnsson, Bald
ur Bjarnason, Hólmfríður Jóns-
ORSKA ljósmyndasýn-
- ingin af Noregi í friði og
stríði er ákaflega athyglis-
verð. Hún var, eins og kunn-
ugt er opnuð 17. maí í Lista-
mannaskálanum, en henni
varð að loka dagana sem
þ j óðaratkvæðagreið'slan f ór
fram, vegna þess að aðalskrif
stofa atkvæðagreiðslunnar
var í salnum.
Nú verður sýningin aftur op-
in í dag, og verður aðeins opin
í dag og á morgun frá kl. 10—
22.
Enginn mun sjá eftir því að
sækja bessa stórmerku sýningu.
Mörg hnndruð mvndir sýna Nor
eg í friði, landið, atvinnuvegi
þess, og þjóðina að starfi, en
aðrar myndir sýiia Noreg og
Norðmenn í baráttunni fyrir
frelsi sínu og framtíð.
Upplýsingaskrifstofa norsku
stjórnarihnar sendi þessar ljós-
myndir hingað að mestu leyti,
en hér hefir verið bætt við alí
mörgum myndum. Þá bafa Norð
menn hér og einnig íslendingar
lánað á sýninguna nokkur gull-
falleg málverk frá Noregi. Loks
eru sýndar ágætlega gerðar eft-
irlíkingar af norskum listaverk-
um.
Notið tækifærið til þes sað
sjá þessa merkilegu sýninvu,
Þeim, sem komið hafa til Nor-
egs, mun finnast að þeir hafi
einu sinni enn heimsótt þetta
fagra land — og hinir munu
fyllast þrá eftir að sjá það, eft-
ir að það er orðið aftur frjálst.
Frh. a/ 2. síðu
sunnudag og var sú filma til-
búin hjá honum til sýningar
strax á imánudagsmorgun.
Óskar Gíslason hefir unnið
hér við Ijósmyndatökur í fjöl-
mörg ár og einnig lagt fyrir sig
kvilímynda'böikur nú á síðari ár-
um. Hefir hann í hyggju að kvik
mynda þjóðhiátíðina 17. og 18.
jíúnií næstkomandi og verður
sú mynd tilbúin hjá honum
strax að hátáðinni lokinni. Mynd
irnar frá kosningunum á sunnu-
daginn fellir hann svo inn 'í að-
alhátíðamyndina, og gefur þann
ig heildarsvip af lýðveldisstofn- <
uninni, allt frá því er kosning-
arnar hófust og fram yfir hátíða
höldin, ennfremur ætlar hann
að útbúa texta með myndinni.
Það er mjó-filma, sem myndin
verður tekin á, og hefir Tjarn-
arbió tæki til að sýna hana,
þarf ekki að efa að fólki leiki
hugur á. að fá myndina sýnda
ef kvikmyndatakan tekst vel,
sem fullyrða má að hún geri,
ef skilyrði verða góð, eftir þeim
myndum, sem Óskar sýnái
blaðamönnum í gær, voru þær
eins og áður er sagt af kosning-
unum og Tjarnarboðlhlaupinu á
sunnudaginn var og ennfremur
af útifundi æskulýðsfélaganna
við Austurvöll 14. maí síðast-
liðinn.
dóttir Sæhle, ennfremur Óskar
Sveinsson garðyrkjumaður, Sig-
urlaug Jónasdóttir matreiðslu-
kona, Jóhann Guðjónsson og
Þóroddur Þóroddsson.
Gunnar Frederiksen konsúll
hefir tvisvar áður gefið jafn-
háa upphæð til styrktar íslend-
ingum í Noregi.
Hvítasunnuför Ferðafélags íslands.
Ferðafélagið ráðgerir að fara
skemmtiför út á Snæfellsnes, um
hvítasunnuna. Farið verður með
m/s. „Víðir“ á laugardaginn kl. 2
e. h. til Akraness og ekið þaðan í
bílum um endilanga Borgarfjarð-
ar-, Mýra- og Hnappadalssýslu,
Staðarsveitina og alla leið að
Hamrendum í Breiðúvík. Það er
margt að sjá á þessari leið. Tjöld
viðleguútbúnað og mat þarf fólk
að hafa með sér, og þeir, sem vilja
skíði. Á Iivítasunnudag gengið á
Snæfellsjökul. í björtu veðri er
dásamlegt útsýni af jökulþúfunum.
Þá er sjálfsagt að skoða hina ein-
kennilegu staði á nesinu: Búðir,
Búðahelli, Búðahraun, Sönghelli,
Arnarstapa, Hellna, Lóndranga og
Malarrif og ef tími vinnst til, að
fara út í Djúpalón og Dritvík. Til
baka verður komið á mánudags-
kvöld. Áskriflarlisti liggur frammi
á skrifstofu Kr. Ó. Skagfjörðs,
Túngötu 5, en fyrir kl. 6 á fimmtu-
dag, 25. þ. m., verða allir að vera
búnir að taka farmiða.
Frh. af 2. síðu.
Kjósarsýsla: Kjósarhreppur.
Borgarfjarðarsýsla: Andakíls-
hreppur.
Mýrasýsla: Stafholtstunguhr.
Hraunhreppur.
Vestur-Húnavatnss.: Kirkju-
hvammshreppur. Hvammstanga
hreppur.
.Skagafj arðarsýsla: Stíflisstaða
hreppur. Skarðshreppur. Akra-
hreppur. Haganeshreppur. Holts
breppur.
Eyj afj arðarsýsla: Arnarneshr.
Saurbæ j arhr eppur.
Norður-Múlasýsla: Hlíðarhr.
Suður-Múlasýsla: Eiðahrepp-
ur. Beruneshreppur.
Ran gárvallasýsla: F1 j ótshlíð-
arhreppur. Vestur-Eyjafjallahr.
Árnessýsla: Hrunamannahr.
Hraungei öishrepþur.
Frh. af 2. síðu.
nefndinni ákvörðun sína um
norðurleiðina, þá sem að framan
getur og jafnframt það að búið
væri að veita B.S.A. sérleyfi á
öllum þeim leiðum, sem stöðin
hafði — og þar með á leiðinni
Akureyri—Húsavík, þvert ofan
í einróma tillögur nefndarinn-
ar.
Póst- og símamálastjórnin
hefir leigt bíla á norðurleiðirn-
ar en auk þess mun hún fá nýja
bíla.
Á þessu sumri verða ferðir
norður og vestur um Akranes,
en ekki um Borgarnes. Nefndin
leitaði eftir því við samgöngu-
málaráðherra að orðið yrði við
óskum fólks og ferðirnar tekn-
ar fyrir Hvalfjörð, en af því gat
ekki orðið vegna hjólbarða og
benzinsskorts.
Gera má ráð fyrir að gjald á
sérleyfisleiðum hækki nokkuð,
en hvgrsu mikið það verður er
enn ekki hægt að segja.“
IIREINGERNIGAR
Pantið í síma 4294
\ Birgir og Bachmann
Kaffibollar,
Djúpir diskar, ,
Steikarföt,
Kartöfluföt,
Sósukönnur,
Kaffilcönnur o. fl.
Héðsnshöfði h.f.
Aðalstræti 6 B. — Sími 4958