Alþýðublaðið - 14.06.1944, Blaðsíða 2
2
ALÞYÐUBLAOIP
Miðvikudagur
'- l.-X: frf
14. júní 1944.
að tögbergi 17. Júiií: Ti
Æ"cz zn z /xj
. • ÚsUoíXtÁf/fis*l ■ . . .. I
j=l
1 \i? p9 j |j Si 1231S3 j Xi |hí|
A .i 1. 4
Á uppdrættinum sést efst barniur Almannagjár, iþá í miðju sæti þingmanna, en til vinstri
sæti erlendra fulltrúa og annara gesta.
iSiÉtiirinnar er mi
Hátíðasvæðið
. Greinarger^ f rá |9|óðhátíðarnef nd.
1. Þingpallar að Lögbergi. 2.
íþróttapallur. 3. Lögreglustöð.
4. Bifreiðastæði. 5. Vegur inn á
Leiru. 6. Náðhús. 7. Póstur og
sími. 8. Brú yfir Öxará að á-
horfendasvæði. 9. Þingvallabær.
10. Valhöll. 11. Konungshús.
12. Tjaldstæði. 13. Lögreglu-
stöð. 14. Hjálparstöð rauða
krossins. 75. Veitingar.
ÞJÓÐHÁTÍÐARNEFND lét blöðunum í té í gær upplýs-
ingar ég uppdrætti að skipulagi á Austurvelli og á Þing-
völlum 17. júní næstkomandi.
Telur nefndin nauðsynlegt að þetta sé birt almenningi
nú svo að hann geti kynnt sér þessi mál áður en hátíðin hefst.
Athöfnin á Asisfur-
veBIi.
Athöfnin á Austurvelli hefst
stundvíslega kl. 9 f. h. og fer
frarn á vegum allþingis, verður
ræðumaður fiorseti sameinaðs
alþingis.
Eftirtöldum emlbættismönn-
um er auk ailra þingmanna, boð
ið að vera viðstaddir athöfnina:
Ríkisstjóra, ríkisstjórn, Forseta
hæstaréttar, Biskupinum yfir ís-
landi, öllum erlendum sendi-
herrum, lögreglustjóra hátíðar-
innar, og þeim meðlimum þjóð-
Ihiátiíðarneíndar, sem ekki eru ai-
þinigismenn.
Til Ibeggja hliða styttu Jóns
iSigurðssonar skal komið fyrir
fjölda fána. Sex lögreglujþjónar
— þrlír hvoru rnegin við and-
dyri aiþingishússins — skulu
mynda þar heiðursvörð. Lögregl
an skal banna alla umferð öku-
tækja um þær götur aliar, er
liggja að Austurvelli. Ennfrem-
ur skal lögreglan banna alla
umferð um Kirkjustræti til jafn
lengdar við suðurhlið Austur-
vallar. Svo og alla umferð al-
mennings um gangsfsíga vallar-
ins. Bann þetta skal ná til allra
nema þingmanna yboðsgesta,
blaðaimanna, ljósmyndara og
annara iþeirra, sem starfa í sam-
Ibandi við athöfnina. Bannið fell
ur niður jafnskjótt og athöfn-
inni er iokið. Lúðrasveit sú, er
Frumvarp á aBþingi um lausia-
kjör forseta Islands
50 þús. krónur á ári í Baun ©g verÖBagsupp-
béf samkvæmt gögym.
O íKISSTJÓRNIN lagði
1 gær fram á alþingi
rumvarp til laga' um laun
orseta Islands. Er það svo-
djóðandi:
1. gr. Forseti íslands hefir
að launum 50000.00 kr. á ári
og að auki verðlagsupbót sam-
kvæmt lögum.
Launin ásamt verðlagsuppbót
greiðasft á venjulegan hátt mán
aðarlega fyrir fram.
Fiíh. 6 7. síðu.
leika skal við þetta .tækifæri skal
áður en athöfnin hefst hafa tek-
ið sér stöðu á ákveðnum stað á
vellinium. Fánaberar þeir, er
standa skulu sinn hvoru megin
við ræðumanninn sfeulu einnig
ihafa tekið isér stöðu áður .en at-
höfnin hefist.
Stundvíslega kl. 9 f. h. skulu
iþingmienn ganga út úr aiþingis
| ihúsinu með forseta þingsins í far
I arbroddi og fyrstur forseti sam-
einaðs þings með rákisstjóra ís-
lands sér við hilið. Á eftir þing-
mönnum skal gan,ga formaður
Stúdentafélags Reykjavíkur
með blómsveig þann, er nota
iskal við þetta tækifæri.
Er iforsetarnir koma inn á
gangstíg skal forseti efri deild-
ar ganga inn á völlinn og honum
skulu fylgja allir þingmenn
deildar hans. Forseti neðri deild
ar síkal á sama hátt ,ganga inn
log lá eftir honum neðri deildar
iþingmennirnir. Forseti samein-
aðs alþingis skal hins vegar
'halda áfram beint upp að ræðu-
pallinum við styttnna og nema
þar staðar. Á 'eftir honum ganga
síðan inn á völlin fyrmefndir
tooðsgestir. Elftirtaldir boðsgest-
ir taka ,sér istöðu á sérstökum
stað lá vellinum: Ríkisstjóri,
níkisstjórnin, forseti ihæstarétt-
ar, biskupin yfir íslandi, erlendu
sendiherrarnir, lögreglustjóri
hátíðarinnar, ne.fndarmenn þjóð-
hiátiíðarinnar.
Á efitir þessum hópi skulu
ganga inn á völlinn, fréttamenn
útvarps og blaða og taka sér
stöðu á ákiveðnum stað. Ljós-
myndarar iþeir, sem taka myndir
við þetta tækifæri, iskulu að isjálf
sögðu hafa algjörlega frjálst svig
núm til starfa.
Er allir hafa tekið sér stöðu
samkvæmt framansögðu, þá tetk
ur Æorseti sameinaðs alþingis til
mláls og ,form. Stúdentafélags
Reykjavíkur réttir ihionum blóm
isveigin, sem fiorsetinn síðan legg
ur áífófstall styttunnar.
Að ræðunni lokinni leikur
lúðrasveitin þjóðsönginn og lýk-
ur með því þassari atihöfn.
Eftir athöfnina við styttu
Jóns Sigurðssonar á Austur-
velli, fara ríkisstjóri og þing-
menn, sendiherrar og aðrir, er
á 7. sf8u.:
minnil vestan Jiafs.
VegSeg hátíðahöld meSal V.-fislendinga.
----------------------- ♦ ----------
C1 FTIR ÞEIM upplýsingum, sem próf. dr. Richard Beck
hefir látið í té, mun lýðveldisstofnimarinnar verða
minnzt á ýmsan hátt meðal íslendinga vestan hafs og að til-
hlutvm beirra.
Bæði vikublöðin íslenzku í Winnipeg „Lögberg“ og
„Heimskringla" gefa út sérstaka hátíðarútgáfu í tilefni af
lýðveldisstofnuninni, en ritstjóri hins fyrrnefnda er Einar
P. Jónsson skáld, en Stefán Einarsson hins síðarnefnda.
Fjölmenn undirbúningsnefnd frá Þjóðræknisfélaginu og
öðrum íslenzkum félögum í Winnipeg stendur að veglegum
hátíðnahöldum þar, og er séra Valdimar J. Eylands, vara-
forseti Þjóðræknisfélagsins, formaður hennar.
Hefjast hátíðahöldin með út-‘
varpi yfir stöðvar kanadiska
ríkisútvarpsins að kvöldi þ. 16.
júní. Er ráð fyrir gert, að for-
sætisráðherra Kanada flytji þar
stutt ávarp, en af íslendingum
mun taka þátt í því útvarpi
þeir Walter J. Líndal, héraðs-
dómari, er flytur ræðu, og
Grettir L. Jóhannsson, ræðis-
maður íslands, sem lesa mun
kveðjuskeyti frá ríkisstjórn ís-
lands. Meginþáttur útvarpsins
verður söguleg frásögn í leik-
formi, einnig verður íslenzki
þjóðsöngurinn leikinn og sung-
inn.
Þ. 17. júní verða síðan há-
tíðahöld í Winnipeg, með ræð-
um, söng og upplestri frum-
ortra kvæða. Ákveðið 'hafði
verið, þegar dr. Richard Beck
fór að heiman, að séra Philip M.
Pétursson og Jón J. Bíldfell
skyldu tala, en einhverjir fleiri
munu þar einnig taka til máls.
Samdægurs mun mikil hátíð
haldin að Hnausum í íslendinga
byggðinni í Nýja-íslandi, og
verður Guttormur J. Guttorms-
son skáld, meðal ræðumanna
þar. Þá verða einnig hátíðahöld
um sama leyti að Mountain í ís-
lenzku byggðinni í Norður-Da-
kota, og að líkindum í íslenzku
byggðunum í Saskatchewan í
Kanada.
Lýðveldisstofnunarinnar va-rft
ur einnig minnzt á sérstakan
hátt í sambandi við ársþing
Lúterska kirkjufélagsins í Vest-
urheimi, sem haldið verður um
þær mundir í Argylebyggðinni
íslenzku í Manitoba.
Guðmundur Grímsson, dóm-
ari, mun útvarpa ræðu um lýð-
veldisstofnunina yfir útvarps-
stöðvar í N.-Dakota. íslending-
ar í New York gangast fyrir há-
tíðahöldum þar í borg; stúdenta
félagið íslenzka í Kaliforníu,
stendur að hátíðahöldum á þeim
slóðum. Vafalaust verður lýð-
veldisstofnunarinnar einnig
minnzt með samkomum annars
staðar meðal íslendinga á Kyrra
hafsströndinni og víðar á meg-
inlandinu, þó dr. Beck væri eigi
fullkunnugt um það, áður en
hann lagði af stað að vestan.
Jaíntefli milli Fram og
Víkings.
FIMMTI LEIKUR íslands-
mótsins fór fram í/gær-
kvöldi, með keppni milli Fram
og Víkings. Leikar fóru þannig,
að jafntefli varð á milli félag-
anna, 2 mörk gegn 2.
Verður nú hlé á mótinu fram
yf-ir þjóðhátíð, og er ekki full-
ráðið enn þá hvenær næsti leik-
ur fer fram, sennilega ekki fyrr
en eftir 20. þessa mánaðar.
Alþiiigis
Leigunámið á Hótel
Borg afgreiff sem lög
RUMVARPBE) um leigunám
veitingasalanna að Hótel
Borg náði smþykki beggja þing-
deilda í gær og var afgreitt sem
Iög frá alþingi.
Málið gekk í gegnum allar
umræður í báðum deildum í
gær, og voru veitt afbrigði frá
þingsköpum, til þess að fevo
mætti verða. í neðri deild var
frumvarpið endanlega sam-
þykkt með öllum greiddum at-
kvæðum gegn tveimur og í efri
deild með sam'hljóða atkvæð-
um. Að því búnu var það af-
greitt sem log frá Alþingi.
Íslandsglíman í kvöld.
f KVÖLD kl. 9, hefst ís-
landsglíman og verður
hún hóð í íþróttahúsi Jóns
Þorsteinssonar við Lindar-
götu. Tólf menn, frá fimm
félögum taka þátt í glímunni.
Eins og áður hefir verið frá
skýrt, verða úrslit glímunnar
ekki fyrr en 17. júní, eða á þjóð-
hátíðinni á Þingvelli, og mun
hver keppandi þá eiga eftir að
glíma þrjár glímur.
Þátttakendur í glímunni ut-
an af landi verða eftirtaldir
menn: Hallgrímur Þórhallsson
frá Ungmannafélagi Mývetn-
inga, en hann er glímukappi
þeirra þar nyrðra, Guðmundur
Guðmundsson úr Ungmannafé-
laginu Trausta, undir Eyjafjöll-
um og Einar Ingimundarson úr
Ungmennafélaginu Vöku í Vill-
ingaholtshreppi.
Frá Knattsyprnufélagi Reykja
víkur verða fjórir glímumenn
þeir: Finnbogi Sigurðsson,
Davíð Hálfdánarson, Kristinn
Sigurjónsson og Haraldur Guð-
mundsson.
Frá Glímufélaginu Ármanni
verða. svo fimm keppendur.
Fyrst skal frægan telja, Guð-
mund Ágústsson, núverandi
glímukonung íslands, auk hans
verða svo: Andrés Guðnason,
Sigurður Hallbjörnsson, Sigfús
Ingimundarson og Gunnlaugur
Briem.
Aðgöngumiðar að glímunni í
kvöld verða seldir í Bókaverzl-
un Isafoldar og Bókabúð Lár-
usar Blöndal, Skólavörðustíg 2.