Alþýðublaðið - 23.06.1944, Qupperneq 7
ALÞYÐUBLAÐIÐ
LandsraWeituáæflunin
Föstudagur 23. júní 1944.
\Bœrinn í áag.
Næturlæknir er í Læknavarð-
stofuni, sími 5030.
Næturvörður er í Laugavegs-
apóteki.
Næturakstur annast B. S. R.,
sími 1720.
ÚTVARPIÐ:
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
19.25 Hljómplötur: Harmonikulög
20.00 Fréttir.
20.30 Jónsmessuhugleiðing (Árni
Jónsson frá Múla).
20.55 St.rokkvartett útvarpsins:
Kvartett op. 18 nr. 1 í F-
dúr ef Beethoven.
21.10 Upplestur: „Noregur undir
oki nazismans“, bókarkafli
eftir Worm-Muller prófess-
or (Ragnar Jóhannesson).
21.35 Hljómplötur: Sönglög eftir
Hugo Wolf.
21.50 Frétir.
22.00 Symfóníutónleikar (plötur):
a) Gátutilbrigðin eftir Elgar.
b) Píanókonsert í Es-dúr
eftir Ireland.
23.00 Dagskrárlok.
Alfred D. Jónsson
ljósm. tók allar myndirnar af
lýðveldishátíðinni, sem voru í Al-
þýðublaðinu.
Athygli ferðamanna
skal hérmeð vakin á pésa einum
litlum, sem út er kominn og fæst
ókeypis í Pósthúsinu, en það er á-
ætlun fyrir ferðir m. s. Víðis til
og frá Akranesi á þessu sumri. Þar
er, auk ferðanna þangað skýrt frá
langferðabílumí sem haga ferðum
sínum eftir bátnum, t. d. Reykja-
ví,k—Akranes—Akureyri, svo og
til Stykkishólms, Ólafsvíkur, Grund
arfjarðar, Hreðavatns, Ölvers og
Reykholts svo og ferða frá Akur-
eyri, og um Egilstaði og frá Stykk
ishólmi út í FÍatey og að Brjáns-
læk.
Úlvarpi og hálíða-
höldin 17. og 18. júní
Frh. af 4. síðu.
flýitja tæki á milli þessara staða
og koma þeim fyrir.
Samkvæmt skýrslum, sem
EJíkisútvarpinu hafa borizt, hef
ir útvarpið yifirleitt tekizt vel,
og var athöfnin á Þingvelli sums
staðar felld inn í hiát’íðardag-
skrá á samkomum úti um land.
Eins og áður var getið, var þeirri
athöfn einnig útvarpað tii út-
landa, yfir Stuttbylgjustöð
Landssímans. Köfðu áður verið
sendar tilkynningar til útvarps-
stöðva þeirra, er til niáðist í Ev-
rópiu, til tveggja stærstu út-
varpsfélaganna í Bandaríkjun-
um, blaðanna Heimskringlu og
Lögbergs í Winnipeg og, að til-
hlutun utanríkismiálaráðuneyt-
isins, til sendimanma íslands í
öðrum löndum.
Skeyti hafa þegar borizt frá
Londlon og Stokkhöimi um það,
að stuttbylgjuútvarpið hafi
heyrzit ágætlega, og eru íslend-
ingar eriendis mjög þakklátir
fyrir þessa þjónustu.
JVJiér þótti hlýða, að þessi
fræðsla um þátt R'íkisútvarpsins
í hiátíðafhiöíldunum lægi fyrir, og
óg noita tækifærið til þess að
þakika ölium þeim staiifsmönnm
er með miklu og ótrauðu starfi
unnu að því að vel mætti tak-
ast.
Reykjaviík, 20. jún'í 1944.
,Tónas Þorbergsson.
SkátamóiiÖ á Þingvelli
Frh. af 2. síðu.
ferðir þrátt fyrir þoku og suld-
veður.
í fyrradag skoðuðu þeir
Þingvöll undir leiðsögu Bene-
dikts Sveinssonar, og fannst
þeim hinn mesti fróðleikur að
því, en fremur fengu þeir
heimsókn af 20 kennurum
þangað austur.
Frh. af 6. síðu.
Meðalverð á árskílówatti á
öllu landinu yrði þannig 89 300
kw. á kr. 216,00.
Meðalverð á kílówattstund
miðað við 4000 til 5000 stunda
notkun á ári 4,3—5,4 aurar.
Lífauleiðirnar
Aðalorkuflutningslínur:
Raufarhafnarlína: í 1000 watta
(á mann) áætluninni er gert ráð
fyrir að málspenna iínunnar sé
60 kv. I 500 watta (á mann) á-
ætluninni er hins vegar reiknað
með að málspenna línunnar
verði fyrst um sinn höfð 30 kv.,
en að línan verði þegar í byrjun
byggð fyrir 60 kv. þannig að
hækka megi spennuna í 60 kv.
þegar ástæður þykja til.
Línuleiðin: Frá orkuveri Lax-
ár (við Brúarfossa) liggur lín-
an beina leið út að Þverá í
Reykjahverfi. Þar er spennistöð
til að lækka spennuna (ef 60 kv.
málspenna er notuð) niður í 30
kv. fyrir Húsavík og 10 kv. fyrir
sveitaveitur.
Frá Þverá er gert ráð fyrir að
línan liggi austur yfir Reykja-
heiði, um Geldingadal, Arna-
hvamm og Grísatungu, yfir Vík-
ingavatns- og Garðsheiðar, aust-
ur yfir láglendi Kelduhverfis,
fram hjá Garði og Skógum og
utan við Axarnúp og Valþjófs-
staðafjall að Einarsstöðum á
Sléttu. Þar sé spennistöð fyrir
Kópasker og sveitaveitur. Frá
Einarsstöðum liggur línan því
sem næst í beina stefnu norð-
austur yfir Sléttu, um Hólsstíg,
til Raufarhafnar.
Húsavíkurlína: 30 kv. lína
liggur frá spennistöðinni við
Þverá, ofan við Laxamýri og
beina leið til Húsavíkur.
Akureyrarlína: Hún liggur frá
orkuverinu við Brúarfossa yfir
Aðaldal og Fljótsheiði og vestur
yfir Skjálfandafljót meðfram nú-
verandi háspennulínu, en fjar-
lægist hana síðan og liggur vest-
ur Ljósavatnsskarð, sunnan við
Ljósavatn, fram hjá Hálsi og yfir
Vaðlaheiði, um Geldingsárskarð,
inn Svalbarðsströnd og vestur
yfir Eyjafjörð um Hólmana. Lína
þessi er 132 kv., en í áætluninni
um 500 wött á mann er þó gert
ráð fyrir að hún verði fyrst um
sinn rekin með 60 kv. mál-
spennu. Frá aðalspennistöðinni
við Akureyri liggja 10 kv. línur
inn Eyjafjörð og út Kræklinga-
hlíð að Dagverðareyri og um ytri
hluta Hörgárdals, en 132 kv. lína
liggur út með Eyjafirði að vestan.
Hjalteyrarlína: Við þverveginn
til Hjalteyrar er spennistöð til að
lækka spennuna í 10 kv. fyrir
dreifilínur, sem liggja þaðan til
Hjalteyrar og byggðanna þar í
kring.
Dalvíkurlína, 132 kv., liggur
frá spennistöðinni við Hjalteyri
út Arskógsströnd að Dalvík. Þar
er spennistöð til að lækka spenn-
una í 60 kv. fyrir Óiafsfjörð og
Siglufjörð og niður í 10 kv. fyrir
Hrísey, Dalvík og umhverfi.
Ólafsfjarðarlína, 60 kv., liggur
frá Dalvík upp Karlsárdal og um
Dranga og Bustarbrekkudal til
Ólafsfjarðar. Þar er spennistöð
til að lækka spennuna í 10 kv.
fyrir kauptúnið og byggðina í
kring.
Siglufjarðarlína, 60 kv., liggur
frá Ólafsfirði um Rauðsskarð til
Héðinsfjarðar og þaðan um Hest-
skarð til Siglufjarðar. Þar er
spennistöð til að lækka spenn-
una í 10 kv.
I 500 watta áætluninni er
Siglufjarðarlínan ekki talin með.
Sliagafjarðarlína, 132 kv., ligg-
ur frá Dalvílc inn Svarfaðardal
um Heljardalsheiði, Viðvíkur-
sveit og yfir Hegranes til Sauð-
árkróks. Þar er spennistöð 60/10
kv. og frá henni liggja 10 kv.
dreifilínur út um héraðið, meðal
annars til Hofsóss.
Blönduósslína, 132 kv. línan
liggur frá Sauðárkróki um Kol-
haugafjall til Blönduóss. Þar er
spennistöð 132/10 kv. og frá
henni fara 10 kv. dreifilínur út
um héraðið, þar á meðal til
Skagastrandar.
Hrútafjarðarlína, 132 kv. línan
liggur frá Blönduósi fram hjá
Giljá innan við Hópið yf’ir MiS-
fjarðarháls og Hrútafjarðarháls
að spennistöð, 132/60—30—10
kv., við Hrútafjarðará nálægt
Meium. Frá spennistöðinni liggur
60 kv. lína norður Strandir, 30
kv. Iína vestur í Dali um Hauka-
dalsskarð og 10 kv. dreifilínur
út um héruðin.í kring um Hrúta-
fjörð, og til Hvammstanga.
Línan frá Akureyri til Hrúta-
fjarðarár verður rekin með 60
kv. málspennu miðað við 500
,wött á mann, en byggð þannig,
að flytja megi eftir henni straum
með 132 kv. spennu síðar.
Bitrufjarðarlína, 60 kv., liggur
frá Hrútafjarðarspennistöð út
með Hrútafirði að vestan, norð-
an við Sandfell að Bitrufjarðar- |
botni. Þar er spennistöð 60/10 !
kv. og frá henni liggja 10 kv.
dreifilínur til sveitanna í kring
og yfir Snartartunguheiði að
Kleifum í Gilsfirði. Þaðan liggur
10 kv. lína norðan við Gilsfjörð
innan við Króksfjörð og Beru-
fjörð til Reykhóla. Önnur 10 kv.
lína liggur frá Gilsfjarðarbotni
út í Saurbæ.
Hólmavíkurlína liggur frá
Bitrufjarðarbotni um Bitruháls,
innan við Kollafjörð til Stein-
grímsfjarðar og inn með honum
að austan, til Hólmavíkur. Þar er
spennistöð 60/10 kv. fyrir Hólma-
vík og nágrenni.
Nauteyrarlína, 60 kv., liggur
frá Hólmavík inn að Steingríms-
fjarðarbotni, þaðan norður yfir
Steingrímsfjarðarheiði og um
Lágadal að orkuveri við Naut-
eyri.
Reykjarfjarðarlína, 60 kv.,
greinist' út frá Nauteyrarlínu við
Steingrfmsfjarðarbotn og liggur
vestur Trékyllisheiði í Reykjar-
fjarðarbotn. Þar er spennistöð
60/10 kv. fyrir síldarverksmiðj-
una í Djúpuvík og nágrennið.
Ingólfsfjarðarlína, 60 kv., ligg-
ur frá Reykjarfjarðarbotni um
Reykjarfjarðardal norður að
botni Ingóifsfjarðar. Þar er
spennistöð 60/10 kv. fyrir síldar-
verksmiðjuna í Ingólfsfirði og
nágrennið.
Haukadalslína, 30 kv„ liggur
frá spennistöðinni í Hrútafjarð-
arbotni um Haukadalsskarð og
niður Haukadal að Stóra-Skógi í
Dalasýslu. Þar er spennistöð 30/
10 kv. og þaðan liggja 10 kv.
dreiíilínur um umhverfið, m. a.
til Búðardals og út að Staðarfelli.
Borgarfjarðarlína, 132 kv.,
liggur frá spennistöð í Hrúta-
fjarðarbotni suður Holtavörðu-
heiði og Norðurárdal niður undir
Sveinatungu, en þaðan beina
leið yfir Þverárhlíðarháls um
Þverárhiíð, ■ Stafholtstungur og
Bæjarsveit, að orkuveri við
Andakílsá. Þar er spennistöð og
línugreining. (50 kv. lína liggur
vestur á Snæfellsnes, 30 kv. lína
fer til Akraness, 10 kv. dreifilín-
ur liggja til héraðanna í kring,
m. a. til Borgarness.
Snæfellsnesslína, 60 kv., liggur
frá Andakílsárvirkjun í norð-
vestur innan við Borgarfjörð
beina línu að Haffjarðará neðar-
iega og þaðan beint vestur að
Fáskrúðarbakka. Þar er spenni-
stöð 60/30—10 kv. 30 kv. línan
liggur til Stykkishólms, en 10
kv. dreifilínur um sveitirnar í
kring, m. a. að Stapa og Hellnum.
Stykkishólmslína, 30 kv., ligg-
ur frá Fáskrúðarbakka norður
yfir Kerlingarskarð. Norðan við
skarðið (hjá Gríshóli) er spenni-
stöð 30/10 kv. Þaðan liggur 10
kv. dreifingarlína til Stykkis-
hólmp og nágrennis.
Grundarfjarðarlína, 30 kv.,
liggur frá spennistöðinni hjá
Gríshóli vestur að Hraunsfirði,
inn fyrir botn hans um Trölla-
háls, innan við Kolgrafafjörð, út
með honum að vestan og um Eiði
til Grundarfjarðar að Framnesi.
Þar er spennistöð 30/10 kv. fyrir
Grundarfjörð.
7
Gamlir keppinautar.
Þessi mynd sýnir tvo fyrrverandi heimsmeistara í hnefa-
leikum (þungavikt) James J. Tunney, til vinstri, sem er for-
ingi í Bandaríkjafioíanum og William II. Dempsey, sem er
foringi í strandvarnarliöi Bandaríkjanna. Hér ræða þessir
gömlu keppinautar saman í miðdegisverði í New York.
Þarna voru saman komnir ýmsir þeir, sem stjórna eiga
fimleikum og líkamsuppeldi í her- og flota Bandaríkjamanna
Ólafsvíkurlína, 30 kv., liggur
frá Grundarfirði út með Látra-
vík, um Búlandshöfða og Fróð-
ársveit til Ólafsvíkur. Þar er
spennistöð 30/10 kv. fyrir Ólafs-
vík og umhverfi og þaðan liggur
10 kv. lína að Sandi.
Akranesslína, 30 kv., liggur
frá Andakílsárvirkjun út með
Borgarfirði um Melasveit, yfir
Leirárvogsós til' Akraness. Þar er
spennistöð 30/10 kv. fyrir Akra-
nes og umhverfi.
Hvalfjarðarlína, 132 kv., liggur
frá Andakílsárvirkjun um Geld-
ingadraga, Svínadal og Hval-
fjarðarströnd, að Hvalvatnsvirkj-
un hjá Stóra-Botni.
Reykjavíkurlína, 132 kv., ligg-
ur frá Hvalvatnsvirkjun út með
Hvalfirði að Fossá, upp Fossár-
dal, þvert yfir Kjós, um Svína-
skarð og Mosfellssveit að Eilliða-
ám. Þar er spennistöð 132/60—
30—10 kv., fyrir Reykjavík og
umhverfi.
Hafnarfjarðarlína, 30 kv., ligg-
ur frá Elliðaám til Hafnarfjarðar.
Keflavíkurlína, 30 kv., liggur
frá Hafnarfirði út -Reykj anes-
skaga að norðan. Þar er spenni-
stöð 30/6—10 kv. fyrir Keflavík
og umhverfi, þar á meðal Sand-
gerði.
Grindavíkurlína, 10 kv., geng-
ur út frá spennistöð 30/10 kv.,
sem byggð er á Keflavíkurlínu
nálægt Vogum. Línan liggur
þvert suður yfir Reykjaness-
skaga til Grindavíkur.
Selfosslína, 60 kv., liggur frá
Sogsvirkjun að spennistöð, 60/10
kv., austan við Selfoss, nálægt
Arnarstöðum. Frá spennistöð-
inni liggja 10 kv. dreifilínur til
byggðanna í kring, þar á meðal
að Stokkseyri, Eyrarbakka, Sel-
fossi og Hveragerði.
Landeyjalína, 60 kv., liggur frá
Arnarstöðum beina leið austur
yfir Flóa, Holt og Vestur-Land-
eyjar að spennistöð 60/20—10
kv. nálægt Fíflholti í Vestur-
Landeyjum. Þaðan liggja 10 kv.
dreifilínur til héraðanna í kring
og 20 kv. lína og sæstrengur til
V estmannaeyj a.
Vestmannacyjalína, 20 kv.,
liggur frá spennistöðinni við
Fíflholt, austur á Krosssand. Þar
tekur við sæstrengur til Vest-
mannaeyja.
Geysislína, 10 kv. dreifilína,
liggur frá orkuveri við Sog,
sunnan við Búrfell upp Gríms-
nes og Biskupstungur að Geysi.
Auk framantalinna lína eru
dreifilínur um sveitir. Þá er gert
ráð fyrir að Vestfjarðarafveitu-
kerfið verði síðar tengt við lands-
kerfið með línu frá Nauteyrar-
vir-kjun og enn fremur að Aust-
fjarðakerfið verði síðar tengt við
landskerfið með línu á milli
Raufarhafnar og Þórshafnar.
r
Utibaðslaður sunnan
við Tjörnina!
Frh. af 2. síðu.
fláann, mætti velgja sandinn
þannig, að þægilegt væri að
liggja í honum og gæti þetta
gert almenningi kleyfa meiri úti-
vist og sólböð en nú tíðkast. Með
þessu móti yrði syðri tjörnin
sannkallaður heilsubrunnur.
í sambandi við þessa hvítu og
hlýju náttúrubaðströnd yrði
höfði nýtízku baðströnd þar 'sem
væru fatageymzlur og þar sem
unnt væri að njóta styrkjandi
gufubaða, vatnsbaða, t Íoftbaða,
ljósbaða, nudds o. fl.
í höll þessari væri nýtízku
veitingastaður byggður að
mestu úr stáli og gleri, með
pálmagarði og suðrænum jurt-
um og væri úr honum hin feg-
ursta útsýn yfir skemmtigarð-
inn, tjörnina, 'baðstaðinn og
suður yfir flugvöllinn til suður-
fjallanna.
í höll þessari mætti hafa
stærsta og fullkomnasta gistihús
landsins. En lega þess væri hent
ug þarna rétt við framtíðar
flughöfn bæjarins, og má búast
við að þar yrði all gestkvæmt
þegar tímar líða.
Loks má hugsg sér að tónlist-
ar- og æskulýðshöll borgarinn-
ar gæti verið í þessu sama stór-
býsi, og að halda mætti þar úti-
tónleika á fögrum sumarkvöld-
um fyrir garðgesti.
Akvarium -— eða fiskábúr,
sem fiskiþjóð eins^og íslending-
ar þurfa fyrr eða siðar að eign-
ast, gæti og átt heima á þess-
um stað, borgarbúum til fróð-
leiks og skemmtunar.
Hljómskálagarðurinn og svæð
ið næst suður af honum, er að
mínu áliti tilvalið Tivoli Reykja
víkur.
í kringum tjörnina eiga að
koma skemmtistaðir borgarinn-
ar með glitrandi ljósaauglýsing-
um, er speglast í vatnsfletin-
um.
Upplýstur gosbrunnur — eða
tilbúinn goshver úti í vatn-
inu, gæti enn aukið á tilbreyt-
inguna.
Ég hefi minnst á þessa hug-
mynd við nokkra málsmetandi
menn, sem hefir þótt hún at-
hyglisverð og sendi ég yður
hana hérmeð til vinsamlegrar
' athugunar og fyrirgreiðslu.