Alþýðublaðið - 19.07.1944, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 1». júlí 1944.
Bœrinn í dar
Næturlæknir er í Læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Laugavegs-
apóteki.
Næturakstur annast Hreyfill,
sími 1633.
ÚTVARPIÐ
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
16.30—16.00 Miðdegisútvarp.
19.25 Hljómplötur: Óperusöngvar
20.00 Fréttir.
'20.30 Erindi: ,,Er til siðferðilegur
mælikvarði?“ (séra Óskar
Þorláksson frá Siglufirði).
21.00 Hljómplötur: íslenzkir ein-
söngvarar og kórar.
21.10 Erindi: Frá Krýsuvík (Stef-
án Stefánsson túlkur. —
Hallgrímur Dalberg flytur).
21.35 Hljómplötur: Svíta úr Pétri
Gaut, nr. 2, eftir Grieg.
21.50 Fréttir.
Dagskrárlok.
Ferðafélag íslanðs
ráðgerir að fara skemmtiför til
Gullfoss og Geysis næstkomandi
sunnudag. Ekið austur Hellisheiði
til Gullfoss og (jleysis. Sápa látin
í Geysi og reynt að ná fallegu
gosi. Þá verður komið að Brúar-
hlöðum og í bakaleið ekið upp með
Sogi austan Þingvallavatns og á
Þingvöll, en iþaðan til Reykjavík-
ur. Lagt af stað kl. 8 árdegis.
Farmiðar seldir á skrifstofu Kr. Ó.
Skagfjörðs, Túngötu 5 til kl. 6 á
föstudag.
Trúlofun.
Nýlega opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Jóhanna Brynjólfs-
dóttir verzlunarmær, Egilsgötu 14,
og Ósvald Wathne stud. mag., Lauf
ásvegi 17.
Sextug
er í dag frú Júlíana Björnsdótt-
ir Brávallagötu 48.
Félagslíf.
Ármennmgar!
Handknattleiksæfing hjá
karlafl. í kvöld kl. 8 á tún-
inu við Þvottalaugarnar.
Mætið allir stundvíslega.
Frá Breiðfirðinga-
félaginu
Ferð að Sælingsdalslaug n.k.
laugardag. Farið frá Búnlað-
arfélagshúsinu kl. 13. Verið
á héraðsmóti U.M.S.D. á
sunnudaginn. — Ekið til
Reykjavíkur á mánudag1.
— Farmiðar í Hattabúð
Reykjavíkur í dag og á
morgun.
Bjarni Guðmudison
löggiltur skjalaþýðari —
(enska) Suðurgötu 16. —
Shni 5828. — Heima kl.
6—7 e. h.
Ea3sanniai253jaöi2S2
Útbreiðið
Alþýðublaðið
Hjartanlega þökkum við auðsýnda innilega samúð við andlát
og jarðarför konunnar minnar og móður okkar,
B»érdísar sáS. Arnórsdótt&sr
frá Snæfjöllum.
Við biðjum guð að launa þeim öllum fjær og nær, sem hafa
með fórnfúsum vilja veitt Þórdísi sáluðu alla þá hugsanlega hjálp
í hennar miklu veikindum.
Bjami Jónsson, dætur og tengdasynir.
Konan mín
Asta BJörnsdéitir
og sonur okkar verða jarðsungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn
20,. þ. m. Athöfnin hefst með húskveðju á heimili okkar, Vífils-
götu 19, kl. IV2 é. h.
Kransar afbeðnir.
Fyrir hcnd dóttur okkar Elsu.
Sigurður Guðmundsson.
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð v.ið andlát og jarðarför
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
Kristínar Friðbertsdóttur.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
DAG er fainn góðkunni
-1 ■ Reykvíkingur Guðm. B.
Hersir bakari fimimtugur.
Hann er fæddur í Reykjavík
19. júlií 1894 og nær állan þann
tíma verið í Reykjavílk nema
um 1 ár í Vestmannaeyjum og
3 ár erlendiis Oig startfaði þar við
iðn slína.
Við þessu menku tímamót í
ævi Guðimuiidar mun Bakara-
sveinafélag íslanlds . fœra hon-
uim heztu árnaðaróskir með
virðulegu þakklæti Æyrir hið
mikla starf er hann hefir unnið
fyrir félagdð og stéttina.
Guðm. hetfdr einna lengst af
öllum féiögum B. S. F. í. starf-
að að þróun þess og velgengni,
enda nýtur hann fyllsta trausts
félaga sinna, sem ár etftir ár
hafa kjörið hann í ýmsar þýð-
ingarmestu trúnaðarstöríf og
stöður 3vo sem ritara, varafor-
mann, formann, fulltrúa á Al-
þýðusamibandislþing, prófdóm-
ara í brauða- og kökugerð og
margt flaira sem oif langt yrði
upp að telja, í fáum orðum sagt
• 'hetfir Guðlm. verið einn aí beztu
mláttar stoðum félagsins um
mörg ár og á vonanidi eftir að
vera það lengi enn þá.
Til hafingju með daginn. —
Lifðu heill næstu fimmtíu ár.
G. í.
Kona byggir sér
íbúðarskúr í flæðar-
méli
KONA ein hafir tekið það
ráð í búsnæðisvandræðun-
um að byggja sér íveruskúr
fyrir neðan Skúiagötu uiður-
undian Vitastígnum og þar býr
hún einis síns liðs og hafir kött
sér til skemmtunar i einverunni.
H'efir gamla konan byggt
skúrinn sjálf og málað hann og
mun það óalgengt að konur
standi í búsasmíðum.
Sjálfsagt væsir ek'ki um kon-
una þarna í skúrnum í sumar,
1 ef tíð verður góð, eins og verið
hefir, en hætt er við að verði
næðingssamt þarna þegar vetra
tekur, t. d. í vestanátt, þegar
sjónum skolar þarna upp á bafck
1 an, því varla eru yifir tíu metrar
frá skúrnum niður að sjávarmiál
inu, svo hætt er við að einthvern
tíma koimi skvetta á skúrinn og
mun þó tæplega vera forsvaran-
legt að láta konuna vera þar
einisamla, þótt eins og áður er
sagt, að vel megi vera að ekki
væsi um hana þar í sumar.
Trúnaðarráð Dagsbrúnar
heldur fund . annað kvöld
(fimmtudag) kl. 8.30 á Skóla-
vörSustíg 19, gengið inn frá Klapp
arstíg.
ALÞYÐUBLAÐIÐ __
v-’ic úí y ®
Vestfjarðaför
Ármanns
Framhald af 2. síðu
Á Patrekstfirði, ytfirgaf iþrótta
fóllkið Súðina, þakiklátt í huga
og með igóðar endurminningar
um ágæta aðíbúð, sem það átti
hjá skipslhiöfninni. Frá Patreks-
'firði var svo farið með bitfreið-
um til Tálknaifjarðar, en þaðan
var farið mieð Sæbjörgu til Þing
eyrar. Einnig þar fengu flokk-
arnir hina mestu greiðvikni og
góða viðkenningu við skipslhöfn
ina, einnig var farið til nokk-
urra staða í smærri mótor'bát-
um.
Koman í héraðsskólana að
Núpi og Reykjarnesi, var flokk-
unurn mjiög ánægjuleg, iþar j
divalidi allur hópurinn, sem gest- J
ir Aðalsteins Eiríikssonar skóla
stjóra og konu hans, og nutu
'hinnar mestu rausnar, þeirra
hjóna beggja.
Á Reykjanesi er risin upp,
eins og kunnugt er, mikil menn-
•ingar og íþróttamiðstöð.
Á flestum viðkomustöðunum
voru það ungmenna- eða í-
þróttafélög staðanna sem önn-
uðust móttölkur flokkanna.
Á ísafirði sá íþróttasamlband
ístfirðinga um móttökurnar, og
var fliokkunum haldið þar sam-
sæti í Sfcíðaskálanum í Selja-
landisdal atf Skátatfélaginu Val-
kirja, íþróttafélaginu Herði og
Sikíðafélagi Ísaffjarðar. Skemmti
legasti kalfli, fararinnar, sagði
Jens Guðbjörnsson, var er frá
Arngerðaeyri var komið í Lauga
dalsbotn, því þar biðu okkar
37 hestar, og 3 fylgdarmenn og
var farið á hestunum ýfir Þorska
fjarðarheiði og niður í Kolgra-
fardal.
Útvegun hestanna annaðist
Maignús Ingimundarson í Bæ.
Frá Kinnastöðum var svo ek-
■í bilfreið til Reyikjavikur, og
komu flokkarnir þangað úr þess
ari glæsilegu íþróttatfiör sinni,
eins og áður er sagt á sunnu-
dagskvöld.
I sambandi farar þessarar má
geta þess, að Vesttfirðingar buðu
Ármenningum að senda mann
á skíðakennaraskólann í Skíða-
skálanum í Seljalandsdal, enn-
fremur var Ármanni boðið að
senda giímutflokk til Vestfjarða
næsta sumar.
Var á formanni Ármanns að
heyra, að hann var mjög ánægð-
ur yifir þéssari för og þakklátur
fyrir þær höfinglegu og hlýju
móttö'kur sem fiolkkarnir mættu
og kvað hann för þessa vera
þátttakendum hennar ógleym-
anleg.
Yesíijaröaför Rich-
ards Beck, préfessors
Frh. af 2. síðu.
Núpi í Dýrafirði. Þar tók séra
Eirikur Eiríksson, skólastjóri
og forseti ungmennafélaganna á
móti mér. Var samkoma í skól-
anum eftir hádegið og talaði ég
þar, sagði meðal annars fréttir
af lífi og starfi landa vestra.
Ég notaði tækifærið til að heim
sækja öldunginn Sigtrygg Guð-
laugsson, sem ég hef lengi dáðst
að. Eg skoðaði og skrúðgarðinn
,,Skrúð“ og varð undrandi yfir
fegurð hans. Sýndi hann mér,
hvað megna má með islenzkri
mold, ef fúsar hendur vinna
með henni. Þá var aftur haldið
til ísafjarðar. Þar var haldin
mjög fjölmenn útiskemmtun og
munu hafa sótt hana um 1000
manns. Þar talaði ég um Vest-
ur-íslendinga. Þetta sama kvöld
lagði ég af stað frá ísafirði og
fylgdi forseti bæjarstjórnar ísa
fjarðar, Guðmundur Hagalín
mér hingað.
Öll þessi för verður mér ó-
gleymanleg. Ég get ekki nefnt
nöfn allra þeirra mörgu, sem ég
þarf að þakka. Ég verð að láta
mér nægja að þakka þeim öll-
um í einu. Ég fann hlýjuna og
alúðina streyma til mín úr öll-
um áttum og hvort tveggja flyt
ég með mér vestur um hafjé
Dr. Richard Beck er og sann-
arlega mikill aufúsugestur hér.
Okkur finnst að um leið og við
fögnum þessum mikilhæfa
manni landa okkar vestra séum
við að fagna þeim öllum og við
væntum þess að 'hann megi færa
þeim mikla hlýju frá okkur hér
heima.
Iðja í Hafnarfirði
segir upp samnlngum
við RAFHA
ÐJA í Hafnarfirði, félag
verzlunarfólks þar hef-
ir nú sagt upp samningum
við Raftækjaverksmiðjuna
Rafha, og eru samningarnir
úr gildi 1. ágúst n. k.
Nýlega fór fram atlkvæða-
greiðsla um heimild til handa
stjórninni að hefja vinnustöðv-
un frá 1. ágúst næstkomandi.
Atkvæði féllu þannig að já
sögðu 21 við vinnustöðvuninni
en 3 sögðu nei.
.Samningaumleitanir munu
ekki vera hafnar ennþá.
HaudknaHleiksmót
kvenna á Ákureyri
Frá . fréttaritara . Alþýðu-
blaðsins á Siglufirði í gær.
RIÐJA handknattleiks-
mót norðlenzkra kvenna
var háð á Siglufirði síðast
liðinn sunnudag.
Tdu kapplðkir vpru háðir og
urðu úrslit þau, að Völsungar
frá Húsavík sigruðu, hlutu 6
Stig og unnu bikarinn í annað
sinn. Næstar urðu A-sveit Knatt
spyrnuífélags Siglufjarðar með
5 stig, Þór Akureyri hlaut 5
stig, Knattspyrnuifélag Akureyr
fgr. 4 stig, A-sveit K. S. ekkert
stig.
Dómari var Björgvin Bjarna
son. Motstjórn skipuðu, formað-
ur Vigfús Friðjónsson, Bjiörgvin
Bjarnason og Anna Hertervig.
Mótið fór í alla staði mjög
vel fram.
Viss.
K.R. heiðrar
Bénedikt Jakobsson
eg ivo íþrólfimenn
brtsttBÍn
sma
M ÝLEGA hélt K. R. sig-
* ^ urhátíð í tilefni af hin-
um glæsilegu sigrurfl félags-
ins á Allsherjarmóti í. S. í.
Á hátíð þesisari aiflhentu frjáls
fþróttamenn félagsins Benedikt
Jakoihssyni, sem verið hefir
þjálfari félagsins í 10 ár, mjög
fagra, útskorna fánastöng með
fána R. K. Er gjöf þassi þakk-
lætisvottur við Benedikt fyrir
starf hans í þágu félagsins á
þeim 10 árum, sem hann hefir
verið kennari í frjálsum íþrótt-
um.
Einnig voru Gunnar .Huseby
og Skúli Guðmundsson heiðr-
aðir af stjórn fiélaigsins fyrir hin
glæsilegu íþróttaafrek sín. Var
hvorum þeirra um sig afhent-
ur silfurbikar í viðurkenningar
skyni.
Unglingstelpu
11—13 ára vantar til að
gæta barns. Upplýsingar á
Bjargarstíg 15, fyrstu hæð.
Leikaraúlgáfan