Alþýðublaðið - 10.08.1944, Qupperneq 7
Miðvikudagur 9. ágúst 1944
ALHYÐUBLAÐIÐ
! Bœrinn í dar
:i____________________
Næturlæknir er í Læknavarð-
•stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Ingólfsapóteki.
Næturakstur annast B.S.R., sími
1720.
ÚTVARPIÐ:
19.25 Hljómplötur: Söngdansar.
19.40 Besin dagskrá næstu viku.
20.00 Fréttir.
20.20 Útvarpshljómsveitin (Þór-
arinn Guðmundsson stjórn-
ar): a. „Kalífinn frá Bag-
dad“ eftir Bolieidie. b. Int-
ermezzo eftir Meyer-Hel-
mund. c. „Einn dagur í Feneyjum“
eftir Nevin.
'20.50 Frá útlöndum (Jón Magnus
son).
21.10 Hljómplötur: Lög leikin á
cello.
21.15 Upplestur: „Við Babylons-
fljót“, bókarkafli efir Kaj
Munk (Sigurbjörn Einars-i
son prestur).
21.35 Hljómplötur: Ensk þjóðlög.
og lagt dxög að því að þessi
-ríki ‘hafi með sér samtök í hinu
erfiða starfi, sem heimsins mun
bíða eftir stríð.
Sem stríðsleiðtogi hefir Win-
ston Churchill unnið slíkar
dáðir, að ég tel hann einhvern
hinn mikilhæfasta hermálaráð-
herra Breta fyrr og síðar. És
skírskota til tveggja dáða, sem
Churchill hefir drýgt og. sanna
hæfni hans sem stríðsleiðtoga.
Hin fyrri var sú, er hann sigr-
aðist á kafbátáhættunni 1942 og
1943. Að mínum dómi voru við
horfin þannig árið 1942, að kaf-
bátahættan var það vopn óviri-
anna, sem beit bezt í barátt-
við bandamenn. Winston Churc-
hill lagði sig allan fram um að
skipuleggja sókn gegn kafbát-
um óvinanna. Kafbátahernaður-
inn var það vopn, sem Hitler
gerði sér von um að myndi ráða
úrslitum styrjaldarinnar. Og
það var einmitt þetta vopn, sem
Winston Churchill braut í
höndum hans. Ef til vill hefir
hann þar með ráðið úrslitum
hildarleiksins.
Önnur dáð hans, sem ég vildi
gera að umræðuefni, er sú,
hversu framsýnn hann var, er
hann efndi til hernaðarins á
.Miðjarðarhafinu. Það sannar
gleggst hermannshæfileika
Churchills hversu skyggn hann
var á mikilvægi hernaðarins á
Miðjarðarhafi. Hernaðurinn þar
varð til þess, að Ítalía var of-
urliði borin og ráðagerðir Hitl-
ers um það að taka hö^d.......
saman við Japani til þess að
tryggja sigur möndulveldanna
":runnu út í sandinn.
Á þessum fjórum ógnaárum
hildarleiksins, hefir Winston
Churchill sannað hæfni sína
sem stríðsleiðtogi ög stjórnmála
maður, þannig að til einsdæma
mun verða talið. Ef honum end-
ist líf og heilsa til þess að halda
áfram starfi sínu eftir stríð,
mun hann áreiðanlega geta sér
slikan orðstír, að- hann verði
talinn mestur afburðamaður
samtíðar sinnar.
Það hefir verið auðna banda-
manna, að þeir hafa haft mik-
ilhæfum leiðtogum á að skipa
á hinum válegu tímum, sem yf-
ir hafa dunið að undanförnu.
En meðal þeirra ber Winston
Churchill vissulega hæst allra.
För hnefaleikaranna
Frh. af 2. síöu.
Ný sljórn iekin við
á Finnlandi.
i ■
Forsætisráðherra
hennar er Anti
Hackzell.
STJÓRNARSKIPTI eru nú
Finnlandi og voru þau til
kynnt í Helsinki í fyrrakvöld.
Hin nýja stjórn er samsteypu-
stjórn, en forsætisráðherra henn
ar er lAnti Hackzell, einn af
þekktustu stjórnmálamönnum
finnska íhaldsflokksins. Utan-
ríkismálaráðherra er Carl Enc-
kell, einnig gamall og reyndur
stjórnmálamaður, meðlimur
sænska flokksihs.
Enginn hinna þekktari
manna fráfarandi stjórnar á
sæti í nýju stjórninni, þannig
til dæmis ekki Linkomies,
Tannes 'né Ramsay. Og talið er,
‘að meirihluti stjórnarinnar
muni ákveðinn í því, að reyna
að fá frið sem fyrst.
Anti Hackzell, hinn nýi for-
sætisráðherra, var sendiherra
Finnlands í Moskva 1922—1929
og utanríkismálaráðherra 1932
—1936! Carl Enckell hefur og
einnig áður verið utanríkis-
málaráðherra, 1918—1919 og
aftur 1922—1924. Einnig síðar
hefur hann komið mikið við
stjórnmál í Finnlandi og fylgdi
meðal annars Paasikivi til
Moskva í vor, þegar friðarum-
leitanirnar stóðu yfir við
Rússa.
Sóknin til Parísar.
Frh. af 3. sá»u.
sjá mætti, þegar flogið væri nú
inn yfir Frakkland; alls staðar
sæjust herflutningar að baki
víglínu bandamanna, en að baki
víglínu Þjóðverja væru vegirn-
ir auðir, margir þeirrá væru
eyðilagðir og marga þyrðu Þjóð
verjar ekki að nota, nema þá
að nóttu til, af ótta við loftárás-
j ir. Allt landflæmið milli Seirie
' og Loire, sagði Sir Lee-Mall-
ory, væri raunverulega einangr
að, því að flugvélar banda-
manna væru búnar að sprengja
í loft upp allar brýr á Loire og
allar nema tvær á Seine. Allir
herflutningar Þjóðverja tækju
nú af þessum ástaéðum marg-
faldan tima á við það, sem áður
var. *
FRÉTTIR FRÁ Í.S.Í.
Framhald af 2. síðu.
anlegt 26,78 m., bæði metin sett
af Gunnari Huseby, Knatt-
spyrnufélagi Reykjavíkur. 400
m. hlaup 42,3 sek., sett af Kjart
ani Jóhannssyni, Iþróttafélagi
Reykjavíkur.
Ráðinn hefir verið fraih-
kvæmdástjóri sambandsins til
eins órs, Þorgeir Sveinbjarnar-
son frá Laugum.
9 menn hafa í júlímánuði
gerzt ævifélagar samban^r-
Eitt félag, Skylmingafélag
Reykjavíkur, hefir gengið í sam
bandið. Form. þess er Hörður
Ólafsson. Félagið er nýlega
stofnað.
Að lokum langar mig að biðja
Alþýðublaðið að færa þeim
sem tóku á móti okkur kærar.
þakkir okkar Ármenninganna,
en þeir voru fyrst og fremst
Helgi Sveinsson á Siglufirði,
Kári Sigurjónsson i íþróttafé-
laginu Þór á Akureyri og Ólaf-
Ur Sigurðsson á Akranesi.“
Vinnu- og skemmtiferð ,
verður farin austur í Dagsbrún-
arland n. k. laugardag kl. 2,30 e.
h. Unnið verður að því að girða
landið. Fríar ferðir. Þátttakendur
tilkynni þátttöku sína fyrir föstu-
dagskvöld. Fjolmennið, félagar.
Landuámsnefnd Dagsbrúnar.
Konán mín,
Sólrún EVIagnúsdéttir,
andaðist að heimili sínu, Brunnstíg 2 í Keflavík mánudaginn 7.
ágúst.
Þórður Þorkelsson.
Jaröarför
Ólafs Péturs Sveinssonar,
fer fram föstudaginn 11. þ. m. og hefst með húskveðju frá
heimili hins látna, Fjölriisvegi 11, klukkan 1,30. Jarðað verður
frá Dómkirkjunni.
Aðstandendur.
Jóhann B. J. 'Jónsson
BViinningarorÓ um:
Jóhann 6. L Jónsson.
ANN 4. ágúst síðastliðinn
lést í sjúkrahúsi Hvíta-
bandsins, Jóhann Ágúst Jóns-
son sjómaður, eftir stutta legu,
rúmlega fertugur að aldri, fædd
ur í Reykjavík á Jónsmessudag
inn 24. júní 1904, sonur þeirra
hjóna Ragnhildar Jónsdótur og
Jóns Árnasonar frá Móum á
Kjalarnesi. Jón var kunnur sjó
maður hér í bæ, lengi stýri-
maður á kútteratímabilinu.
Hann lést fyrir rúmu ári siðan.
Ágúst Jónsson, en undr því
nafni gekk hann að jafnaði,
byrjaði .sjósókn á þilskipum
með föður sínum strax eftir
fermingu og allt til ársins 1924,
að hann réðst á togarann Bald-
ur og var á honum óslitið til
1940, en eftir þann tíma vann
hann í landi við trésmíði. Kynni
okkar Ágústs hófust á Baldri
og unnum við þar saman í rúm
16 ár. Sú kynning og þau bönd
er urðu til milli tveggja starfs
félaga, hvetja mig til þess að
minnast þessa ágæta félaga lát-
ins.
Ágúst sál. var ýmsum hæfi-
leikum búinn, prýðilega greind
ur, stilltur í daglegri framkomu,
en nokkuð dulur í skapi. Dugn
aðarmaður hinn mesti til allra
starfa og óvanalega verkhygg-
inn og verklaginn. Hann var
sérstaklega dáður jafnt af yfir
mönnum, sem starfsfélögum.
í öllum félagsskap var hann
fyrst og fremst sá, sem allt vildi
bæta, til þess að skapa samstarf
og einingu. Kom þetta jafnt
fram i félagslífinu á skipsfjöl,
sem í opinberum málum. Hann
var félagi í Sjómannafélagi
Reykjavkur allt frá æsku og
studdi þann félagsskap og þau
mál, sem hann berst fyrir með
ráðum og dáð. IJm afskipti hans
af öðrurn opinberum málum,
var hann heill og óskiptur.
Þessi mannlýsing af Ágústi
sál. er að minni hyggju og allra
sem urðu honum samferða, sú
sanna og rétta. I honum var
mikið mannsefni til þess að
vera stjórnandi á skipi, en sér-
stakar ástæður ollu því að hann
gat ekki búið sig undir það
starf, þrátþ fyrir flest öll skil-
yrði er hann hafði til þess. Sjón
hans var með þeim hætti að
ekki fullnægði skipsstjórnar-
manni. Ágúst hafði skapað sér
gott og skemmtilegt heimili og
nú siðast á Háteigsveg 19. Hann
giftist árið 1933 eftirlifandi
konu sinni, Fanneyju Friðriks-
dóttur, ættaðri úr Vestmanna-
eyjum, ágætri konu. Eiga þau
eina dóttur á æsku aldri. Hann
var ágætis heimilisfaðir og unni
heimili sínu sérstaklega. Öllum
frístundum varði hann til þess
að prýða það á allan hátt. Öll
sín húsgögn smíðaði hann sjálf
ur, sem að útliti mátti ætla að
unnin væru í fyrsta flokks
vinnustofu, svo mikill hagleiks
maður var hann. Er þetta nokk
urt dæmi um verklægni hans.
Með fráfalli hans í blóma lífs-
ins, er harmur kveðinn að hans
nánustu, er trega góðan eigin-
mann, föður, son og bróður. Við
gömlu félagar hans söknum
vinar í stað, og sjómannastéttin
og samtök þeirra er einum ágæt
s manninum fátækari.
Við gömlu félagarnir þökk-
um fyrir þann tíma, sem við
nutum samvistar hans og geim-
um minninguna um hann sem
einn hinn bezta dreng.
‘H. Ö. ,
ireiSfirSinpr í Rvík
á skemmiiför um
Snæfellsnes.
Breiðfirðingafélagið efndi
til skemmtiferðar um
Snæfellsnes um verzlunar-
mannahelgina 5.-7. ágúst. —
Þátttakendur voru 109. Farið
var frá Reykjavík eftir hádegi
á laugardag í fimm langferða
bifreiðum. Ekið var til Ólafs-
víkur um kveldið og gist þar.
Á sunnudagsmorgun var ek-
ið að Máfahlíð og komið við á
Fornu Fróðá í leiðinni. Þaðan
var gengið um Búlandshöfða,
inn Eyrarsveit að Grafarnesi.
86. manns tóku þátt í þessari
göngu. Munu aldrei fyrr svo
margir hafa gengið samtímis
fyrir Búlandshöfða. í Grafar-
nesi var höfð alllöng viðdvöl og
m. a. fengnir bátar og farið út
á Grundarfjörð. Bifreiðarnar
höfðu snúi'ð við suður yfir
heiði með þá, sem eigi fóru í
gönguferðina. Var svo ekið
norður Kerlingaskarð, vestur
'yfir Berserkjahraun, um
Hraunsfjörð og vestur í Grund-
arfjörð, þar sem fólkið beið. -—-
Síðan var snúið við og ekið um
kveldið inn að Berserkjahrauni
og tjaldað þar við hraunjaðar-
inn.
Árla á mánudag var haldið
til Stykkishólms og dvalist þar
til lrádegis. Á heimleið var
gengið á Helgafell. Þar flutti
leiðsögumaður fararinnar,
Kristján Hjaltason, kennari frá
Fjarðarhorni í Helgafellssveit,
snjallt erindi um staðinn og
héraðið.
Margir gengu á Helgafell í
fyrsta sinn. Munu flestir hafa
reynt að fylgja hinum settu,
helgu reglum, til þess að eign-
ast óökastund uppi á fellinu. —
Frá Helgafelli var svo haldið til
Reykjavíkur og komið þangað
nokkru eftir miðnætti á þriðju-
dagsnótt.
Ferð þessi gekk mjög að ósk-
um. Veður var ágætt alla dag-
ana. Rómaði ferðafólkið mjög
Svarfsýni í Tokio:
Japan ekki lengur ör-
uggf fyrir árásum.
ORSÆTISRÁDHERRA
JAPANA sagði í ræðu í
Tokio í gær, að Japan væri *nú
ekki lengur öruggt fyrir árás-
um af hálfu bandamanna, og
mætti þjóðin hvenær sem væri,
búast við árásum á heimaland-
ið.
■ y
Viðurkenndi forsætisráð-
herrann, að Japanir hefðu far-
ið halloka á Kyrrahafi í seinni
tið, og kvað brýna nauðsyn, að
þjóðin tæki á öllu því, sem til
væri.
í fregnum frá London í gær-
kveldi var sagt, að Japanir
væru nú á undanhaldi í Norður
Burma og að af þeim þremur
herfylkjum þeirra, sem réðust
inn í Manipurhérað á Indlandi,
væri algerlega búið að uppræta
tvö og aðeins leifar eftir af hiriu
þriðja.
Gjafir lil S. í. B. S.
SÍBS, hafa nýlega borizt eft-
irtaldar gjafir: Frá skips-
höfninni á Fjallfossi 1325.
Starfsm. Sagarinnar hf. ÍOHE
Skipsh. á Þórólfi 1110. Friðjón
Jensson 1000. N. N. (áh.) 50.
M.G.E. (áh.) 100. Guðm. Pét-
ursson, ms. Esju 100. Har. Lár-
usson o. fl. 110. Áheit 25. Á-
heit 20. Áheit frá gamalli konu
10. Safnað af S. Sörensen, Fá-
skrúðsfirði 275. Safnað af ‘Fr.
Berndsen, Skagaströnd 255. —
Safnað af Þórði Einarssyni 170.
Áheit frá S. 10. Safnað af Jón-
ínu Hermannsd., Flatey 765.
Safnal af Ragnheiði Jónsdótt-
ur, Dalvík 700. Safnað af Ólafi
Hermannss., Eskif. 1550. Frá
Líknarfélaginu Einingu, N.-
Múlasýslu 300,. Afh. af Kaupf.
Skagstrendinga 50. Áheit frá
N. N. 10.
líina miklu fegurð Snæfells-
ness og Breiðafjarðar.
Helgi Hjörvar skrifstofu-
stjóri og frú haris voru í ferð-
inni sem gestir Breiðfirðinga-
félagsins.
Fararstjóri var Jóhannes Ól-
afsson frá Sandi.
Breiðfirðingafélagið biður
blaðið að færa Snæfellingum
þakkir fyrir góðar og alúðleg-
ar móttökur í ferðinni.