Alþýðublaðið - 17.09.1944, Síða 7
Sunaudagux 17, se-pí. 1944
AUYOUBUIMO
Bœrinn í dag.
Næturvörður er í Læknavarð-
stofunni í nótt og' aðranótt, simi
5030.
Helgidagslæknir er Árni Péturs
son, Aðalstræti 18, sími 1900.
Næturvörður er í nótt og aðra
ixótt í Reykjavíkurapóteki.
Næturakstur annast í nótt B. S.
í., sími 1540.
ÚTVARPIÐ:
8.30 Morgunfréttir. 11.00 Morg-
untónleikar (plötur):: a) Fiðlukon
sert eftir’ Elgar. b) „Lævirkinn“
eftir Vaughan Williams. 12.10—
13.00 Hádegisútvarp. 14.00 Messa
í Fríkirkjunni (séra Árni Sigurðs-
son). 15.20—16.30 Miðdegistónleik
ar (plötur): a) Söngvar eftir Sehu
bert. b) 15.35 Amerískur kór syng
ur ýmis lög. c) Forleikur eftir Cho
pin. 19.25 Hljómplötur: a) Kon-
sert í B-dúr eftir Handel. b) >ætt-
ir úr Conserti grossi, nr. 5 og 10,
eftir Hándel. 20.00 Fréttir. 20.20
Einleikur á cello (Þórhallur Árna
son): Sónata í g-moll eftir Handel.
20.35 Erindi: „Náð og nauðsyn“
(Grétar Ó. Fells rithöfundur).
21.00 Hljómplötur: íslenzkir ein-
söngvarar og kórar. 21.15 Upplest
ur: Úr kvæðum Halldórs Helgason
ar á Ásbjarnarstöðum (Villijálmur
J>. Gíslason skólastjóri). 21.35
Hljómplötur: Ungversk fantasia
eftir Ooppier. 21.50 Frótir. 22.00
Danslög. 23.00 Dagskrárlok.
MÁNUDAGUR
Næturakstur annast Aðalstöðin,
sími 1383.
ÚTVARPIÐ:
8.30 Morgunfréttir. 12.10—13.00
Hádegisútvarp. 15.30—16.00 Mið-
diegisútvarp. 19.25 Þingfréttir.
19.45 Fréttir. 20.30 Þýtt og endur
sagt: Versalasamningurinn 1919,
eftir William Bullitt, fyrri þáttur
(Ragnar Jóhannesson). 20.50
Hljómplötur: Lög leikin á mandó-
lín. 21.00 Um daginn og veginn
(Vilhjálmur S. Vilhjámsson blaða-
maður). 21.20 Útvarpshljómsveit-
in: Lög feftir Árna Tliorsteinsson.
—- Einsöngur (Ólafur Magnússon
frá Mosfelli: a) Haustlög: 1. „Um
haust“ eftir Sigfús Einarsson. 2.
„Söknuður“ eftir Pál ísólfsson. b)
Mannöngvar: 1. ,,Dísa“ eftir Þór-
arinn Guðmundsson. 2. „Sonja“,
rússneskt lag. 3. „Santa Lucia“ í-
talskt lag. 4. „Fúniculi Fúnicuia“,
ítalskt lag. 21.50 Fréttir. Dagskrár
lok.
Námsilokkarnir
Frh. af 2. síðu.
heitavatnsins til garðræktar og
annarrar ræktunar. Mun garð-
yrkjuráðunautur bæjarins,
Sigurður Sveinsson, annast
kennslu í þessum flokki.
Aðrar námsgreinar, sem
kenndar verða í vetur eru: ís-
lenzika, dan’ska, enska, reikn-
ingur, bókfærsla, lestur ís-
lenzkra bókmennta, skrift, upp
lestur og handavinna kvenna.
Eins og að undanförnu eiga
þátttakendur frj'álst val u.n
hvaða námsgreinar þeir stunda
eða leggja mesta áherzlu á að
læra.
Á síðastliðnu 'hausti voru
flestir flokkar fullskipaðir
nokkru áður en kennsla hófst,
og urðu nokkrir frá að hverfa í
einstöku deildum sökum rúm-
leysis.
Eftir upplýsingum, sem Al-
þýðuiblaðið hefir fengið hjá
Ágústi Sigurðssyni forstöðu-
manni námsflokkanna, er búist
við að tæplega verði hægt að
taka í flokkana jafn margt
fólk og í fyrra, vegna hins tak-
markaða rúms sem flokkarnir
fá nú. En eins og kunnugt er
hefir kennslan farið fram á
kvöldin í Miðbæjarfoarnaskólan
i um,, og þar verða flökkarnir
einnig til húsa í vetur, en geta
ekki fengið það mikið húsrúm
til afnota og þeir raunveru-
þyrftu, því óefað verður aðsókn
að þeim með mesta móti nú,
því eins og áður er sagt hefir
aðsóknin farið vaxandi ár frá
ári.
Væri æskilegt að úr rættist
með húsnæði fyrir Námsflokk
ana á komandi tinrum, því þeir
eru sannast sagt athvarf mar.gra
þeirra sem af ýmsum ástæðum
ekki geta eða hafa getað stund
að aðra skóla, .ekki fengið rúm
í þeim og þess háttar, en . þrá
hins vegar menntun, og geta
þeir þvi veitt mörgum þá
menntun, sem þeir annars
hefðu ef til vil'l algerlega farið
á mis við.
ármenningar
Þið, sem ekki fóruð í Jósefs-
dal, komið öll að vinna við hluta
veltu félagsins í ÍR-húsinu í
dag kl. 1,30 e. h.
Frumvarp um beitu
Frfa. af 2. síðu.
anstað annast beitumatið. Ó-
heimilt er að selja frysta síld
til 'beitu, nema hún hafi verið
metin og vottorð fylgi um,
að heitan sé góð og óskemmd
vara og henni fylgi ekki meiri
fclaki en þörf krefur.
Beitunefnd er heimilt að á-
kveða 'hámarksverð á frosinni
:beitu, ennfremur hámark frysti
gjálds á beitu, geymslugjalds á
beitu og beittri línu.
1 athugasemdum við frum-
varpið segir m. a. á þessa leið:
„Það er kunnugt, hve beitu-
mál útgerðarinnar hafa verið í
miklu öngþveiti viða um land
undanfarin ár. Iðulega hefur
það komið fyrif, að útgerð hafi
dregizt saman eða stöðvazt í
heilum verstöðvum vegna beitu
skorts. Slíkt hefur auðvitað
valdið miklu tjóni, bæði fvrir
þá, sem veiðin hefur stöðvazt
fhjá, og eins fyrir þjóðarheild-
ína. Veiðistöðvun vegna beitu-
skort ætti því að vera óþekkt
fyrirbæri, þar sem jáfnmikið
veiðist til ibeitu og hér á landi.“
veiðist til beitu og hér á landi.
' ’í£
Frumvarp þetta er nú komið
til annarrar umræðu í efri
deild og nefndar.
Þingmái:
Fjögur irumvörp, sem
ríkissfjórnin flyfur.
MEÐ..ÁL þeirra stjórnarfrum-
varpa, sem liggja fyrir yfir-
standandi þingi, og ekki hefur
áður verið getið hér í blaðinu,
skulu þessi nefnd:
LOÐDÝRARÆKT
Þetta er frumvarp til laga um
'breytingu'á lögum um loðdýra-
rækt og loðdýralánadeild. —
Helztu nýmæli frúmarpsins eru
þessi:
'Búnaðarfélagi íslands er fal-
ið umsjón með framkæmd loð-
dýraræktarlaganna og skal það
r-áða loðdýraræktarráðunautinn,
sem nú er skipaður af búnað-
arráðuneytinu. Reynt er að
tryggja það sem helz-t undir á-
kvæðum í frumvarpinu, að ioð-
dýr sleppi ekki -úr vörzlu. En
gert ráð fyrir að landibúnaðar-
ráðherra geti sett sérstaklega
valda menn til eftirliits með ör-
uggum umibúnaði loðdýragarða
Þá eru tekin upp í'frumvarpið
-ströng refsiákvæði gagnvart loð-
dýraeigendum, sem eru hirðu-
i lausi-r um öryggisútbúnað loð-
dýragarða sína. Ennfremur eru
sett viðurlög v-ið slæmri með-
ferð loðdýra'. L’oðdýraaæktar-
ráðunauturinn skal ihafa á 'hendi
yfirumsjón m-eð veiðum á villi-
minkum.
SAMEINING ÁFENGISVERZ-
UNAR OG TÓBAKSEINKA-
SÖLU
■Frumvarp samhljóða þessu
var flutt á þingi 1943. Fyrsta
grein frumvarpsins er svohljóð-
andi:
„Eftir árslok 1944 er fjár-
málaráðherra heimilað að sam
eina rekstur Áfengisverzlunar
ríkisins og Tóbaksemkasölu
ríkisins, þegar er hann telur
það hagkvæmt. Eftir samein-
inguna skal nafn rekstrarins
vera „Áfengis- og tóbaksverzl-
un ríkisins.“
HEILSUVERNDARSTÖÐVAR
Stofna skal heilsuverndar-
stöð i hverjum kaupstað, nema
ráðherra veiti undanþágu frá
þeirri skyldu að ráði berkla-
yfirlæknis.
Waltcrskeppnin í dag kl. S:
örslitafeikurinn: K. R. - Valur.
Forseti íslands verSur viHstaddur leikinn.
Þökkum auðsýnda samúð og hluttekningu við fráfall og
jarðárför konu minnar, móður okkar og tengdamóður,
Guðríðar Árnadóttur,
Bræðraborgarstíg 53.
Sérstaklega þökkum við þeim, sem hjúkruðu henni í hemiar
löngu veikindum. •
Sigurður Vigfússon börn og tengdaböru.
Benedikt Gabríel Benediktsson skrautritarl
Freyjugötu 4,
verður jarðsunginn mánudaginn 18. þ. m.
Athöfnin hefst í Dómkirkjunni kl. 1,30 e. h.
Aðátandendur.
|TRSLITALEIKU:R síðasta
^ meistaramóts í knatt-
spyrnu á þessu ári — Walt-
erskepþninni — fer fram í
dag kl. 5. Forseti íslands,
herra Sveinn Björnsson verð
ur viðstaddur leikinn.
Ýmis konar undirbúningur
hefir farið fram af hálfu móta-
nefndarinnar viðvikjandi þess-
um leik.
Prentuð hefir yerið keppenda
skrá, rneö ncfnum hiuna 22
képpenda og eru leikmenn tölu
settir í skrá þessari og einnig
á vellinum, þannig að auðvelt
er fyrir áhorfendur að átta sig
á hverjum leikmanni fyrir sig.
þó þeir þekki þá ekki áður.
Þá mun amerísk lúðrasveit
leika bæði áður en leikurinn.
hefst og á milli hálfleiikja.
Ðómari leiksins verður Mr.
Rae, enski , dómarinn, sem
dæmdi í fyrsta leik mótsins,
miHi Fram og Vals; línuverðir
verða Haukur Óskarsson, Vík-
ing og Jón Þórðarson, Fram.
Lið félaganna verða þannig
skipuð.
K. R.: Sig. Jónsson, markrn.,
Guðbjörn Jónsson og Har. Guð
mundsson bakv., Kjartan Ein-
arsson, Birgir Guðjónsson og
Óli B. Jónsson framv., Ólafur
Iiannesson, Jón Jónasson, Hörð
ur ■ Óskarsson, Matthías Jóns-
son cg Hafliði Guðmundsson
framherjar.
Valur: Herm. Hermansson
markrn. Anton Erlendsson og
Björn Ólafsson bakv., Gunnar
Sigurgeirssbn, Sig. Ölafsson og
Geir Guðmundsson framv. Ell-
ert Sölvason, Sveinn Helgason,
Albert Guðmundsson, Guð-
brandur Jakobsson og Stefán
Magnússon framherjar.
Aðgöngumiðar að leiknum
verða seldir frá kl. 3.30 í dag á
íþróttaveilinum. Betra mun að
tryggja sér miða tímanlega og
Samkvæmt ákvæðum frum-
varpsins (ber heilsuve>'v'—"
„að starfrækja berklavarnar-
starfsemi í umdæmi sínu sam-
kvæmt ákvæðum berklavarnar
.aga og nánari fyrirmælum
berklayfirlæknis, en aðra víð-
tækari heilsuverndarstarfsemi
eftir því, sem nánar verður é-
kveðið í reglugerð.“
Um kostnað af þessari starf-
semi segir í fjórðu grein fmm-
varpsins:
„Ríkissjóður greiðir styrk til
rekstrar heilsuverndarstöðvar,
og mó styrkurinn nema allt að
þriðjungi eðlilegs kostnaðár að
•mati ráðherra. Kostnaður af
rekstrinum að öðru leyti skipt-
ist að jöfnu á milli hlutaðeig-
andi bæjarsjóðs og hlutaðeig-
andi sjúkrasamlags.“
Frumvarp þetta er samið af
landlækni í samráði við berkla
yfirlækni og tryggingayfir-
lækni. í greinargerð landlækn-
is fyrir því segir m. a. á þessa
leið:
„í berklavarnarlögunum er
gert ráð fyrir heilsuverndar-
stöðvum sem mikilsverðum lið
í hinni róttæku berklavarnar-
starfsemi, sem rekin hefur ver-
ið 'hin síðustu ár. Þykja þær og
fyllilega hafa sannað gildi sitt,
enda eiga almennt vinsældum
að fagna, hver á sinum stað.
En jafnframt hefur komið í Ijós,
að þörf er fullkomnara skipu-
lags starfsemi þessarar og þar
á meðal tryggingar fyrir áfram
haldandi föstum greiðslum til
hennar, enda fari ekki á milli
mála, hverjum beri að inna þær
greiðslur af hendi....
Ákvæði 3. gr. berklavarn-
arlaganna þykja ekki veita
nægilega stoð reglugerðará-
kvæðum, er fyllilega nægi til
þess, að heilsuverndarstarf-
seminni verði komið í fast
horf og veitt það öryggi, er starf
seminni endist til 'þess, að hún
fái notið sín. Fyrir því er frum-
varp þetta borið fram, og er
ekki ætlast* til annars en lög-
fest verði sú skipan, sem þegar
er komin á fyrir frjálst sam-
komulag, og óvíðast hefur vald
ið nokkrum ágreiningi, jafn-
framt því, sem lagður verði
grundvöllur undir það, að
heilsuverndarstöðvarnar geti
smátt og smátt fært út kvíarn-
ar og aukið staffsemi sína, eft-
ir því sem skilningur ráða-
manna vex á nauðsyn almennr
ar heilsuverndar við hlið lækn
ingastarfseminnar í landinu.11
HJÚKRUNARKVENNAMÁL
Frumvarpið gerir ráð ■ fyrir
héimavistarskóla, er rikið haldi
uppi, til þess „að veita konúm
fræðslu til að verða vel mennt
ar hjúkranarkonur, Hjúkrunar
kvennaskóla íslands“.
Landlæknir hefur samið
frumvarp þetta. í greinargerð
hans fyrir því segir m. a. þessa
leið:
„Hins almenna skorfcs kvenna
til nytjastarfa hór á landi gæt-
ir meðal annars í því, að til
vandræða horfir um rekstur
sjúbrahúsa og annarra heil-
brigðisstofnana fyrir vöntun
hjúkrunarkvenna. Samfara
þessu dregur ískyggilega úr að
sókn að hinum eina hjúkrunar
kvennaskóla hér á landi, Hjúkr
unarkvennaskóla íslands, sem
rekin er í sambandi við Lands-
spítalann. Ber brýna nauðsyn
til að glæða þá aðsókn, en til
þess þykir fyrst og fremst verða
að búa betúr að skólanum, sem
hingað til hefur búið við van-
efni og litla rækt, treysta skipu
lag hans, sjá honum, fyrir for-
stöðu, er hafi það að aðalstarfi
að sinna skólanum og þörfum
hans, efla kennaralið hans að
öðru leyti, en búa nemendun-
um skólaheimili, er sé bæði að-
laðandi' og til þess fallið að
móta nemendurna í þeim anda,
er hæfi -hjúkurnarkvennastétt,
sem úrvalskonum verði keppi-
kefli að teljast til.“
Framantalin frumvörp eru nú
til annarrar umræðu og nefnda.
Kyrrahafssoknin
Frh. af 3. táSa.
ar herfræðilegrar legu. Fyrir
um það bil 15 árum síðan
I
tóku Japanar til óspilltra mál
anna á eyjum þessum. Þar
hafa þeir gert flugvelli, hafn
argarða, og komið sér upp
ramgerðum víggirðingum.
Stærsta eyjan heitir Babel-
doab og hefir hún stundum
verið nefnd „Singapore
Kyrrahefsins“ vegna þess,
ramlega hún þykir víggirt.
ÞAÐ ER FRÁ PALAU, beint
austur af Filippseyjum og
Morotai, suður af þeim, sem
Bandaríkjamenn hafa nú haf
ið tangarsóknina, sem, ef um
mæli MacArthurs reynast
rétt, munu breyta vígstöð-1
unni á Kyrrahafi. Vafalaust
munu Japanar berjast af
venjulegri harðfengi og
þrjósku í öruggri trú á sælu
staðinn, sem bíður þeirra,
sem láta lífið fyrir mikado-
inn í Tokio og hernaðarklíku
hans, en hún mun þó tæpast
vega á móti yfirburðum
bandamanna í lofti, á láði og
legi.