Alþýðublaðið - 19.11.1944, Síða 5

Alþýðublaðið - 19.11.1944, Síða 5
Sunnudagur 19.. nóv. 1944. ALÞYÐUBLAÐIÐ____________________________S Um tannlækna og tannskemdir — Um bækur — bóka- flóð og brennivín — Bréf um mjólkurmáin UM TANNLÆKNA og tannviS- viðgerðir fékk ég eftirfarandi bréf í gær frá „Mg“: „Ég lief að unðanförnu verið að hringja til hinna ýmsu tannlækna hér í bæ í því skyni að fá framkvæmdar tannviðgerðir, en hef alls staðar fengið sama svárið: „Það verður í fyrsta lagi í maí eða júní næsta ár sem þér getið fengið tíma.“ „ÞETTA SÝNIR okkur að hér eru nú starfandi of fáir tannlækn- ar, en það verður að vinna að því að þeim fjölgi. Það nær vitan- lega ekki nokkurri átt og er í raun inni alveg óþolandi, að maður skuli þuirfa að bíða í 7 til 8 mán- uði eftir að'fá gert við tönn. Að svo löngum tíma liðnum getur í mörgum tilfellum varla verið um mikla viðgerð að ræða, heldur ein ungis að' taka tönnina." „ÞÁ GETUR maður sagt að lítið fari fyrir árangrinum af hinum stöðuðu áminningum um að hirða vel tennumar og vitja tannlæknis í tíma, ef um skemmd er að ræða. Það er óhjákvæmilegt að ráða bót á þessu á einhvern hátt og treysti ég því að bæjarlæknir og land- læknir kynni sér þetta mál og láti til sín taka svo um muni.“ S. P. SKRIFAR mér: „Oft hef- ur það borið við undanfarið, í blöðum og tímaritum, að rætt hafi verið um bókaflóð. Hef ég velt þessu einkennilega orði um bóka- útgáfu síðari ára fyrir mér, og látið hugann reika aftur til þeirra tíma er voru hér fyrir stríð, at- vinnuleysisins, öngþveitisins, sem ríkti hér þá á flestum sviðum. Þá var nú ekkert „bókaflóð“, síður en svo, enda lítið úrval góðra bóka á íslenzku. Man ég það, að þá gerð ust ekki meiri bókakaup hjá mér en 1 eða 2 bækur á ári, og þóttist ég þá ná í allt er ég vildi eiga.“ i „Sír ÖRVUN í viðskipta- og at- hafnalífinu sem hófst hér á landi með yfirstandandi styrjöld og her námi, hefur að vísu einnig náð til bókaútgáfunnar ,en þó aðeins, að því er mér virðist, í eðlilegu hlut- falli við þróun og útþennslu ann- arra athafna meðal þjóðarinnar, og mœtti því segja, að hér sé að „BÓKAKAUP MÍN"“ síðustu 4 árin hafa verið til jafnaðar 12 bækur á ári, og finnst mér að minna megi það ekki vera, því margt er nú góðra bóka á markað inum, og ólíkt auðveldara finnst mér nú að eignast 12 bækur á ári en 2 fyrir stríð, og veldur það, að laun manna og atvinna eru nú rífleg, en bókaverði stillft meira í hóf en flest annað, sem selt er ’nú til dags, þegar undanskildar eru nokkrar bækur frá stríðsgróða- æfintýra-útgáfufélögum." „GÓÐ BÓK er eitthvað það bezta sem maðurinn eignazt. Það er þægileg hvíld að loknu dags- verki að taka sér góða bók í hönd og gera sér tilveruna enn verð- mætari en áður. Ólíkt hollara er að kaupa sér eina góða bók, eins og t. d. Jón Sigurðsson í ræðu og riti, sem kostar í góðu bandi kr. 80.00, en eina flösku af \yhisky fyrir sama verð, og ó- líkt meira vit er í því að kaupa sér 12—20 bækur á ári fyrir kr. 800.00 en einn lélegan armstól fyr- ir sama verð.“ „ÉG GET EKKI komið auga á, að hér hafi myndast óeðlileg þennsla í bókaútgáfu eða „bóka- flóð“, fram yfir aðra framleiðslu þjóðarinnar á öðrum sviðum. Eh ef við íslendingar höfum verið of athafnasamir á ýmsum sviðum hin síðari ár, sem til óhófs mætti telja, væri ekki úr vegi að minna á skemmtanafLóð, húsgagnaflóð, heild salaflóð, samkvæmisflóð, áfengis- flóð, ráðherraflóð og alls konar- flóð, sem of langt væri upp að telja í dálkum þínum.“ „XVm“ skrifar mér á þessa leið: „í pistlum þínum fyrir nokkrum dögum, er minnst á, að „ófremd- arástand“ það, — mjólkurskort- inn í bænum — sem verið hafi und anfarið, sé ennþá ríkjandi. Þetrta er víst alveg rétt, en mér virðist þú telja aðalorsök þess — hina einu? — að ekki er komið upp stórt og mikið kúabú í „nágrenni bæjarins", væntanlega rekið af bæj arfélaginu? Þetta er sjálfsagt að nokkru leyti rétt líka, en það eru fleiri orsakir að mjólkurskortinum í bænum.“ verða sæmilegt úrval bóka á ís- lenzku máli.“ „FYRIR STRÍÐ voru bókaverzl- anir flestar fullar af dönskum og norskum bókum, á síðari árum hef ur sú breyting orðið á, að í stað Norð'úrlandabókanna hafa bóka- verzíanirnar fyllst af enskum og amerískum bókum; sýnir það m. a. að þó útgáfa hafi aukist hér, vantar enn stórum á, að fullnægt sé úrvalsþörf almennings á bók- um á íslenzku máli.“ „FYRIR NOKKRUM árum mun framleiðsla mjólkur á landi bæjar- ins hafa verið komin upp í allt að 11/2 milljón lítra á ári, en mun nú ekki vera mikið yfir 6—700 000 lítrar. Ástæður fyrir þessari þróun niður á við eru fleiri en ein. Setu- liðið hefur tekið til afnota rækt- uð lönd og eyðilagt þau, sem nema mun mörgum kýrfóðrum. Stjórn bæjarins hefur tekið undir bygg- ingar allmikið af ræktuðu landi, Fnh. á 6. síðiu tJniSinpr óskast til þess að bera blaðið til áskrifenda viðs vegar um bæinn, einnig í úthverfum bæjarins. — Talið við afgreiðsluna. ! AUGLÝSID I ALÞÝDUBLAÐINU Heillum horfinn Hitler lítur töluvert öðruvísi út á þessari mynd, en þeim, sem teknar voru af honum, meðan allt lék í lyndi og herskarar hans unnu hvern sigurinn af öðrum. Þessi mynd var tekin honum á i járnbrautarstöð í Þýzkalandi seint í sumar, eftir að upp komst um samsærið gegn honum, og er hann að bíða þar eftir sálufélaga sínmn Mussolini. Á sporinu sést brynvarin einkajárnbrautar- lest hins heillum horfna „foringja11. Hitler élur ofan í sig EF Hitler, Göring og Göbbels skyldu falla bandamönn- um lifandi í hendur, væri eigi unnt að búa þeim aðra refsingu verðskuldaðri en þá að löka þá inni í fangaklefa og láta þá eyða tímanum við að færa í letur orð sám frá velmakitardöguni sínum. Það er áuðvelt að gera sér í hug arlund, hvernig þeim muni verða innanbrjósts, þegar radd- ir sjálfra þeirra enduróma úr fortíðinni að eyrum þeirra. — Það verður þeim vissulega í semn strömg og háðuleg refsing Við skulum til dæmis hlýða á orð þau, sem Hitler mælti til þýzka þingsins morguninn sem hersveitir hans réðust inn í Pólland: „Frá og með þessari stundu er ég fyrsti hermaður þriðja rík- isins. Ég hefi klæðzt þeim bún- ingi, sem er mér helgastur og kærastur, og ég mun ekki úr hon um fara fyrr en sigur er tryggð ur — ella mun ég ekki lifa úr- slit hildarleiksins, sem nú er hafinn.“ Og honum mæltist á líka lund rtii áheymenda sitruna i bjórkjall- aranum í Múnchen hinn 8. dag nóvembermánaðar árið 1940: „Ég er staðráðin í því að berj ast til úrslita. Ég skál færa Bret um heiim sánninm um það, hverj um síkal verða itortímit í þeissari styrjöld.“ í nýársboðskap sínum árið 1941 mæltist honum á þessa lund: „Styrjöld þessi mun verða háð til úrslita — og þau úrslit eru fengin, þegar hinir! ábyrgu glæpamenn hafa hlotið sinn verðskuldaða dóm. Látum þá skeggræða um „hamingjuhvörf í styrjöldinni“. En þeir munu komast að raun um það, að í þessari styrjöld er engin hamingja til önnur en rétt ur sigurvegaranna.“ Og hann hélt þannig áfram 16. marz sama ár: „Hin eilífa forsjón mun eigi láta sigurinn falla þeim í skaut, sem eru reiðubúnir að úthella l GREIN ÞESSI, sem er eft- ir J. C. Johnstone og þýdd úr tímaritinu World Digest, fjallar um hreysti- yrði Hitlers og samherja hans, meðan allt lék í lyndi fyrir nazistum og hersveitum þeirra. Höfundurinn telur, að það myndi þyngsta refsingin, sem hægt væri að leggja á nazistana, að þeir væru látnir skrá hin fórnu hreystiyrði sín eftir ósigur þeirra og hlusta á bergmál fortíðarinnar, sem hlyti að láta þeim óþekkilega í eyrum. • . - í ' 1 blóði til þess eins að svala dráp- fýsn sinni.“ En Rlbbentrop á sinn bróður- þátit á þeesisium. söng. Honum fórust þannig orð meðal annars í ræðu, sem hann hélt 27. sept. árið 1942 í árdögum orrustunn- ar um Stalinigrad: „Ef til vill mun orrusta þessi, þegar fram líða stundir, verða talin tákn frelsisbaráttu Ev- rópu.“ Þegar þýzku hersveitirnar unnu hvern sigurinn af öðrum, kunnu forustumenn nazista sér ekki læti fyrir fögnuði .Göbbels lét eftirfarandi orð falla í ræðu, sem hann hélt 19. janúar árið 1940: „Aldrei áður hefur Þýzka- landi gefizt slíkt tækifæri til þess að verða forustuþjóð heims ins. Öll þýzka þjóðin bíður óþol inmóð hinnar langþráðu stund- ar, þegar heimsveldisdraumur hennar rætist, og hvert manns- barn á Þýzkalandi veit, að sú stund mun upp renna.“ Hinn 10. maí árið 1940, dag- inn sem Þjóðverjar réðust inn í Holland og Belgíu, mælti Ribb- entrop hreykinn í bragði:: „Þýzki herinn mun tala við Stóra-Bretland og Frakkland á því eina tungumáli, sem drottn endur þessara lainda virðast skilja og útkljá mál sín við þá í eitt skipti fyrir öll.“ Hitler tók undir á þessa lund: „Orrustan, sem hefst í dag, mun ákveða framtíð Þýzkalands næstu þúsund ár.“ Þegar Hitler hélt ræðu sína í bjórkjallaranum í nóvember- mánuði árið 1940, kvaðst hann „hafa samúð með þeim Bretum, sem ættu herra Churchill þján- ingar sínar að þakka. „Herra Clhurchill befur gert sig sekan um mestu flónsku, sem verald- arsagan kann frá að greina, með því að dirfast að ráðast á Þýzka land með hinum brothættu vopn um sínum, flughernum og flot- anum.“ „Ég fullvissa ykkur rnn það, að Churchill mun úr sögu áður en langt um líður, en þýzku kaf bátarnir munu þá hins vegar enn fyrir hendi.“ Göbbels gaf svohljóðandi yfir lýsingu: „Þegar styrjöldinni er lokið með glæsilegum sigri Þjóðverja, munum við minnast með á- nægju og stolti skyldna þeirra og harðréttis, sem komið hefur í hlut okkar í hinni miklu bar- áttu.“ Sama boðun felsit í nýársboð- skap Hitlers 1941, sem svo oft hefur verið til vitnað: „Árið 1941 mun færa þýzku þjóðinni mesta sigur, sem saga vor kann frá að greina.“ Hitler klifaði á því í sífellu, hvílíkur leiðtogi hann væri og kvaðst njóta hylli og verndar forsjónarinnar. — „Ég er vernd ari framtíðar þýzku þjóðarinn- ar.“ (10. desember, 1940). „Ég hef óbifanlega trú á sigri mín- um.“ (8. nóvember, 1940). „Ég þarf ekki á styrjöld þessari að (halda tiiil þess að gera nafn mitt ódauðlegt.“ (3. október, 1941). Hinn 24. febrúar árið 1940 lét hann eftirfarandi orð falla: Framh. á 6. síðu.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.