Alþýðublaðið - 05.12.1944, Síða 2

Alþýðublaðið - 05.12.1944, Síða 2
ALÞTÐUBLAOIÐ Þriðjutfagnr 5 desembcr Maður slasasf á skíðum Margir hlutu smærrí meiðsli, sökum hálku og mis- rennsiis ÞAÐ slys vildi til við Skíða- skálann í Hveradölum á sunnndaginn var, að maður einn sem þar var á skíðmn datt á skíðunum og bæði fótbrotn- aði og handleggsbrotnaði. Var maðurinn starx fluttur heim í skíðaskálann og hjúkrað þar efir því sem hægt var, en síðan var hann, fluttur til bæj- arins og lagður í Landsspítal- ann. Maðurinn brotnaði á vinstra handlegg um olnbogann og á hægri fæti. Fleiri slys urðu á sunnudag- inn á skíðafólki, þótt engin væru jafn alvarleg og þetta eina. Er talið að það hafi stafað af misrenni og hálku, sem var ndtkil þennan dag. Fjöldi fólks var á skíðum um 'helgina, við alla skíðaskálana. William S. Key lætur af itörfum hér á Hinn nýi hershöfðingi heitir Early Duncan, hefir verið 28 ár í fiughernum og dvaiið hér á landi síðan í júní síðasl iiðið Vlötal vlð i€©y hershöföingia WILLIAM S. KEY, hershöfðmgi, yfirmaður Banda- ríkjahersins hér á landi,. er á förum héðan eftir að hafa dvalið hér sem yfírmaður hersins í eitt og hálft ár. Við yfirherstjórninni tekur Early Duncan hershöfðingi, sem verið hefur yfirmaður bandaríska flughersins hér síðan Tourtillot hershöfðingi hvarf héðan. Key hershöfðingi kvaddi íslenzka blaðamenn síðdegis í gær í aðalbækistöð sinni hér í Reykjavík og áttn þeir viðtal við hers- höfðingjann um dvöl hans hér, við þetta tækifæri. ,,Ég vil byrja með því að þakka íslenzku þjóðinni fyrir alla þá vinsemd, sem ég hef Merkileg sýning á bókum íslenzkra kvenna —-♦............. Fræðslukvöld Kvenfélags AlisýÖuflokksins um bókmenntastörf kvenþjéðarinnar KVENFÉLAG ALÞÝÐUFLOKKSINS efnir um þessar mundir til sýningar á bókum, sem íslenzkar konur hafa ritað. Eru á sýningu um þrjú hundruð hækur eftir hundrað og þrjátíu konur. Sýning þessi er haldin í tilefni fræðslukvölds, sem Kvénfélag Al- þýðuflokksins gengst fyrir, en þar flytja þeir Sveinbjöm Sigur- jónsson magister, Sigurður Einarsson skáld og Guðmtmdur G. Hagalín rithöfundur fyrirlestra. Stjórn Kvenfélags Alþýðu- flokksins bauð blaðamönnum á sýningu þessa í gær, en hún er haldin í fundarsal Alþýðubrauð gerðarinnar í húsi hennar við Vitastíg. Mættu þar auk blaða- manna landsbókavörður, Finn- ur Sigmundsson, forstj. ísafold arprentsm., Gunnar Éinarsson og kvenfulltrúar í bæjarstjórn Reykjavíkur, þær Soffía Ingv- arsdóttir, Katrín Pálsdóttir og Guðrún Jónasson. Veitti stjórn félagsins gestum sínum kaffi og skýrði frá tildrögum og fyrir- komulagi sýningarinnar. Hér er um hina' merkilegustu bókasýningu að ræða, sem al- menningur mun efalaust fýsa að kynna sér. Elzta bókin á sýning- unni er prentuð í Leirárgörðum árið 1800. Nefnist hún: Einfalt matreiðslu Vasa-kver fyrir heldri manna húsfreyjur og er útgefin af Mörtu Maríu Step- hensen assessorinnu á Hvann- eyri, en hún var kona Stefáns Stephensen bróður Magnúsar Stephensen. Þarna eru bækur hinna mikilvirku kvenxithöf- unda, Thorfhildar Holm, Guð- rúnar Lárusdóttur, Huldu og Elínborgar Lárusdóttur. Einnig eru þar til sýnis blöð þau og tímarit, sem íslenzkar kon- ur haf^ gefið út, en þar er um íurðulega auðugan garð að gresja, þegar tillit er tekið til allra aðstæðna og þess minnzt hversu skammt um er liðið frá því að Bríet Bjarnhéðinsdóttir og Thprfhildur Hólm hófu braut ryðjendastarf sitt á þessu sviði. Einnig eru á sýningunni bækur þær, sem íslenzkar konur hafa þýtt, en mikilvirkustu kven- þýðendur okkar munu vera þær Björg C. Þorláksson, Thora Frið riksson og Kristín Ólafsdóttir læknir. Stjóm Kvenfélags Alþýðu flokksins hafði upphaflega að- eins hugsað sér að hafa sýningu þessa í sambandi við fræðslu- kvöld þau um bókmenntastörf íslenzkra kvenna, sem það efnir til þessa dagana. Var fyrsta fræðslukvöldið haldið í gær- kvöldi og flutti Sveinbjörn Sig urjónsson magister þar erindi um Ijóðskáld íslenzkra kvenna. í kvöld flytur Sigurður Einars- son skáld erindi um eldri skáld sagnahöfunda úr hópi íslenzkra kvenna ,en anriað kvöld flytur Guðmundur Gíslason Hagalín rithöfimdur erindi um yngri skáldsagnahöfunda íslenzkra kvenna. En vegna hins mikla undirbúnings, sem bókasýning- in hefur kostað hlutaðeigendur, hefir verið ákveðið, að hún skuli vera opin almenningi á miðviku daginn kl. 5—8 síðdegis og gefst þannig fleiri kostur á að sjá þessa sérstæðu sýningu en þeim, sem fræðslukvöldin sitja. Bókasýning þessi og fyrir- lestrahald er merkisviðburður, sem verða mun Kvenfélagi Al- þýðuflokksins til mikils sóma. Það að þama era til sýnis um þrjú hundruð bækur eftir hundr að og þrjátíu kvenrithöfunda, færir mönnum heim sanninn um það, hversu umfangsmikil sýn- ingin er, og munu þó ekki öll kurl vera komin til grafar. Hlýt ur það að teljast næsta merki- legt hversu mikið íslenzkar kon ur hafa afrekað á vettvangi bók menntanna, þegar þess er minnzt, að fyrir einni öld voru Frh. á 7. sá9u. mætt hér þá 18 mánuði, sem ég hef notið þess heiðurs að vera yfirmaðux hersins“, sagði hers-' höfðinginn. „Ég hef mætt þess ari vinsemd og alúð hvarvetna, hjá stjórnarvöldum, .hjá ykkur blaðamönnunum og hjá öllum almenningi, hvar sem ég hef komið og í hvaða erindum, sem é‘g hef verið. Og ég hef farið mikið um landið. Ég hef farið á skipum umhverfis það, flogið yfir byggðir þess og öræfi og ég hef farið í bifreið um það og heimsótt kauptún og kaupstaði, já, einnig sveitir og byggðir bændanna þar. Allsf staðar hef ég mætt frjálsri og óþvingaðri vináttu, sem um leið og hún hefur birzt mér í hlýleik og umhyggju, hef ur sýnt mér hina miklu menn- ingu þessarar litlu, en þó stóm þjóðar. Ég hef lært að meta hina ágætu. menningu íslenzku þjóðarinnar og ég hef lært að elska hina stórkostlegu náttúru fegurð landsins. Ég hefði gjaman viljað geta farið til allra þeirra mörgu, sem ég hef kynnst og ég þarf að kveðja, til þess að þrýsta hendi þeirra, en mér er þess enginn kostur. Ég verð því að njóta aðstoðar ykkar blaðamannanna til þess að koma kveðjum min- um til kuningjanna — og til þjóðarinnar alirar. Ég get ekki sagt ykkux hvaða hlutverk mér verður falið að vinna. En ég fer til skyldustarfa, sem lögð hafa verið fyrir mig. Ég get þó sagt ykkur það, að ég fer fyrst í heimsókn til Banda ríkjanna og ef til vill fæ ég að koma heim til Oklahoma, en þangað hef ég ekki komizt í tvö ár. En hvar sem ég verð og hvert sem ég fer, þá mun ís- land og íslendingar ekki líða mér úr minni. Ég hef lært svo marg hér. Ég skal líka segja ykkur frá því, að þegar stríðinu er lokið og friður er aftur kom- inn á í heiminum og ég kemst heim þá mun ég búa til íslenzka stofu í húsinu tnínu, og ég vænti þess, að ef íslendingar koma tál Oklahoma, þá muni þeir heim- sækja mig og þá mun ég rabba við þá í íslenzku stofunni minni, og þá vona ég, að bæði mér og þeim geti liðið vel. — Ég vænti þess líka að eftir styrjöldina hefjist ný og vaxandi kynning milli íslenzku þjóðarinnar og minnar þjóðar og ég veit, að báðar þjóðir muni njóta góðs af þeirri kynningu. Þó að kynning in hafi byrjað á hættulegum, óvenjulegum og erfiðum tím- um, þá hefur hún tekizt fram- úrskarandi vel, og ég yona, orð- ið báðum til góðs.“ Frh. á 7. siðu Key hershöfðingi Hinn nýi hers- höfðingi TILKYNNT hefir verið, að William S. Key hershöfð- ingi, sem verið hefur yfirmaður herafla Bandaríkjamanna á ís- landi nú um nokkurt skeið, láti af störfum hér. Við starfi hans tekur Early E. W. Duncan hers höfðingi, Duncan hershöfðingi er fædd ur 1. janúar 1894. Hann stund- aði nám við háskólann í Norður Carolina og lauk brottfararprófi þaðan í maí 1917. Hann tók þátt í fyrri hemsstyrjöldinni sem undirforingi í riddaralið- inu, en tók við starfi í flugher Bandaríkjanna árið 1920. Dun- can hershöfðingi hefur nú verið í Bandaríkjahemum um 28 ára skeið og hefur lifað ýmsa merka atburði. Hann tók þátt í loftárás aræfingum Mitchells hershöfð- ingja fyrir um tveim áratug- um. Hann hefur verið í Bánda- ríkjahernum víða um heim og kann frá mörgu að segja. Duncan hershhöfðingi kom hingað til lands frá Bretlandi 3. júní þessa árs og hafði hann þá tækifæri til þess að fylgjast með innrásarundirbúningnum. Br hann kom hingað var hann gerð ur að næst æðsta manni Banda ríkjahersins hér og tók við af George P. Tourtellot hershhöfð ingja sem yfirmaður flughers Bandaríkjanna hér. Nú tekur hann við starfi William S. Key, hershöfðingja, eins og fyrr getur. Hann er ný- kominn frá mánaðar heimsókn til vígstöðvanna í Evrópu. Með- al annars kom hann til Parísar, Liege og Aachen. Fiskibáfar nr Garði ' J finna smjör á rei BÁTAR úr Gerðahreppi, m reru til fiskjar um siðustfð helgi fundu nokkra kassa •£ amerísku smjöri á reki í sjó»-> um, og er búizt við að kassar þessir séu úr Goðafoas^, því hann var með nokkuð mílri® af amerísku smjöri er hontun var sökkt. Smjör þetta verður selt m uppboði þar syðra í dag, eaad® þótt búast megi við því að þa® sé eitthvað skemmt af sjóvolk- inu, er líklegt að eitthvað sé auft. hæft, innan úr stykkjunwna. Kviknaði í bifreið ¥ GÆRMORGUN kviknaði í bifreiðinni R 353, inni á verkstæði, þar sem hún var til viðgerðar. Kviknaði í bifreið- ,inni út frá logsuðutækjum og urðu talsverðar skemmdir á henni áður en tókst að slökkva eldinn. Bifreið þessi er eign Kol & salt h. f. Amað bíndið af Fjara- aidarsögum Motð- urlanda er komið i ANNAÐ BINDI af FomalÖ arsögum Norðurlanda koiau út í hinni nýju. veglegu útgáfes á laugardaginn. Fyrsta bindi® kom út í fyrra rétt fyrir jólim, Þetta bindi er stærra ea fyrsta bindið eða 510 blaðsíðU ur og er í því mikill fjöldít mynda af fornleifum, sem funö ist hafa á Norðurlöndum. Krisl ján Eldjárn mag. art. hefir val ið myndirnar og ritað skýring ar með þeim. Guðhi Jónssom magister og Bjami Vilhjálms- son cand mag. hafa búið bók- ina undir prentun, en Guðni Jónsson ritað formála,. í þessu bíndi eru þessar sög- url Hrólfs saga kraka og kappa 'hans, Sögubrot af fornkonung- um, Frá Fornjóti og hans ætfc- mennum, Hversu Noregur byggðist, Fundur Noregs, AÉ Upplendingakonungum, Hálfís saga og Hálfsrekka, Þorsteins saga Víkmgssonar, Friðþjófe saga frækna, Hrómundar saga Gripssonar, Ámundar saga kappabana, Sturlaugs sag» starfsama, Göngu-Hrólfs saga og Bósa saga og, Herrauðs. Fyrsrspurn á aiþingis Fyrirkomulag ákvæð- isvinuu SKÚLI GUÐMUNDSSON hefir borið fram í neðii deild alþingis fyrirspum til rfk isstjómarinnar um söfnun ejv lendra heimilda um fyrirífooEaw lag ákvæðisvinnu. Fyrirspurn(in er (svohljÓ#- andi: „Hefir ríkisstjórnin íengiB uípplýsinjgar um fyirirkomulag ákvæðisvinnu við framleiðsla- störf í Bandaríkjunum og Rúss landi, sem henni var falið að leita með þingsályktun 30. september 1943?“ Háskólafyrirlestar. Símon Jóh. Ágústsson flytur fyrirlestur í da'g kl. 6.15 í 1. kennslustofu háskólans. Efni: Sál arfræði námsins. Öllum heimill aðgangur. Sjötagur er í dag Ingjaldur X>órariaason„ Bakkastíg 5. Ingjaldur hefir unni® í mörg ár hjá bænum og nýtur mikilla vinsælda meðal starfs- bræðra einna, og allra er H«n»» þekkja. i! í.j i „Allt í lagi laxi“ Fjalakötturinn sýnir revýunt^, „Allt í lagi lagsi“ í kvöld kl. *„ Aðeins örfáar sýningar verða á þessum bráðskemmtilega leik en* þá fyrir jól.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.