Alþýðublaðið - 16.12.1944, Blaðsíða 5
ALÞVÐUBLAÐIÐ
Ijaiatgardagnr 16. desember 1944
í gær
kom jólabékin
eftir André Maurois
ANDRÉ MAUROIS
er án alLs vafa einhver víðlesnasti og vinsælasti rithöfundur Frakklands, þeirra, er nú lifa. Stílsnilli hans, skarpleika, lærdómi
og fyndni er við brugðið. Skáldsögur hans hafa þótt frábærilega snjallar, en mesta frægð hefir hann þó getið sér fyrir ævisögur
sínar ekki sízt ævisögur enskra mikilménna. Maurois hefir kannað til grunna enska menningu og lífsviðhorf og er viðurkenndur
snjallari túlkur þeirra og skýrandi en jafnvel hinir snjöllustu meðal Breta. Fara þar saman skáidlegt innsæi hans og gleggni
gestsaugans.
Maurois hefir skrifað ævisögur Chateaubriands, skáHsins, stjómmálamannsins og ástamannsins Voltaires, hins nafnfræga rit-
höfundar Lyanteys, stofnanda Afríkuveldis Frakka, Disraelis, hins mikla brezka stjómmálamanns, Shelleys, hins hugljúfa, enska
skálds. En frægastur hefir hann orðið fyrir ævisögur BYRONS LÁVARÐAR, höfuðskáldsins mikla, sem hann skilur og túlkar
af undursamlegri nærfæmi, ætt hans og erfðir. Uppeldi hans og menntun, ástir hans og skáldskap — einu orði allt hans líf, unz
hann fellur í valinn í Missolaughi, glæsilegasta hetjan í frelsisstríði Grikklahds og sá, sem barg málstað þess.
Eitt ágætasta bókmenntablað Bretlands, Times Litterary Supplement segir í ritdómi um þessa bók:
„Fransltux snillingur hefir með þessu verki goldið minningu
|. Byrons Iávarðar þá skuld, sem engum var skyldara að greiða,
• en oss sjálfum. En bók hans mun eigi að síður skipa varanlegt
og virðulegt sæti í hópi þeirra rita, er ágætust hafa verið rituð
um enska menn og enskar bókmenntir.
0, Hún er dásamlegur lykill að hinni dularfullu og fjölþættu sál
. Býrons, smíðaður af skyggnum völundi, sem hefir töfrávaldið til
þess að láta hlið Sesams opnast.“
N
f, Með snilldarlegum þýðingmn hafa þeir Steingrímur og Matthías
gert Byron að einu ástsælasta skáldi íslendinga. Með þessari bók
gefst þeirn kostur á að kynnast ævi hans og samtíð, skapgerð hans
og persónu, sem einu sinni var frelsisskáld allrar Norðurálfunnar
og glæsilegastur allra sinna samtíðarmanna.
Þetta er bok, sem hver einasti ung-
ur maSur og kona heiir gaman ai
að eignast og lesa.
~. • * r
Bókaverzlun Isafoldar
og útibú Laugavegi 12