Alþýðublaðið - 28.12.1944, Blaðsíða 2
s
Jólasjónleikurinn „Álfhóll"
JÓLASJ ÓNLEIKURINN
„Álfhóll“ eftir danska.leik
ritaskáldið Jóhan Ludvig Hei-
berg var sýndur í fyrsta sinn
á annan í jólum fyrir troðfullu
húsi við ágætar viðtökur áhorf
enda. Var fyrsta þætti ledksins
útvarpað. — Það jók á hátíða-
brag þessarar skrautlegu sýn-
ingar að á’horfendur sýndu hlý
hug sinn til fyrrverandi sam-
bandsþjóðar okkar og konungs
hennar með því að rísa úr sæt
um símum, sem eimn maður,
þegar danski konungssöngurinn
var leákinn við upphaf og enda
lok hennar, en hann er ofinn
inn í hina fögru músík Kuh
laus, sem samin er við leiikrit-
ið. — Meðal hinna mörgu gesta
á frumsýningunni mátti sjá de
Fontenay sendiherra Dana, og
frú hans. — Myndin sem- hér
birtist er úr fyrsta þætti sjón-
leiiksdns og sýndr frá vinstrá:
Harald Björnsson í hlutverki
Kristjáns konungs fjórða, Æv-
ar R. Kvaran, sem Flemming,
hirðmann hans, Brynjólf Jó-
hannesson í hlutverki veiði-
mannsins og Gunnþórunni Hall
dórsdóttur sem bóndakonuna,
Karenu.
Önnur sýning sjónleiksins er
í kvöld kl. 8.
Fleiri umsóknir um aÓstoS til
vetrarhjálparinnar en í fyrra
Meira safnaðist af fé og fé var úthlutað til
500 manns
Mann fékur úl af fog
aranum „Karls-
efni"
Sæmundur Bjarna
son frá Bnnra-
Lambadal í Dýra-
firði
UM klukkan 8 jóladagsmorg
un tók mann út af togar-
anum „Karlsefhi“. Var það einn
hásetanna Sæmundur Bjarna-
son frá Innra-Lambadal í Dýra
firði, 31 árs að aldri, fæddur
18. maí 1913.
Togarinn „Karlsefni“ var
staddur austan Djúpálsins (ísa
fjarðardjúp) er slysið varð,
fékk skipið sjó á sig svo að Sæ
mundur féll fyrir borð og náð-
ist ekki. Var veður slæmt og
veðurhæð allmikil. Sæmundur
var ókvæntur og barnlaus.
Afbeoding mafvæla-
seðla hefsf í dag
JÓLAÚTHLUTUN Vetrar-
hjálparinnar í Reykja-
vík var lokið á aðfangadags-
kvöld.
Alþýðublaðið sneri sér í gær
til fostöðumanns vetrarhjálpar
innar Stefáns A. Pálssonar og
spurði hann hvernig söfnunin
til vetrarhjálparinnar hefði
gengið.
„Söfnunán gekk mjög vel,“
sagði Stefán Á. Pálsson. „Al-
menningur hefir aldrei brugð
ist jafn vel við. Það safnaðist
nú meira en t. d. í fyrra og náði’
söfnunin þó hámarki þá. Skát-
arnir söfnuðu langmestu, sýndu
þeir mikla fórnfýsi og dugnað.
Einnig skal þess getið að all-
mikið fé barst frá fyrirtækjum,
starfsfólki við atvinnufyrirtæki
og einstaklingum. Ennfremur
safnaðist allmikið af fatnaði.
Umsókríir um ‘hjálp bárust
nú til okkar öl'lu fleiri en í
fyrra og nú fengu úthlutun um
500 manns, en í fyrra urðu 470
manns aðstoðar aðnjótandi.
Um heldarsöfnunina get ég
ekki sagt að svo komnu, enda
liggur uppgjör enn ekki fyrir.
Vil ég og taka það skýrt fram
að starfi Vetrarhjálparinnar er
ekki lokið. Það heldur áfram,
enda er mér kunnugt um að
söfnun fj.ár og fatnaðar er langt
frá því að vera lokið enn“
DAG hefst afhending -mat-
vælaseðla í Hótel Heklu, og
verða þeir afhentir frá kl. 10
f. h. til kl. 6 e h. í dag og á
morgun, en á laugardaginn fer
afhending seðlanna fram frá kl.
10—12 f. h. og er þá ætlast til
að almenningur hafi vitjað
matvælaseðla sinna.
Seðlarnir verða aðeins af-
hentir gegn stofnum núgildandi
matvælaseðla og verða þeir að
vera greinilega áletraðir.
Leikfélag Reykjavíkur
vill vekja athygli leikhúsgesta
á því, að af alveg sérstökum á-
stæðum getur félagið sýnt franska
gamianleikinn Hann einu sinni enn
þá, annað kvöld kl. 8. Er þetta
tilvalið tækifæri fyrir þá, sem ekki
ennþá hafa séð þennan skemmti-
lega leik. En þetta verður allra
síðasta sýning. Enn fremur vill fé-
lagið vekja athygli é því, að þriðja
isýnírjg á jólaleiknum „Á:j£hóll“
verður á nýjársdagskvöld.
ALÞVÐUBLAÐIÐ_______________ Fimmtudagur 28. des. 1944
Símastöðvarhúsið í Sandgerði
brennur til kaldra kola
Þrjú lílil börn voru ein heima og varð 9 ára
felpa eldsins vör kl. 2 um nótlina
Allir innanstokksmunir brunnu með húsinu
SÍMASTÖÐVARHÚSIÐ í Sandgerði brann til kaldra kola á
svipstundu í fyrri nótt. Þrjú ung börn voru í húsinu, en þau
björguðust, en allir munir sem í því voru bnmnu.
Símstöðvarhúsið var nýupp- *
gert og var eigandi þess Hannes
Arnórsson, stöðvarstjóri. í kjall
ara þess var skósmíðavinnu-
stofa með allmkilu af nýjum
vélum og átti Hannes hana. Á
hæðinni var símastöðin en á ris
hæð íbúð stöðvarstjórans.
Um kvöldið klukkan rúmlega
12 fór heimilisfólkið á dansleik
í húsi rétt hjá og voru þrjú
börn heima, þar á meðal tvær
telpur, tveggja ára og níu ára.
Um klukkan 1.45 fór níu-ára
telpan að sækja mjólk handa
litlu telpunni og er hún var aft
ur komin inn til hennar fann
hún reykjarlykt. Fór hún nú nlð
ur og út á tröppur og hitti þar
mann sem hún sagði frá reykj-
arlyktinni. Fór hann þegar til
föður telpnanna, en er þeir
komu að húsinu var kominn mik
ill reykur um það allt. Börn-
in björguðust öll út, en húsið
varð brátt alelda og varð eng
um munum bjargað nema einní
sæng.
Slökkvilið Sandgerðis kom
strax á vettvang, en dælur þess
reyndust ekki nógu öflugar og
fékk ekki aðgert, brann húsið
þarna fyrir augum fólksins og
allt sem í því var, en jafnframt
læstý eldurinn sig í tvö næstu
hús. í því kom amerískt sl'ökkvi
lið á vettvang með sterkari dæl
ur og bifreiðar og tókst því að
slökkva eldinn í húsunum tveim
ur. Gekk það mjög vel fram og
sýndi mikinn dugnað.
Hannes Amórsson eigandi
hússins og alls sem í því var,
varð fyrir mjög miklu tjóni.
Upptök eldsins voru rannsök
uð eftir föngum í gær af lög-
reglunni í Hafnarfirði og er tal
ið líklegast að eldurinn hafi
komið upp í kj allaranum í mið
stöðinni eða út frá henni.
Er bersýnilegt að hér hefir
ekki mátt miklu muna að af
hlytist hræðilegt slys.
JélakveSjur lil íslend-
ínga Irá Danmörku
EGAR jólakveðjum frá ís
lendingum í Danmörku
var útvarpað frá Kalundborgar
útvarpinu, var ekki hægt að end
urvarpa þeim hér.
Ríkisútvarpið hafðd fyrir all
löngu sent símskeyti til Dan-
merkur og spurst fyrir um það
hvenær jólakveðjum yrði úh
varpað, en útvarjDÍð fékk ekk-
ert svar.
Nú hefir útvarpið fengið
skeyti um það að jólakveðjurn
ar yrðu endurteknar 1 danska
útvarpið og verður þeim end-
urvarpað hér. Hófst það í gær-
kvöldi, en framvegis verður
þeim útvarpað kl. 10—11 á
kvöldin, í kvöld og annað kvöld
og á laugardagskvöld og aftur
á sama tíma 2., 3. og 4. janúar.
íslendingur ráðinn
starfsmaður UNRRA
í fiskimálum Mið-
jarðarhafslandanna
¥y ÓRÐUR ALBERTSSON
hefir verið ráðinn starfs-
maður endurreisnarráðs hinna
sameinuðu þjóða (UNRRA.)
Veður hann fiskimálaráðunaut
ur á Balkan og starf hans
í því fólgið að samræma að-
gerðir og aðstoð ráðsins í fiski-
málum Miðjarðarhafslanda. Til
starfsins var Þórður ráðinn sam
kvæmt meðmælum fyrrverandi
ríkisstjórnar. Fer hann eftir ára
mótin til að taka við starfi sínu.
Slórgjafir fil Barna-
spítalasjéðs Hrings-
ins
ARNASPÍTALASJÓÐ
Hringsins hafa undanfarið
borizt margar og veglegar gjaf
ir, enda vilja margir styðja
þetta ágæta mál. Hér fer á eft
ir listi yfir gjafirnar:
Minningargjafir: Til minning
ar um læknishjónin Sigrúnu
Briem, Friðgeir Ólafsson og
börn þeirra, frá I. G. F. kr.
500.00,, Hjalta Jónssyni, kon-
iSÚl, kr. 500.00, frændfólk kr.
1.000.00 — eittþúsund krónur
—, Á. I. kr. 200.00 og Ragnhildi
Halldórsdóttur kr. 1.000.00 •—
eitt þúsund krónur —.
Helgi Bergsson, skrifstofustjóri
afhent kr.1.100.00 frá samstúd
entum Sigrúnar Briem, lækn-
is, til minningar um hana,
mann hennar og börn.
Minningargjafir: Um Pétur
Ingimundarson, slökkviliðs-
stjóra, er eftir ósk konu' hans,
frú Guðrúnar Benediktsdóttur,
gengu til Barnaspítalasjóðs
Hringsins, námu kr. 4.017.50.
Gjafir: Frá frú Þórunni Klem-
enz kr. 1.000.00 — eitt þúsund
krónur — Frá A. K. H. kr.
ÍO&OO. L. H. Múller og frú kr.
1.000.00 þúsund krónur — eítt
þúsund krónur —.
Áheit: Kr. 50.00 frá B. — Frá
stúlkum kr. 60.00 — G. E. kr.
5.00, Friðrik Jónsson kr. 100.00
og kona kr. 20.0,0.
Innkomið á söfnunarlista
fjáröflunarnefndar Hringsins:
Starfsmenn Jóhanns Ólafsson-
ar & Co. kr. 500.00. Starfsmenn
Tr. Péturssonar & Co. 450.00.
Ræsir h. f. 100.00. Starfsmenn
Ræsis h. f. 700.00. Starfsfólk
Eimskipafélags íslands h. f.
300.00,. Fylkir h. f. 500.00.
Starfsfólk Mjólkursamsölunnar
Frh. á 7. síðu
Lílið ölæðl og engir
eldsvoðar um jél-
. f
m
En lögreglan var
önnum kafin við
að bjáipa fólki til
aðkomastumbæ
inn
V
ALÞÝÐUBLAÐH) átti I gær
tal við Erling Pálsson, yfn?
lögregluþjón og spurði hann nm
starf lögreglunnar um jólin.
Kvað hann að óvenjurólegl
hefði verið í bænum, og engar
útkallanir vegna ölvunar sjálfa
jóladaganna, hins vegar var
mikið ölæði í bænum á Þorláks
messukvöld og þá um nóttina,
Annars hafði lögreglan nóg
að starfa að fólksflutningum um
bæinn og h'efir aldrei verið jafis
tilfinnanlegur bílaskortur og
nú. Á aðfangadagskvöld og jóla
dag, varð lögreglan t. d. að fara
um 70 ferðir með fólk sem eng
in ráð hafði með að ná sér í
bifreiðar, og er langt frá því afB
bílakostur lögreglunnar sé næg
ur til slíks aksturs og taldi yf-
irlögregluþjónnnin, að lögregl-
an þyrft minnst á tveim bifreiffi
um að halda til viðbótar þeim«
sem fyrir eru.
Engar útkallanir urðu held-
ur hjá slökkviliðinu um hátíð-
ina og má það teljast einsdæmi
því oftast hafa meiri og minni
íkviknanir átt sér stað um jól-
in vegna kertanna og óbyrgðra
ljósa, sem þá eru oft höfð uxrs
hönd.
Af þessu má sjá að mjög fri8
sælt og rólegt hefir verið hér £
bænum um jólin, og er þaffi
vissulega fagnaðarefná.
Símasamband aflur
komið á við Vest-
mannaeyjarog
Stykklsbélm
NOKKRAR símabilanix urðœ1
um hátíðina og var sam-
bandslaust til Stykkishólms og
'Vestmannaeyja í gærmorgun.
En bilanirnar munu ekki hafa
verið alvarlegar, og var gerf
við þær á báðum þessum lín-
um snemma í gærdag, svo nú
er aftur komið á símasambantl
til þessara staða.
Sendhneon á tveimur
ráðsfefnum vesfan
hafs koma hebn
■v I I
rjjp VEIR sendimenn íslendingæ
sem fóru á verzlunarþing
ið í New York, eru nýkomnir
heim, eru það þeir Magnús Kjar
an og Haraldur Ámason. Komi
þeir flugleiðis í fyrrinótt.
Þrír fúlltrúar aðrir, sem sátu
þingið af hálfu íslendinga erut
ókomnir ennþá, eru það þeir
Eggert Kristjánsson, Hallgrím
ur Benediktsson og Oddur Guffi
jónsson.
Einnig er Agnar Kofoed-Haia
sen lögeglustjóri kominn heim,
en harun sat flugmálaráðstefnu
í Chicago eins og kunnugt er.