Alþýðublaðið - 04.03.1945, Blaðsíða 7
Sunnudagur i. marz 1945
Bœrinn í dag.
Næturlæknir er í nótt og aðra
QÓtt í Læknavarðstofunni, sími
5030.
Helgidagslæknir er Bjarni
Bjaxnason, Leifsgötu 8, sími 2829.
Næturvörður er í nótt og aðra
nótt í Reykj aví k urapó teki.
Næturakstur annast B. S. í.,
sími 1540.
ÚTVARPIÐ:
8.30 Morgunfréttir. 10.30 Út-
varpsþáttur (Hélgi Hjörvar). 11.00
Morguntónleikar (plötúr). 12.10—
33.00 Há'degisútvarp. 14.00 Messa
í Hailgrirnssókn (séra Jakob Jóns
aon. 15.15—16.30 Miðdegistónleik
ar (plötur). 18.30 Bamatími (Pét-
ur Pétursson o. fl.). 19.25 Hljóm-
plötur. 20.00 Fréttir. 20.20 Einleik
ur á fiðlu (Þorvaldur Steingríms-
aon). 20.35 Erindi: Viðnám gegn
erlendum óihrifum (Gýlfi Þ. Gísla
son dósent). 21.05 Karlakór
Beykjavíkur syngur (Sigurður
Þórðarson stjórnar. — Plötur).
21.25 Upplestur: Kvæði (Sigurður
Jónsson á Arnarvatni). 21.45 Hljóm
plötur: Klassiskir dansar. 20.00
Fréttir. 22.05 Danslög. 23.00 Dag-
skrárlok.
Á MORGUN:
Næturakstur annast Litla bíla-
stöðin, sími 1380.
ÚTVARPIÐ:
8.30 Morgunfréttir. 12.10—13.00
Hádegisútvarp. 15.30—16.00 Mið-
degisútvarp. 18.30 íslenzkukennsla,
2. flokkur. 19.00 Þýzkukennsla, 1.
fliokkur. 19.25 Þingfréttir. 19.30
Erindi: Fiskiræktin og framtíðin
(Ólafur Sigurðsson fiskiræktar-
ráðunautur). 20.00 Fréttir. 20.30
Samtíð og framtíð: Efnafræðin
(dr. Jón E. Vestdal). 20,50 Hljóm
plötur: Lög leikin á sög. 21.00''Um
daginn og veginn (Vilhjálmur Þ.
Gíslason). 21,20 Útvarpshljómsveit
in: íslenzk alþýðulög. — Einsöng-
ur (Svava Einarsdóttir). 21.50
Fréttir. Dagskrárlok.
Félagslíf.
Handknattleiksæfing karla í
íþróttahúsi Jóns Þorsteinsson-
ar í dag kl. 3.
Handknattleiksæfing kvenna
í Austurbæjarbarnaskólanum á
naorgun kl. 8,30.
Ferðafélag íslands
Heldur skemmtifund mónu
dagskvöldið þ. 5. marz 1945 í
Oddfellowhúsinu. Húsið opnað
kl. 8,45.
’ ,
Kjartan O. Bjarnason sýnir
nýjar ísL kvikanyndir, í eðlileg
una litum — landslagsmyndir
o. fl.. Dansað til kl. 1. Aðgöngu
miðar seldir í bókaverzlun Sig-
fúsar Eyimundssonar og ísafold
ar á mánudag.
KR
Glímurnenn KR
Aknennur glímumannafundur
verður haldinn í dag í V.R
Hefst kl. 3 e. h. Árlíðandi að
allir mæti. —
Glí'munefnd KR.
Atbreiðið Aipýðiblaðfð!
SlgurSor Jéhannsson
Framhald af 2. síðu.
kpnar félagsstarfsemi, til þéss i
að efla kynni landanna. T: d.
voru teknar upp „kvöldvökur“
í stúdentafélaginu og voru þær
jafnan vel sóttar. Við fengúm
styTk frá íslandi til að halda
þessari starfsemi uppi og enn
fremur til útgáfu „Fróns“. Aðal
tfrömuðurinn í þessari menning
arstarfsemi , sem stúdentafélag
íð leitast við að vinna með út-
gáfu tímaritsins og kvöldvök-
unum, eru þeir Jakob Bene-
diktsson og Jón Helgason, pró-
fessor, og er Jaköb ritstjóri
íímaritsins, en auk hans skrifa
í það ýmsir íslendingar í Höfn.**
- Þér voruð formaður stúd-
entafélagsins á tímabili.
„Já, ég var formaður þess
síðasta árið, sem ég var í Kaup
mannahöfn“.
— Fenguð þið litlar fréttir
að heiman?
,Það má segja, að á fyrstu
árunum eftir hernámið væri
ekki um neinar fréttir að rœða,
og við gátum ekkert látið heyra
frá okkur. Einangrunin var allt
af meiri og meiri. En síðar fór-
um við að geta fengið íslenzkar
bækur sendar, svo við mynduð-
um með okkur leshring, og
veitti það okkur óblandna á-
nægju og bætti okkur mikið
upp einangrunina. En það skal
tekið fram að þetta voru ekki
allt dýrar bókmenntir, sem við
lásum. T. d. fengum við 10 árg.
af íslenzkri findni, en þeir
voru lesnir með engu minni
andakt en Hallgrímsljóð;það
var íslenzkt lesefni og það var
okkur fyrir mestu. Blöð sáum
við hins vegar aldrei, en eftir
að senddráðið fór að gefa út
fréttayfirlit að heiman var eins
og við færum að eygja svo lítið
ljós að heiiman. Þá fengum við
að heyra helztu tíðindi sem gerð
ust á íslandi. Ennfremur feng-
um við bækur lánaðar frá sendi
ráðinu.
Síðan befur svo bæzt við,
íréttaútvarpið einu sinni í viku
í gegnum stuttbylgjustöðina.
Til Svíþjóðar heyrðu'st þessar
sendingar ágætlega, og við frétt
um að þær hefðu einnig heyrzt
vel í Danmörku. Þessar frétta-
útsendingar voru búnar að vera
tvisvar, þegar ég fór frá Sví-
þjóð.“
— Bar Gullfoss nokkurntíma
fyrir augu yðar?
„Já, Gullífoss gamli lá við
Starndgötu þrjú fyrstu árin,
eítir hernámið og var farinn að
ryðga mikið, síðast þegar ég sá
hann. En svo hvarf hann, frá
Strándgötu nokkru áður en ég
fór frá Kaupmannahöfn.“
— Og svo fóruð þér til Sví-
þjóðar?
„Já, en ég get verið stuttorð-
/ur um ferðalagið, ég komst þang
að og það var mér fyrir mestu
og nú er ég staddur hér á
gamla Fróni og veit _að ég er
öfundaður af fjölda íslending-
um, sem ennþá dvelja í Dan-
mörku og þrá að komast heim.“
— Hvað getið þér sagt mér
um dVöl yðar í Svíþjóð?
„Ekki nema allt það bezta.
Þar líður öllum fslendingum
vel, þar er nóg að bíta og
brenna. Það er að vísu skömmt
un þar á ýmsum matvörum eins
og í Danmörku, en miklu ríf-
legri og svo vel fyrirkomið, að
maður verður hennar varla
var.
Ég vann í Svíþjóð við verk-
fræðistörf þar til í október í
haust, að ég réðst til vegagerð
arinnar hér, Síðan hef ég verið
að kynna mér ýmsar nýungar
í vegagerð og mun vinna hér að
þeim verkefnum í framtíðinni.
Ennfrenjur kynnti ég mér vatns
mælingar í ám og fallvötnum,
en aðalstarf mitt verður verk-
fræðileg störf fyrir vegagerð
ríkisins.
ALÞÝPUBLAÐIÐ
Kveðjur frá Þjóð-
FRÁ - Þjóðræknisfélagi íslend
iriga í Vesturheimi hefur
forseta íslánds borizt eftirfar-
andi:
„26. ársþing Þjóðræknisfélags
ins sendir yður og íslenzku þjóð
inni innilegar kveðjur og árn-
aðaróskir.“
(Frétt frá síkisstjórninni).
. ‘ |l WW III i
Jarðarför
Matthildar Pálsdóttur, frá Litlu-Heiði
fer fram frá Fríkirkjunni þriðjudaginn; 6. marz og hefst með
bæn að heimili hennar, Grenimel 25, kl. 3 síðdegis.
Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað.
Vandamenn.
Kinarhvolssysfur
Ameríski sendiherr-
ann í fríi.
AMERÍSKI sendiherrann
hér, Louis G. Dreyfus, er
farinn héðan í fri heim til
Bandarík j anna.
í för með honum er ritari
sendisveitarinnar, Benjamin
Hulley. Francis L. Spalding
hefur verið útnefndur Chargé
d’Affaires í fjarveru sendiherr
ans. Það hefur all lengi staðið
til að sendi herrann færi í frí
heim til Bandaríkjanna, þó að
ekki hafi orðið af því fyrr en
nú.
Tf—*--
Þingslit
Frh. af 2. síðu.
komumöguleika þjóðarinnar í
hvívetna, með ráðum og dáð,
svo að hún geti óvéfengjanlega
i staðið föstum fótum á sinni eig
in jörð, sem ekki verður nema
með heilum hyggindum og ó-
eigingjamri atorku, samfara
frjálsmannlegri festu gagnvart
ÖÍlu, sem að höndum ber. Vér
höfum öðlaz^t frelsið, til þess
að halda því að fullu í heiðri.
Að lokinni þingslitaræðu for
seta sameinaðs þings kvaddi for
seti íslands, herra Sveinn
Björnsson, sér hljóðs. Las hann
fyrst forsetabréf um þinglausn
ir, sem gefið var út í ríkisráði í
gær, þar sem tilkynnt var, að
forseti íslands hefði ákveðið að
63. löggjafarþingi alþingis
skyldi slitið laugardaginn 3.
marz 1945, og var það undirrit
að of forseta Islands og forsæt-
isráðherra. «
Forsti íslands sleit því næst
þinginu með svofelldum orð-
um eftir að hafa lesið upp for-
setabréf þetta um þinglausnir:
Þetta þing, sem er hið
lengsta, sem háð hefur verið og
x haft hefur til meðferðar og full
naðarályktunar hið mikilvæg-
asta mál, sem alþingi hefur
nokkru sinni um fjallað og varð
að framtíð landsins öllum mál-
um framar, frá því er allsherj-
arríki var sett hér ó stofn fyrir
nærfellt 1015 áum’, hefur nú
lokið störfum sínum að þessu
sinni, og segi ég því þinginu
slitið.
Ég vil biðja alþingismenn að
minnast fósturjarðar vorrar, ís
lands, með þvi að rísa úr sæt-
um sínum.
Að loknu ávarpi forseta bað
forsætisráðherra* ísland lengi
lifa, og tók þingheimur undir
orð hans með ferföldu húrra-
hrópi.
Ðregið
var í happdrætti Lestraríélags
kvenna í fyrrakvöld og komu upp
■þessi númer: 232 veggteppi. 1155
refill, 1166 myndavél og 1947 bók.
Vinninganna má vitja til frú Lauf
eyjar Vilhjálmsdóttur Suðurgötu
22.
Frh. af 4. síðu. •
.leirinn var vel eða illa hæfur I
til mótimar. Má yfirleitt segja,
að honum hafi tekizt þetta
sæmilega að mörgu leyti, enda
þótt aukapersónurnar margar
beri um of v©tt um utanbókar
lærdóm og verki því diálítið ó-
nátturlega og á þetta sérstak
lega við í siðasta atriði leiks-
ins, þar sem inn ganga nokkr
ar ungar manneskjur, einn,
tveir, þrír, núa sér við eins og
kippt sé í snúru, og standa síð
an eins og eintrjáningar á leik-
sviðinu. Þótt þessi og ef til vill
önnur smáatriði hafi farið nokk
uð á annan veg fram, en æski-
legt hefði verið, þá verður að
virða leikstjóranum það til
vtorkunnar, því þau hafa verið
það mörg smúatriðin, sem hann
hefir orðið að sjá um, að ekki
ef nema eðlilegt, að einhvers
staðar megi á sjá.
Leikur frú Ingibjargar Steins
dóttur, sem leikur Ulriku, er
ávöxtur aðeins 11 daga æfinga,
en ekki tilþrifalaus. Hefur leik
ur hennar að vísu ekki eins
sannfærandi áhrif á mann í
fyrri hluta leiksins og i síðari,
en þar tekst frúnni með ágæt-
urn vel að sýna hina lífsleiðu
konu, sem eytt hefur ævi sinni
í það að, spinna gull, sem hún
svo getur ekkert 'notfært sér,
þar sem dauðinn einn bíður
hennar.
Ungfrú Guðfinna Breiðfjörð
leikur hlutverk Jóhönnu oftast
af mestu snilld. Þegar tekið er
tillit til þess, að hún hefur
ekki áður stigið á leiksvið, er
ástæða til þess að ætla, að hér
sé um efni í ágæta leikkonu
að ræða. Verður manni það sér
staklega Ijóst í síðari atriðum
leiksins. Er auðséð, að við þessa
leikkonu hefir leikstjórinn lagt
mikla rækt. Ber leikur hennar
þess glöggan vott.
Sveinn V. Stefánsson fer með
hlutverk Jóhanns, unnusta Úl-
riku, og skilar hann því betur
j en nokkru öðru hlutverki, sem
ég hefi séð hann leika. Er
Sveinn að komast á bekk með
liðtækustu leikurum. Þá verður
það og að aðgætast, að á honum
sem formanni L. H., hefir allur
undirbúningur að leiksýningu
þessari mætt mjög, og á hann
eflaust drjúgan þátt í því, hve
allt hefir tekizt þrátt fyrir and-
streymi og erfiðleika.
Axel, unnusta Jóhönnu, leik-
ur Ársæll 'Bálsson. Má segja, að
þetta sé fyrsta hlutverk, sem
Ársæll leikur og ekki á að end-
urspegla einlhverja „fígúru11, ef
svo mætti að orði komast, ein-
hverja persónu að meiru eða
minnu leyti ól'íka því sem ger-
ist og gengur um fólk. Þama á
hann aftur á móti að sýna pers
ónu, sem er beint út úr hvers-
dagslifinu. Þetta fer Ársæli
ekki eins vel úr hendi, eins og
að sýna hinar sérkennilegu pers
ónur, sem hann áður hefir feng
izt við, en þó má leikur hans
teljast lýtalaus, sléttur og á-
ferðarfallegur, en tilþrifalítill.
enda gefur hlutverkið ekkert
tækifæri til skapgerðarleiks.
Smærri hluverk Ihafa á hendi
María Þorvaldsdóttir, Sigurður
Arnórsson, Eiríkur Jóhannes-
son og Hafsteinn Þorvaldsson
og mætti segja mér, hvað hinn
s’iðasttalda áhrærir að þar væri
á ferðinni efni i leikara, því
enda þótt hlutverkið væri lítið
og ekki lengi með farið, þá gaf
það samt Hafsteini tækifæri til
þess að sýna, að hann var sér
þess fullvel meðvitandi, hvem-
ig hræddur strákur á að líta út.
Hin fara mjög sæmilega með
hlutverk sín, enda þótt nokkurs
stirðleika virtist gæta í fasi
sumra þeirra. Sama máli gegnir
og um meðferð Þorvaldar Guð
mundssonar á hlutverki Jóns
bónda að Kinnarhvoli.
Dvergadansinn var saminn 'og
æfður af frk. Sif Þórs. Bar
hann höfundi og stjórnanda við
bezta vitni um smekk og á-
ræðni. Lárus Ingólfsson hefir
málað leiktjöldin og eru þau,
eins og hans var Von og vísa, .
hin fagurlegustu, sérstaklega
hellirinn. Kristinn Friðfinns-
sön smlðaði leiktjöldin og má
því segja að Hafnfirðingar hafi
fengið ýmsa ágæta aðstoð frá
Leikfélagi Reykjavíkur, og á
það efcki hvað sízt við um mann
inn, sem þá ekki er nefndur
í leikskránni, manninn, sem
þrátt fyrir það, að Ijósaútbún-
aður hússins er ókominn frá út
löndum, skapaði þó hin feg-
urstu ljósbrigði á leiksviðinu,
og hefir hann þó sennilega ekki
átt mikils úrkosta um tæki er
flytja mátti í skjótri svipan
staða á milli. Músikina önnuð-
ust þau: Sigurður Gestsson,
Anna Magnúsdóttir og Þórhall-
ur Stefánsson og hefði hún mátt
vera betri.
Þegar öllu er á botninn hvolt,
má segja, að leiksýning þessi
hafi tekizt vonum framar, því
enginn vejt, nema sá, er sjálfur
reynir, hvílikum vandkvæðum
það er bundið að koma af stað
slíkri sýningu þegar erfiðleik-
aínir. og ðhöppin elta hvort ann
að, og auk þess á að sýná í nýju
ihúsi, óreyndu fyrir hljóð og
tón, hreyfingar og stöður. Vil
' ég aðeins að lokum óska Leik-
■ félagi Hafnarfjarðar til ham-
ingju með þetta nýja heim-
kynni sitt og þakka um leið
bæjarstjórn Hafnarfjarðar fyr-
ir þann mikla velvilja og stór-
hug, er hún hefir sýnt í sam-
bandi við leikhússmál Hafn-
firðinga. 3. St.
Búnaðarþingið gerir
ályktun um úiflufn-
ing kjöts með flug-
vélum.
A FUNDI búnaðarþings í
fyrradag var tekin fyrir
tillaga frá Búnaðarsambandi
Suður-Þingeyinga um útflutn
ing á 1. flokks nýju kjöti með
flugvélum. Var tillagan sam
þykkt einróma.