Alþýðublaðið - 12.05.1945, Síða 3
l^aagartjaginn 12. maí 1845.
HLÞYPUeiflÐlB
Allt er með kyrrum kjörum í Noregi
2000 NS-menn hafa verið handteknir
,
Nr á meðal Qulsllng og allir ráðherrar
hans, nema Jonas Lie og Riisnæs
S AMKVÆMT FREGNUM, sem báruist frá Noregi í gær,
má segja, að áilt sé með 'kyrrum kjörum í landinu og
hvergi hafði komið til neiírna alvarlegra uppþota eða á-
rekstra. Er nú unnið að þvi að handtaka norska nazista og
hafa þegar um 2000 mtenn verið handteknir. Allir ráðherrar
Quislings eru nú á valdi norska heimahersins, nema tveir,
þeir Jonas Lie og Ríisnæs, en þeir munu hafa búizt til varn-
ar í húsi einu í útjarðri Oslo.
Terboven, landstjóri Þjóðverja í Noregi, hefur framið sjálfs-
naorð, svo og SS-hershöfðinginn Rediess og hinn illræmdi Gesta-
po-maður, Fehlis.
Henlein.
Henlein og fleiri
kunnir nazisfar
í London er tilkynnt, að
Martha krönprinssessa, kona
Ólafs, ríkisarfa Norðmanna, sé
kominn þangað frá Bandaríkj-
unum. Samtímis henni komu
þeir Trygve Lie, utanríkisráð-
herrna, Hambro, forseti Stór-
þingsins og dr. Karl Evang,
landlæknir Noregs. Munu þeir
hverfa mjög bráðlega til Nor-
egs.
í frekari fregnum, er borizt
hafa frá Noregi, segir, að Olav
Midtun, fyrrverandi forstjóri
norska útvarpsins, hafi áftur
tekið við starfi sínu þar. Menn
úr heimáhernum tóku útvarpið
þegar í sína vörzlu og hófu út-
varp frá Oslo. Þá hefir pólitísk-
um föngum verið sleppt víðast
hvar í Noregi. Tilkynnt hefir
verið, að Arne Fjellbu, biskup
í Finnmörku, áður dómpróffast
ur í Þrándheimi, sé þangað kom
inn o>g hafi honum verið: vel
fagnað.
' A mynd þessari sjást mörg hinna svonefndu risaflugvirkja, sem eru stærstu sprengjuflugvélar
[iheiimisins, á leið frá istöðvum sínum á Maríaneyjum til árása á Japan. Skýjaþykknið hamlar því
yékki, .að ;þær geti hæft skotmörkin. Flugvélárnar hafa sérstök miðunartæki til sMkra árása.
Mololov farinn al San
Francisco-ráð-
Tilkynna, að 8. fiugherinn vorði fluiiur frá
Brefiandí fil Aiíuvígslöðvanna
Risafiugvirki herða árásiraar á Japan og
varpa eiiiur dufium
-------
T5 ANDARÍKJAMENN herða nú loftárásirnar gegn Jap-
ömnn og búast tií stórsóknar á hendur þeim jafnskjótt
og þeir hafa flutt nægilegt lið og flugvélar til Austurvíg-
stöðvanna. Mörg hundruð risaflugvirki hafa enn gert skæð-
ar árásir á verksmiðjur á eyjunni Honshu og tilkynnt hefur
verið, að risaflugvirki hafi nú um langt skeið lagt tundur-
dufl á siglingaleiðir Japana allt til Singapore.
Doolittle hershöfðingi, vfirmaður 8. fiughers Banda-
ríkjamanna, sem hefur 60 flugvelli í Bretlandi og um 400
þúsund manna lið,.hefur tilkynnt, að megnið af flughemum
verði flutt til Asíuvígstöðvanna nú á næstunni.
Himinler sagður verj
asi á Salzfourg-
svæðinu
HVER nazistaforingúm af
Öðrum fremur nú sjálfs-
morð eftir uppgjöfina. Konrad
Henlein, fylkisstjóri Hitlers í
Súdetalöndum hefir nú framið
sjálfsmorð. Hann hafði verið tek
inn höndum af 3. hemum og
sat í fangajdefa» en laumað með
sér rakhlaði og skorið sig á púls
inn. Þá hefir Bormann, stað-
gengill Hítlers, sá er tók við af
Hess, einníg framið sjálfsmorð.
Himmler er sagður hafa búizt
til vamar í fjallahéruðum Salz-
hurg, ásamt nokkrum ofstækis-
fullum SS- og Gestapomönmun.
Áðiír höfðu gorizt fréttir um,
að þeir Göring og Sohacht, fyrr
um bankastjóri ríkisbankans
þýzka, hefðu verið teknir hönd
um. Þá hefir Weygand hers-
höfðingi, sá er tók víð af Game-
lin árið 1940, einnig verið hand
tekinn, svo og hinn frægi tenn-
isleikari Frakka Borotra, en
hann var íþróttamálaráðherra
Vichy-stjórnarinnar. Loks hafa
bandamenn tekið fastan Debr-
inon, einn kunnasta mann Vichy
stj'ómarinnar og sendiherra
hennar í hinum hernumda
hluta Frakklands á sínum tíma.
Kaupför bandamanna
á Mur-Allanis-
hafi sigia áfram
undir herskipavernd
Kafbáfar Þjóðverja
koma tfi brezkra
hafna
D ANDAMENN tilkynna, að
fyrst um sínn muni þeir
kanda áfram að sigla í skipalest
um á Norður-Atlantshafi með
herskipavernd.
Mun það vera til öryggis, að
þar eð mikill fjöldi kafbáta
Þjóðverja er enn á höfum úti
og gæti hugsazt, að einhvérjir
þeirra reyndu að gera árásir á
kaupför bandamanna, þrátt fyr
ir uppgjöf Þýzkíalands. Þýzkir
kafbátar hafa þegar komið til
ýmissa brezkra hafna og höfðu
uppgjafarfánann svarta við
hún. f gærkveldi höfðu 10 kaf-
bátar gefizt upp fyrir brezka
flotanum og von var á fleirum
til brezkra hafna þá og þegar.
Tveir þýzkir kafbátar, sem
komnir eru til Weymouth, verða
til sýnis fyrir almenning á
morgun.
RÁ San Francisco berast
þær fregnir, að Molotov
utanríkismálaráðherra Rússa
og fulltrúi þeirra á ráðstefnunni
þar, hafi horfið af ráðstefnunni
, og sé kominn heim.
Gromiko, sendiherra Rússa í
Washington, mun taka við af
honum sem formaður sendi-
nefndar Rússa á ráðstefnunni.
Þá er einnig tilkynnt, að
Anthony Eden, utanrikismála-
ráðherra Breta, muni hverfa
heím til London um stundar-
sakir.
Danski ffotinn kominn
heim
T|ANSKI LLOTINN kom í
gær til Kaupmannahafn-
ar frá Sv'íþjóð, Brezk skip, sem
láu á höfninni fögnuðu dönsku
skipunum með skothríð af fall-
byssum, einnig var þeim vel
fagnað af miklum mannfjölda
í landi. — Montgomery er sagð
ur kominn 61 Kaupmannahafn
ar.
Danir sökktu á siinum tíma
stærstu herskipum sínum, til
þess að þau féllu ekki í hendur
Þjóðverjum. Meðal þeirra voru
'herskipin ,,Niels Juel“ og „Ped
er Skram“. Dönum tókst að
koma allmörgum tundurskeyta
bátum og öðrum smærri her-
skipum yifir til Svíþjóðar, þar
sem þau hafa legið síðan.
Bersýnilegt er af öllum frélt
um, frá Asíuvígstöðvunum, að
bandamenn eru nú að hefjast
hana um lokaátökin við Japana,
eftir að Þjóðverjar hafa gefizt
upp. Frá Kína berast þær fregn
ir, að kínverskur her hafi, með
aðstoð amerískra flugsveita,
unnið mikinn sigur á Japönum
í Vestur-Hunan-fylki í Súður
Kína.
Þá hafa risaflugvirki haft
sig mjög í frammi i loftárásum
á Japanseyjar undanfarna daga,
meðal annars ]áðizt á miklar
hergagnasmiðjur á Honshu, þar
sem Tokio er, svo og Kyushu.
Doolittle hershöfðingi mun
frægastur " fyrir það, að hann
stjórnaði fyrstu loftárás Banda
ríkjamanna á Toikio árið 1941,
er flugvélar frá flugvélaskipipm
réðust á Tokio og lentu síðan í
Klna. Georg Bretakonungur
hefur nú sæmt Boolittle Bath-
orðunni (K. C. B.) fyrir aífrek
hans sem stjórnanda 8. flug-
hersins í Bretlandi. Doolittle
skýrði blaðamönnum frá því í
gær, að flugher hans hefði um
2400 sprengjuflugvélum á að
skipa og um 1200 orrustuflug-
vélum'..
Luhlmsijórnin flytur
Pólverja til Þýzka-
lands
T UNDÚNAFREGNIR í gær
kveldi, greindu frá því, að
Lublin-stjómin í Póllandl væri
byrjuð á flutningi Pólverja til
Þýzkalands. Hafa þegar verið
fluttir álitlegir hópar til borgar
innar Frankfurt við Oder og
sagt, að raenn þessir eigi að taka
við ýmsum mikiivægum störf-
mn í borginni. Þeir komu flest-
ir frá Lodz.