Alþýðublaðið - 29.11.1945, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 29.11.1945, Blaðsíða 2
ALÞYPUBLAÐiÐ Fimmtudagur, 29. I atú«. • 1945~ Ðýðnflokksfélags Reykjavíkur. -------------- ■ Nýr skemmtiliSur, sem áður er éþekkt- ur í skemmtanaiífi hér. --------♦------- ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG REYKJAVÍKUR efnir til annars fræðslu- og skemmtikvölds síns í samkvæmis: SÖlum Alþýðuhúss Reykjavíkur, næstkomandi laugardags- kvöld. Alþýðuflokksfélagið hefur á undanfömum vetrum haft mörg slík fræðslu- og skemmtikvöld og hafa þau ætíð verið mjög fjölsótt. Á fræðslu- og skemmtikvöldinu á laugardagskvöld verð- ur fjölda margt til skemmtunar og þar á meðal nýr liður, sem er áður óþekktur í skemmtanalífi okkar. Nefnist hann „Spurningar og svör.“ Eru búnar til nokkrar spurningar, sem lagðar eru fyrir nokkra menn og eiga þeir að svara þeim ttieð ræðum, sem ekki mega þó vera lengri en 5 mínútur hver. Alþýðuflokksfélagar ættu að fjölmenna á þetta fræðslu- og skemmtikvöld 1. desember. Verður nánar skýrt frá skemmtiatriðum síðar og hvar menn geta fengið aðgöngu- miða. StíórnarftosDino byrjnO I S]é- niannafélaql Reykjasílcor. -----«----- Klunnalegar fllraunir kemmúnisfa tlB að æsa upp gegn hinni þrautreyndu forustu félagsins. Kosning á stjórn sjómannafélags reykja- VÍKIJR fyrir næsta ár er hafin. Hófst hún 25. þ. m. og stendur fram yfir áramót. Kosið er í skrifstofu félagsins frá klukkan 4—7 alla virka daga, og einnig um borð í skip- unum. Konunpriim á Kátf- skinni, saga um gamalt félk. Ný skáldsaga eftir GuSmund G. Haga- lín. NÝ SKÁLDSAGA eftir Guð- mund G. Hagalín kom á bókamarkaðinn í gær. Þetta er stærsta skáldsaga Haglíns og mun að líkindum hljóta þá dóma að hún sé veigamesta verk hans og sérkennilegasta. Skáldsagan heitir „Konung- ur á Kálfsskinni". Gerist hún í elliheimili í þorpi úti á landi og segir sögu gamals fólks og af viðskiptum þess hvert við ann- að og aðra þorpsbúa. Aðalsögu- hetjan er Eiríkur gamli Athan- íusson, sjálfur konungurinn á Kálfsskinni. En alls koma við sögui oSigxxiíð öíþe^SÓriáWÍa'ES&láh5: ber öll beztU"eibkermii'H-agaiíns og er bráðfjörug og skemmti- leg. Sú nýlunda er við þessa skáldsögu að margra myndir eru í henni af persónum sög- unnar og hefur Halldór Péturs- son teiknað þær. Eru myndirn- ar prýðisvel gerðar. Sagan er 519 síður að stærð og útgáfan öll hin myndarleg- asta. Útgefandinn er Bókfells- útgáfan. Fjalakötturinn sýnir Mann og konu í kvöld kl. 8. Aðgöngumiðar verða seldir í Jðnó í dag frá kl. 2. Við stjórnarkjör í Sjómanna félaginu er valið um þrjá menn í hverju sæti, en listinn er út- búinn á þann hátt, að tveir menn eru valdir í hvert sæti af uppstillingarnefnd, sem félags- fundur kýs, en síðan tiinefnir félagsfundur einn mann til við- bótar í hvert sæti: Formaður: 1. Sigurjón Á. Ólafss., Hring- braut 143. 2. •Jón Ármannsson, Bakka- stíg 6. 3. Guðmundur Guðmundsson frá Ófeigsfirði, Hringbraut 211. Varaformaður: 1. Ólafur Friðriksson Hverfis götu 10. 2. Haraldur Ólafsson Sjafnar- göt u 2. 3. Guðmuindur Dagfinnsson Týsgötu 4. Ritari: 1. Garðar Jónsson Vesturg. 58. 2. Gunnar Jóhannsson Smáragötu 10. 3. Guðni Thorlacius Ránarg. ’ j ,-iBritod srro‘.r nnari a >n-t Féhirðir: 1. Sigubður Ólafsson Hverfisg. 71. 2. Þorsteinn Guðlaugsson Hringbr. 188. 3. Sigurður Þórðarson Vita- stíg 20. Varaféhiirðir: 1. Karl Karlsson Bollag. 66. 2. Ól;i Kr. Jónsson Hringbr. 184. 3. Jón Halldórsson Laufholti v. Ásveg. Allir eru þessir rnenn, sem í kjöri eru þekktir að því að bera Framhlad á 7. síðu. MHrð pgnrýni á á fimcll sanaelnaðs Þingsályktunartiliaga Jónasar Jóns- sonar rædd, en umræðunni ekki lokið os máliuu Srestað. ÞINGSÁLYKTUNARTILLAGA Jónasar Jónssonar um hlutleysi útvarpsins var til umræðu á fundi samein- aðs þings í gær, og urðu um mál þetta miklar og allharðar umræður. Varð umræðunni ekki lokið fyrir fundarlok og henni því frestað og málið tekið út af dagskrá. RæSa Jónasar Jéns- sonar Jónas Jónsson, flutningsmað ur tillögunnar, fylgdi málinu úr hlaði með stut'tri ræðu. Drap hann lauslega á þær deilur, sem spunnizt hafa vegna frétta rík- isútvarpsins og erindanna frá útlöndum. Taldi hann nauðsyn bera til þess, að tekin yrði upp ritskoðun á öllu því efni, sem flutt væri í útvarpið, enda myndi það tíðkast við öll hin stærri útvörp annarra þjóða. físeia ^lagnósar Jóns souar Magnús Jónsson, formaður útvarpsráðs, kvaðst mundu láta deilurnar um hlutleysisbrot útvarpsins liggja milli hluta, enda yrði ávallt deilt um það atriði og ógerlegt að tryggja hlutleysi slikrar stofnunar. •— Samkvæmt lögunum um ríkis- útvarpið bæri.því að kappkosta skoðanafrelsi og óhlutdrægni, en þar með væri ekki sagt, að útvarpinu bæri skylda til að fyr irbyggja, að í efni því, sem það flytti, kæmu ekki fram skoðan- ir, sem fleiri eða færri hefðu vanþóknun á. Þá taldi Magnús Jónsson rit- skoðun við útvarpið í senn ó- heppilega og erfiða. Kvaðst hann ekki vita, hvaða reglum ætti að fylgja til þess að tryggja algert hlutleysi ríkisútvarpsins, bótt horfið yrði að þessu ráði. Varla gæti útvarpsráð sjálft les ið yfir allt það efni, sem flutt yrði í útvarpið og engin trygg ing væri fyrir því, að trúnaðar- menn þeir, sem það veldi til ritskoðunarinnar, ræktu starf sitt þannig, að allir gætu vel við unað, enda teldi hann það llgerlegt. Einnig gat hann þess að ritskoðunin myndi hafa hær afleiðingar, að fttvarpið færi á mis við margt af því bezta efni, sem það hefði nú að bjóða, því að beztu fyrirles- araynir vildu ekki sætta sig við það, að efni þeirra yrði látið Talning afwæia í presikosniitgunni fara gegnuim slílka ritskoðun, sem hér væri farið fram á, og kvað hann það í hvívetna skilj- anlegt og eðlilegt. RæSa Brynjólfs Bjarnasonar Brynjólfur Bjarnason mennta málaráðherra kvaðst vera því samþykkur, að þingályktunar- tillaga sú, sem hér lægi fyrir, næði fram að ganga, þegar gerð ar hefðu verið á henni nauð- synlegar breytingar. Gat hann bess, að því hefði mjög farið fjarri, að skoðanafrelsi og óhlut drægni hefði ríkt við útvarpið á liðnum árum, þótt þessi við- horf hefðu mjög breytzt til batnaðar nú upp á síðkastið. — Taldi hann mikla nauðsyn bera til þess að fullkomna fréttastarf semi útvarpsins, enda hefðu starfsmenn fréttastofunnar mik inn hug á því að færa starf- semi hennar til betri vegaf. RæÓa Stefáns Jóh. Sfefánssonar ■04invE.«$*lM'a ih «B?xcid—itíu nitrtb b e8» R b NGIN KÆRA hafði bor- izt seint í gærdag út af prestkosningunni til Ðóm- ; kirkjunrar í Reykjavík, sem fram fór síðastliðinn sunnu- dag, og var ákveðið, að taln- ing atkvæða hæfist í morg- un kl. 9. Talningm fer fram í þjóð- mirtjasafninu og er gert ráð fyrir að henni verði lokið um eða eftir hádegi. Stefán Jóhann Stefánsson lagði til, að þingsályktunartil- lögunni yrði vísað til nefndar og fengi þar rækilega athugun. Kvaðst hann telja ritskoðun þá, sem fyrirhugiuð væri á efni út- varpsins samkvæmt þingsálykt unartillögu þessari, vafasama. Varðandi efni útvarpsins og starfsemi kvaðst hann telja mesta þörf á að þæta um er- lendar fréttir þess. Starfsmenn fréttastofunnar hefðu til dæm- is hin síðari ár tekið upp þá nýbreytni að beygja erlend heiti á borgum og flokkum að íslenzkri málvenju svo og að íslenzka ýmis erlend eiginnöfn, en hins vegar gætti mikils handahófs í sambandi við ís- lenzkun á heitum erlendra stjórnmálaflokka og yrði þetta oft og tíðum til þess, að hug- takaruglingur hlytist af. Minnt- ist hann í því sambandi sér í lagi á bað, hvernig útvarpið ís- lenzkaði heiti erlendu alþýðu- flokkanna. Heiti þeirra væru ým ist þýdd eða látin halda sér og réði einskær tilviljun í því sam bandi. Taldi hann, að ef ríkis- útvarpið vildi ekki taka upp þann sið, sem þó væri sjálfsagð j ur, að nefna flokka sósíaldemó- krata erlendis alþýðuflokka, væri hægurinn hjá fyrir það avelja þeim heitið, jafriaðar-, nSiá^lokkSfyjJví W^fBið^Jraí ririáðúr I riffeilÞ ’br ðið’hhálirár aldar gamalt að minnsta kosti í íslenzku máli. Þá minntist hann einnig á það. hversu vafasamt væri að býða Labour Party Verkalýðsflokk, bví að enska orðið labour yrði ekki þýtt á íslenzku öðru vísi en sem al- þýða. Einnig gat hann þess, að útvarpið hefði í haust þýtt heiti austurríska flokksins Volkspart ei, sem Alþýðuflokk, þótt þar sé um að ræða borgaralegan flokk sem ekkert eigi skylt við jafn- aðarmannaflokkana, og mætti nefna fleiri slík dæmi. Framhald á 7. síðu. Vióskipiamálin Viðskip *■* - Ui aíram. En þaS ©g Nýbygg- ingarrá^ eiga fyrir« fram a® gera helld- aráæfiun um inn- ©g útfiufníng. P JÁRHAGSNEFND efai A deildar hefur nú lagt fyrir alþingi frv. til laga um imiflutning og gjaldeyrismeð ferð. Eins og kunnugt er voru Iögin um þetta fram- lengd fyrir nokkru til 1. des. n. k„ en þá er hlutverki víð skiptaráðs lokið. Samkvæmt hinu nýja frumvarpi á við 8 skiptaráð að starfa áfram, og er frv. í samræmi við fyrri lög um þetta, nema hvað einni grein er bætt inn í lög in (3. gr.) en hún gerir ráð fyrir, að Nýbyggingarráði og úiðskiptaráð skuli í samein- ingu og fyrirfram gera heiM aráætlun um útflutning og innflutning. Er þessi nýja grein svo- hljóðandi: „Nýbyggingarráð og Við- skiptaráð skulu sameiginlega útbúa fyrir ár hvert heildar áætlun um útflutning og inn flutning þess árs, magn og verðmæti, svo og um, til hvaða landa útflutningurinn fari og frá hvaða löndmn ínn flutningurinn komi. Skal á- ætlxm þessi miðast við það að hagnýta sem hezt mark- aðsmöguleika og fullnægja sem hagkvæxnast innflutn- ingsþörf landsmanna. Mán- aðarlega skulu ráðin hafa sameiginlega fundi til þess að endurskoða áætlun þessa og breyta henni svo sem nauð synlegt kann að vera vegna viðskipta við útlönd og gjald eyrisástands þjóðarinnar.“ með öiiu því bezta, sem skrifað hehir verið um jélbs M ÝLEGAJ ér kþmiri á Úófea- i^j m- Íégt er að iiiárga rhuni fýsa a& eignast fyrir jólin. Bókin heitir „Jólavaka' og er í henni safn greina, sagna, ljóða og sálma um jólin frá öllum tímum. Jó- hannes skáld úr Kötlum hefur safnað í bókina af mikilli smekk vísi, en útgefandi hennar er Þórhallur Bjarnason. í þessari sérkennilegu bók er að finna allt hið helzta, sem fegurst hefur verið skrifað um jólin á íslenzku að fornu og nýju. Bókin er hátt á fjórða hundrað blaðsíður að stærð og er mjög vel vandað til útgáf- unnar að öllu leyti.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.