Alþýðublaðið - 13.03.1946, Side 2
ALÞYÐUBLAÐtÐ
Miðvikudagur 13. marz 1346.
/ ...
Norskirogfinnskirsamherjar
hylla Alpýðuflokkinn.
-------♦-------
Heillaskeyti í filefni af 30 ára afmælinu.
-------+-------
FRÁ SAMHÉRJAFLOKKUNUM í Noregi og á Finnlandi
bárust íslenzka Alþýðuflokknum í gær heillaskeyti í
tilefni af 30 ára afmæli hans:
í skeyti norska Alþýðuflokksins segir:
„Við hyllum íslenzka Alþýðuflokkinn á 30 ára afmælis-
degi hans fyrir skelegga baráttu fyrir lýðræði og sósíalisma.
Það hefur aldrei verið eins ljóst og í dag, að sósíalism-
inn er leiðin fyrir Norðurlandaþjóðimar og fyrir allar þjóðir
til friðar og framfara.
Til hamingju með daginn og framtíðina."
í skeyti finnska Alþýðuflokksins segir:
„Bróðurlegar árnaðaróskir á 30 ára afmælisdeginum.
Lifi jafnaðarstefnan á Norðurlöndum. *
Onni Hiltunen
i Unto Varjoenen.“
Samuiflganefd nDana kenuir hingað
væntanlega í mai.
—------«------
Mun sennflega dveífa hér einn mánuð.
------------■—
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins KAUPMANNAHÖFN í gær.
HINIR DÖNSKU FULLTRÚAR í samningaefnd Dana og
íslendinga, seni hóf að ræða 'mál þau, sem skupazt hafa
við skilnað landanna, í Kaupmanna)höfn síðast liðið haust,
munu koma í vor til Reykjavíkur til þess að leiða þær samn-
ingaumleitanir til lykta.
Sennilega mun sammnganefndin koma til Reykjavíkur í maí
og dvelja þar um mánaðartíma.
Roy Hickman synpr í
Gamla Bío á föstu-
daginn.
Enski söngvarinn roy
HICKMAN, sem getið hef-
ur sér óvenjulega góðan orðstír
eftir þau fáu skipti, sem'til hans
hefur heyrzt opinherlega, ætlar
nð halda hljómleika í Gamla
Bíó á föstudaginn kl. 7.15.
Roy Hickman söng í útvarpið
í júlímánuði, og varð það til
þess að Kammermúsíkklúbbur-
inn réði hann til að halda söng-
skemmtun á sínum vegum í
Listamannaskálanum 1. ágúst
í fyrra. Söng Hickman þá ein-
göngu „lieder“ (ljóðsöngva)
með aðstoð dr. Urbantschitsch,
og þótti samleikur þeirra me|
afbrigðum þýður, enda luku öll
blöðin hinu mesta lofsorði á
frammistöðu þeirra. í vetur
söng Hickman aftur í útvarpið,
og nú í febrúar söng hann fyrir
Tónlistarfélagið, bassahlutverk-
ið í „Messíasi“, og þótti hin
mikla og þjálfaða rödd hans
njóta sín þar með afbrigðum
vel gagnvart hljómsveitinni.
Á föstudaginn mun Hickman
bæði syngja óperulög og ljóða-
lög. Af óperulögunum mætti
helzt nefna: ástaljóð tröllsins
úr „Acis og Galateu“ eftir
Hándel, tvær aríur ur „Töfra-
flautu“ Mózarts og þriðju arí-
una úr „Kvennabúrinu“ (II
Seraglio), svo og gamansama
aríu úr ,,Heimkomunni“ eftir
Mendelssohn. Meðal Ijóðanna
má nefna nokkur af fegurstu
lögum Sibeliusar, tvö lög eftir
Tschaikowski, gömul og ný
ensk lög, tvö ungversk þjóðlög
og loks „ballade“ eftir Loewe
yfir skozkt þjóðkvæði.
* S^ntímis mun Grænlands
nefnd danska þingsins bregða
sér til Grænlands til að kynna
sér viðhorfin þar eftir stríðið og
dvöl hins ameríska setuliðs þar
á landi.
Það varð kunnugt í Kaup-
mannhöfn i dag, að Eimskipa-
félag íslands hefði undirritað
samning við Burmeister & Wain
skipasmúðastöðina um smíði á
stórum nýtízku farþega og
flutningaskipum, sem samtals
muni kosta um þrjátíu milljónir
íslenzkra króna.
Þetta eru mestu kaup, sem
íslendingar hafa nokkru sinni
gert hjá danskri skipasmíðastöð.
Hjuler
Skíðamótið:
Jónína Niljótiníusár-
dóltlr, K.R., Reykja-
víkurmeislari
í hruni.
SKÍÐAMÓT Reykjavíkur
hélt áfram við Skálafell á
sunnudaginn og var keppt í
bruni kvenna og bruni karla í
C og D-flokkum.
Reykjavíkurmeistari í bruni
kvenna varð Jón'ína Niljóhnius-
a'rdóttir úr K. R. á 73 sek.
í C-flokki kvenna varð fyrst
Iniga Ólafsdóttir í. R. á 81 sek.
I bruni karla, C-flokki, varð
fyrstur Valdimar Björnsson K.
R. á 3 mín. 7 sek.
í D-flokki varð fyrstur Ólaf-
ur Þorsteinsson Ármanni, á 3
mín. 42 sek.
Keppni A- og B-flokks karla
í bruni féll niður vegna snjó-
komu síðari hluta dagsins, og
einnig féll niður svig kvenna í
C- og D-flokkum.
Nýju varðbátarnir reyndust
ónothæfir til björgunarstarfs
og landhelgisgæzlu.
---:-+----
• N, -• . . '
Álit aitra, sem um málið hafa fjallað; nema
Pálma Loftssonar forstjóra.
FINNUR JÓNSSON DÓMSMÁLARÁÐHERRA upplýsti
á alþingi í fyrradag, að nýju varðbátarnir þrír, sem
Pálmi Loftsson forstjóri skipaútgerðarinnar keypti fyrir
ríkisstjórnina í Bretlandi og nota átti til björgunarstarfs og
landhelgisgæzlu hér við land, væru óhæfir til þeirra nota
að dómi allra íslenzkra aðila, sem um piálið hafa fjallað,
að forstjóra skipaútgerðarinnar einum undanteknum.
i ) •
Dómsmálaráðherra lcvað dóm hinna sérfróðu manna þann, að
varðbátarnir væru ekki nothæfir til björgunarstarfa og ekki til
landhelgisgæzlu á vetrum, nema ef vera kynni til staðbundinnar
gæzlu. Gaf dómsmálaráðherra upplýsingar þessar, er hann svar-
aði fyrirspurn vegna kaupa hinna nýju varðbáta.
Dómsmálaráherra lét þess
getið, að hann Kefði þ. 23. jan.
s. 1. skipað þrjá menn, þá Haf-
stein Bergþórsson, skipstjóra,
Ólaf Sigurðsson, sjómann og
Henry Hálfdanarson, skrifstofu
stjóra til að athuga bátana og
gera tilraunir um hæfni þeirra
til landheligis- og björgunar-
starfa. Samdi nefndin álitsgerð
um starf sitt, dagsett 8. febrúar
s. 1., þar sem skipin voru dæmd
ónothæf til björgunarstarfa, svo
og óhæf til vetrarferða. Hins
vegar telur nefndin möguleika 4
að nota skipin til staðbundinn-
ar landhelgisgæz'lu og jafnvel
heppileg til síldarleitar og eftir-
lits að sumri til.
Dómsmálaráðherra kvaðst
hafa sent forstjóra skipaútgerð-
arinnar, Pálma Loftssyni, álits-
gerð nefndarinnar. Svaraði for-
stjórinn með skýrslu, þar sem
kostum foátanna er lýst og ágæti
þeirra til björgunarstarfa og
landhelgisgæZlu. Segir á þessa
Iund í niðurlagf þeirrar skýrslu
forstjórans:
„Þetta eru staðreyndir, sem
ættu að sanna að fullu,'að varð-
bátarnir eru'hæfir ti’l síns starfs,
sem landhelgisbátar hér við
strendur landsins. Hitt er svo
annað mál, hvort íslenzku sjó-
mennirnir geta fellt sig við þessa
tegund skipa eðá hraðskreið
skip yfirleitt. Sjómennirnir hafa
nú haft nefnda varðbáta í rúma
3 mánuði og farið á þeim marg-
ar gæzluferðir. Ætti því brátt
að fást úr því skorið, hvort sjó-
mennirnir geta fellt sig við bát-
ana. Geti iþeir það ekki, hefur
.brezki sjóherinn tjáð sig fúsan
tií að skipta á%þeim fyrir önnur
hæggengari skip af annarri
gerð.“
Þá las dómsmálaráðherra
skýrslu skipstjórans á Nirði um
reynsluförina til ísafjarðar, en
skýrslu þessa gaf skipstjórinn,
Þórarinn Björnsson, skipaút-
gerðinni að reynsluförinni lok-
inni. Þá las hann og umsögn
Con. S. Thomas um bátana, en
hann fylgdi skipunum hingað til
lands og hefur dvalizt hér til
þess að setja íslendinga inn í
vélaigang bátanna.
Þá lét dómsmálaráðherra þess
getið, að hann hefði á liðnu
sumri falið skipaútgerðinni að
athuga möguleika á notkun flug*
véla í sambandi við landhelgis-
gæzluna. Hafði Þórarinn Björns-
son aithugun þessa á hendi og
fór í þessu skyni nokkrar ferðir
með flugvél þeirri, sem annaðist
síldarleit á liðnu sumri.
Þórarinn telur, að mikið gagn
myndi verða að flugvélum í
sambandi við landhelgisgæzl-
una. En ef ful’lt gagn á að verða’
að flugvélum, verða varðbátar
að vera skammt undan og koma
hið bróðasta á vetfcvang.
Tveir Siglfirðingar
sigra í svigkeppni
í Svíþjóð.
TVEIR Siglfirðingar, þeir
Haraldur Pálsson og Jónas
Ásgeirsson, sem um þessar
mundir dvelja í Svíþjóð, tóku
þar nýlega þátt í skíðamóti,
sem haldið var í Storlien og
sigruðu þeir í svigkeppninni.
Skíðamót þétta var héraðs-
mót, og kepptu íslendingarnir
tveir sem gestir á mótinu og
vöktu mjög mikla athygli.
í svigkeppninni varð Harald-
ur fyrstur á 39,8 sek., en Jónas
varð annar á 40,2 sek.
Lýkur sfrætisvagna-
verkíallinu í dag!
S ÁTTASÉMJARI RÍKIS-
INS, Torfi Hjartarson
tollstjóri, hafði fund með að-
ilum strætisvagnadeilunnar. í
gær og bar fram miðlunar-
tillögu. Samþykktu strætis-
vagn^tjórar miðlunartillögu
sáttasemjara á fundi í gær-
kvöldi, en bæjarráð á eftir að
taka afstöðu til hennar, en
mun gera það á fundi sínum
í dag. Fallist það á tillögu
sáttasemjara, mun því stræt-
isvagnadeilan sennilega leys-
ast í dag.
Særndir heiðursmerkj-
um hinnar íslenzku
fálkaorðu.
U INN 1. JANÚAR S.L.
-*• sæmdi forseti íslands eftir-
greinda menn heiðursmerkjum
hinnar íslenzku fálkaorðu eins
og hér segir:
N. T. Svenningsen sendiherra
Dana í Stokkhólmi, stórkrossí
hinnar íslenzku fálkaorðu.
I. C. Möller forstjóra í Kaup-
mannahöfn.
Johannes Faurholt forstjóra í
Kaupmannahöfn og. dr. Viggo
Zadig í Málmey, Svíþjóð, ridd-
arakrossi hinnar íslenzku fálka-
orðu.
Allir ofangreindir menn hafa
á ýmsan hátt unnið að hags-
munamálum íslands.
Bókaverzlun ísafoldar
3 drengir ni fermingaraidnr npp-
vísir að ioebroínm og plófnuðnm.
-----;—»----------
BLAÐIÐ hefur fengið þær upplýsingar lijá rannsóknarlögregl-
unni, að nýlega hafi þrír drengir um fermingaraldur orðið
uppvísir að nokkrum innbrotum og þjófnuðum.
Drengir þessir fóru inn í •
mjólkurbúð á Ásvallagötu 1 og
stálu þar sælgæti og peningum;
ennfremur voru það þeir, sem
valdir voru að iniibrotinu hjá'
Jes Zimsen, og höfðu þeir það-
an á brott með sér peninga og
seðlaveski.
Tveir drengjanna höfðu brot-
izt inn í Björnsbakarí við Hring-
braut og tekið þaðan skiptimynt
og sælgæti; einnig fóru þeir inn
í Ingólfsbakarí og Bernhöfts-
bakari sömu erinda, og í ís-
birninum stálu þeir peningum
og fleiru.
Þá hafði einn þessara pilta
farið inn í Leikni á Vesturgötu
18 og haft þaðan á brott tvær
ritvélar og eina reikningsvél.
Oll eru innbrot þessi framin
undanfarnar þrjár. vikur og eru
þetta fyrstu broftin, sem þessir
drengir fremja.
Rannsóknarlögreglan vinnur
stöðugt að þjófnaðarmálum
þeim, sem getið 'var í blaðinu
fýrir helgina og stóðu yfirheyrsl-
ur út af þeim allan daginn í gær,
en ekki er tímabært að skýra
frekar frá þeim málum á þessu
stigi.
Fríkirkjan.
Föstumessa í kvöld kl.
Séra Ánu Sigurðsgon.
8.15
B
ÓKAVERZLUN ÍSAFOLD
AR hefur opnað útibú í
Bankastræti, þar sem áður var
glervöruverzlun Jóns Þórðar-
sonar.
Verða þarna aðallega selt rit
föng svo og ýmsir listmunir og
aðrir munir til tækifærisgjafa.
Þessa dagana stendur yfir
bákaútsala í verzluninni og eru
seldar þar ýmsar gamlar- bæk-
ur, sem eru í þann veginn að
verða uppseldar. _
Vísilalan óbreylt
- 285 stig.
17 ÍSITALÁ framfærslu-
® kostnaðarins 1. marz
hefur nú verið reiknuð út,
og reyndist vera 285 stig, eða
sú sama og 1. febrúar.