Alþýðublaðið - 09.11.1946, Qupperneq 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Laugardagur, 9. nóv. 1946.
iazzhljómsveitin
ókomin ennþá.
BREZKA jazzhljómsveitin,
sem hingað átti að koma á
fimmtudaginn, er ennþá í
Prestwick á Skotlandi. Staf-
ar það af því, að flugvélin,
sem hljómsveitin átti að
„ koma með, varð að snúa við
á leið sinni hingað á fimmtu-
daginn vegna slæmra flug-
skilyrða, en flugvélin var
komin rétt upp undi.r ísland,
þegar hún sneri við.
í gær lagði flugvélin ekki
aftur af stað frá Prestwick,
en senni.lega mun hún koma
nú um helgina.
Aðgöngumiðar á jazzhljóm
leikana, sem áttu að verða á
fimmtudaginn og föstudag-
inn seldust strax upp, og
gilda þeir á fyrstu og aðra
hljómleikana, sem hljóm-
sveitin heldur hér eftir að
hún kemur.
Fjölbreyff skemmtun
í Tjarnarcafé kl. 3
á smnudaginn.
MENNINGAR og minning
arsjóður kvenna heldur fjöl-
íbreytta skemmtun í Tjiarnar-
café á sunnudaginn kemur
iklukkan 3 síðdegis, en eins
og kunnugt er, þá er tilgang-
ur sjóðsins að vinna að
menningarmálum kvenna
með því að styðja konur til
íframhaldsmenntunar við
eeðri m'enntastofnanir, hér-
Oendar og erlendar, með
náms-i og ferðastyrkjum.
Á skemmtuninni á sunnu-
'daginn verður m. a. flutt er-
indi frá París, Lanzky-Otto
Bieikur tunglskinssónötuna
eftir Beethoven, Ólöf Nordal
Hes kvæði eftir Tómas Guð-
mundsson, Björn Ólafsson
tfiðluleikari, leikur Systur í
Garðshorni eftir Jón Nordal
og Skúli iHalIdórsson leikur
tnokkur lög eftir sjálfan sig á
píanó.
Björk í Húsafellsskógi, eitt af málverkunum á hátíðasýn-
ingunni í listamannaskálanum.
Hátíðarsýning Asgríms Jónssonar.
MARGUR listunnandinn
hefur lagt leið sína í Lista-
mannaskálann ' undanfarna
daga, stundum verið þar tím-
um saman, en oftast farið
þaðan með þá tilfinningu i
brjósti, að hann yrði að koma
aftur, hann, væri ekki hálfbú-
inn að skoða sýningu Ás-
gríms. Fjörutíu ára þróun
eins af feðrum íslenzkrar mál
aralistar geta menn ekki
gleypt og mælt í einni eða
tveimur heimsóknum. Slík
sýninng er sem hrópandi rödd
til allra llandsmanna: Hvenær
ætlið þið að byggja slíkri list
það heimili, það listasafn
sem hún á skilið?
Ásgrímur hefur mikið
breytzt á 40 árum, eins og
eðlilegt er. Elztu myndir hans
eru raunsæjar og yfirlætis
lausar eftirlikingar, en þar
má — að minnsta kosti reftir
á — strax sjá hönd meistar-
ans. Þar var hið næma auga
fyrir náttúru landsins, og hin
snilldarlega __ fjarlægðartil-
finning, sem Ásgrímur á i svo
rikum mæli.
En ljósið og litiná vantar
enn. Það átti nann eftir að
læra. Þegar hann fyrst hleyp-
ir sér á skeið med litina og
BAZAR
Húsmæðraskólafélag Hafnarfj arðar
heldur
bazar
í Sjálfstæðishúsinu sunnudaginn 10. nóv.
kl. 4 e. h.
Á boðstólum verða góðir og þarflegir munir.
BAZARNEFNDIN
19. þing Á.S.I.
FULLTRÚAR á 19. þing Alþýðusambands
íslands eru beðnir að skila kjörbréfum sín-
um í skrifstofu sambandsins, Alþýðuhúsinu,
efstu hæð, fyrir kl. 4 síðdegis í dag.
KJÖRBRÉFANEFNDIN
tekur að draga íram með
þeim Ijósið, er eins og það
eigi sér ,stað í myndum Ás-
gríms nákvæmlega sama
breytingin og varð, þegar im-
pressionisminn hóf byltingu
nútíma málaralistar. Eftir
það voru allar götur færar cg
Ásgímur stefndi stöðugt
hærra, til meiri og erfiðari
viðfangsefna og fegurri lita-
meðferðar.
Það er alltaf náttúran,
landslag íslands, sem heillar
listamanninn mest og þar
virðist hann una sér rneð hti
og léreft. Einstök viðfangs-
efni, eins og til dæmis bjark-
irnar 1 Húsafellsskógi, virð-
ast vinna hug hans, ög han.o
málar þær aftur og aftur,
eins og Cezanne hi'nn mikli
gerði við Mont Saint-Victoire
á sinum tíma.
Tökum til dæmis 3 5. mynd-
ina á sýningunni, Björk í
Húsafellsskógi. Við staönæm-
umst og horfum á hana, og
augun líða fram og aftur um
heillandi liti forgrunnsins,
síðan upp eftir trjástofninum
og fram á greinarnar og aftur
niður að jöðinni, en næstum
óhiákvæmilega endum við á
þvi að stara á heiðoíá fjöllin
í fjarlægð. Þanniy er það með
fjölmargar myndir Ásgríms.
Auk landslagsmyndanna
eru á sýningunni nokkrar
efnismiklar symbol-mvndir,
eins og ,,Vetur“ og „Eldgós“,
sem hverjum íslendingi lilýt-
ur að verða starsýnt á. Þá
má ekki gleyma Djáknanum
á Myrká.
Félag íslenzkra myndlista-
manna á þakkir skildar fvrir
að gangast fyrir sýningu
þessari, enda var það hið
sjálfsagðasta virðingarmérki
við listamanninn á afmæli
hans. Myndunum virðast
smekklega raðað, bótt það sé
ekki gert í tímaröö. Margir
hafa að vísu saknað þess að
hafa ekki ártöl myndanna, en
í skránni munu þær vera tald-
ar upp nokkurn vegmn i tíma
röð.
bgr.
Mapás H. Jénssoes á í dag
SystrafélagiS ,,ALFA“.
Kl. tvö á morgun (sutmudag-
inn 10. nóvember) verður bazar
Systrafélagsins , Aha“ í Félags-
heimili verzlunarmanna, Vonar
stræti 4, eins og áður hefur
verið frá skýrt. — Þar má ef-
laus líta vandaðar vörúr með
góðu verði eftir nútíma mæli-
kvarða.
MAGNÚS H. JÓNSSON
prentari á 35 ára starfsaf-
mæli í dag. Hann hóf nám í
prentsmiðju Skúla Thorödd-
sens 9. nóv. 1911. Þaðan fór
hann í prentsmiðjuna Gut-
enberg og vann þar óslifið í
28 ár, unz hann gerðist starfs
maður í prentsmiðjunni
Oddi, þar isem hann vinnur
nú.
Magnús tók hinn félags-
lega starfsdag snemma, eða
litlu eftir að hann gekk i
prentarafélagið, og hefur lát-
ið sig flest mál varða, sem
borið hafa á góma í félaginu
síðustu 20—30 árin. Vegna
þessa finnst manni svo langt
síðan hann varð eins konar
leiðarljós margra yngri
prentara í félagsmálum.
Ferill Magnúsar í Prent-
arafélaginu hófst með því að
hann var kosinn ritari sjúkra
samlagsins 1918. Stjórn sam-
lagsins var jafnan umsvifa-
mikið starf, sem gegna
þurfti með kostgæfni, og rit-
arastarfinu ekki sízt, því að
á ritaranum hvíldi innheimta
iðgjaldanna. Gegndi Magnús
þessu starfi í nokkur ár með
prýði. Síðar varð hann rit-
ari Prenitarfélagsins, forrnað-
ur og endurskoðandi í nokk-
ur ár og loks ósilitið formað-
ur 1933—1944. Hefur eng-
inn gegnt formannsstarfi
þar jafnlengi. Öllum þessum
störfum gegndi Magnús af
sérstakri samvizkusemi, svo
að segja má, að um tvo tugi
ára hafi hann helgað Prent-
arafélaginu meginhluta frí-
stunda sinna.
Sem formaður Prentarafé-
lagsins befur Magnús verið
oddviti i við samningagerðir
við 'atvinnurekendur um
mörg samningstimabil. Hef-
ur hann oft komið þar fram
með svo mikilli liagni og
þrautseigju, að þeir sem með
honum hafa starfað, hafa
undrast úthald hans og bar-
áttuhug gegn skilningsleysi
atvinnurekenda á högum
hins vinnandi lýðs.
Ég held að óhætt sé að slá
því föstu, að Magnús hafi
sýnt það í formannsstarfi
sínu, að hann sé lagnasti
samningamaður prentara-
stéttarinnar á undanförnum
árum, og höfum vifi þó átt
marga góða samningamenn.
Það mætti skrifa langt mál
um starfsemi Magnúsar H.
Jónssonar í þágu félagsskap-
ar prentara, en þar sem ég
vona, að hann eigi enn eftir
að vinna lengi að þessum
störfum, þótt hann hafi nú
tekið sér hvíld frá þeim um
stund, bíður það betri tíma.
Eitt af þeim málum, sem
Magnús ibeiitti sér fyrir inn-
an Prentarafélagsins, er
stofnun ellistyrktarsjóðs fé-
lagsins. Hefur sá sjóður gert
preruturum kleift að hætta
vinnu, þegar þeir eru sjö-
tugir, og má það fyrst og
fremst þakka ötulli forgöngu
Magnúsar, að sá sjóður gat
tekið jafn snemma íil starfa
og raun varð á.
Þótt Magnús H. Jónsson
hafi fórnað félagsskap prent-
ara miklu af tómstundum
sínum, hefur hann þó haft
fleiri áhugamálum að sinna.
Hann er t. d. allmikill 'bóka-
maður, eftir því sem prént-
árar hafa éfni á að vera, og
hefur gaman af að eignast
Magnús H. Jónsson.
góðar bækur og lesa sér til
sálarheil'la að loknu þreyt-
andi dagsverki, og oft og tíð-
um vanþakklátum rnála-
rekstri fyrir félaga sína.
Þegar Magnús var um tví-
tugsaldur hafði hann mikinn
áhuga á leiklist og fékkst við
hana um nokkurra ára skeið
hjá Leikfélagi Reykjavíkur.
Þó'tti hann efnilegur byrj-
andi í leikMstinni ogi hefði
vafalaust náð langt á þeirri
braut, ef hann hefði lagt
stund á hana til langframa.
Magnús hefur átt. sæti á
flestum Alþýðusamhands-
þingum síðusu 15—20 árin
sem fulltrúi Prentarafélags-
ins. Hann átti og sæti í stjórn
Sambandsins um nokkurra
ára skeið og þótti sæti hans
þar vel skipað sem annars
staðar.
Magnús er hreinlundaður
og drengilegur í framkomu.
Hann er ósmeykur við að
segjiá hverjum sem er mein-
ingu sína, og er þá stundum
all beinskeyttur, hvort sem
er í sókn eða vörn. Sópar þá
oft að honum í ræðustól,
enda hefur hann gott lag á
því að ná eyrum áheyrenda
sinna.
Prentarar þakka Magnúsi
H. Jónssyni öll hin^ miklu
störf hans í þágu H. í. P. og
stéttarinnar og vænta þess að
mega enn lengi njóta ágætra
starfskrafta hans.
G. H.
^rVmfm?r/lKY/iNlNGM
UNGLINGASTÚKAN
UNNUR nr. 38.
Skemmtifundur á morgun
kl. 10 f. h.
Fjölmennið og greiðið gjöld
ykkar.
Gæzlumenn.
Es. Brúarfoss
fer ffá Kaupmannahöfn
þriðjudaginn 12. nóvember
til Reykjavíkur.
Es. Lagarfoss
fermir í Gautaborg um
miðjan nóvember.
fer frá Reykjavík laugardag-
inn 9. nóvember til Kaup-
mannahafnar og Gautaborg-
ar og fermir þar síðaist í
nóvember.
HF. EIMSKIPÁFJÉLAG
ÍSLANDS.