Alþýðublaðið - 19.04.1947, Qupperneq 4
ALÞYBUBLAÐiÐ
Laugardagur, 19. apríl 1947,
|U|>()dnb(QM2)
Útgefandi: Alþýðuflokfeurinn
* Ritstjóri: Stefán Pjetursson.
Símar:
Ritstjórn: símar 4901, 4902.
Afgreiðsla og auglýsingar:
4900 og 4906.
Aðsetur
í Alþýðuhúsinu við Hverf-
isgötu.
Verð í lausasölu: 50 aurar.
Alþýðuprentsmiðjan h.f.
Heimsókn í læknabúið að Laxnesi. — Vííamín
í mjólk. — Hluthafarnir fara að þekkjast úr. —-
Um útvarpið. — Matjurtagarðar við kirkjug^rð.
HIN ýtarlega og sköruí-
lega ræða Stefáns Jóh. Ste-
fánssonar forsætisráðherra á
íundi Alþýðuflokksfélags
Reykjavíkur síðast iiðið
miðvikudagskvöld um hina
nýju skatta og tolla, sem al-
þingi samþykkti á dögunum
til að tryggja refesturshalla-
laus fjárlög, íletti rækilega
ofan af fa'lsi og blekkingum
kommúnista um þessi mál.
Eins og kunnugt er, hafa
feommúnistar borið það út
bæði i Þjóðviljanum og í
ítali manna á meðal, að hinir
nýju skattar og to'llar væru
„árás á áiþýðu landsins“ og
„launalækkun", og hafa þeir
i því sambandi talað digur-
barkalega urn, að þeir muni
beita sér fyrir nýjum kaup-
hækkunarkröfum og verk-
föllum til þess að vega upp á
móti 'henni.
Forsætisráðherrann sýndi í
ræðu sinni hins vegar tví-
mælalaust fram á, að hér er
síður en svo'um nokkra árás
á kaupgjaldið í iandinu að
ræða. 'Því itil sönnunar benti
hann á eftir farandi stað-
reyndir:
1) Allar helztu ilífsnauð-
synjar almennings eru und-
anþegnar tolihækkuninni.
2) Kaupmönnum er bann-
að að ;lleggja á þá tollhækkun,
sem ákveðin hefur veivð á
öðrum vörum.
3) Sú verðhækkun, sem
tolihækkunin sjálf kemur til
með að valda á vísitöluvör-
um, kemur að sjálfsögðu
fram í vísitölunni og nækk-
aðri dýrtíðaruppbót á kaup-
gjaldið í lándinu, nema því
aðeins, að greitt verði niður
af opinberu fé verð á öðrum
vísitöluvörum til að hindra
hækkun vísitölunnar. En
hvort heldur, sem gert yrði,
halda allir óbreyttu grunn-
kaupi, að viðbættri fuliri
dýrtíðaruppbót samkvæmt
réttri vísitölu!
*
Þetta er þá öll „árásin á
alþýðu landsins" og „launa-
lækkunin“, sem kommúnist-
ar eru að fimbulfamba um
og þykjast þurfa að svara
með nýjum kaupkröfum og
verkföllum! Þeir eru þó ekki
vissari í sinni sök en það, að
samtímis því, sem Þjóövilj-
inn þykist nú þegar geta sagt
uppr á hundraðshluta, hverju
kauplækkunin nemi. lætúr
hin kommúnistiska Alþýöu-
sambandsstjórn það boð út
ganga, að hún ætli að láta
fara fram rannsókn á því,
hver áhrif hinir nýju skattar
og tollar muni hafa á kaup-
f»AÐ ER GAMAN a3 koma
app að Laxnesi, hinu forna að-
setri skáldsins í Gljúfrasteini.
Þar er komið upp hið myndar-
legasta kiiabú, hreint og fall-
egt, með nýtízku útbúnaði,
húsakynnum, vélum og starfs-
aðferðum. Þarna hrjótast nokkr
ir framtakssamir Reykvíkingar
í því, að skapa sér aðstöðu til
að fá góða óspilita mjólk handa
heiiililum sínum og hugsa þeir
sér að auka þetta fyrirtæki að
miklum mun á næstu árum, en
kúabúið er raunverulega alveg
nýlega tekið til starfa.
EN ÞAÐ ER EKKI NÓG
með þaS að nýtízku aðferðir
séu viðhafðar í þessu kúabúi
og að fjósið sé til fyrirmyndar
og öll aðferð við hagnýtingu og
útbúnað mjólkurinnar heldur
ætla læknarnir, en nokkrir
læknar hafa forustu fyrir þessu,
að setja vítamín af ýmsum
gerðum í mjólkina. Halda þeir
því fram að nær allt C-vítamín
sem er í mjólkinni þegar hún
kemur ur spenanum, hverfi á
leiðinni austan úr sveitum og
hingað í bæinn vegna hristings-
ins. Er þetta byggt á reynslu
og rannsóknum, sem Níels
Dungal og Jónas Sveinsson hafa
gert. .
VIÐ ÞJÁUMST AF ýmsum
sjúkdómum, sem stafa af skorti
á vítamínum og þá fyrst og
fremst af skorti á C-vítamínúm.
Þessir sjúkdómar valda sleni og
deyfð, auk ýmislegs annars.
Got,t er ef hægt verður að
lækna þetta með því til dæmis,
að auka C-mítamínmagn mjólk-
urinnar. Verst. er, að búið er
enn svo lítið, og að sjálfsögðu
fer mjólkin tíl heimila þeirra
manna, sem hafa komið því á
fót. — Ekki er því ólíklegt, að
hægt verði að þekkja hluthaf-
ana úr á götum Reykjavíkur á
ist þar. Reynandi væri að
hef jast handa af miklum krafti
næstu árum, og að þeir kunni
að verða allfjörmiklir og fyrir-
ferðarmiklir. Meðal þeirra , eru
Jónas Sveinsson læknir, Héðinn
Valdimarsson og Ragnar í
Smára. Þurfa þeir nokkuð við
að bæta dugnaðinn?
JÁ, HVAÐ LÍÐUR Korpúlfs-
stöðurn? Bæjarbúar brjóta
mjög heilann um það, hvað ger-
um kúabúið þar og þá hafa
ýmsar aðferðir, sem læknarnir
taka upp, að Laxnesi, og þá með
al annars, að setja vítamín í
mjólkina. Jónas Sveinsson sagði
mér í gær að það væri ekki
mikill kostnaðarauki.
ÁRNÝ SKRIFAR: „Þegar
fermingarræðum er útvarpað,
þykir mér og öðrum dálítið und
arlegt að þeim er ekki útvarp-
að til enda eins og hverri ann
arri athöfn úr kirkju. Annars
hef ég orðið þess vör, að hlust-
endur yfirleitt eru orðnir mjög
óánægðir með það, sem útvarp-
ið hefur að bjóða, það er að
segja að hljómplötur eru meiri
hluti þess, sem hlustendum er
boðið.
LEIKRITIN MEGÁ EKKI
vera þung og leiðinleg, heldur
létt og hlægileg, þá veita þau
hressingu. Smásaga vikunnar
er oft góð. Fyrir mér og öðrum
vakir, að hljómplötur ættu að
hverfa að mestu eða ætla þeim
viss kvöld fyrir þá, sem á þær
vilja hlusta.“
KJARVAL GAF í fyrradag út
öpinbera tilkynningu þar sem
hann krafðist þess að allir, sem
stunda matjurtarækt Við kirkju
garðinn í Fossvogi, yrðu settir
í tukthúsið. Ég er sammála. í
tukthúsið með þá — og þá fyrst
og fremst þá, sem leyfðu þetta.
Við verðum ekki billegir í þessu
máli, Kjarval og ég, það skuluð~
þið sanna.
Hannes á horninu.
igjaldið. Má á ’því sjá, hve
mikinn trúnað kommúnistar
sjálfir leggja á fleipur Þjóð-
viljans!
*
En hvað myndi það þýða
fyrir afmenning og fyrir
þjóðina alla, ef dýrtíðar-
skrúfan yrði nú enn á ný
sett í gang með ástæðulaus—
um kaupkröíum og verkföll-
um?
Nú þegar iiggur við, að að-
alatvinnuvegir landsins
stöðvist sökum dýrtíðarinn-
ar; og hinir nýju skattar og
tollar eru raunverulega fyrst
og fremst tll þess ætlaðir, að
ríkisstjórnin . hafi fé milli
handa til að halda dýrtið-
inni í- skefjum, koma í veg
fycrir frekari hækkun vísi-
tölunnar cg hálda á þann
hátt atvinnuvegunum gang-
andi. Og hvort halda menn
svo ekki, að það væri heilla-
vænlegt fyrir állþýðu lands-
ins, að láta kommúnista æsa
sig út í það, að eyðileggja
þessi bjargráð rikisstjórnar-
innar og gerast sinn eigin
böðull með því að hef ja nýja
kauphækkunarherferð, koma
nýrri dýrtíðarskriðu af stað
og 'leiða hrun yfir atvinnu-
vegi landsins? Eða hvað
halda menn, að hækkað
kaupgjald myndi gagna, eft-
ir að atvinnuvegirnir væru
stöðvaðir og atvinnuleysið
gengið í garð?
*
Þetta ættu menn að íhuga
vel í sambandi við lýðskrum
kommúnista og læti út af
tekjuöflunarlögum ríkis-
stjórnarinnar. Þá munu þeir
sjá, að' það er ekki einasta
algert fals og blekkmg, að >
þeim felist nokkur órás á
álþýðu landsins; þau voru
þvert á -móti þjóðhagsleg
nauðsyn og það ekki hvað
sízt fyrir hið vmnan-li fólk,
sem þarf stöðuga og trygga
atvinnu.
Sýning
miðvikudag kl. 20.
eftir Thornton Wilder.
Aogöngurnioasala í dag kl. 2—6. Tek-
ið á 'móti pöntun í síma 3191 milli 1
og 2 Pantanir sækjist fyrir kl. 4.
Frumsýning kl. 3
Barnaleiksýning:
æfintýraleikur í 2 þáttum
eftir Óskar Kjartansson.
ieikstjóri Jón Aðils.
Aðgöngumiðasala í dag kl. 4—7.
Ny Ijósmyndástofa
í Höfðahverfi,
Miðtún 34, sími 2152.
Myndir teknar alla virka daga, nema laugar-
daga, frá kl. 4—6 e. h. Myndatökur má panta
í síma 2152. Passamyndir, fyrir ökuskírteini
og fl. afgreiddar með stuttum fyrirvara.
„Amatör“ vinnustofur mínar halda áfram sem
áður óbreyttar, með afgreiðslu í Lækjargötú 8,
sími 5583.
, r
Carl Olafsson
Ijósmyndari.
S. F. J.
!
í Breiðfirðingabúð í Évöld (laugardaginn)
19. apríl kl. 10 e. h.
Aðgöngumiðar seldir í anddyri hússins
eftir kl. 4 í dag.
Eldri-dansarnir
í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu í kvöld
hefjast kl. 10
Aðgöngumiðar frá kl. 5 í dag. Sími 2826.
HARMONÍKTTHLJÓMSVEIT leikur.
Ölvuðum mönnum bannaður aðgangnr.
%
áuglýsið í Alþýðublaðinu