Alþýðublaðið - 19.04.1947, Blaðsíða 8
V
Veðurhorfur
í Reykjavík í dag: Suð
austan kaldi eða stinn-
ings kaldi, skúrir.
Laugardagur, 19. apríl 1947.
Útvarpið
20.45 Leikrii:
gangi eftir
Moberg.
Á ver-
V'ilhelm
KveðjusamsæSið fyrir sænsku
Kveðjusamsætið fyrir sænsku sendiherrahjónin í fy-rrakvöld var sótt af fjölda manns,
sem framariega standa í opinberu lífi, listum og vísindum, og bar fagran vott þeim
vinsæildum, sem sendiherrahjónin hafa unnið sér hér. Á myndinni sjást fyrir enda
veizluborðsins (talið frá vinstri) Ásgeir Ásgeirsson alþingismaður, þá heiðursgestirnir,
sænska sendiherrafrúin og sendiherrann, Otto Johansson, þá forsætisráðherrafrúin cg
fcrsætisráðherrann, Stefán Jóh. Stefánsson, og utanríkismálaráðherrafrúin. Fremst á
myndinni sjást Guðmundur Thoroddsen, prófessor, og frú.
fttin mein
en á sama ffma
r
l
Samkvæmt upplýsingum
frá Fiskifélagi íslands var
fiskaflinn á öllu landinu 31.
marz s. 1. 100.146 smál. . á
móti 72.538 smál. á sama
tíma í fyrra.
Af þessum afla voru nú 12.
030 sml. síld, veidd á Kolla-
firði og í námd við Reykja-
vík, og er það í fyrsta skipti,
sem síld er veidd á þessum
tíma árs.
Útfluttur ísvarinn fiskur
nam 15.356 smál., en 37.839
smál. á sama tíma í fyrra.
FrystihúSin tóku tíl vinnzlu
29.644 smál. Saltað var 33.
066 smál. á móti 3.944 smál.
á sama tíma 1946.
Aflinn _er ailur miðaður við
slægðan fisk með haus að
udantekinni síldirmi, sem er
upp úr sjó.
REKJARMÉKKIR’ þykkir
og svartir, lágu enn yfir Tex
as City í gær, en eldar brunnu
í olíuhreinsunarsetöðvum
borgahinnar. Jarðýtur vinna
nú að því að hreinsa rústirn-
ar við efnaverksmiðjuna, sem
fyrst sprakk, og er talið, að
um 100 lík séu þar enn í rúst-
unum.
Uíanríkisráðherrarnir dei
um þýzkar eignir í Ausíurríki
■■■ ,-
Rússar vllja sölsa ysidir slg stáliðnaö ©g
mörg önnur stérfyrirtæki Austurríkis.
UTANRÍKISMÁLARÁÐHERRARNIR i Moskva deildu
i gær enn á ný um eignir Þjóðverja i Austurriki, og er
ágreiningsatriðið hið sarna og áður, hvað telja skuli þýzkar
eignir. Marshall, Bevin og Bidault halda því fram, að þær
eignir, sem Þjóðverjar sölsuðu undir sig eftir að Austur-
riki sameinaðist Þýzkalandi, skuli ekki telja þýzkar eignir,
og þvi skuli ekki taka þær i stríðsskaðabætur, en Molotov
viíl, að slík verðmæti teljist til hinna þýzku eigna cg
að Rússar fái bær til umráða.
Marshall og félagar hans í
þessu máli hafa bent á það,
að ef þessar umdeildu eignir
verði teknar af Austurrikis-
mönnum, muni Austurriki
ekki geta komizt aí. sem
sjálfstætt riki. Hér er um að
ræða mestallan stáliðnað
landsins, áburðarverksmiðj-
úr, skipaflötann á Doná og
fleiri stórfyrirtæki, sem
Rússar vilja sölsa undir sig.
Finnst Vesturveldunum ekk-
ert vit í að taka frá erlend-
um ríkjum yfirráð yfir þess-
um eignurn, því að þar með
væri sjálfstæðri efnahags-
legri tilveru Austurríkis lok-
ið.
Dr. Gruber, utanrikismála-
ráðherra Austurrikis, talaði á
* '
fjórvéldafundinum í gær,
Þróunarssga Reykja-
víkur og borgarsafn
KOSIN VAR fimm manna
nefnd á bæjarstjórnarfundi
í fyrrad. til að undirbúa sýn-
ingu um þróunarsögu Reykja
víkur og undirbúning borg-
arsafns.
í nefndina voru kosin: Har
araldur Pétursson, Soffía Ól-
afsdóttir, Einar Erlendsson,
Jóhann Hafstein og Ásgeir
Hjartar.
Bretar sprengdu í gær í loíf upp
in a eyjunm neig
lurich sýsidu áhrif -^prengifagariiuiar.
--------------------------------
BREZKI FLOTINN sprenfdi í gærmorgun í loft upp
þýzku virkin á eyiunni Helgoland úti af mynni Saxelfar í
Morðursjó. Voru notaðar 7000 smálestir sprengjiefnis, eða
sem svarar farmi 670 sprenguflugvéla af stærstu tegund.
Er talið að nú verði ókleift að víggirða eyna aftur og hefur
sprengingin jafnvel breytt landslagi á hluta af eynni. *
Bretar áttu Helgoland i'
oina tíð, en árið 1890 skiptu
þéir við Þjóðverja, gáfu þeim
eyna en fengu Zansi'barey
við austurströnd Afríku. Var
éyjan eitt öflugasta virki
Þjóðverja í styrjöldinni og
mikil kafbátahöfn. Ekki
reyndist mcgulegt að eyði-
leggja viggirðingarnar með
sprengjuárásum, þar sem
virkin voru neðanjarðar og
kafbátastöðvar svo ramm-
pegar og að nokkru leyti
höggnar inn í björg.
Jarðskjálftamælar í Lond-
on, París og Zúrich sýndu.
hreyfingu frá sprengjunni,
sem mun hafa verið álíka og
hálf atomsprengja og nötr-
uðu hús á Jótlandi af völdum
hennar. Sprengingln var sett
af stað frá herskipi 15 km.
frá eynni. Búizt er við, að
fyrstu sjóliðarnir gangi á
land á Helgolandi í dag.
I
Nýti, sem sjaldan
.skeSur:
Lögregluþjónn
á ferð í Klepps-
LÖGREGLUÞJÓNN sást á
ferð inni í Kleppsholti fyrir
nokknún dögum. Þótti fólki
á þessum slóðum þetta hiri
mestu tíðindi, því að þar hef-
ur ekki sézt maður í lögreglu
búningi í nokkur ár, að sögn
íbúanna þar.
Þetta kom fram meðal
margs fleira í umræðunum
um löggæziuna og umferðar-
málin í bænum á bæjar-
stjórnarfundinum í fyrradag.
Þess var og getið, að nýjung
þessi myndi standa í sam-
bandi við það, að hið nýstofn-
aða Framfaraíélag í Klepps-
holti, hefði nýlega minnt
viðkomandi yfirvöld á, að
Kleppsholt væri í lögsagnar-
umdæmi Reykjavíkur, og
ættu íbúarnir þar rétt á lög-
gæzlu eins og aðrir borgarar
bæjarins.
Annars var það talið mjög
fátítt, að lögreglumenn létu
sjá sig í öðr’um úthverfum
\ bæjarins í eftirlitsferðum,
HÚSFYLLIR áhorfenda ] þrátt fyrir hinn aukna bif-
var á nemenda danssýningu I reiðakost, sem lögreglunni
Rigmor Hanson í Nýja Bíó íihefur verið látinn í té.
gær. Hófst sýningin með því
að fjögur pör dönsuðu syrpu
af eldri dönsum, þá- sýndu
fjórar ungar stúlkur valz-
stepp, barnapar,’ 5 og 6 ára,
dansað „Pas-de-Deux, og
barnanemndur, 5 pör, á aldr-
inum 5—9 ára sýndu barna-
dansa. Tvenn unglingapör
sýndu steppdans. Svava Sig-
urjónsdóttir Hanson, dóttir
danskennarans, sýndi rúss-
neskan dans, fjórar ungar
stúlkur, Svava S. Hanson,
Gógó Jóns. Systa Gröndal og
Elín Óskars, sýndu ítalskan
dans (Tarantellu) og loks
sýndu fimm unglingápör
syrpu af nútímadönsum.
Var hinu unga dansfólki
klappað lof í lófa og varð að
endurtaka marga dansana og
að lokum var það marg kall-
að fram á sviðið ásamt dans-
kennaranum.
I umræðum þessum var
gagnrýninni á lögregluna,
að sjálfsögðu eingöngu beint
að yfirstjórn lögreglunn-
ar, en ekki lögregluþjón-
unum almennt, því að vitan-
lega fara þeir eftir skipunum
sinna yfirboðara.
Úrslitaleikur Walf-
erskeppninnar verð-
ur ásunnudag.
ÚRSLITALEIKUR Walt-
erskeppninna, sem ekki gat
farið fram síðastliðið haust,
verður háður næstkomandi
sunnudag kl. 2. Eigast þá við
KR og V-alur. Þetta mun -
sennilega vera í fyrsta sinn
í knattspyrnusögu okkar, sem
mót dregst þannig milli ára.